Tíminn - 07.01.1973, Síða 40

Tíminn - 07.01.1973, Síða 40
 Itátariotinn <;r þrss scnn tilbúinn aft hcfja vctrarvertiftina. Samkomulag komst á um rekstrargrundvöll útgcrðarinnar með L.Í.Ú. og rikis- stjórninni fyrir áramót og fiskvcrðið ákvcðið. —Timamynd: Róbert Sunnudagur 7. janúar I!)7:i Brúðhjón mánaðar- ins úr Hafnarfirði Dregið hefur verið um brúðhjón mánaðarins úr brúðhjóna- myndum þeim, sem birtust i Timanum i desembermánuði. Brúðhjónin sem hrepptu þessa nafngift, ásamt þeirri brúðargjöf frá Timanum, sem áður hefur veriðskýrt frá eru úr Hafnarfirði. Þau verða kynnt i næstu viku. Næst verður dregið um brúðhjón manaðarins i byrjun febrúarmánaðar. V i 11 blaðið benda brúðhjónum úti á landi á að senda myndir af sér. Næst koma til greina brjúðhjón gefin saman i desember 1972 og janúar 1973. NÝARSFLÓÐIÐ komið í hvítA Erl—Reykjavik Þaö er ekki ný bóla, að Hvítá og Norðurá í Borgar- firði vaxi, svo að um muni. Mega menn minnast flóð- anna sem urðu i byrjun árs i fyrra. Nú er áramóta- flóðið komið í árnar, þótt Víða mis- brestur á hunda- hreinsun - aðeins í einni sýslu í umsjá dýralæknis SB-Rcykjavík Undanfarin ár hafa um allt land fundizt netjusullir i sauðfé, en sé þeim ekki haldið niðri geta þeir leitt af sér annað verra: höfuðsóttarsulli, sem eitt sinn voru algengir hérlendis og sullaveiki i fólki. Til að halda netjusullum niðri, þarf að hreinsa hunda reglulega, en á þvi hefur viljað verða misbrestur. Þorsteinn Lindal, dýralæknir á Skógum undir Eyjafjöllum, hefur nú verið skipaður, fyrstur dýra lækna á landinu, til að hafa um- sjón með hundahreinsun i sýslunni allri. 1 viðtali við Timanna i gær sagði hann, að á seinni árum hefðu netjusullir fundizt i sauðfé á þremur til sex bæjum i hverjum hreppi sýslunnar, en þó á fjórtán bæjum i einum þeirra. Hundahreinsun hefur yfirleitt verið og er enn nema i Rangárvallasýslu, i höndum héraðslækna, en mis- brestur á hreinsuninni stafar einkum af þvi, að þar sem héraðslæknar á annað borð eru, hafa þeir meira en nóg að gera við að sinna mannfólkinu. Þorsteinn kvað ekki óliklegt, að viðar yrði hundahhreinsun faiin dýralæknum, og ekki væri sizt þörfá þvi á Norðausturlandi, þar sem enn finnast höfuðsóttarsullir i sauðfé. fjarri fari þvi, að það jafn- ist á við flóðið i fyrra. Veldur þessu hláka ofan á þau fannalög, er voru til fjalla. Mikið vatn hefur hlaupið i F'erju- kotssiki, svo sem oft ber við, þegar Norðurá vex til verulegra muna, og flæddi þar yfir veginn. liann hafði þó litið grafizt, og ekki var vatnið dýpra en svo i gær, að hann var fær fólksbilum. Finnst mönnum þá ekki stórlega til um vatnavextina i Borgarfirði, þó að ókunnugum kunni að þykja iskyggilegt að halda áfram ferð sinni, þvi að vegurinn er hár, þar sem hann liggur yfir Ferjukots- siki og þess vegna hyldýpi ■ á báðar hendur, er lægðin ofan Þjóðólfáholts er full af vatni. Hvitá stóð mjög hátt neðan til um það bil, er hæst var i sjó, enda er stórstreymt um þetta leyti, en sjór fellur langt upp i ána, þegar svo stendur á, eins og kunnugt er. Blaðið hafði ekki fengið fregnir ofan úr Norðurárdal, er það fór i en liklegt er, að hafi verið undir prentun i gær, láglendið þar vatni. Annars staðar á landinu hafa sums staðar orðið talsverðir vatnavextir, og dæmi eru um skemmdir á vegum. Var það einna helzt af þvi, tagi er blaðið haföi spurnir af, að á Þelamörk i Eyjafirði grófst vegurinn sundur, en við þær skemmdir var búið að gera til bráðabirgða i gær. 1 Skagafirði flæðir iðulega yfir þjóðveginn i hlákum að vetrar- lagi og svo er raunar viðar. Loðna — frá 25 og a storu út að 60 sjómílum frá landi I l*ó—Rcykjavik. ,,Við liöfum ckki lundið vcru- lcgar torfur til viðbótar þciin, scin við IiiihIiiiii i lyrradag", sagði Jakob Jakobsson. fiski- Ira'ðiiigur, þcgar við böfðum samband viðliann um borð i Arna Friðrikssyni i gærmorgun. „Hins vogar", sagði Jakob, „höfum við fundið dreifða loðnu hér sunnar á svæðinu og einnig nær landi, svona 25 sjómilur frá Langanesi, i Bakkal'lóadýpi. Þó svo að loðnan sé ekki ennþá orðin þétt, þá er hér örugglega um nokkuð mikið magn á ferðinni, þvi að hún finnst á svæði sem er 25 milur og út að 60 sjómilna f jar- lægð frá landi.” Eldborg GK 13 var ekki komin á miðin, þegar við höfðum samband við Jakob, en hann sagði, að hún hefði verið væntan- leg i gærkvöldi. Sæmilegasta veður var á svæðinu, sem Árni Friðriksson leitaði á i gær og i íyrrinótt. Klippt á togvíra v.-þýzks verk- smiöiu- togara Laust eftir hádegið i gær, nánar tiltekið klukkan tiu minútur gengin i tvö, skar varðskip sundur annan togvir vestur-þýzks verk- smiðjutogara i austan verðu Lónsdýpi 37,7 sjómilur út af Stokksnesi. Togari þessi heitir Berlin BX 673. Kom varðskipið að honum, þar sem hann var að veiðum rúmar tólf sjómilur innan fiskveiðimarkanna. Gafu varðskipsmenn skip- stjóra togarans itrekuð fyrirmæli um að draga inn veiðarfæri sin og halda út fyrir fiskveiðimörkin, en þegar hann sinnti þvi ekki, var látið til skarar skriða. Togari þessi er 936 lestir að stærð. Þessi mynd var tekin úr fiugvél af nokkrum bátum á loðnuveiðum á NK á leið til lands með fullfermi, þá sjáum við Ólaf Sigurðsson AK og miðunum suðvestur af Reykjanesi i fyrra. Lengst til hægri er Kirtingur Arna Magnússon SU, og fjærst er svo Gisli Arni RE orðinn vel siginn. —Timamyndir: Gunnar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.