Tíminn - 12.12.1972, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 12. desember 1972
TÍMINN
9
Leigubílstjórar
og verðlagsnefnd
Vegna greinar i Morgunblaðinu
sl. sunnudag, sem fjallarumdeilu
leigubilstjóra við verðlagsráð, þá
vil ég gefa þessar skýringar, þar
sem vikið er að minni afstöðu til
málsins sérstaklega.
Það er rétt, að ég greiddi at-
kvæði gegn tillögu Úlfs Markús-
sonar og Ölafs Oddgeirssonar á
Glæsibæjarfundinum 29. nóv. sl.,
þar sem voru um 150 manns, eins
og staðfest er af yfirþjóni
staðarins — en ekki 400 manns
eins og Úlfur hefur látið hafa eftir
sér i fjölmiðlum og hjá verðlags-
yfirvöldum.
Ég greiddi atkvæði gegn til-
lögunni vegna þess, að hún fól i
sér ákvörðun um að breyta gild-
andi gjaldskrá fyrir leigubila, án
leyfis verðlagsyfirvalda, og i öðru
lagi vegna þess, að hún kvað á um
það, að einungis skyldi hækka
næturtaxtann, án breytinga á
dagtaxtanum. Tillagan gerði ráð
fyrir, að sú breyting yrði fram-
kvæmd 8. des.,. hvort sem til
kæmi leyfi verðlagsnefndar eða
ekki. Það var óhjákvæmilegt að
láta gera nýja gjaldskrá, ef þessi
næturtaxtahækkun færi
fram, en að breyta gildandi gjald-
skrá, sem staðfest er af verðlags-
yfirvöldum, er ekki heimilt án
leyfis og mundi verða talið gróft
lagabrot.
Ég Ieit svo á, að ekki væri nein
ástæða til þess að hlaupa frá
kröfu okkar um að hækka öku-
taxtann um 24.1% og að sú
hækkun kæmi á dagtaxtann og
svo á aðra liði hans til samræmis
við það, eins og alltaf hefur verið
gert. Það, að hækka einungis
næturtaxta, er litil kjarabót fyrir
þá, sem vinna svo til alla virka
daga, en stunda ekki nætur-
akstur, og þar er um að ræða
mjög stóran hluta bilstjóranna, —
ekki einungis hér i Reykjavik,
heldur einnig á hinum ýmsu
stöðum út um landsbyggðina, þar
sem leigu- og sendibilar eru
notaðir.
Það er orðið ljóst, að sú
ákvörðun Bandal. isl. leigubif-
reiðastjóra að breyta dagvinnu-
tima leigubila til samræmis við
það, sem almennt gerist á vinnu-
markaðnum, þannig að hann sé
frá kl. 8 til kl. 17.00 virka daga,
mælist vel fyrir og er talin eðli-
lega ráðstöfun, þar sem lögleidd
hefur verið 40 st. vinnuvika.
Einn fulltrúi i verðlagsnefnd
hefur orðið fyrir ómaklegum
árásum nokkurra bilstjóra, sem
láta sér sæma að rangtúlka hans
afstöðu i málinu, en hún er alveg i
samræmi við þá ályktun, sem
samþykkt var i Laugarásbiói sl.
laugardag, en þar voru 220 bil-
stjórar og samþykktu i einu hljóði
kröfu Bandal. isl. leigubifreiða-
stjóra um alhliða hækkun á taxt-
anum, en engum var það lengur i
hug, að nægjanlegt væri að
hækka næturtaxtann.
Fulltrúi viðskiptaráðherra tók
einnig afstöðu með tillögu verð-
lagsstjóra, sem var sú, að af-
greiða nú þegar vinnutima-breyt-
ingu og þau atriði, sem henni eru
tengd i kröfum okkar, með fyrir-
heiti um breytingar á ökutaxt-
anum eftir áramótin. En sú til-
laga, sem Björn Jónsson, forseti
A.S.I., ber fram i nefndinni, fól i
sér að samþykkja vinnutima-
styttinguna með þeirri breyt-
ingu, að hún næði ekki til laugar-
dagsins, eins og gert er ráð fyrir i
tillögu verðlagsstjóra.
