Tíminn - 17.12.1972, Side 21
Sunmidagur 17. desember 1972
TÍMINN
21
PÍPULAGNIR
Stilli hitakerfi —
Lagfæri gömul hita-
kerfi
Set upp hreinlætis-
tæki — Hitaveitu-
tengingar
Skipti hita — Set á
kerfið Danfoss-ofn-
ventla
SÍMI 36498
Dóttirin
- skemmtisaga fyrir
unglingsstúlkur
Dóttirin, heitir bók fyrir
unglingsstíilkur, nýkomin út hjá
Leiftri. Þorlákur Jónsson þýddi,
en höfundurinn er sænsk kona,
Christina Söderling-Brydolf.
Aöálsöguhetjan er Myra, 14 ára,
sem lýsir sjálfri sér á þessa leið:
— Ég hef brún augu og stóran
munn eins og pabbi. Og á sumrin
er andlitið þéttsetið freknum.
Ekki er það skemmtilegt, en með
haustinu fara þær að minnka,og
þegar kemur fram á veturinn.fer
ég loksins að lita út eins og al-
mennileg manneskja. Svo hef ég
langa og mjóa fótleggi, en þeir
munu gildna með aldrinum,
segir pabbi.
Pabbi Myru er listamaður, sem
ekki hefur enn hlotið verð-
skuldaða frægð. Mamma er lág
og þrekin og alltaf liggur vel á
henni, á hverju sem gengur. Saga
þessi mun vera mjög skemmtileg
aflestrar. Bókin er 133 blaðsiður,
prentuð hjá Leiftri.
Börnin í Bæ og sagan af kisu,
heitir barnabók eftir Kristinu R.
Thorlasius. 1 bókinni eru tvær
sögur, önnur um börnin fimm i
BÆ en það er mamma þeirra sem
söguna segir einn leiðinlegan
rigningardag. Hitt er saga.n um
kisuna Perlu Penelópe,og það er
kisa sjálf, sem þar segir frá, en
hún er raunar i eigu barnanna
fimm i Bæ. Þétta er létt og
skemmtileg bók handa stálpuðum
börnum. Hún er 100 blaðsiður að
stærð og- i henni eru skemmti-
legar teiknimyndir, en höfundar
þeirra er ekki getið.
SA61T186 Sjónvarpstæki
SA5929A 2X30W Hi-Fi stereo magnari
. . . . X'
Jólaseriur úti og inm - w
Seríuperur - Litaðar Ijósaperur
SA9118AT Kassettu-segulbandstæki
f. rafhlöður eða 240V.
Eitt elzta og virtasta gæðamerki
hljómflutningstækja á markaðinum.
RAFTÆKJADEILD HAFNARSTRÆTI 23 • REYKJAVlK • SlM118395
SA 8479 A Hi-Fi stereo plötuspilari
IERA
Annað bindi bréfa til
Stephans G.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs og
Þjóðvinafélagsins hefur gefið út
annað bindi af bréfum til
Stephans G. Stephanssonar, og
licfur Finnbogi Guðmundsson
landsbókavörður valið efni i
bókina og anna/.t útgáfuna eins
°g hins fyrra bindis.
Að þessu sinni birtast bréf frá
Birni Péturssyni,er um eitt skeið
var þingmaður Sunnmýlinga,
Frimanni B. Arngrimssyni,
hinum kynlega kvisti, sem lauk
ævi sinni á Akureyri, Margréti J.
Benediktsson, ritstjóra vestan
hafs, Jónasi Hall, einum
tryggasta vini Stephans G. vestan
hafs, skáldinu K.N. og séra Rögn-
valdi Péturssyni i Winnipeg,
mikilli hjálparhellu Stephans G.
Eins og kunnugt er, voru fyrir
allmörgum árum gefin út öll bréf
Stephans G., hið ágætasta safn,og
nú verður þess enn fyllri not, er
við bætast þau bréf, sem vinir
hans og samtiðarmenn skrifuðu
honum. Er öllum aðdáendum
Stephans G. hinn mesti fengur að
þessari útgáfu.
Skemmtileg barnabók:
Börnin í Bæ og
sagan af kisu
Tónleikar
Jólatónleikar verða i Háteigskirkju
sunnudaginn 17. des. klukkan hálf ellefu
um kvöldið.
Flytjendur:
Jón Sigurðsson, trompetleikari, Guðrún Tómasdóttir,
Guðfinna Dóra ólafsdóttir, Ruth L. Magnússon ásamt
blönduðum kór.
Stjórnandi: Martin Hunger.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Sóknarnefnd Háteigskirkju.
Gamanskáldið K.N., Jónas Hall og Stephan G. Stephansson.
Útboð á múrverki
Tilboð óskast i einangrun, vegghleðslu og
múrhúðun úti og inni i hús Sjálfbjargar
við Hátún no. 12, Reykjavik.
Hússtærð um 12,700 rúmm.
Útboðsgagna má vitja á Teiknistofunni s.f. Armúla 6 gegn
3000 kr skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað mánudaginn 22. jan.
n.k. kl 11
Hússtjórnin.