Tíminn - 07.01.1973, Blaðsíða 27
Sunnudagur 7. janúar 1973
TÍMINN
27
skoti vont og ekkert of gott að
sjá til leiðar. Voru þeir þá ekkert
að tvinóna við það Seyðfirðingar-
nir, að snarast út, ef einhvers
þurfti við.
Mig minnir það vera nálægt
Fellshalanum austan til á heið-
inni, sem fór að bera á gangtrufl-
unum i vél bilsins. Agerðist þetta
unz vélin stöðvaðist alveg góðan
spöl fyrir ofan Efri-staf. Var talið
að kveikja hefði slagnað og voru
gerðar viðeigandi ráðstafanir. Og
þar sem rafmagn entist tæplega
til gangsetningar hlupu menn út
og ýttu farartækinu „niður
hjarnið” unz vélin tók við sér.
Með aðgæzlu var nú ekið niður
Stafinn — en ekki heldur lengra,
þvi nú stöðvaðist vélin fyrir fullt
og allt. Blindbylur var á og mun
hún ekki hafa þolað kófið til
lengdar, enda hefur snjórinn
vafalaust fyllt allar smugur.
Liklega hefur talstöðin orðið
fyrir bilunum við veltuna fyrr
um kvöldið. Náðistekki samb. við
Seyðisfjörð og fóru þá tveir eða
þrir yfir i skiðaskála, sem stend-
ur þar handan árinnar að reyna
talstöðina þar. En það fór á sömu
leið. Á meðan höfðu verið tekin
fram Kosangastæki og kyntu
menn nú primus á milli fóta
sinna, þvi þröngt var i bilnum
sem fyrr, — Einn Stálverjanna,
sem farið hafði yfir i skiða-
skálann, hafði ekki gáning á
þessari eldagerð og kvaðst vera
farinn niðrúr gangandi og lét ekki
sitja við orðin tóm. Mér var
raunar alveg eins innanbrjósts,
hneppti úlpuna upp i háls og
arkaði á eftir honum. Hinir
settust um kyrrt i bilnum.
betta hefur sennilega verið á
fimmta timanum. Þótt hriðin
héldist stöðugt var veðurhæð
ekkert sérlega mikil og vanda-
laust að halda réttri leið. Daginp
áður höfðu jarðýtur verið að
verki litlu neðar og komum við
fljótt að ýturuðningunum, sem
teknir voru mjög að fyllast. Ein-
hvers staðar niðri i Neðri--
Stafnum stóðu svo ýturnar.
Nokkru neðar, ég vissi ekki gerla
hvar, þóttumst við grilla i billjós.
Reyndist þetta rétt vera. Seyðis-
fjarðarradió hafði heyrt kall frá
talstöðinni i skiðaskálanum og
fengið jeppa til að fara á móti
okkur eins langt og komizt yrði.
Þótti okkur mjög vænkast hagur
leiðangursins við þetta. Settumst
við inn i bilinn, sem enn gat
brotizt nokkuð áleiðis eða lang-
leiðina þangað, sem ýturnar
stóðu. Var reynt að trekkja þær
upp svo hægt væri að draga snjó-
bflinn til byggða, en það mistókst.
Urðu menn þá að fara gangandi
og sækja þá, sem þar biðu. Allt
tók þetta nokkurn tima og svo lika
að koma sér niður brekkurnar.
Var klukkan orðin sjö að morgni,
þegar við komum i bæinn og hafði
ferðin þvi ekki tekið nema sex
tima, þrátt fyrir allt. — Annað
eins höfðu þeir vist séð, Seyð-
firðingar.
Háarok var i bænum og ekki
siður úti á bryggjunni. A
Hánefsstöðum var ólátaveður
þessa nótt og fuku þök af fjósi og
hlöðum.
Hér gæti komið amen eftir efn-
inu, en lika söguauki. Þvi enn var
eftir að komast til Mjóafjarðar.
Virðist það auðgert þar sem heilt
hafskip lá bundið við bryggju á
Seyðisfirði og reyndist reiðubúið
að ferja mig milli fjarða. Var lagt
af stað um þrjúleytið og komið að
Brekku eftir liðlega 1 1/2
klukkustund. En þar var svo
hvasst af norðvestri, að hvorki
þótti gerlegt að leggja að bryggju
eða skjóta út báti. Sneri skip-
stjóri frá við svo búið og hélt sjó
eða lét reka undir Nipu um nótt-
ina. Þar var vindur hægari og
svaf ég vært eftir volkið á
heiðinni.
Um fótaferðartíma á föstu-
daginn langa var ég svo settur á
land heima. Var þá nokkuð tekið
að saxast á páskaleyfið, þvi
meiningin var að fara suður aftur
á annan i páskum eins og ég lika
gerði.
Enn má bæta þvi við, að á
suðurleið fór ég um Norðfjörð,
Oddsskarð og Fagradal til þess að
komast á flugvöll. Fyrst á bát
fyrir Nipu i bezta veðri, þá á snjó-
bfl yfir skarðið i þæfingsfæri og
loks á fólksbil frá Eskifirði til
Egilsstaða, þvi við misstum af
áætlunarferðinni. Enginn jeppi
var þá fáanlegur og var færðin á
Fagradal þannig, að engu mátti
muna svo við kæmust leiðar
okkar. Hafði Dalurinn verið ýttur
i skyndi til þess að koma far-
þegum i flugvélina og ekki
,3-eiknað með fólksbilum” eins og
þeir orðuðu það hjá vegagerðinni
þegar ég hringdi i Egil að biðja
mér ténaðar. — Við náðum svo
naumlega á flugvöllinn að við
sjálft lá að ég þyrfti að stökkva
frá kóknum og prinspólóinu hjá
bráni stórvini minum i miðjum
kliðum. En með þvi að áætla
hraðamismuninn á mér og
aldraðri konu i hópi farþeganna
þá bjargaðist einnig þetta á
„snörpum endaspretti”. Lauk
þannig farsællega ágætu páska-
leyfi alþingismanns i átthögum
sinum.
FASTEIGNAVAL
Skólavörðustlg 3A. II. h»8.
Sfmar 22011 — 19283.
FASTEIGNAKAUPENDUR
Vanti yður fastelgn, þá hafið
samband við skrifstofu vora.
Fastelgnir af öllum stœrðum
og gerðum fullbúnar og í
ismíðum.
FA8TEIGNASEUENDUR
Vinsamlegast látið skrá fast-
eignir yðar hjá okkur.
Áherzla lögð á góða og ör-
ugga þjónustu. Leitið uppl.
um verð og skilmála. Maka-
skiptasamn. oft mögulegir.
önnumst bvers konar aamn-
ingagerð fyrir yður.
Jón Arason, hdl.
Málflutnlngur . fasteignasala
wmi/i
BILALEIGA
IIVEllFISGÖTU 103
VWSeirdifórðabifreiÓ-VW 5 manna-VWsvefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna