Tíminn - 07.01.1973, Síða 26

Tíminn - 07.01.1973, Síða 26
26 TÍMINN Sunnudagur 7. janúar 197:i xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx::xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx X X X X X X X X X Vilhjálmur Hjálmarsson: X X A HEIMLEIÐ A DYMBILVIKU X X X X X X xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxixxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx: Skriöbeltamenningin er merki- leg. Islendingar nútimans dá hana meira enn flestar eða allar aðrar menntir. Hún flytur fjöll eins og trúin. bar að auki flytur hún fólk og varning, þar sem öðrum farartækjum verður ekki við komið. Flestir þeir Islend- ingar, sem ferðast eitthvað að ráði,hafa einhvern tima verið upp á hana komnir, ég og minir likar margsinnis. Fjórar skriðbeltaferðir eru mér einkum eftirminnilegar: Ein á snjósleða yfir Smjörvatnsheiði undir björtum vorhimni. önnur á jarðýtu yfir nær 1000 m háa Gagnheiðina milli Mjóafjarðar og Seyðisfjarðar, vor, snjór og fullt tungl. Þriðja yfir f’jarðarheiði um velur á merkilegum snjóbil i magnaðri bensinstybbu og á að gizka 50 stiga hita. Fjórða yfir sömu heiði i frosti og fannkomu og frá henni ætla ég nú að segja. Min ferðareisa hófst að þessu sinni i Reykjavik. Við byrjuðum að fara út á flugvöll eftir hádegið á mánudag eftir pálma. A þriðju- dag var þvi haldið áfram . En á miðvikudag tókum við flugið. Man ég ekkert frá þvi að segja utan þessi venjulegi ónotafiðr- ingur hjá undirrituðum, þegar komið er þar i sveit, sem Stein- grimur Thorsteinsson kallaði bláleiðir vinda. Og lentum á Egilsstöðum á sautjánda timanum eins og til stóð. Sjálfsagt hefur allt verið klárt hjá Sveini Kristinssyni og piltum hans. Afgreiðsla flugvéla fer nefnilega enn fram með þeim hætti, sem skip voru afgreidd á Mjóafirði i minu ungdæmi: Allir á slaðnum og allt tilbúið og hröð handtök. Nema kolgrimmir báts- menn eiga sér enga staðgengla á Egilsstaöaflugvelli. Og þó. Jónas okkar Einarsson er enginn eftir- bátur þeirra — i greiðvikni og hjálpsemi, en það var einmitt hin hliðin á þessum gömlu harðiöxl- um á strandferðaskipunum. Fjúk var af norðri, frostið 13 gráður i byggð og vindur vaxandi. Snjóbillinn var til taks engu að siður og var nú búið upp á. Mér leizt strax illa á klæðnað fólksins. Berhausaðir karlmenn með hanzka i nælonsokkum, eru ekki sérlega traustverkjandi i stór- hrið á fjöllum uppi. Sinu betri eru ungar dömur i siðbuxum og hettublússum og býst maður þó ekki við miklu innanundir. Börn eru jafnan vel búin á fyrsta aldursári. Samfylgd þeirra er þó ekki sérlega æskileg við þau skilyrði, sem þarna blöstu við, kannski samt engu óæskilegri en kvenfólks á minu reki, sem kemur grandalaust úr snjó- leysinu syðra i nælonsokkunum sinum og kápufiðunni með klút um hálsinn. Nú var lagt af stað. Farangri hafði verið komið fyrir bæði inni og þó einkum úti. Farþegar voru sjö. Var orðið æði þröngt i bilnum, þegar þeir höfðu þrýst sér i sætin ásamt bilstjóra og hjálparmanni. Ég man, að stjórn- borðsmegin á langbekk sat fremst ung kona með kornabarn sitt i fanginu, þá maður hennar, þá jafnaldran, þá yngri dama. Bilstjórinn sat auðvitað fremst i bak en ég við hurðina aftast, en þar voru dyrnar á hinu ágæta, en að þessu sinni yfirfulla farartæki. Vegur var snjólaus i neðra og nokkuð upp hliðarnar fyrir ofan Steinholt. Þvi yfir Fjarðarheiði var förinni heitið eins og kunnugir munu hafa rennt grun i. Þegar ofar dró var ekið um fannir og gjarnan utan vegar. Veður fór þar versnandi og varð fljótt erfitt að greina slóðir i hryðjunum. Klifrað var hærra og hærra i átt til Norðurbrúnar, sem alkunn er fyrir einstaklega fagurt úrsýni á björtum sumardögum. En það þori ég að fullyrða, að þá hluti hugleiddi engin þeirra, er þarna klúktu, hvað sem menn hafa nú annars hugsað, hver i sinu horni. Nú gerist það, að Sigurður bil- stjóri verður var við einhverja bilun . Mun honum hafa þótt tryggara að fá viðgerð strax og snýr þegar við, i átt til Egils- staða. Það er hægt undanhaldið segjamenn. Og vissulega reyndi minna á bil og vél að vafra niður fannirnar, en brjótast móti bratt- anum. Þó er nú lika sagt, að mörgum hafi orðið hált á „lensinu”. Ekki dró úr storminum og var skyggni hið versta þegar hann rak á hrynurnar. í einni slikri tók billinn mjög að hallast. Mér fannst eins og fólkinu brygði og hló hughreystandi og sagði að þetta væri ekki neitt, enda lang- reyndur snjólilsfarþ. hjá .