Tíminn - 12.12.1972, Blaðsíða 16
14
TÍMINN
Þriðjudagur 12. desember 1972
Þörf hennar fyrir að taka sér eitthvaö fyrir hendur var mun sterkari
en matarþörfin. 1 verkfærakassanum fann hún stingsög, og við það
fylltist hún álíka miklum eldmóði og kæti og þegar hún fann gleraugun
sin og skærin. Hún gæti búið til skýli úr bambusgreinum, fyrst hún
haföi sög. Þar hafði hún fundiö eiröarlausum höndum sinum verkefni
og færðist viö það öll i aukana.
Hún gekk fram og aftur milli skógarins og þess staðar, sem frú Port-
manlá. Húnsagaði niður bambusgreinar og batt þær saman með tvist-
druslum og oliutuskum, sem hún skar I lengjur. öðru hvoru staö-
næmdist hún og beygði sig niður til að tala til sjúklingsins, hún lét hana
dreypa á vatni úr bolla, sem hún hafði fundið innan um matinn i
kassanum — ástúð sú og umhyggja, er hún bar fyrir sjúklingnum.var
óblandin.
Nú var þaö ekki lengur augnaráð frú Betteson, sem var flöktandi,
leitandi og starandi — heldur frú Portmans. Hún lá steinþegjandi og
galopin augun voru á sifellu iöi. f rænulitlu mókinu, sem hún hafði
verið 1 siðan hún komst til meðvitundar eftir slysið, var henni ekki
nokkur leið að festa auga á sama hlutnum lengur en brot úr sekúndu i
einu. Samblandið af ljósi og skugga undir trjánum þreytti hana lika.
„Yður liöur prýöilega er það ekki? Nú bý ég til litinn kofa handa yður
og þegar ég er búin að þvi, þá —”
Já, hvað þá? Frú Betteson var sjálfri ekki alveg ljóst, hvað þá tæki
við og þess vegna þ-gnaði hún.
En þegar hún var aftur tekin til viö sögina og sá hversu vel verkinu
miöaöi hjá henni, gerði hún sér undir eins grein fyrir, hvað hún ætlaöi
að segja.
,,Þá flyt ég yður inn i kofann og fer siöan að sækja hjálp.” Þetta
hafði allan tímann verið takmark hennar, og það ætlaði hún að segja.
En hvaðan átti hún að fá hjálp? Hún hafði ekki hugmynd, um, hvar
hjálpar væri að vænta og var þvi ekkert að velta þvi fyrir sér. í bili var
mest áriöandi að koma litla kofanum i lag. Allt i einu mundi hún, aö
hægt var að kljúfa bambus. Einu sinni fyrir löngu hafði hún séð mann
saga rauf i endann á bambusbút og stinga einhverjum málmhlut i, og
þá hafði bambusbúturinn klofnað næstum af sjálfum sér.
Með að kjúfa bambusgrein i marga hluta var hægt að búa til flatar
fjalir og þær gæti hún notað i veggina og þakið.
Hún reyndi þetta, og strax i fyrstu tilraun tókst henni að kljúfa
bambusgrein endanna á milli meö miklum ágætum. Hún var ákaflega
upp með sér af að hafa látið sér detta þetta i hug. Henni kom til hugar,
að vafaláust væri hægt að kljúfa greinina i fjóra eða jafnvel fleiri hluta
einu, en hún var alltof hreykin af þeim árangri, sem hún náði fyrst,til
að kæra sig um að endurbæta aöferöina. Hún hamaðist við þetta i svita-
blautum nærfötunum. Kvöldiö áður hafði hún farið úr skónum, þegar
hún vakti yfir frú Portman,og siðan hafði hún ekkert imunað' eftir aö
fara i þá aftur Nú var sandurinn orðinn sjóðandi heitur, og I hvert
skipti sem hún neyddist til að fara úr skugganum undir trjánum, sveið
hana hræöilega i iljarnar. Loks komst hún ekki hjá þvi að gera andar-
taks hlé á verkinu til að klæða sig i skóna. Þegar hún beygði sig til að
reima skóna, tók hún i fyrsta sinn eftir, hvernig svitinn streymdi niður
hálsinn á henni oe niður á milli brjóstanna, og um leið uppgötvaði hún,
Áttþúhlutí
banka?
