Tíminn - 06.01.1973, Side 21
<M TBMH Kf .3 TllííBh'IBUUGJ
Laugardagur fí. janúar 1973
KMfWÍT ___ ________ _ _________M
TÍMINN 21
- Guðjón Guðmundsson hlaut flest atkvæði
í skoðanakönnun íþróttafréttamanna
i gær voru kunngerö
úrslit í hinni árlegu
skoöanakönnun ís-
lenzkra íþróttafrétta-
manna um ,,iþrótta-
mann ársins." Voru úr-
slitin kunngerð í hófi,
sem íþróttafréttamenn
héldu á Loftleiöa-
hótelinu. Tvítugur
Akurnesingur, Guöjón
Guðmundsson, sund-
maöur, hlaut flest
atkvæði og þar með
titilinn ,, íþróttamaöur
ársins 1972".
Þeir tiu efstu sem hlutu flest
stig i kosningu um Iþrótta-
mann ársins, voru þessir:
Guðjón Guðmundsson, 1A 59
Bjarni Stefánsson, KR 53
Lára Sveinsdóttir, Árm. 35
Gústaf Agnarsson, Arm. 33
Geir Hallsteinsson, FH 23
Gunnsteinn Skúlason Val 19
Hreinn Halldórsson, HSS 16
Guðmundur Sigurðsson,
Árm. 15
Kristinn Jörundsson, tR 14
Hjalti Einarsson, FH 12
Aðrir sem hlutu stig i
kosningunni voru þessir:
Ólafur Jónsson, Eyleifur
Hafsteinsson, Elias Sveinsson,
Erlendur Valdimarsson,
Einar Guðnason, Haraldur
Korneliusson, Björg Guð-
mundsdóttir, Axel Axelsson,
Sigurbergur Sigsteinsson,
Saltvatnsborgin
varð fyrir valinu
Alþjóðaólympiunefndin ákvað i
gær, að næstu vetrar Olympiu-
leikar, scm háðir verða 1976, fari
fram i Saltvatnsborg en áður
liafði verið ákveðið, að leikarnir
færu fram i Denver. ibúar Den-
ver höfðu fellt það i atkvæða-
greiðslu, að leikarnir færu fram
þar.
Óskar Sigurpálsson, Marteinn
Geirsson, Asgeir Eliasson,
Þorsteinn Þorsteinsson og
Friðrik Guðmundsson.
Jón Asgeirsson formaður
Samtaka lþróttafréttamanna,
kunngerði úrslitin i gær og
sagði m. a. þegar hann afhenti
Guðjóni Guðmundssyni hina
forkunnarfögru styttu, sem
,,lþróttamaður ársins” varð-
veitir:
Guðjón er löngu orðinn lands-
þekktur sundmaður, og hann hef-
ur einnig gert garðinn frægan vfð-
ar. 1 ár hafa framfarir hans orðið
æði miklar, hann byrjaði snemma
árs að bæta verulega árangur
sinn, bæði i 100 og 200 metra
bringusundi, og hann náði tilsett-
um timum i báðum greinum til að
öðlast rétt til þátttöku á Ólympiu-
leikunum. Þar keppti hann bæði i
100 og 200 metra bringusundi, og
hæst ber árangur hans i 200 metra
bringusundinu. Þá varð hann
fjórði i sinum riðli eftir harða og
skemmtilega keppni. — Þá þótti
þeim Islendingum, sem á horfðu,
vel hafa tekizt, og fögnuðu
Guðjóni innilega. Og ekki varð
ánægjan minni, þegar timi hans
birtist á ljósatöflunni, 2:32,4
sekúndur, nýtt Norðurlandamet.
