Tíminn - 07.01.1973, Qupperneq 9

Tíminn - 07.01.1973, Qupperneq 9
slikt myndi efla menningu þjóð- arinnar. Það er enginn efi á þvi, að allar þessar sveiflur og sjávar- föll i efnahagslifi okkar valda almennu losi og sumpart röngu verðmætamati. En svo ég svari nánar spurn- ingu þinni, hvaða verkefni liggi næst til úrlausnar i starfsemi samvinnuhreyfingarinnar, lang- ar mig fyrst að minnast á þann þátt, sem ekki hefur enn verið drepið á hér i þessu spjalli, en það eru fræðslumálin. Það skal að visu viðurkennt, að þeim málum hefur ekki verið sinnt nægilega á undanförnum árum, en vissulega eru þau gifurlega veigamikill þáttur i starfsemi samvinnufé- laganna og bráðnauðsynlegt að halda uppi lifandi fræðslustarfi og að unnt reynist að ná tengslum við hinn almenna félagsmann i miklu rikari mæli en nú. Þarna erum brýnt framtiðarverkefni að ræða, og reyndar eru uppi ýmsar bollaleggingar um, hvaða leiðir helzt komi til greina að fara i þessum efnum. Að visu er þetta ekki neitt einkavandamál okkar, það sama er uppi á teningnum hjá nágrannaþjóðum okkar, það er að segja, að miklu erfiðara reynist en áður að njóta virkrar þátttöku félagsfólksins. Það gerist æ al- gengara, að litið er á samvinnu- hreyfinguna sem hverja aðra við- skiptastofnun. Þessu þarf að breyta. Það þarf að finna nýjar leiðir til þess að láta fólkið vera þess minnugt, að það er félags- menn i stórri félagsmála- og við- skiptahreyfingu. Þessu næst langar mig að minnast á iðnaðinn. Það hefur verið mikil gróska i iðnaði Sam- bandsins á undanförnum árum.og það eru uppi ýmsar ráðagerðir i þá átt að láta ekki hér staðar numið. Það er rétt að leggja á það sérstaka áherzlu, að við kapp- kostum að vinna úr islenzkum hráefnum og þá einkum að full- vinna þær afurðir, sem sam- vinnufélögin fá til sölu. En þótt við leggjum megináherzluna á þetta, er ekki þar með sagt, að við séum ekki reiðubúnir að sinna öðrum iðnaðarverkefnum. Og þá er það nú verzlunin. Þar tel ég, að hið stóra framtiðar- verkefni samvinnuhreyfingarinn- ar sé að ná stærri markaðshlut- deild á Reykjavikursvæðinu, en þar hefur hún verið miklu minni en viða úti á landi. Þarna, eins og reyndar alls staðar annars stað- ar, er um það að ræða að standa sig i samkeppninni, enda stendur nú til hjá kaupfélaginu hér i Reykjavik að ráðast i fram- kvæmdir, sem miða að því að auka markaðshlutdeild okkar hér á höfuðborgarsvæðinu. Samvinnu- skólinn — Þú nefndir þarna fræðslu- starfsemi. 1 framhaldi af þvi væri kannski ekki úr vegi að nefna sjálfan Samvinnuskólann? — Já, rétt er það. Þvi er ekki að leyna, að Samvinnuskólinn er visst vandamál hjá okkur um þessar mundir, en það stafar fyrst og fremst af þvi, hve að- sóknin er mikil, og vegna þess, hve mörgum þarf að visa frá skólanum. t Samvinnuskólanum stunda að jafnaði nám um áttatiu nemendur á ári, og skiptast þeir á milli tveggja bekkjardeilda, eins og kunnugt er. Það eru þvi ekki nema um fjörutiu nýir nemendur, sem fá inngöngu i skólann á hverju hausti. Aftur á móti eru umsóknir á hverju ári á milli tvö og þrjú hundruð, svo að menn geta séð, að þeir muni vera nokk- uð margir, sem verða fyrir von- brigðum, þegar skólinn hefur svarað öllum þeim bréfum sem honum berast frá ungu fólki, sem hyggur á skólavist. — Hvað er hægt að gera til þess að bæta úr þessu ástandi? — Framtið skólans hefur verið mikið rædd innan Sambandsins, en auk þess hafa fræðslumál almennt verið mjög á dagskrá hjá opinberum aðilum, og þar hefur alveg sérstaklega verið athugað, hvernig haga bæri verzlunar- fræðslu i landinu i