Samvinnubankinn hefur ákveðið
hlutafjaraukningu í allt að
100 milljónir króna.
Öllum samvinnumönnum er boðið
að eignast hlut.
Vilt þú vera með?
SAMVINNUBANKINN
hversu ofboðslega þyrst hún var. Gómurinn og kokið voru likt og ryk-
fallin, og hún fann, hve innantóm hún var orðin. Vinnugleðin var í
fyrsta sinn trufluð af likamlegum óþægindum og þorsta.
Um nónbilið var kofinn tilbúinn til notkunar. Þetta var ferkantað
skýli með tveim veggjum og þaki, rúmlega einn og hálfur metri á hæð
og breidd. Fjalirnar i veggjunum og þaki voru það gisnar, að birta og
loft komst óhindrað i gegn, en vörnuðu þó sólargeislunum inngöngu.
Það var blæjalogn og þegar kofinn var tilbúinn sat frú Betteson um
stund við höfuð frú Portmans og sveiflaði spjaldi sem hún hafði fundið
inni i bilnum, yfir andliti sjúklingsins. Þá var að minnsta kosti dálitill
andblær um höfuð frú Portmans ,og sjálfri var henni nóg að hafa
eitthvað fyrir starfi. Yfir trjátoppunum sveif aragrúi af hrægömmum
hring eftir hring, og svartir skuggar þeirra liöu i sifellu yfir kofaþakið.
Svitinn rann niður enni og kinnar frú Betteson og draup niður á
vasaklútinn i höndum hennar. Hún notaði hann til að þerra andlit frú
Portmans og að lokum var hann orðinn volgur og gegnblautur. Frú
Betteson lagði hann til þerris út i sólskinið og fór siðan úr nær-
skyrtunni, sem var límd við hana, vatt hana og lagði hana siðan við
hliðina á vasaklútnum. Hún var þvi óvön að vera nakin úti, og henni
fannst sem sjóðheit járnplata væri lögð á bak sér, þegar sólin skein á
það bert, og hitinn vakti þorstann á ný.
Hún hugleiddi hvort hún ætti aö fara að búa til te. Te hafði hún alger-
lega útilokað i huga sinum, meðan hún bjástraði i hitasvækjunni við að
koma upp kofanum, hún hafði átt allt of annrikt til að hugsa um slikt.
Nú blossaði löngunin upp ennþá sterkari en fyrr.
en fyrr.
Aftur leitaði hún huggunar i vinnunni. Hendurnar, með löngu grönnu
fingrunum, fundu aftur nauðsynlegt verkefni. Þær voru heldur ótót-
legar þessar hendur, en starfsamar, og Tuesday hafði óneitanlega
staðið stuggur af þeim þann langa dag, sem þær höfðu árangurslaust
reynt að gera allt, sem i þeirra valdi stóð.til að gera honum vistina
ánægjulega. Það gæti vist ekki nokkur maður fundið upp á að kalla
þessar hendur snotrar eða jafnvel bara þokkalegar, en þegar hún var
að vinna, var þótt ótrúlegt megi virðast, eitthvað aðlaðandi við þær.
,,Nú ætla ég að fara að búa tii te handa yður, þvi að yður langar i
tebolla, er það ekki?” Hún hafði lotið yfir frú Portman og talaði lágt og
bliðlega við hana. „Haldið þér ekki, að dásamlegt væri aðfá tebolla?”
Hún þerraði svitann af fölu enninu á frú Portman með vasaklútnum,
sem fyrir löngu var orðinn þurr. „Það verður stórkostlegt, er það
ekki?”