Tillaga Björns Jónssonar gerir
einnig ráð fyrir hækkun á nætur-
gjaldi frá og með 1. jan. 1973, sem
nemur 12%, en engri hækkun á
dagtaxta, og viðskiptaráðherra
sagði mér, að hann múndi lita á
það sem endanlega afgreiðslu á
málinu, ef tillaga Björns yrði
samþykkt. Það er alveg vist, að
bilstjórar munu ekki sætta sig við
slika afgreiðslu á þessu máli, og
nú þegar hefur verið tekin
ákvörðun af B.l.L.S.um róttækar
aðgerðir, hafi viðunandi af-
greiðsla ekki fengizt fyrir 15. jan.
n.k.
Frá þvi að B.l.L.S. lagði fram
kröfuna um 24.1% hækkun i mai
sl. hafa orðið ótrúlega miklar
hækkanir á ýmsum rekstrar-
liðum, sem varða leigubila, þrátt
fyrir gildandi verðstöðvunarlög,
og við lauslega athugun hefur
komið i ljós, að krafan um 24.1%
er ekki lengur raunhæf. Sá
grundvöllur, sem hún er bundin
við, er nú kominn langt yfir 30%.
Krafan hlýtur þvi að verða tekin
til endurskoðunar nú fyrir ára-
mótin.
Lárus Sigfússon.
1 dag þriðjudaginn 12. desember
kl. 20.30 talar Jan Gumpert frá Bibliotekstjá'nst i Lundi
um þjónustumiðstöðvar fyrir bókasöfn á Norðurlöndum
og um norræna samvinnu á þessu sviði.
Bókavarðafélag tslands og Norrama húsið standa fyrir
þessari dagskrá, sem fer fram i fyrirlestrasal Norræna
hússins. Allt áhugafólk um bækur og bókasöfn eru auð-
fúsugestir. Umræður.
Hókavarðaielag
íslands
NORRÆNA
HÚSIÐ
Viðski ptaf ræði ngu r
Hagfræðingur
Stofnun óskar að ráða viðskiptafræðing
eða hagfræðing til starfa i byrjun árs 1973.
Sjálfstæð vinna — Góð laun.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri
störf sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 20. des. merkt
„2345”
Róbert.
— býSur ávallt beztu kaupin
Nú nýjar gerðir
Meiri afköst og styrkleiki
Meiri tæknibúnaður
og fylgihlutir
Sífellt aukin þjónusta
Lægstu verðin
ZETOR 4712—47 HÖ.
Nýjasta vélin frá Zetor. Millistærð, sem sameinar
kosti minni og stærri véla. Frábærlega vel hönnuð og
tæknilega búin. Lipur og afkastamikil alhliða dráttarvél.
Meiri vél á minna verði.
Með öryggisgrind um kr. 245 þús.
Með húsi og miðstöð um kr. 265 þús.
ZETOR 2511—30 Hö.
Létt og lipur heimilisvél. Sterkbyggð og með mikið
dráttarafl miðað við stærð. Ómissandi á hverju búi.
Ódýrasta fáanlega dráttarvélin á markaðinum.
Verð um kr. 185 þús.
ZETOR 571 &—60 Hö. OG 6718—70 Hö.
Kraftmiklar og sterkar vélar gerðar til mikilla átaka.
Með meiri tæknibúnað og fylgihluti en venja er til,
s. s. húsi, miðstöð, vökvastýri, lyftudráttarkrók o. fl.
Dráttarvélar í sérflokki á hagstæðum verðum:
5718 um kr. 350 þús.
6718 um kr. 385 þús.
„ZETORMATIC" fjölvirka vökvakerfið er i öllum vélunum.
Fullnýtir dráttaraflið og knýr öll vökvaknúin tæki.
Zetor eru nú mest seldu dráttarvélarnar á Islandi. Það eru ánægðir
Zetor eigendur, sem mæla með þeim.
Zetor kostar allt frá kr. 100 þús. minna en margar aðrar sambærilegar
tegundir dráttarvéla — það munar um minna.
Hafið samband við okkur og fáið nánari upplýsingar um Zetor.
Lágmúla 5 Sími 84525
Áríðandi orðsending til bænda
Umsóknarfrestur Stofnlánadeildarinnar fyrir lánum vegna kaupa
á dráttarvélum fyrir 1973, rennur út 31. desember 1972. Leggið því inn
lánsumsóknir strax, eða hafið samband við okkur.
ÍSTÉKK H/F.