Tíminn - 06.01.1973, Blaðsíða 5

Tíminn - 06.01.1973, Blaðsíða 5
Laugardagur 6. janúar 1973 TÍMINN 5 Upplausn í ríkisstjórn Nixons? Sögur herma, að Laird varnar- málaráðherra Bandarikjanna vilji ekki þjóna Nixon annað kjörtimabil og einnig heyrist.að Rogers utanrikisráðherra vilji losna úr prisundinni. Fyrr- verandi ambassador i Bonn, Kenneth Rusk, heyrist æ oftar nefndur sem arftaki annars hvors þeirra. ☆ Fimmtán ára í Háskóla Serjosja Anufrief lauk mið- skólanámi frá skóla númer 17 i Rostof og fékk gullverðlaun fyrir frammistöðu sina. Þrátt fyrir það neitaði móttökunefnd Læknaháskólans i Rostof að taka inntökubeiðni hans til greina. Ástæðan var síi, að hann var aðeins 15 ára gamall. Mennta- málaráðuneyti æðri- og mið- skólamenntunar blandaði sér i málið. Með sérstöku leyfi fékk Serjosja að taka inntökuprófin. Nú er hann læknisfræðistúdent. Dagblaðið „Vetsjernij Rostof' skrifar, að Serjosja hafi farið út á sömu braut og móðir hans, en hún er læknir, og faðir hans er flugmaður. Snáðinn var sex ára, þegar hann byrjaði að ganga i skóla og sýndi einstaka hæfileika með þvi að taka þrjá bekki á einu ári. Sem sagt, i læknaskólanum i Rostof, hefur bætzt 15 ára læknastúdent i hópinn — ☆ Frost, frú og dóttir Hér fáið þið að sjá David Frost og kærustuna hans, Diahann Carröll.Diahann á reyndar stóra dóttur, sem verður þá væntan- lega stjúpdóttir Frosts áður en langt liður, því Frost ogCarroll hafa ákveðið að rugla saman reitum sinum um næstu páska. Myndin var tekin af David, Diahann og Suzanne, þegar verið var að frumsýna jólasýn- ingu, sem Frost hafði sett á svið i Duke of York leikhúsinu i London. Nafn sýningarinnar er Once Upon A Time. Andy ástfanginn Skyldi hinn heimsþekkti bandaríski söngvari Andy Williams vera kominn i nýtt ástarævintýri? — Englendingar segja, að svo sé, þvi að Andy sést nú oft á ferli með hinni fall- egu leikkonu Glenda Allen, og i upphafi eiga þau að hafa kynnzt á Crystal Palace Bowl i London, hvar Andy hélt hljómleika. Hún er 22 ára, en hannn 41. En Andy, sem við sjáum hér á myndinni ásamt Glendu, segir: Það eru ekki aðrar konur i minu lifi, en eiginkona min Claudine, þó svo að við búum ekki saman i augnablikinu. Og Glenda, sem kemur frá Cromer i Norfolk, segir: — Hann (Andy) er yndis- legur maður, og ég er yndisleg stúlka. Það er það eina.sem ég segi um okkar mál. ☆ Ný flik handa síamstvi- burum og öðrum, sem raunverulega elskast Engin takmörk virðast fyrir uppfinningum mannanna. Ein hin nýjasta er flik, gerð handa siamstviburum, og þeim , sem eru svo hrifnir (hrifin) hvor af öðrum, að þeir vilja helzt fara i sömu spjörina á sama tima. Flikin hefur tvö göt fyrir höfuðin ásamt tveim ermum, en i mittishæð er eitt gat, nákvæm- lega stærðaráætlað til að elskendurnir geti þar i gegn fléttað saman hendur sinar. ☆ Aftur farin aó leika Leikkonan Jean Peters, sem nú er 45 ára og hætti öllum kvik- myndaleik, þegar hún gekk að eiga milljónamæringinn Howard Hughes árið 1957, hefur nú aftur snúið sér að leik- listinni og er byrjuð að leika i sjónvarpskvikmynd I Banda- rikjunum. Peters skildi við Hughes i júni 1971, en nýlega giftist hún á nýjan leik, og i þetta sinn Stanley Lee Hough, 53 ára gömlum varaforstjóra kvik- my ndafyrirtækisins 20th Century Fox. ☆ . Vildi ekki stúlku i jóla- sveinhlutverkið Cynthia nokkur Larson, 19 ára gömul, i borginni Des Moines i Iowa hefur farið i mál við for- stöðumann auglýsingafyrirtæk- is, sem neitaði að ráða hana i hlutverk jólasveins. Fyrirtækið auglýsti eftir einhverjum til þess að leika jólasveina og réð tvo unga menn, en hafnaði Cynthiu. Þetta þótti henni vera óréttlátt og taldi, að ekki hefði verið ástæða til þess að velja fremur karlmenn en kvenmenn i þetta hlutverk. í réttinum bar forstöðumaður auglýsingaskrif- stofunnar, að hann hefði út af fyrir sig ekki haft neitt á móti Cynthiu persónulega, eða sem kvenmanni, en honum hefði fundizt piUarnir vera jóla- sveinslegar vaxnir, og þess vegna hefði hann valið þá frem- ur en stúlkuna. Dómur hefur enn ekki verið kveðinn upp i þessu máli, en liklegter talið, aö Cynthia vinni ekki sigur, þar sem ekki hafi verið um mismun kynjanna að ræöa.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.