Tíminn - 06.01.1973, Síða 23
Laugardagur 6. janúar 1973
TÍMINN
23
Volkswagen hefur aftur sótt sig í veðrið, eftir að hafa dalað um
nokkurra ára skeið.
Volvomestseldur
á Norðurlöndunum
ÞÓ-Reykjavik
Komið er út yfirlit yfir mest
seldu fólksbila á Norður-
löndunum fyrstu niu mánuði
ársins 1972 og er Island þar með-
talið. Yfirlit þetta nær yfir
mánuðina janúar-september.
Mest selda bifreiðin á þessum
tima er sænski Volvoinn;af Volvo
seldust á þessu niu mánaða tima-
bili 51,043 bilar eða 14,3% af
seldum bifreiðum á Norður-
löndum. 1 öðru sæti er GM ( allar
tegundir); af þessari gerð seldust
42.500 eintök eða 12,0%. 1 þriðja
sæti er hinn gamalkunni Volks-
wagen með 41,850 eintök eða
11.8%. Siðan kemur Ford með
36.564 eintök eða 10.3%., Saab,
33,293 bifreiðar eða 9.4% og Fiat
með 27.032 eða 7.6%.
Á sama tima i fyrra hafði Volvo
14% af heildarsölunni og GM
12,8%, þannig að Volvo hefur
komizt verulega fram úr
harðasta keppinaut sinum á
Norðurlöndunum. V’olkswagen
hefur sótt sig i veðrið siðan i fyrra,
er hann hafði aðeins ,9.6% af
heildarsölunni, en það var i
fyrsta skipti, semValkswagen var
ekki i fyrsta sæti sölulistans á
Norðurlöndunum i mörg ár.
Fyrstu niu mánuði ársins 1972
seldust 355.851 fólksbifreið á
Norðurlöndum, en fyrstu niu
mánuði ársins 1971 seldust 344.000
bifreiðar.
Volvoinn heldur öruggri forystu sem. vinsælasti bill á Norður-
löndunum.
Skaðbrenndist
er benzín-
geymir sprakk
Ungur maður skaðbrenndist er
bensingeymir i bil, sem hann var
að vinna við sprakk. Kviknaði i
fötum hans og eru brunasárin
viðaum likamann. Maðurinn var
fluttur á slysavarðstofuna og
siðan á Landspitalann þar þungt
haldinn. Móðir piltsins brenndist
á höndum er hún reyndi að
slökkva i fötum sonar sins, en
slysið varð fyrir utan heimili
þeirra Sogaveg 106.
Pilturinn, sem brenndist heitir
Þór Guðjónsson Friðriksson. Er
hann 19 ára gamall. Hann var að
losa bensintank úr gömlum jeppa
og notaði til þess logsuðutæki, og
sprakk geymirinn. Varð þetta um
kl. 9 á fimmtudagskvöld. Föt
Þórs urðu alelda.
Móðir hans heyrði •
sprenginguna og hljóp út og
reyndi að slökkva i fötum Þórs,
en brenndist þá sjálf. Fleiri komu
þarna að og var pilturinn borinn
inn i vaskahús og sprautað þar á
hann köldu vatni.
O.O.
BYLTING I
EPLARÆKT
Uppskeruvélar munu e.t.v.
bráðlega halda innreið sina i,
danska ávaxtarækt. Ekki munu
þær þó plokka ávextina af
trjánum, með þar til gerðum
fingrum, eins og manni gæti fyrst
dottið i hug, heldur einfaldlega
skera á trcn rétt ofan við rætur-
nar, aðskilja blöð og greinar og
safna saman eplunum. En það er
rétt að gera grein fyrir þvi, að
þarna er ekki um að ræða venju-
leg eplatré, heldur nýjar teg-
undir dvergtrjáa, sem vaxa og
! bera ávöxt á aðeins tveim árum.
! Þeim er plantað þúsundum sam-
an á landsvæði, sem nokkur
hundruð af venjulegri stærö þekja
nú.
