Tíminn - 07.01.1973, Blaðsíða 31

Tíminn - 07.01.1973, Blaðsíða 31
Sunnudagur 7. janúar 1973 TÍMINN 31 Jarðskriðið mikla i bænum Surte i Sviþjóð, árið 1950, hefði átt að koma sveitarfélögunum i skilning um það, að ekki er hægt að byggja hús, hvar sem er. Það skilur fyrrverandi sveit- arstjóri Surte, Andreas Larsson, nú. En i októ- ber s.l. var þinghúsið i Huddinge, skammt utan við Stokkhólm, rif- ið, þar sem menn kom- ust að þvi, að það væri áhætta að láta húsið standa áfram. Þinghús- ið, sem og allur miðhluti Huddinge-bæjar, stendur á leirgrunni,sem klofnar smám saman sundur vegna grunn- stöpla húsanna. Við- gerðir og uppgröftur kringum stöplana hafa þegar kostað sveit- arfélagið tugmilljónir króna. Og nú hefur einn- ig verið komizt að þvi, að jarðvegsgrunnurinn undir iðnaðarhverfi er að siga, sem mun hafa i för með sér ný útgjöld. llefðu ráðendur Huddinge haft hliðstæða þekkingu og þeir i Nödinge sem er nokkra kilómetra utanvið Gautaborg, þá hefði þinghúsið i Huddinge aldrei verið reist þar, sem það er nú. í Nödinge héraðinu er þorpið Surte, þar sem urðu mestu náttúruham- farir i seinnitimasögu Sviþjóðar. Hamfarir þessar urðu nákvæm- lega sagt klukkan rúm- lega 8 að morgni 29. september árið 1950. Anders Larsson, sem þá átti sæti i sveitarstjórn Nödinge, en er nú á eftirlaunum, sem fyrr- verandi sveitarstjóri, segir, að mörgum sveit- arfélögum væri nauðsyn á þvi að hafa i þjónustu sinni einhvern kunnáttu- mann á sviði jarðfræði. Stóru sveitarfélögin hafa efni á þvi. Að heiman, þegar at- burðurinn skeði Anders Larsson hafði ásamt nokkrum trúnaðarmönnum hreppsins farið til Stokkhólms daginn fyrir náttúruhamfarirnar. Snemmdegis 29. september fóru þeir til fundar við Stjórn sænsku sveitarfélaganna i borginni i vissum erindagerðum. Hann sat i leigubil á leið frá fundinum, þegar bilstjórinn tjáði honum, að hann heyrði ávæning af miklum náttúruhamförum i Surte i útvarpinu. Anders reyndi að hringja heim til þess að fá nánari skýringu á þvi, hvað hefði skeð. En simalinan þangað var slitin. Þá hringdi hann til nokk- urra kunningja sinni i Gautaborg. Þeir fræddu hann um það, að um 400 manns væru húsnæðislausir og meira en 30 leiguhúsnæði og einbýlishús hefðu orðið fyrir jarð- skriðunni. Þeir tjáðu honum einnig, að Gautelfur hefði stiflazt, járn- Þessi inynd var tekin i Surte nokkrum döguin eftir að óhappið varð. Húsin losnuðu af grunni og köstuðust hvert á annað. JARÐSKRIÐIÐ í SURTE í SVÍÞJÓÐ 1950 RIFJAÐ UPP Sveitarfélögin ættu að leggja meira upp úr jarðfræðilegri þekkingu — segir fyrrverandi sveitarstjóri Surte í dag brautarlinan slitnað i sundur og þjóðvegurinn væri á kafi i árflóð- inu. Fullhlaðinn áætlunarbill hafði nær orðið skriðunni að bráð, en hann stöðvaði i tæka tið, til að Fyrrverandi sveitarstjóri Surte, Anders Larsson, stendur hér á hæöartoppnum, þar sem jarð- skriðið hófst fyrir 22 árum. taka farþega, svo að aðeins munaði nokkrum tugum metra. Anders Larsson og félagar hans fóru ekki beint heim, heldur fóru og keyptu eins mikið af nauð- synjavörum og þeir gátu, en fóru siðan á fund félagsmálaráðherr- ans, Gustaf Möller, og báðu hann um hjálp. Um nóttina lagði innanrikisráð- herrann, Eije Mossberg, af stað áleiðis til Surte. „Ilafði ekki imyndað mér ástandið svo alvar- legt” Sömu nótt kom Anders heim til sin til Bohus, sem er norðan við Surte. Hann fór einu leiðina, er fær var, þ.e. á vestri bakka Gaut- elfar. Hinum megin var öll um- ferð teppt. Sólarhring eftir slysið fór Anders á 1. fundinn með innanrikisráðherranum, ráða- mönnum á staðnum og iðnaðar leiðtogum úr Gautelfurdalnum. Þegar var nokkuð liðið á dag þann 30. september, er Anders sjálfur hafði tækifæri til þess að fara að vettvang. — Mér hafði verið sagt, hvernig útlitið væri á svæðinu, en hafði ekki imyndað mér það eins slæmt og raun bar vitni. — Sá sem lézt, hafði þótzt heyra einhvern skruðning neðan úr kjallaranum og farið niður til að athuga það. Hann bar það úr být- um'að kremjast undir bjálkum og grjóti, þegar húsið hrundi svo skyndilega undan skriðunni. Það var ung stúlka, sem slasað- ist, en hún klemmdist illilega á hlið. Varð að taka af henni vinstri hendi og fót til að bjarga lifi hennar. 