Tíminn - 06.01.1973, Blaðsíða 19

Tíminn - 06.01.1973, Blaðsíða 19
Laugardagur (1. janúar 1973 TÍMINN 19 Umsjón: fllfreð Þorsteinsson 3. deildar- keppnin hefst um helgina Keflavík og Akranes leika fyrsta stórleik ársins í knattspyrnu - liðin mætast um miðjan febrúar í Reykjavík. Leikur liðanna sker úr um það, hvort liðið leikur í UEFA-bikarkeppninni í sumar fyrir hönd íslands - fjögur lið taka þátt í keppninni Eins og menn muna, þá hefur veriö tekin upp 3. deild í handknattleik og taka fjögur lið þátt í þessari nýju deild, það eru Afturelding, Þór Vestmannaeyjum, Völsungar og isfirðing- ar. Nú um helgina verð- ur leikin fyrri umferðin í 3. deildarkeppninni, en síðari umf. verður leikin síðar i vetur. 1 dag kl. 19 leika i Laugar- dalshöllinni: Völsungar Þór Afturelding ísafjörður Á morgun verða leiknir tveir leikir i iþróttahúsinu i Hafnarfirði og hefst fyrri leik- urinn kl. 15.00. ísafjörður Þór Afturelding Völsungar Nú er kominn sá timi, að knatt- spyrnumenn taka fram knatt- spyrnuskóna og fara að hugsa sér til hreyfings. Þjálfarar liðanna eru nú að undirbyggja iiðin fyrir hinar ýmsu knattspyrnukeppnir, sem liðin taka þátt i i vor og sum- ar. Eins og alltaf, þá eru þau félagslið, sem taka þátt i Evrópu- kcppnunum þremur, fremst i sviðsljósinu. Fram tekur þátt i Evrópukeppni meistaraliða, sem islandsmcistarar 1972, Vest- inannaeyjaliðið tekur þátt i Evrópukeppni bikarmeistara. Ekki er enn vitað hvaða lið tekur þátt i UEFA-bikarkeppninni — Keflvikingar og Akurnesingar þurfa að leika aukaleik um það, hvort liðið tekur þátt i UEFA- bikarkeppninni, þar sem liðin voru jöfn að stigum i islandsmót- inu, bæði liðin hlutu 15 stig og þar sem rcglur KSÍ scgja, að það lið sem lilýtur þriðja sæti i 1. deildar- kcppninni skuli hljóta rétt til að leika fyrir hönd islands i UEFA- bikarkeppninni. Nú hafa samningar á milli Keflvikinga og Akurnesinga stað- ið yfir, en KSi tilkynnti félögun- um, að þau yrðu að koma sér saman um leikdag fyrir siðustu áramót. Að öllum likindum verð- ur aukaleikurinn leikinn um miðjan febrúar, helgina 17.-18. febrúar. Leikurinn mun fara fram i Reykjavik, og verður hann fyrsti stórleikurinn á árinu. Það er ekki að efa, að liðið leggur mikla áherzlu á leikinn, þvi að það lið, sem sigrar hefur þar með unnið sér rétt til að leika i UEFA- bikarkeppninni i sumar. Eins og menn vita, þá eru mjög miklir möguleikar á að lið i UEFA- bikarkeppninni lendi gegn sterk- um liðum, má benda á það að ein fjögur til fimm ensk lið taka ár- lega þátt i keppninni. Eins og menn muna, þá lentu Keflviking- ar á móti Tottenham 1971 i UEFA-bikarkeppninni, en það var einmitt Tottenham,sem sigr- aði Úlfana i keppninni i úrslitum. UEFA-cup, sem áður hét Fairs- cup, var sett á laggirnar 1957-58 og var keppnin nefnd Evrópu- keppni borgarliða. Úrslitaleikir keppninnar frá upphafi hafa end- að þannig, markatala úr tveimur leikjum lögð saman. ’58 Barcelona—London 8:4 ’60 Barcelona—Birmingh. 4:1 ’61 A.S.Roma—Birmingh. 