Þá voru menn hvort tveggja i
senn ánægðir og stoltir, enda ekki
á hverjum degi, að Islendingar
setja Norðurlandamet.-
Þar með hafði Guðjón skipað
sér á bekk meðal fremstu sund-
manna Norðurlanda. En hann
hefur lika vakið á sér athygli fyr-
ir annað. Þeir, sem gerst þekkja,
eru á einu máli um, að þar sem
Guðjón er, þar fari prúðmenni og
ljúfmenni. Annað er og það, sem
vert er aðminnast á, og það er, að
hann er reglumaður, og hefur þvi
til að bera flest það, sem prýða
má góðan iþróttamann. — Guð-
jón er aðeins tvitugur að aldri,
fæddur árið 1952 á Akranesi.
Hann stundar nú nám i rafvirkjun
hér i Reykjavik.
Þá er komið að öðru sætinu að
þessu sinni. Sá, sem það hlýtur
nú, er Bjarni Stefánsson, frjáls-
iþróttamaður. Hann fékk 53 stig.
Bjarni er, og hefur um alllangt
skeið verið, einn af fremstu
frjálsiþróttamönnum landsins.
Hann hefur keppt bæði heima og
erlendis og var meðal keppenda á
siðustu Ólympiuleikum. Þar náði
hann mjög góðum árangri i 400
metra hlaupi og setti nýtt Is-
landsmet, er hann hljóp á 46.8
sek. og varð þá fimmti i riðla-
keppninni. Með þeim árangri
tókst honum að komast i milliriðil
keppninnar, sem var að vonum
mjög hörð, og þá hljóp hann á 46.9
sekúndum. Bjarni er duglegur
iþróttamaður og stundar æfingar
sinar af kappi, og má þvi búast
við, að enn eigi hann eftir að bæta
árangur sinn verulega, og verður
vissulega skemmtilegt að fylgjast
með honum i framtiðinni.
1 þriðja sæti er kvenmaður. Það
er Lára Sveinsdóttir, fyrsta kon-
an sem tekur þátt i frjálsiþrótta-
keppni á Ólympiuleikum. — Hún
fékk nú 35 stig. — Lára náði at-
hyglisverðum árangri i frjálsum
iþróttum á árinu, og setti Islands-
met i fimm greinum. 1 hástökki
margbætti hún Islandsmetið, sem
nú er 1.69 metrar. Mikils má af
Láru vænta, ef hún heldur áfram
að iðka iþróttir, og mættu aðrar
iþróttakonur taka hana sér til fyr-
irmyndar.
1 fjórða sæti á listanum að
þessu sinni er ungur lyftingamað-
ur, Gústaf Agnarsson 33 stig.
Hann hefur látið verulega að sér
kveða á árinu, enda þótt nafn
hans hafi ekki verið mjög i sviðs-
ljósinu fyrr en nú. Hann er lika
enn ungur að árum, og þvi má
mikils af honum vænta i framtið-
inni með sama áframhaldi. —
Hann vann það afrek á árinu, aö
sigra á Norðurlandamóti ung-
linga i sinum þyngdarflokki, og
lyfti 307,5 kg. i Ólympiskri þri-
þraut.
1 fimmta sæti er handknatt-
leiksmaður, Geir Hallsteinsson,
og hann fckk 23 stig.
Geir hefur verið einn af máttar-
stólpum islenzka landsliðsins i
handknattleik mörg undanfarin
ár, auk þess, sem hann hefur ver-
iðeinn af sterkustu hlekkjum FH-
liðsins. Geir hefur einu sinni verið
kjörinn Iþróttamaður ársins, það
var árið 1968. — Hann hefur keppt
i islenzka landsliðsbúningnum
heima og erlendis oftar en nokkur
annar, eða alls 69 sinnum. Og
enginn hefur komizt nálægt þvi að
tþröttafólkið, sem var i tiu efstu sætunum i skoöanakönnun iþrótta fréttamanna. Standandi frá vinstri: Hjalti Einarsson, Hreinn Halldórs-
son, Guðmundur Sigurðsson, Kristinn Jörundsson, Gunnsteinn Skúlason. Fremri röð frá vinstri: Gústaf Agnarsson, Lára Sveinsdóttir, Guð-
jón Guðmundsson „iþróttamaður ársins 1972”, Bjarni Stefánsson og Geir Hallsteinsson. (Timamynd Róbert)
Karfa um helgina
- þrír leikir í 1. deild
og einn í 2. deild
Islandsmótið i körfuknattleik
heldur áfram um helgina og
verða leiknir þrir leikir i 1. deild
og einn leikur i 2. deild. Allir
leikirnir fara fram i iþróttahúsinu
á Seltjarnarnesi.
