Tíminn - 06.01.1973, Blaðsíða 9

Tíminn - 06.01.1973, Blaðsíða 9
Laugardagur 6. janúar 1973 TÍMINN 9 Þessi orangutanstelpa fæddist i Álaborg og er fyrsta barn sinnar tegundar, sem fæðist i Danmörku. Á myndinni er hún vikugömul. urgerð, og i suraar litu tiu flamingóungar dagsins ljós. Þá hefur það vafalaust hjálpað, að fæðunni var breytt, þannig að nú fengu fuglarnir lifandi fæðu, sem þeir urðu sjálfir að hafa fyrir að leggja að velli. Slíkt skapar til- breytingu i lifið og það hefur fugl- unum vafalaust likað vel, þvi nú halda þeir áfram að vera rauðir. Dýragarðar hafa þegar byrjað að senda dýr sin aftur til náttúr- unnar. Til dæmis voru 200 Hawai- gæsir sendar aftur til sins heima úr mörgum dýragörðum, þar sem þær höfðu allar skriðið úr eggjun- um. úr Kaupmannahafnargarð- inum voru sendar allar, nema fá- einar, semátti að nota til að fjölga stofninum þar. En ekkert varð úr þvi. Refur nokkur kom i heim- sókn og át þær allar á einni nóttu. Ógnir menningarinnar í Vestur-Þýzkalandi hefur á siðustu árum verið sleppt 195 hornuglum úr dýragörðum, en þær hafa átt erfitt uppdráttar á sinum eigin vegum. Ekki vegna náttúrunnar, heldur menningar- innar. Um 40% þeirra hafa fund- izt sundurtættar eftir árekstra við háspennulinur og vélknúin farar- tæki. Álika hópur hefur beðið sömu örlög án þess að finnast. Það er ekki einungis erfitt að senda dýr aftur til náttúrunnar — það er einnig dýrt. Aðeins kostn- aðurinn við heimsendingu gæs- anna 200 nam hátt á aðra milljón (isl.) króna, og ef dýragarðar halda þessu eitthvað áfram, þó ekki sé nema i tilraunaskyni, kostar það milljarðatugi. Eins og fjárhagsástæður dýragarða eru, er þetta ómögulegt — margir þeirra berjast i bökkum fyrir þvi einu að vera til. En ef afkomendur okkar eiga að fá að sjá einhver önnur dýr en þau uppstoppuðu á söfnum, verða rikisstjórnir að taka á sig kostn- aðinn við að viðhalda dýralifi á jörðinni. Spurningin er nefnilega ekki um að hafa efni á þessu, heldur að hafa efni á að gera það ekki. (Þýtt SB) Litli jagúar-hvolpurinn unir hag sínum vel i dýragarðinum, en væri hann frjáls mundi hann að lfkindum enda sem pels i dýrri verzlun. Leikfélag Reykjavikur hefur sýnt i vetur barna- og unglinga- leikritið Leikhúsálfana, sem byggt er á einni af sögum Tove Jansson um Múmminsnáðann og kunningja hans og hressileg ævintýri þeirra. 1 leiknum er fjallað um veröld leikhússins og mikið um sprell og gaman i sam- bandi við það. Næsta sýning er á sunnudaginn kl. 3, en aðeins nokkrar sýningar eru nú eftir. Myndin er af Múmminsnáðan- um (Borgar Garðarsson leikur hann), Sólveigu Hauksdóttur, Sigriði Hagalin og Guðrúnu As- mundsdóttur i hlutverkum sinum. Opið bréf til Torfa Halldórssonar Ævisögur og frásagnaþættir hafa orðið æ stærri þáttur i bóka- útgáfu okkar nú á undanförnum árum, enda af miklu efni að taka, þar sem athafna- og afreksmenn hafa verið færir um að sýna sinar beztu hliðar og getað látið ljós sitt skina nú á siðustu og mestu upp- gangstimum þjóðarinnar. En þegar ég heyrði, að þú, Torfi Halldórsson, hefði'skrifað bók um það timabil, er sildveiðar voru nýhafnar með snurpinót, ásamt þvi er aðrar veiðiaðferðir þróuð- ust ört, þá þótti mér skörin vera farin að færast upp i bekkinn. Þar hefði þurft að koma til meira val- menni og afreksmaður. Þú, sem náðir yfirleitt ekki nema meðal- afla i sildveiðum á sumrin og hafðir aldrei hörku til að stunda þorskveiðar á vertið með nokkr- um árangri. Ég hefði látið þessa illa skrif- uðu bók þina „Klárir i bátana” afskiptalausa ásamt ölium þeim rangfærslum, er þar koma fram, hefði ekki góður vinur minn, er þú sendir bókina til nýútkomna, bent mér á að athuga hana gaumgæfi- lega vegna niðrandi skrifa þinna um föður minn, Sæmund Tryggva Sæmundsson skipsstjóra. t kaflanum „Vera min á Fróða” bls. 57 i bók þinni skrifar þú nokkrar siður um sildveiðar sumarið 1925, er ég ætla að rekja hér, að þvi er viðkemur Sæmundi. — Þorsteinn Eyfirðingur, skip- stjóri, var meðeigandi i nýkeypt- um 100 lesta