En hvernig átti hún að bera sig til við það? Andartak stóð hún og
vissi ekki sitt rjúkandi ráð, en svo rann það upp fyrir henni, að hún gæti
notaötóma kexdós til að sjóða vatnið i. Þetta minnti hana á englabarn-
------------------1
/Það er eina ráðið
, Hvellur. Vopnaður
flqkkur myndi
Þetta er svo litið V Jæja.barón,,
snúið,en við gætum ertutil.u____--
þá náð Sören út. /^ <■ ) Þú I
' þekkir mig,
' Við iðjulausu aðals1' \
mennirnir látum ekki'
slikt ferðarag
úr hendí sleppa.
lill IIIWHil I
Þriðjudagur
12. desember
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar. 12.25 Fréttir
og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið
14.15 Til umhugsunar: þáttur
um áfengismál Rætt við
prófessor Tómas Helgason
14.30 Siðdegissagan: „Gömul
kynni” eftir Ingunni Jóns-
dóttur Jónas R. Jónsson á
Melum les (14)
15.00 Miðdegistónleikar: Tón-
list eftir Hugo Alfvén
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
Tylkynningar.
16.25 Popphornið Þorsteinn
Sivertsen kynnir
17.10 Framburðarkennsla i
þýzku, spænsku og
esperanto
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Sagan hans Hjalta litla”
eftir Stefán Jónsson. Gisli
Halldórsson leikari les (22)
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Fréttaspegill
19.35 Umhverfismál
19.50 Barnið og samfélagið
Þorsteinn Ólafsson kennari
talar um rétt fatlaðra barna
til menntunar.
20.00 Lög unga fólksins
Sigurður Garðarsson kynnir
20.50 íþróttir
21.10. Á bóka m arkaðinum
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Rannsóknir og fræði Jón
Hnefill Aðalsteinsson fil.lic.
talar við Jón Óttar
Ragnarsson lektor um mat-
vælafræði.
22.45 Á hljóðbergi Maria
Stuart, sorgarleikur eftir
F"redrich Schiller
23.45 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
20.25 Veður og auglýsingar
20.35 Ashton-fjölskyldan.
Brezkur framhaldsmynda-
flokkur. 33. þáttur. Þýðandi
Heba Júliusdóttir. Efni 32.
þáttar: Jean Ashton kemur i
i heimsókn til Sheilu,
tengdadóttur sinnar, en
stendur stutt við. Hún er
rugluð og viðutan og ráfar
ósjálfrátt til æskuheimilis
sins, sem orðið hefur fyrir
loftárás, og er i rústum. Þar
veikist hún hastarlega, en
gamall fjölskylduvinur
kemur henni á sjúkrahús.
Edwin kemur heim af
kránni og lendir. Irimmu við
Shefton, sem er þar fyrir.
Fréttir berast frá sjúkra-
húsinu um veikindi Jean og
fjölskyldan hraðar sér
þangað. Hún andast um
kvöldið og Davið, sem dval-
ið hefur i Lundúnum, kemur
heim til þess að vera viðút-
förina.
21.30 Skiðagaman. Stutt kvik-
mynd um skiðamennsku og
vetrarlif i Kanada.
21.50 Á yztu nöf. Sænsk kvik-
mynd um sjálfsmorð og til-
raunir manna þar i landi, til
að koma i veg fyrir þau.
Rætt er við lækna og fólk,
sem hefur ætlað að svipta
sig lifi, um orsakirnar til
þess að menn gripa til þessa
óyndisúrræðis i vandræðum
sinum, imynduðum eða
raunverulegum. Þýðandi
Jón O. Edwald.
(Nordvision — Sænska
sjónvarpið)
22.20 Umræðuþáttur. Að
myndinni lokinni hefjast i
sjónvarpssal, umræður um
efni hennar. Umræðum
stýrir dr. Kjartan Jóhanns-
son, en aðrir þátttakendur
eru séra Jakob Jónsson,
Jóhannes Pfoppe, deildar-
stjóri og Tómas Helgason,
prófessor.
22.50 Dagskrárlok