1 dag verða leiknir tveir leikir i
1. deild og þá mætast kl. 16.00:
Ármann—Njarðvik
KR—1S
Ámorgun fara fram einn leikur
i 1. deild og einn leikur i 2. deild og
hefjast þeir kl. 19.00.
IR-Valur
Haukar—1K
Það má búast við spennandi
leik, þegar 1R og Valur mætast,
en eins og menn muna, þá kom
Valur á óvart i Reykjavikurmót-
inu, þegar liðið sigraöi 1R.
Guðjón Guðinundsson „iþróttamaöur ársins 1972”
(Tlmamynd Róbert).
skora eins mikið af mörkum og
Geir, — i landsleikjum hefur hann
gert hvorki meira né minna en
342 mörk. — Hann er nú mark-
hæstur i fyrstudeildarkeppninni.
1 sjötta sæti er Gunnsteinn
Skúlason, handknattleiksmaður.
Gunnsteinn fékk 19 stig,— Hann
hefur verið fyrirliði islenzka
handknattleikslandsliðsins lengi
og leitt það i keppni bæöi heima
og erlendis. — Undir hans stjórn
hefur liðið náð athyglisverðum
árangri, og Gunnsteinn hefur sýnt
að hann er þeim vanda fyllilega
vaxinn, sem þvi fylgir að vera
fyrirliði i flokkaiþrótt, sem
þessari, bæði utan valiar og inn-
an. Sjálfur hefur hann keppt 31
sinni með islenzka landsliðinu,-
í sjöunda sæti varð Hreinn
Halldórsson, frjálsiþróttamaður.
— Hann fékk 16 stig. — Hreinn
vakti á sér athygli snemma á ár-
inu, og var oft nefndur sterki
Strandamaðurinn, sem reyndar
má kalla orð að sönnu, þvi hann
náði mjög athyglisverðum
árahgri bæði i kúluvarpi og
kringlukasti. Einkum er athyglis-
vert hve mjög hann bætir árangur
sinn á árinu, og er sjaldgæft, að
iþróttamenn nái svo miklum
framförum, eins og að bæta
árangur sinn um 1,5 metra i kúlu-
varpi. Bezti árangur Hreins i
kúluvarpi er 17.99 metrar og hann
hefur lika kastað kringlu yfir 50
metra,-
1 áttunda sæti að þessu sinni er
Guðmundur Sigurðsson, lyftinga-
maður. Guðmundur hefur á
undanförnum árum sýnt veruleg-
ar framfarir i grein sinni, og á
siðasta ári var hann meðal þátt-
takenda á Ólympiuleikunum. Þar
setti hann nú tslandsmet, og lyfti
465 kilógrömmum i þriþraut.
Guðmundur er einn af braut-
ryðjendunum i þessari grein hér á
landi.
1 niunda sæti er ungur maður,
Kristinn Jörundsson, og fékk
hann 11 stig. Kristinn hefur vakið
á sér athygli fyrir harðfylgi og
dugnað, og hann hefur, þótt ungur
sé, haslað sér völl, bæði sem
knattspyrnumaður og einnig sem
körfuknattleiksmaður, og sýnt
hæfni i báðum þessum greinum,
sem orð er á gerandi.
1 tiunda sæti á listanum er nú
Hjalti Einarsson, handknattleiks-
maður, en hann var einmitt kjör-
inn tþróttamaður ársins 1971.
Hjalti er einn af elztu og reynd-
ustu iþróttakeppendum Islands,
eins og allir vita. Hann hlaut nú
12. stig.-
NORÐURLANDAMETHAFIN N
FRÁ AKRANESI ÍÞRÓTTA-
MAÐUR ÁRSINS 1972
é
#•