Tíminn - 06.01.1973, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.01.1973, Blaðsíða 8
Y''/\ 51/ i'|’ TÍMINN 291 dýrategund er að deyja út s:Tí>! -isíioRr » ...... i I.augardagur (i. janúar 1973 sálfræöingur kenndi þeim að byggja hreiður. Geta dýragarðar bjargað með því að sleppa dýrum? Nú er að verða skortur á is- björnum á Grænlandi og getur larið svo.að stofninn deyi hrein- lega út innan skamms. Forráða menn dýragarðsins i Kaup- mannahöfn eru farnir aö hugsa alvarlega uin að flytja fangna is- hirni aftur i sitl eðlilega umhverfi á (irænlandi, til að koma i veg lyrigað stofninn liljöti sömu örliig og indverski nasliy rningurinn, mongólski villihesturinn og flciri dýrategumlir, scm þegar eru orðnar svo fátiðar, að flciri cru til i dýragörðuin en i náttúrunni sjállri. Margar dýrategundir hafa þeg- ar horfið af yfirborði jarðar vegna veiðigleði mannsins. Viö könnumst öll við geirfuglinn, og amerisku flb'kkudúfuna má einnig nefna, svo og dúdúfuglinn, sem lifði á Kyrrahafseyjum og gat ekki flogið. Hann nægði i mál handa 100 manns og hefur þvi þótt góð búbót. Nú er fjöldi dýrategunda i hættu, ekki sizt hlébarðinn og tigrisdýrið, sem eru mjög eftir- sóttir vegna skinnsins eins og is- björninn. Skýrslur sýna, að alls 291 dýra- tegund á útrýmingu yfir höfði sér. Margar tegundir horfnar lyrir árið 2000 bað verða að öllum likindum dýragarðarnir, sem bjarga munu þvi, sem eftir er af dýralifi jarð- ar, frá tortimingu —- og þótti ýms- um mál til komið. Málið var rætt mjög á alþjóðlegri ráðstefnu á eynni Jersey nýlega. Þar kom fram, að margar dýrategundir verða horfnar um aldamót setH sama áframhaldi. Af þeirri 291 tegund, sem i hættu er, finnast 162 i dýragörðum — en aðeins 73 teg- undir hafa eignazt þar afkvæmi siðustu tiu árin. Astæðan er fyrst og fremst sú, að ákaflega erfitt er að láta ófrjáls dýr eignast afkvæmi. A áðurnefndri ráöstefnu var það vandamál mjög rætt, hvernig skapa mætti þessum dýrum betri skilyröi i dýragörðum, til að þau dæju ekki út þar lika. Þess vegna hefur dýragarður- inn i Kaupmannahöfn verið að breytast á undanförnum árum. Áður var það metnaður hvers dýragarðs að hafa*flestar tegund- ir innan rimla sinna og múra, en nú horfir málið öðruvisi við: Færri tegundir, en fleiri dýr af hverri. Það er eina leiðin til að skapa dýrunum nokkurn veginn eðlilegt og þolanlegt umhverfi. (Jeta þau bjargað sér í náttúrunni? Mörg dýranna, sem áður var að finna i dýragarðinum i Kaup- mannahöfn, eru þar ekki lengur. Þau hafa verið flutt i aðra dýra- garða, þar sem skilyrði fyrir þau eru betri. A móti kemur, að nú eru fleiri ljón i Kaupmannahöfn en áður og nú eru þau ekki i rimlabúrum, heldur i geysistór- um garði, þar sem umhverfið er þeim næstum eðlilegt. Þessi umskipti hjá ljónum hafa breytt lifi þeirra mikið. Veiðieðli þeirra er óbreytt þrátt fyrir margra ára innilokun — það kom i ljós fyrir skömmu, er einn fallegasti páfuglinn, sem dýra- garðurinn átti, brá sér i flugferð yfir ljónagarðinn. Hann taldi sig öruggan i nokkurra metra hæð, en eitt ljónið hljóp á eftir honum, stökk tvo metra upp i loftið og drap fuglinn með einu hramms- höggi. Auðvitaö þótti forráðamönnum garðsins þetta ákaflega leiðinlegt atvik, en uröu po fegnir að sjá, að ljónin höfðu ekki beðið tjón á eðlishvötum sinum við innilokun- ina. A ráðstefnunni áðurnefndu var einmitt rætt dálitið um, að villi- dýr lifa á öðrum dýrum — ekki aðeins dauðu kjöti. Þess vegna yrði liklega erfitt fyrir dýr, sem fætt er i dýragarði.að bjarga sér úti i náttúrunni, ef þvi yrði sleppt. Sem betur fer, virðist þetta ekki eiga við um ljónið i Kaupmanna- höfn, en hins vegar hefur komið i ljós.að kjálkavöðvar ljóna i dýra- görðum slappast allmikið, ef þau hafa einungis fengið lina fæðu. Sálfræðingur kenndi luglum að byggja hreiður Aður reyndist mjög erfitt að fá Flamingofugla til að byggja sér hreiður i dýragörðum og auk þess misstu þeir alltaf fljótlega hinn fallega rauða lit sinn. 1 dýragarði Kaupmannahafnar gátu flamingofuglarnir leitað skjóls i húsi, sem var sérstaklega byggt handa þeim.og þeir fengu mat daglega. Af þessu leiddi, að fuglarnir gleymdu, hverjir þeir voru.og hættu að þrifast. Þá tók dýrasálfræðingur garðsins málið i sinar hendur. Hann rannsakaði hvernig flamingóar i náttúrunni byggja hreiður sin úr leir og leðju. Siðan tók hann að leika sér að þessum efnum i garðinum hjá fuglunum og sýndi þeim, hvernig átti að fara að. Skömmu siðar var allur hópurinn tekinn til við hreið-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.