báti, s/s Fróða. Hann hafði þó ekki skipsstjórnarrétt- indi á þetta stóran bát og var þar að auki óvanur sildveiðum, hann fékk þvi Sæmund sem skipstjóra og nótabassa þetta sumar. Ég spyr þig, Torfi, hvort ástæða er til að kalla Sæmund lepp undir þess- um kringumstæðum? Sæmundur var þá 56 ára og var þetta siðasta skipsstjórn hans á fiskibáti. Þá hafði hann stundað sjómennsku i yfir 40 ár, þar af skipsstjórn i 35 ár. Hann stjórnaði flutningaskip- um eitthvað eftir þetta. Sumarið 1922 var Sæmundur skips tjóri á m/s Kristjáni, er Guðmundur Pétursson frá Akureyri átti. Kristján var rúmlega 100 lesta bátur, eitthvað stærri en Fróði. Þú ferð þvi með hrein ósannindi i bókinni, þegar þú segir Sæmund ekki hafa verið áður með svo stóran bát sem Fróði var og er þú telur, að hann hafi ekki kunnað að fara með svo stóran bát. Ég var með Sæmundi, föður minum, á Kristjáni og ég man, að Sæmund- ur lét setja stór aukalensport á Kristján, áður en við byrjuðum sildveiðar. Ég get þvi fullyrt, að þú ferð með hreinan þvætting, þegar þú berð á Sæmund, að hann hafi lokað ölluð spúgötum og lens- portum á Fróða og stofnað skipi og mönnum i hættu eins og þú vilt láta i veðri vaka. Varðandi skrif þin um viðskipti Sæmundar og Þorsteins i þessum kafla virðist þú gera þér far um að hallmæla Sæmundi og lítilsvirða í öllum til- vikum. Min geturðu i bók þinni á bls. Sæmundur Sæmundsson, skip- stjóri frá Látrum. 152 i óleyfi og óþökk. Sú grein er að hálfu leyti ósannindi. Ég ætla ekki að liða þér að kasta rýrð á æfiferil Sæmundar sem eins svipmesta skip- stjórnarmanns og persónuleika sins tima. En hann var einn al- mesti aflamaður sinnar samtiðar og hlekktist honum aldrei á á sin- um langa skipsstjórnarferli. Um hann má lesa i æfisögu hans, „Virkum dögum”, er Guðmundur G. Hagalin skráði. Ég veit, að enginn heiðvirður maður, er til ferils hans þekkti, hefur annað en gott eitt að segja frá allri hans framkomu og sama er aðsegja um öryggi og útbúnað þeirra skipa, er hann var skipstjóri á. Vissulega var Sæmundi, sem og öðrum miklum sjósóknurum, kappsmál að hafa valinn mann i hverju rúmi. Hann var ósérhlif- inn sjálfur og krafðist mikils af sinum mönnum, enda átti hann ætið kost á úrvalsskipshöfn, svo að „skipaskækja og spilafifl”, eins og þú tæpir á um sjálfan þig i bók þinni, hefur vart átt upp á pallborðið hjá Sæmundi. Eins og fram kemur i bók þinni bls. 59-60, þá skrifaði Sæmundur i sjóferðabók þina eftirfarandi vitnisburð um þig eftir sild- veiðarnar 1925 á Fróða: „Hegðun miður góð”. Þá skrifar þú áfram i bók þinni: „Ekki erfði ég þetta við Sæmund en sagði honum að ég myndi gefa honum vitnisburð i „Vesturlandi” er þá var gefið út á ísafirði og er reyndar enn. Ég gerði það auðvitað aldrei.” Ég spyr þig, Torfi Halldórsson, hvi gafstu ekki Sæmundi vitnisburð i „Vesturlandi,” árið 1925? Ég ætla aðsvaraþessu fyrir þig, þvi að jafnmikiil orðhákur og svola- menni eins og þú hefur alla tið verið, hefði vist örugglega birt vitnisburð um Sæmund i „Vestur- landi”, ef nokkur möguleiki hefði verið að standa á sliku. Þú lézt það vera að skrifa i „Vesturland” þinn vitnisburð um Sæmund vegna þess, að þú áttir ekkert nógu haldgott til að klekkja á hon- um, þvi að þá fyrir hartnær hálfri öld hafðir þú ekki átt þér við- reisnarvon, hefðir þú farið að bera upp á Sæmund þvætting og ósannindi, er þú heldur, að þér sé óhætt nú, þegar hann hefur legið undir grænni torfu i 15 ár. Þú ert það auvirðileg smásál að rækta með þér gremju til Sæ- mundar allan þennan tima vegna sanngjárns vitnisburðar hans um þig og þakka honum með svi- virðingum þá hjálp(er hann veitti ykkur Fróðamönnum með þvi að kenna ykkur sildveiðar. Þú myndir vaxa i áliti, Torfi Halldórsson, ef þú bæðist opin- berlega afsökunar á skrifum þin- um um Sæmund. Það verður þér til enn meiri vansæmdar, ef þú reynir að klóra i bakkann og snúa við staðreyndum. Reykjavik 5. jan. 1973 Jón Sæmundsson Þingholtsstræti 30

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.