framtiðinni. Auðvitað fer framtið Sam- vinnuskólans mjög eftir þvi, hvernig þessi mál skipast, en það erskoðun Sambandsins, að rikinu beri að standa straum af kostnaði við verzlunarfræðsluna i landinu, alveg eins og það kostar menntun i öðrum greinum. Og þó að bæði Samvinnuskólanum og Verzl- unarskólanum hafi verið veittur nokkur styrkur á fjárlögum, þá nægir það engan veginn, og sam- vinnuhreyfingin hefur þurft að greiða verulegar fjárhæðir vegna rekstrar Samvinnuskólans. Við teljum, að þessu beri að breyta, en eins og ég drap á áðan, verður ákvörðun um framtið Samvinnu- skólans tekin i samræmi við það fyrirkomulag, sem kann að verða ákveðið i væntanlegum lögum um hina almennu verzlunarmenntun. En það mun vera i deiglu frum- varp um þessi mál. Vissulega erum við stoltir af Samvinnuskólanum að Bifröst. Að visu má segja, að það hafi verið dálitið glæfralegt að flytja slikan verzlunarskóla upp i sveit, og þvi er ekki að leyna, að á þvi eru ýmsar neikvæðar hliðar. A hinn bóginn hefur það lika sina kosti. Ef vel tekst til, hafa slikir heimavistarskólar mjög margt til sins ágætis.og ég held nú, að reynslan hafi sýnt.að Samvinnu- skólinn er vel niður kominn þar sem hann er. Hann hefur á liðnum árum aflað sér mikilla vinsælda og unnið sér öruggan sess sem menningar- og menntastofnun, enda hefur verið lögð áherzla á mótandi og bætandi uppeldisáhrif skólans, engu siður en hið lög- boðna nám. I sambandi við menntun sam- vinnumanna vil ég taka það skýrt fram, að okkur er það mikið áhugamál að endurmennta starfsmenn okkar og auka og bæta þekkingu þeirra, meðal ann- ars með þvi að veita þeim tæki- færi til slikrar menntunar erlend- is. Þetta á við um alla okkar starfsmenn, en ekki er þess minnst nauðsyn fyrir þá, sem gegna einhvers konar forystu- hlutverki i félögum sinum. Bréfaskólinn — Þegar talaö er um menntun samvinnumanna, er freistandi að spyrja um Bréfaskóla SIS. Hvað getur þú sagt mér um hann? — Bréfaskóli Sambandsins, Úr frystiliúsinu i Þorlákshöfn. sem nú er Bréfaskóli Sambands islenzkra samvinnufélaga og Al- þýðusambands tslands, — eða SIS og ASt, eins og hann er alltaf kallaður i daglegu tali — er að minu áliti mjög merkileg starf- semi. Skólinn hefur nú starfað um meira en aldarfjórðungs skeið, og það hafa mjög margir tekið þátt i námi þar. — Veiztu, hversu nemendur eru margir árlega? — Það er nú ugglaust eitthvað dálitið misjafnt frá ári til árs, en ég held, að yfirleitt séu það svona frá ellefu hundruð til fimmtán hundruð manns, sem þar stunda nám árlega. Að sjálfsögðu er dá- litið erfitt að meta, hversu stór þáttur sliks skóla er i menntun fólks, en ég er ekki i neinum efa um, að hægt er að auka þá fræðslustarfsemi stórlega. Þar getum við mikið lært af nágrönn- um okkar á Norðurlöndum, en þar eru reknir slikir bréfaskólar af samvinnuhreyfingunni og verkalýðshreyfingunni, með mjög fjölbreyttu námsefni og á allan hátt með hinum mesta myndarbrag. — Stendur kannski til að auka fjölbreytnina i Bréfaskólanum hérna? — Já, ég veit ekki betur en það liggi fyrir. Og i sambandi við endurmenntunina, sem ég var aö tala um áðan, þá held ég.að ein- mitt þar geti bréfaskóli unnið mjög þarft verk. Það vita allir, að menn,sem komnireru i föst störf, geta oft átt harla erfitt með að taka sig upp til þess að fara að stunda nám, jafnvel þótt ekki sé nema um tiltölulega stutt nám- skeið aö ræða. En einmitt i slikum tilfellum getur bréfaskóli bætt úr brýnni þörf og jafnvel leyst vandann að mjög verulegu leyti.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.