Tíminn - 06.01.1973, Qupperneq 1
ALÞÝÐU-
BANKINN HF.
j
WQTEL miMIR
V EITINGABÚD
,,Hótel Loftleiðir" er nýjung I hótel-
rekstri hérlendis, sem hefur náð skjót-'
um vinsældum. Góðar veitingar, lipur
þjónusta, lágt verð —og opið fyrirallar
aldiri
BÝDUR NOKKUR BETUR!
-
VESTURTIL
VIÐRÆÐNA
Tk-Reykjavik
Einar Agústsson utanrikisráö-
herra, mun fara vestur til Banda-
rikjanna um mánaðamótin ásamt
nokkrum embættismönnum utan-
rikisráðuneytisins til viðræöu við
Bandarikjastjórn um endur-
skoðun varnarsamningsins frá
1951.
Enn er ekki afráðið hvaða dag
viðræður þessar hefjast. Þaö
verður þó ekki fyrr en eftir
embættistöku Nixons forseta,
sem verður 20. jan.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR
ÁRSINS
Akurnesingurinn Guðjón
Guðmundsson hefur verið kjörinn
iþróttamaður ársins fyrir
sundafrek sin.
Guðjón er sonur Guðmundar
Guðjónssonar og konu hans,
Ragnhildar, á Sunnubraut 17 á
Akranesi, og verður tuttugu og
eins árs i dag. Hann byrjaði aö
iðka sund i Bjarnalaug fyrir tólf
árum, og hefur þjálfaö sig þar
alla stund siðan, nema siöast liöið
ár, er hann hefur verið við
rafvirkjanám i Reykjavik.
Sjá iþróttasiður blaðsins i dag.
LOFTSBRYGGJA ÚR LEIK
Það lætur enginn bátur framar
úr höfn frá Loftsbryggju. Kynstr-
um af sandi hefur verið dælt i
uppfyllingu, þar sem hún var, og i
gær voru menn að baksa við að
draga hluta af bryggjunni upp úr
sanddyngjunni með öflugum vél-
um og miklum tilfæringum. Það
var alls ‘ ekki leikur.
Auk þess spá sumir þvi, að það
kunni að hafa eftirköst, að
bryggjustólpar urðu eftir niðri i
sandinum, þvi að þegar þeir fúna
með tið og tima, er ekki óliklegt
að uppfyllingin sigi sem nemur
fyrirferð þeirra.
En hvað um það: Loftsbryggja
hefur lokið hlutverki sinu og fer á
sorphaugana eins og annað, sem
er gamalt og úr sér gengiö og ekki
lengur til þess nýtt, er þaö var
upphaflega ætlað. Þess má að
lokum geta, ef einhverjum kynni
að vera forvitni á þvi, að hún var
kennd við Loft Loftsson útgerðar-
mann, sem seinna varö þjóðkunn-
ur af útgerð sinni i Sandgerði. —
Timamaynd: Gunnar.
EINAR FER
HUNGRIÐ í HEIMIN-
UM ÚR SÖGUNNI?
— blanda af sojabaunum og mjólk inniheldur öll bætiefni
SB-Reykjavik
Allt útlit er nú fyrir aö óhætt sé
að hætta að óttast hungursneyð i
heiminum um langa framtið.
Austur i Malaysiu hefur verið
fundinn upp drykkur einn, sem
hefur inni að haida öll þau bæti-
efni, sem mannslikaminn
þarfnast og það i rikum mæli. t
drykk þessum eru aðeins soja-
baunir og nýmjólk.
Kári Guðmundsson, heil-
brigðisráöunautur rikisins,
skýrði Timanum frá þvi i gær, að
hann hefði fengið skeyti frá vini
sinum, sem starfar i Malaysiu.
Er þar sagt frá þessari stórkost-
legu uppgötvun. Drykkurinn
hefur verið rannsakaður lengi og
vandlega á rannsóknarstofum og
reynzt vera frábær fæða i öllu til-
liti.
Framleiðsla drykkjarins er nú
hafin þar eystra i stórum stii, þvi
nóg er til á þessum slóðum af
sojabaunum og mjólk. Helzti
vandinn i þessu sambandi er að
koma þessari kostafæðu til
þeirra, sem þurfa mest á henni að
halda.
Þar sem samsetning þessa
drykkjar er svo ákaflega einföld,
má virðast undarlegt, að engum
skuli fyrr hafa dottið i hug að
blanda saman mjólk og soja-
baunum, en kannske er það ein-
mitt þess vegna. En eftir itar-
legar rannsóknir er ekki um að
villast: Blandan reynist einn holl-
asti drykkur, sem til er.
Þar sem gifurlegt magn er
ræktað af sojabaunum i Austur-
löndum, ætti mannfólkið ekki aö
þurfa að kviða hungri i heiminum
á næstunni, svo framarlega, sem
baunirnar fá að vaxa og þeir
sveltandi fá að njóta
uppfinningarinnar.
Stærra blað — fleiri nýjungar
Timinn mun stækka til
muna á þessu ári, sem er nú
nýbyrjað, og verður jafnframt
fitjað upp á ýmsum
nýjungum, er koma til
sögunnar smátt og smátt. A
morgun hefst kynning Timans
á islenzkum fyrirtækjum. Er-
lendur Einarsson forstjóri
riður á vaðið og kynnir Sam-
band islenzkra samvinnu-
■félaga i viötali, er Valgeir
Sigurösson átti við hann einn
af fyrstu dögum ársins. Siðan
munu kynningar af þessu tagi
reka hver aðra næstu sunnu-
daga.
Að þvi er stefnt að blaðið
verði um tiundrað og sextiu
siður á viku, þar af fjörutiu
siðna blöð á laugardögum og
sunnudögum. Sunnudagsblað
Timans mun verða hluti af
laugardagsblaðinu eins og
verið hefur, og Islendinga-
þættir munu koma út áfram,
þó með þeirri breytingu, að
þeir veröa færri siður i hvert
skipti. Munu þeir fylgja
blaðinu þeim mun oftar, og
eiga afmælisgreinar og
minningargreinar þvi ekki að
þurfa að koma eins eftir sig á
og verið hefur.
Aður hefur verið tekin upp
regluleg birting brúðhjóna-
mynda með verðlaunum, sem
veitt verða mánaðarlega. Nú
um helgina verður dregið um
þau i fyrsta skipti, og siðan að
mánuöi liðnum úr brúðhjóna-
myndum, birtum i janúar-
mánuði, þó meö þeim fyrir-
vara, að hjónavigslan hafi
annað tveggja farið fram i
desember siöast liðnum eða
janúar. Verður þannig haldið
áfram koll af kolli.