Tíminn - 06.01.1973, Qupperneq 12
12
TÍMINN
Laugardagur 6. janúar 1973
GENCUR AÐ
ÖLLUM
STÖRFUM
Á BÚI SÍNU
en er algerlega blindur
marga kilómetra. Ég nýt
kyrrðarinnar og hlusta á fuglana
eða ég klappa dýrunum þar sem
þau standa á beit. En það er
reyndar ekki siður töfrandi að
ganga um á veturna; þeir hafa
vissulega sina fegurð i rikum
mæli”.
Marius Petersen hefur öðlazt
mikla færni i að þekkja raddir
fugla. Þótt hann hafi aldrei séð
fuglana, þá getur hann með vissu
þekkt um 10 tegundir, og sé um
önd að ræða, þá getur hann
ákvarðað, hvort þar er á ferðinni
stokkönd, húsönd, duggönd, eða
hvort um er að ræða unga eða
lullorðinn fugl.
Fóörar og mjólkar sjálfur
Petersen varð ekki bóndi
vegna ættaróðalsins, heldur
vegna þess, að hann hefur áhuga
á dýrum. Hann byrjar vinnu-
daginn kl. 6. Skepnurnar eru
fóðraðar á gamlan og góðan
máta; með rófum,heyi og hálmi
og til þess er notað næstum sjálf-
virkt áhald, sem danska blindra-
félagið hefur gefið. Þetta er
nokkurs konar vagn, sem er
dreginn frá bás til báss.og hinn
blindi þarf aðeins að opna með
einu handfangi.þá falla rófurnar i
jötuna.
Morgunmjaltirnar eru flókið
verk fyrir blindan mann, en
Petersen nýtur margra ára þjálf-
unar og vinnur verkið létt. Hann
l'innur það á viðbrögðum skepn-
unnar, hvort eitthvað er að. Það
tekur 3-4 minútur að vélmjalta
hverja kú,og Petersen er ekki i
neinum vandræðum með að
linna, hvenær búið er úr þeim.
Eftir mjaltirnar tekur við eitt
hið vandasamasta, sem hann
tekur sér l'yrir hendur, en það er
að hreinsa mjaltavélarnar. Þar
þarí að nota saltpéturssýru, klór
og sérstakt sótthreinsunarefni.
Til að komast hjá mistökum i
meðferð efnanna er hvert þeirra
geymt i iláti með sinni sérstöku
lögun, sem Petersen þekkir i
sundur. Það kom þó einu sinni
fyrir hann að blanda saman
röngum efnum, en lyktin gaf
honum til kynna, hvers kyns var,
og hann gat afstýrt slysi.
,,Fyrst skepnurnar og siðan ég,"
eru einkunnarorð Petersens.
Það er fyrst eftir að vera búinn að
sinna dýrunum sem hann gengur
sjálfur inn og borðar morgun-
verð. Næsta verk hans er að mala
nokkrar tunnur af korni. Fyrir
hádegi þarf að brynna skepn-
unum, siðan fær Petersen sér
matarbita og miðdegisblund.
Stundum notar hann hvildar-
limann til að lesa góðar bók-
menntir eða hlusta á segulbands-
spólur, sem hann fær léðar frá
blindrabókasafninu i Höfn. Oft
fær hann lánaðar spólur, sem
hafa að geyma ýmislegt bú-
visindalegt efni.
Þegar degi hallar, kemur annar
mjalta- og fóðrunartimi og að
honum loknum er starfs-
uiaS
Marius Petersen er jarðeigandi
og gætir daglega dýra sinna,
sextán mjólkurkúa, tveggja
hesta, fimmtiu grisa og 10 gylta.
En það, sem geri-þetta frásagnar
vert,er, að maðurinn hefur verið
blindur frá fæðingu. Marius
Petersen er gjarna nefndur sem
dæmi um það, að það er hægt að
yfirvinna jafnvel svo stóran lik-
amlegan ágalla sem blindu og
hasla sér völl sem vinnandi
maður.
Petersen, sem nú er 48 ára
gamall, rekur ásaml bróður
sinum og systur i Vester Velling
hjá Randers gamlan búgarð,
sem hefur verið i ætt þeirra i
l'imm ættliði, og hann heíur
næstum allt sitt lií ferðast um ná-
grennið eins og alsjáandi væri,og
það er orðið eins og tréskórnir
hans séu farnir að rata sjálfir yfir
akrana.