þeim Seyðisfirðingunum. En hér var vist eitthvað óvenjulegt i efni. Skyndilega missti billinn jafn- vægið og slengdist á stjórnborðs- hliðina ofan á eitthvað hart. Reyndist það vera vegurinn sjálfur. Gaddfrosinn og kröpp ruðningshrönn i efri kanti hafði valdið veltunni. Það er af mér að segja, að ég hrasaði út um afturdyrnar, sem slógust upp um leið og billinn skall á veginn. Er vægt til orða tekið, að komið hafi á mig fát. Ég spratt upp hratt og titt og kallaði inn til hinna, að taka það rólega og halda sig i hlýjunni. En um leið sá ég inn i bilinn, hvernig þar var umhorfs. Með allri stjórnborðs- hliðinni lágu farþegarnir á herð- unum, með fæturna beint upp i loftið, fremst hjónin með barnið, á jafnaldran i kápunni sinni meö lútinn um hálsinn, ,þá önnur unga stúlkan i stredsbuxunum. Ofan á þeim bogruðu hinir, sem setið höfðu i bak — nema Sigurður bilstjóri. Hann hékk eins og skógarapi á stýrinu á þeirri hlið bilsins, sem upp vissi. Kom það sér vissulega vel fyrir ungu kon- una neðan undir. Hún haföi að visu fyrir stuttu fengið manni sinum barnið i hendur. En tal- stöðin hafði losnað við slinkinn og fallið niður á frúna, sem til allrar hamingju gat borið hendur fyrir sig. En hún hafði svo sannarlega «* ÍMm-- ■ .y iBBK Síðsumarsnjór á Fjaröarheiði Snjókeðjur til sölu á flestar stærðir hjólbarða Gerum við gamlar snjókeðjur Setjum keðjur undir bíla FLJÓT OG GÓÐ AFGREIÐSLA GÚMMIVNNUSTOFAN HF. SKIPHOLTI 35 REYKJAVÍK SÍMI 31055 Vilhjálmur Hjálmarsson. fullt i fangi — Ráðleggingar minar um rólegheit hefðu þvi sjálfsagt þótt fremur skothentar, ef nokkur hefði tekið eftir þeim. Meiðsli urðu litil eða engin enda billinn á sáralitilli ferð, þegar óhappið varð. Með gætni losuðu menn þau tök, sem hver og einn hafði tekið i fallinu hvar sem hönd á festi, og bröltu út úr biln- um, þeir sem ofan á höfðu orðið, svo hinir fengju rétt sig af. Bil- stjórinn og félagi hans hlupu nú niður að Steinholti, næsta býli undir heiðinni, að kalla út bila til að flytja fólk til bæja og rétta við snjóbilinn. Farþegarnir kúrðu i bilnum á meðan, þó i kulda og trekki, nema ég vappaði um úti fyrir enda allvel búinn i gæruúlpu og háleistum m.m. Eftir alllanga bið komu bilar og færðu fólk og snjóbil til aðhlynn- ingar á viðeigandi staði. Voru farþegarnir allhressir, þegar þeir settust að snæðingi i Valaskjálf — nema undirritaður. Hann tók að verkja sárlega i báðar fætur og þó einkum i allar tær. Varð hann af þeim sökum að strjúka undan borðum og snarast fram á snyrt- ingu að kæla þessa likamsparta undir krananum. Rénuðu þá þrautir en einkennilegan dofa hafði ég i tánum næstu vikur. Sannleikurinn er sá, að þröngir skór eru engu betri en þunnir sokkar þegar út i það er farið. Hér skildu leiðir. Þvi þegar aft- ur var lagt upp kl. eitt um nótt- ina, eftir að snjóbillinn hafði fengið hæfilega yfirhalningu á verkstæðinu hjá Gunnari og Kjartani, þá var þar enginn minna fyrri ferðafélaga. Ég einn fékk að fljóta með (af náð?), en aðrir farþegar voru ungir og vaskir og velklæddir starfsmenn frá verkstæðinu Stál á Seyðis- firði. Voru þeir Stálverjar að koma úr vinnu á Hornafirði og ætluðu að dvelja heima yfir páskahelgina. Bar nú ekki til titla né tiðinda fyrst lengi vel. Veðrið var þó as Djúpt á veginum. A Oddsskarði 1951

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.