Erlendar tilraunir sýna, að
epla-þreskivélin getur sennilega
komiðfram á sjónarsviðið á þeim
áratug, sem nú er að liða og i
Danmörku hafa menn náð svo
langt, að litlu trén eru að verða
tilbúin til ræktunar.
A tilraunastöð rikisins, fyrir
ávaxtarækt i Blangstedgard hjá
Óðinsvéum, gat i sumar að lita
eplatré, sem sáð hafði verið i
april. Reiknað var með, að i haust
bæri það kiló af eplum. Slikt tré
eiga að vera tilbúin undir þreski-
vél innan tveggja ára.
Stigar eru orðnir óþarfir á
venjulegum eplaökrum segja
þeir á BlangstedgSrd, þar sem
stór hluti tilraunasvæðisins hefur
nú verið lagður undir tilraunir
með lftil eplatré. Venjan hefur
verið sú, að menn hafa orðið að
biða 4-6 ár eftir að trén yrðu fær
um að gefa af sér meðal upp-
skeru, 30-35 tonn á hektara.
En nú telja menn að unnt verði, á
næstunni, að fá tvöfalda slika
uppskeru á aðeins tveim árum.
Það er einnig búist við þvi að
áveitukerfi verði almennt tekin i
notkun við eplarækt i náinni'
framtið. Mikið af eplum eyði-
leggst árlega vegna næturfrosts
en hjá þvi má komast með vatns-
veitum og úðunum. Samtimis er
hægt að gefa jurtunum fljótandi
næringu og dreifa skordýraeitri
með hjálp úðunarútbúnaðarins.
Fyrsta úðunarkerfið er nú til-
búið á teikniborðinu á
BlangstedgSrd, sem er ein af 12-
15 tilraunastöðvum iávaxtarækt,
sem rikið rekur. Á næsta ári á að
vera tilbúinn akur 3-4 þús fm að
stærð og á að gera tilraun með að
úða hann. Vökvinn kemur úr
tveggja metra háum tönkum.
Ætlast er til að menn þurfi aldrei
sjálfir að fara um akurinn.
Vaxtarhormónar, pillur, til að
hindra frjóvgun, blaðsýnishorn,
sem sýna nákvæmlega upptöku
næringarefna jarðarinnar,
flokkun á vatni til að komast hjá
áverkum á eplunum, geymsla i
sérstöku lofti, allt eru þetta bylt-
ingarkenndar nýjungar i epla-
rækt.
Blangstedg&rd flytur árlega inn
10-15 nýjar tegundir epla til rann-
Sókna, og nýjar teg. hafa lagt
svo undir sig markaðinn að það
eru aðeins sex tegundir á
markaði af þeim, sem i ræktun
voru um og eftir siðasta strið.
Ein af þessum gömlu tegundum
sá fyrst dagsins ljós á árinu 1910,
þegar eplatré tók að vaxa upp i
skólagarði á Vestur Fjóni, mitt á
milli hindberja plantna. Þetta tré
var vaxið af kjarna úr epli, sem
hafði fallið niður i beðið. Það fékk
að vaxa og eftir fjögur ár bar það
ávöxt. Af þvi fengust mjög falleg
og ljúffeng epli og eigandinn
skirði tegundina og kallaði Ingrid
Marie.
Þessi saga lýsir vel þvi ástandi
sem var rikjandi i eplarækt um
aldamótin siðustu, þegar svo
mátti heita að hver herragarður
hefði sina eigin eplategund. Nú
eru þekktar um 200 tegundir, en
ekki nema um þrjátiu ræktaðar i
stórum stil
Nú verða nýjar tegundir ekki til
fyrir tilviljanir, heldur áralangar
rannsóknir og tilraunir, sem
reyna mjög á þolinmæðina. Við
vixlfrjóvgun er frjóduft fært frá
fræfli föðurjurtarinnar yfir á
frævu móðurjurtarinnar. Jafnvel
þótt frjóvgun eigi sér stað, liður
langur timi áður en árangur
kemur i ljós.