Þekkir dýrin á háralaginu
Petersen þekkir byggingar
staðarins i smáatriðum, og hann
ruglast heldur ekki á skepnunum.
Hann heyrir það á kúnum hvort
þær baula al' þvi, að þær vilji
komast inn i fjós, eða af sulti eða
einhverju öðru. Hvert einstakt
dýr þekkir hann á háralagi þess,
eða stundum með þvi að þreifa á
hornum þess.
Hinn blindi ,bóndi álitur, að
hundurinn sé eina skepnan, sem
gerir sér grein fyrir.blindu hans.
„Þegar hundurinn liggur á jörð-
inni dregur hann alltaf til sin
lappirnar, þegar ég nálgast, eða
hann gerir á einhvern annan
máta grein fyrir nærveru sinni.”
Á kvöldin gengur Petersen oft
langtimum saman með hundinum
um nágrennið. ,,Ef veðrið er gott,
erum við oft á tiðum 2-3 tima’,'
segir hann, ,,og við göngum þá
Marius Petersen lætur sér nægja að hirða skepnurnar, hann tekur þátt i
uppskerustörfunum af fullum krafti.
m
Við íslendingar þekkjum dæmi um það að blint
fólk, býður ^örlögum sínum byrgin og haslar
sér völl í atvinnulífinu og þjóðlífinu yfirleitt og
afrekar meira í lífinu en margur alheilbrigður
maður.
Hér segjum við frá dönskum bónda, sem sinnir
öllum venjulegum bústörfum á ættarróðali sínu
og veitist það ekki erfiðara en hverjum öðrum.
Af öllum dýrum á bænum er veiðihundurinn tryggasti vinur Petersens
dagurinn á enda. Þá er klukkan
venjulega orðin hálfsjö og það er
fyrr heldur en áður var, þegar
tækin voru ekki til staðar til að
létta störfin.
Gengur 15 kílómetra
fremur en að bíða eftir bíl
Marius Petersen þarf að sjá um
rekstur búsins og er þvi tiður
gestur i Vester Velling, hann þarf
að hitta kaupmennina og fylgjast
með verðlagi o.þ.u.l.
En ef hann er staddur i kaup-
staðnum og hefur lokið erindum
sinum, þá leggur hann af stað
gangandi heim heldur en að þurfa
að biða lengi eftir bil. Hann hefur
með sér göngustaf og notar hann
til að finna skil á milli gangstigs-
ins og asfaltsins.
"Slikur göngutúr er ekkert
mikið fyrir mig”, segir hann
sjálfur, „fólk er mjög hjálpsamt,
einkanlega ungt fólk. Maður snýr
sér aldrei árangurslaust til þess.
Menn geta litið niður á siðhært
fólk eins og þeim sýnist, en við,
þeir blindu, þurfum ekki að
kvarta undan þvi”.
Petersen er reyndar sjálfur
mjög hjálpsamur, einkum við
blinda félaga sina, sem ekki bera
örlög sin eins vel og hann. Sjálfur
segir hann, að það sé sin gæfa að
vera fæddur blindur, en hafa ekki
misst sjónina sem fulltiða maður,
en það telur hann mun erfiðara að
bera. Hann þakkar foreldrum
sinum, að hann skuli vera fær
um að bjarga sér eins og raun ber
vitni. Þau meðhöndluðu hann
alltaf eins og sjáandi systkin hans
og létu hann finna sem minnst
fyrir sérstöðu sinni. „Ég heyrði
foreldra mina aldrei segja
„þetta getur þú ekki”, heldur var
viðkvæðið, „þetta skalt þú gera”.
„Það versta.sem getur komið
fyrii; er að missa móðinn, eins og
sumir gera þegar þeir missa
sjónina. Maður má ekki falla
saman og telja sjálfum sér trú um,
að maður sé til einskis nýtur-, þá
fyrst verður lifið óbærilegt.
Maður verður að vinna nógu
mikið til að hafa ekki tima til að
láta sér leiðast.”.
Þýtt og endursagt J.G.K.
Til sölu
Benz vörubfll ’Gl,frambyggður, ekinn cirka 130 þús. km.i
góðu standi, 8 tonna sturtur og góður pallur. Talstöð getur
fylgt. Billinn er með hjólmæli. Til greina kæmi að taka
góðan jeppa uppí. Upplýsingar i sima 95-4694.