1 dag er hún gift kona og býr i nágrenni Surte. Skriðið byrjaði uppi á hæðinni, skammt frá bakka Gautelfar, geystist i bylgjum niður hliðina, yfir lautir og hóla, þ.á.m. þann sem húsin stóðu á, og stöðvaðist ekki fyrr en uppi i hliðinni á móti. Og ekki var skriðan lengi á leið- inni — aðeins 3 minútur. Ýmsir aðilar hjálpuðust að við bráðabirgðauppbyggingu svæðis- ins. Hafizt var handa við að lag- færa og endurbyggja húsin, koma holræsum og linum i lag. Gert var við járnbr.linuna og nýr vegur var undirbúinn i stað þess, sem áður var, en hann var nú gersam- lega horfinn. Sett var upp bráða- birgðabrú yfir ána og bráða- birgðavegur lagður úr flekum. Brátt var tekin sú ákvörðun, að rikið gripi inn i og aðstoðaði við uppbygginguna. — Margt var það þó, meira og minna nauðsynlegt, sem fékk að biða úrbóta i langan tima, — segir Anders. 40 ný hús reist i flýti Sum húsin voru rifin, önnur fengu að liggja, þar sem þau voru. Þá var einnig hægt að gera við nokkur. Um kilómeter norður af þeim stað, þar sem skriðan fór yfir, voru i flýti byggð 40 ný ein- býlishús, og sá hreppurinn alveg um það. Nokkrum vikum eftir hamfarirnar var fyrsti grunnur- inn til, og eftir tvo mánuði gat fyrsta fjölskyldan, flutt inn i nýtt hús. Samhliða þessu var látlaust unnið að viðgerð á járnbrautar- linunni og þjóðveginum. Eftir þrjár vikur var hægt að hleypa umferðinni á að nýju. — Það tók okkur þrjú, fjögur ár að jafna okkur eftir þennan at- burð. Og samt hélt fólkið áfram að búa rétt við slysstaðinn, — segir Anders i dag. Það liði enn nokkur ár, unz fjár- hagur fólksins og sveitarfélagsins var komið á réttan kjöl. 1 dag standa 20 hús i jaðri sjálfrar skriðunnar. Þetta eru léttbyggð hús, þvi léttari sem þau eru lengra uppi i hliðinni. ,,Þau vildu snúa aftur” — Það er skritið, en einmitt það fólk, sem var á staðnum og varð vitni að hamförunum, vildi snúa aftur og búa áfram á þessum stað. Þrátt fyrir allt, leið þeim vel þar, — segir Anders. Sumarið 1950, var mikil rigning á þessu svæði i Sviþjóð. Þrýsting- urinn sem kom ofan frá fjöllun- um, Vattlefjal, ofan við Surte, en i þeim er mikið af mýraflákum og vötnum, varð of mikill. Auk þess raskaðist jafnvægið i hliðinni vegna þeirra húsa, sem þar höfðu verið byggð. Þessir tveir þættir ollu mestu um það, að skriðan féll. Þegar i stað voru gerðar jarð- tæknilegar mælingar og út- reikningar. Hvar og hvernig átti að byggja i framtiðinni. Dalurinn, sem Gautelfur fellur um, var allur kortlagður og rannsakaður. Surte-jarðskriðið varð til þess,að yfirvöld vöknuðu af værum svefni. Bygginganefndir og lánastofnanir fylgjast nú náið með framkvæmdum og áætlunum um húsabyggingar, ekki aðeins i Gautelfurdalnum heldur i allri Vestur-Sviþjóð. Þvi nær hafinu, sem byggt er, þeim mun meiri hætta er á jarðskriðum. Það þýðir það, að lega sjálfrar Gautaborgar er sú hættulegasta i dalnum. Árin liða og fram koma nýir menn og nýir lærifeður. Mörgum hættir til að gleyma smám saman liðnum atburðum, þótt stórir séu, og það er hættulegt. Þann atburð, sem hér hefur verið greint litil- lega frá, ættu bygginganefndir a.m.k. að hafa i huga. Það virðist sem verktakar vilji oft gleyma þvi, að ekki er hægt að nota sams konar efni og byggja á sama hátt á leirjarðvegi, moldarjarðvegi og malarjarðvegi, svo dæmi séu nefnd. Húsin geta ruggað eins og vöggur Nýju húsin, sem byggð voru i Surte, voru teiknuð af Hjalmar Granholm, en hann var þá pró- fessor i byggingatækni við Chalmers. Voru húsgrunnarnir byggðirsem eins konar „vöggur” þ.e.a.s. þannig, að hægt er að rétta þau við, ef þau fara að siga út i aðra hliðina. Hve miklu tjóni skriðuhlaupið olli, er ekki almennilega vitað. En árið eftir óhappið varð, árið 1951, var talað um sjö milljónir sænskra króna, sem var gifurleg fjárupphæð þá. ( Þýtt —Stp) Hálfnað er verk þá hafið er s. I I I sparnaður skapar verðmæti Samvinnubankinn

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.