I uppskerutimanum eru
ávextirnir skornir niður,
kjörnunum safnað saman og
þeim siðan sáð næsta vor. Siðan
verða tilraunamennirnir að taka
myndarlega á þolinmæðinni þvi
að það liða venjulega 6-12 ár áður
en tréð ber ávöxt. Ef tilraunin
heppnast vel má gera ráð fyrir að
20-30 ár liði frá þvi að tilraunin
var fyrst gerð og þar til ný tegund
kemur á markaðinn
Sú bylting i eplarækt,sem nú
nær hámarki, með ræktun hrað-
vaxta dvergtrjáa, er raunar
endapunktur á rannsóknum og
viðleitni, sem eiga rætur sina að
rekja til aldamótanna siðustu.
Alla tið siðan hafa menn einbeitt
sérað ræktun eplatrjáa, nægilega
lágra til að unnt væri að plokka af
þeim eplin á jörðu niðri
Hinum nýju dvergtrjám er
plantað þúsundum saman á
hektara i stað 100-200 áður. A
Blangstedgíird hafa verið gerðar
tilraunir með að planta allt upp i
40 þúsund dvergtrjám á hektara.
Venjuléga vaxa trén hratt
fyrstu árin. En nú er orðið mögu
legt að draga stórlega úr vext-
inum með efnafræðilegum að-
ferðum, en i staðinn myndast
blómknappar miklu fyrr og verð-
ur það til þess að tréð ber mun
fyrr ávöxt.
A landbúnaðarháskólanum
hafa farið fram viðamiklar til-
raunir með vaxtarhormóna og
svo glæsilegur árangur hefur
náðst, að menn vænta þess, að
enn megi auka framleiðslugetu
eplatrjánna. Hormónarnir
breyta vaxtarhlutföllum trésins á
þann veg, að vaxtarkrafturinn
beinist nær allur að ávaxtafram-
leiðslunni i stað trésins sjálfs.
Geymsla ávaxtanna hefur
einnig tekið miklum breytingum.
Þær tegundir sem á að senda á
markaðinn eru geymdar i loft-
þéttu rúmi, þar sem hægt er að
stjórna efnainnihaldi loftsins.
öndunarhraði eplanna er
minnkaður, en um leið eykst
geymsluþolið. Þetta er gert með
þvi að stjórna koltvisýrings- og
ildisinnihaldi loftsins.
Hita, efnahlutföllum og raka er
stjórnað daglega i geymslunum,
þar til flokkun og sala fer fram.
Til að komast hjá áverkum á
eplunum vegna flokkunarinnar er
kössum með eplunum sökkt i vatn
og ávextirnir fljóta að flokkunar-
vélunum.
Smekkur manna á epla-
tegundum er mjög mismunandi
ef marka má niðurstöður
kannanna, sem gerðar hafa verið
um það efni. Könnunin náði til
sjötiu og tveggja búða á Fjóni og
tuttugu i Kaupmannahöfn, og það
kom i ljós, að neytendur kaupa
ávexti i kjörbúðum og i ávaxta-
búðum á mjög ólikum forsendum.
T.d. var vart hægt að segja að
nokkur maður tæki tillit til
geymsluþols eplanna i stofuhita,
meðan 35% allra völdu epli eftir
einum saman litnum. Rauð epli
eru mest keypt um haust og
vetrarmánuðina, en gul á vorin.
Það er óhætt að slá þvi föstu að
framboð á dönskum eplum fer
mjög vaxandi á næstu árum og
gæðin sömuleiðis segir tilrauna-
stjórinn á Blangstedgard
Christensen að nafni, en hann
álitur, að Danir verði brátt sú
Evrópuþjóð, er ræktar epli með
fullkomnustum aðferðum.
Þýtt og endursagt. JGK
Tíminner
peningar
AuglýsídT
iHmanum
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
Þannig búast Danir við, að eplatrén þeirra liti út i framtiðinu! Dvergvaxin tré, sem bera mikinn ávöxt
og biómgast mjög snemma.