4:2 '62 Valencia—Barcelona 7:3 ’63 Valencia—Dynamo Zagreb 4:1 ’64 Real Zaragossa—Valencia 2:1 ’65 Ferencvaros—-Juventus 1:0 ’66 Barcelona—Real Zaragossa 4:3 ’67 DynamoZagreb—Leeds 2:0 ’68 Leeds—Ferencvaros 1:0 ’69 Newcastle—UjpestDozsa 6:2 ’70 Arsenal—-Anderlecht 4:3 ’71 Leeds—Juventus 3:3 (Leeds sigraði á fleiri mörkum skoruð á útivelli). ’72 Tottenh,—Wolves 3:2 Eins og sést á úrslitum i siðustu fimm keppnunum hafa ensk lið verið i sviðsljósinu og væri ekki amalegt fyrir Keflvikinga eða Akurnesinga að lenda á móti ensku liði i UEFA-bikarkeppn- inni. — SOS. í gærkvöldi voru leiknir tveir leikir i Laugardalshöll- inni, þar léku Völsungar — isafjörður og Afturelding — Þór. Úrslit voru ekki kunn þegar blaðið fór i prentun. Margir kunnir iþróttamenn leika með 3. deildarliðunum, t.d. leika margir af beztu knattspyrnumönnum Vest- mannaeyjaliðsins með Þór og verður gaman að sjá þá leika handknattleik, en hann hefur litið sem ekkert verið stundað- ur i Vestmannaeyjum. Kunn- asti handknattleiksmaðurinn, sem leikur i 3.deildarkeppninni er án efa Arnar Gunnlaugs- son, margreyndur handknatt- leiksmaður með Fram og margfaldur tslandsmeistari. Hann hefur einnig leikið með unglingalandsliðinu i hand- knattleik. Ekki vitum við um styrkleika ísafjarðarliðsins og liðs Aftureldingar úr Mosfells- sveit, en það eru um tiu ár sið- an Afturelding var með mjög gott lið i 1. deild. Ekki er að efa, að liðin sem taka þátt i 3. deildarkeppninni, leggi mikið kapp á að vinna sér sæti i 2. deild og má þvi búast við spennandi keppni. Fyrsta deildin að byrja - fyrstu leikirnir á þriðjudagskvöldið 1. deildarkeppnin i hand- knattleik hefst aftur á þriðju- dagskvöldið kl. 20.30. Þá verða leiknir tveir leikir V'alur — KR og Armann — Haukar. Eins og sést er búið að breyta leikdög- um i 1. deild, miðvikudags- kvöldin falia niður, þvi að á þeim dögum æfir landsliðið i handknattleik. V'erður fram- vegis leikið á öllum virku dög- unum, nema miðvikudags- kvöldum. „Ef þetta hefði hent Chelsea, hefði ég farið grátandi heim” - Tommy Docherty verður í sviðsljósinu í dag, hann stjórnar Manchester United gegn Arsenal á Highbury. West Ham mætir Liverpool og Tottenham heimsækir Leeds. Þessi mynd var af mörgum talin knattspyrnumynd ársins i Englandi 1967, en hún sýnir Tommy Docherty, fram- kvæmdastjóra Chelsea (nú Manchester United) og liðs- menn hans ganga vonsvikna af leikvelli, eftir að hafa tapað fyrir Tottenham i bikarúr- slitaleik á Wembley 2:1. Eitt skeði, sem fáir áhorfendur á Wembley gleyma — áður en hinn opinskái Docherty hélt burt með sina menn, hljóp hann inn á vöilinn og óskaði Dave Mackey, fyrirliða Tottenham, til hamingju með sigurinn. — A ÚNDAN BILL NICHOLSON, FRAM- KVÆMDASTJÓRA TOTTEN- HAM! V'akti þetta atvik mikla athygli, enda stal hann algjör- Icga senunni frá Nicholson. Chelsea komst á Wembley á mjög vafasömum sigri 1:0 gegn Leeds i undanúrslitum. Toni Hateley, skoraði mark Chclsca i fyrri hálfleiknum gegn Leeds, en I siöari hálfleik sótti Leeds nær stöðugt og tókst tvisvar aö jafna, en bæði mörkin voru dæmd af. Rétt fyrir lok leiksins skoraði Leeds þriöja jöfnunarmarkið — beint úr aukaspyrnu, sem dómari leiksins lét endurtaka. Um þctta sagði Dochcrty, eftir leikinn: „Ef þetta liefði hent Chelsea, hefði hann farið grát- andi heim”. Nú i dag verður Docherty, með Manchester Unitcd á ferðinni og það verð- ur ekki lið af verri endanum, scm lcikmenn hans glima við, ncfnilega Arsenal á heima- velli Highbury i Lundúnum og ekki er annað hægt aö segja, en að það verði tveir stórleikir i London i dag — West Ham fær efsta liðið i 1. deild Liver- pool i heimsókn á Upton Park. Annars verða þessir leikir leiknir i 1. deild i dag: Arsenal — Manchester United. Coventry — Leicestcr. Crystal Palace — Birming- ha m. Derby — Norwich City. Evcrton — Stoke City. lpswich — Newcastle United. Leeds — Tottenham. Manchester City — Chelsea. Sheffield Utd. — W.B.A. VVcst Ham — Liverpool. Wolves — Southampton.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.