Tíminn - 07.01.1973, Blaðsíða 7

Tíminn - 07.01.1973, Blaðsíða 7
7 Það er kunnara en frá þurfi að segja, að á þvi ári, sem nýlega hefur kvatt okkur, urðu mjög merk timamót i sögu samvinnu- hreyfingarinnar á tslandi. Um þetta var heilmikið skrifað og skrafað á sinum tima, og er sjálf- sagt ýmsum enn i fersku minni, en þó stendur nú til að taka hér upp þráðinn aftur og minnast litillega á þennan merka þátt þjóðlifs okkar. Það er Erlendur Einarsson, forstjóri Sambands islenzkra samvinnufélaga, sem hér ætlar að segja okkur eitt og annað um samvinnuhreyfinguna á tslandi i fortið og nútið — og ef til vill að skyggnast ofurlitið inn i framtið- ina. Þegar islenzka samvinnuhreyf- ingu ber á góma, er óhjákvæmi- legt að hugurinn leiti norður að Þverá i Laxárdal, þar sem vagga hennar stóð. Og þótt erfitt kunni að vera að meta, hvað mikilvæg- ast hefur reynzt á svo langri leið, þá fór það nú svo, að fyrsta spurningin, sem lögð var fyrir forstjórann, var á.þessa leið: Upphafið gnæfir yfir — Hvaða atburði telur þú bera hæst i sögu samvinnuhreyfingar- innar, þessi niutiu ár, sem liðin eru, siðan fyrsta kaupfélagið var stofnað? — Þegar litið er til baka, má segja, að sjálft upphafið gnæfi yfir allt annað. Það er að segja sá atburður, þegar Kaupfélag Þing- eyinga var stofnað. Þó er rétt að geta þess, að áður höfðu verið nokkrar hræringar i þá átt að koma á félagsverzlun, en út i það verður ekki farið hér. Það er mjög merkilegt, að Kaupfélag Þingeyinga er stofnað á miklu harðindatimabili. Það er á þeim tima, þegar hafnir eru miklir fólksflutningar til Vestur- heims vegna harðæris hér heima. Einmitt þá taka bændurnir i Þingeyjarsýslu höndum saman um að styðja hvern annan á verzlunarsviðinu. Auðvitað var róðurinn erfiður i fyrstu, en upp- hafsmenn hreyfingarinnar voru miklir félagshyggjumenn, ágæt- lega menntaðir, þótt sjálfmennt- aðir væru, og má nærri geta, að vitsmunir þeirra og bjartsýni hefur verið það lifsloft, sem Hin andlega leiðsögn En það er ekki hægt að minnast þessara ára, án þess að geta hinn- ar andlegu leiðsagnar og þess manns, sem þar hafði forystuna. A þessum árum, og reyndar ára- tugum saman, var Jónas Jónsson hinn andlegi leiötogi samvinnu- hreyfingarinnar, apk þess að vera skólastjóri Samvinnuskól- ans. — Hver var næsti forstjóri Sambandsins, að Hallgrimi Kristinssyni látnum? — Sigurður bróðir hans tók þá við þvi starfi, og það kom i hans hlut aö leiða Sambandið yfir kreppuárin. Það þarf ekki getum að þvi að leiða, hversu erfitt verk það hefur verið, en þegar litið er til baka, þá sér maður, hversu vel og giftusamlega þetta hefur tek- izt. Hér verður að nægja að stikla á stóru, en næst er að geta, að Vilhjálmur Þór varð forstjóri Sambandsins árið 1946, að nýlok- inni siðustu heimsstyrjöld, en þá hefst nýtt framfaraskeið i sögu Sambandsins, og það færir mjög út kviarnar. Þetta held ég.að verði að nægja um fortiðina, enda var saga Sam- bandsins rakin mjög ýtarlega á siðasta ári, og það svo, að sumum þótti vist nóg um. Hlutur sam- vinnuhreyf- ingarinnar er stór — Já, þetta var sagan, eða hluti af henni, öllu heldur. En hvernig finnst þér þetta hafa gengið, svona þegar á allt er litiö? — Nú, — vissulega hefur þetta gengið nokkuð upp og niður. En það hefur vitur maður sagt, að þrátt fyrir náttúruhamfarir, heimsstyrjaldir og ýmsan annan vanda, þá hafi mannkyninu þó alltaf verið að miða i áttina, og þróunin meira að segja verið hag- hreyfingin nærðist á, meðan hun var i vöggu. — Hver er svo næsti merkis- áfangi á ævi hinnar ungu sam- vinnuhreyfingar? — Næsti stórviðburður varð réttum tuttugu árum seinna, ein- mitt á afmælisdegi Kaupfélags Þingeyinga, 20. febrúar árið 1902. Þá hittust þeir aftur, þessir sömu þingeysku bændur, og reyndar nokkrir fleiri, til dæmis frá Norð- ur-Þingeyjarsýslu og Svalbarðs- strönd, og stofnuðu Samband is- lenzkra samvinnufélaga. Það er alkunna, að oft veltur mikið á einstaklingum hvernig til tekst. Formið eitt getur ekki skapað félagsmálahreyfingum né fyrirtækjum velfarnað. Það eru mennirnir, sem þar koma við sögu, sem i rauninni ráða úrslit- um. Ég hef áður minnzt á Þingey- ingana, árvekni þeirra og dugn- að. Ef við svo höldum áfram að rekja söguna, fer ekki hjá þvi, að við staðnæmumst við nokkur nöfn, sem hæst ber i sögu Sam- bandsins. Fyrstu stjórnarfor- menr.irnir voru Þingeyingar. Sið- an kemur til sögunnar Hallgrim- ur Kristinsson, sem var kaupfé- lagsstjóri á Akureyri og innleiddi nýtt skipulag i samvinnufélögin. Hallgrimur var einn af hinum miklu forystumönnum og braut- ryðjendum á meðan hans naut við, en þvi miður náði hann ekki háum aldri. Hann andaðist árið 1923. En það var einmitt á hans árum sem Sambandið varð að myndarlegri viðskiptastofnun, og þess má gjarna geta hér, að það var undir forystu Hallgrims, sem hin fyrsta raunverulega skrif- stofa Sambandsins varð til árið 1915. Sú skrifstofa hafði aðsetur i Kaupmannahöfn, en siðan kom Hallgrimur heim og þá var stofn- sett skrifstofa hér i Reykjavik, einnig undir hans stjórn. Það var árið 1917. — Þá hefur þetta auðvitað verið aðeins ein deild? — Mjög fljótlega upp úr þessu fór að myndast visir að deilda- skiptingu. Það var stofnuð sér- stök útflutningsdeild, og veitti Jón Árnason henni forstöðu, og sömuleiðis var stofnuð innflutn- ingsdeild, sem Aðalsteinn Kristinsson, bróðir Hallgrims, stjórnaði. Það er á þessum árum, sem lagður er hinn eiginlegi grundvöllur að starfsemi Sam- bandsins, þegar skrifstofan flyzt til Reykjavikur og deildaskipt- ingin byrjar. Erlendur Einarsson, forstjóri. SAGAN ER EIN, ÞÓTT FORTÍÐ, NÚTÍÐ OG FRAMTÍÐ BERI HVER SINN SVIP

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.