Tíminn - 20.01.1973, Síða 3
l.augardagur 20. janúar 1973
TÍMINN
3
Brekkukotsannáll í sjónvarpinu:
Oheppileg kvöld
valin til sýningar
— segja sjónvarpsnotendur,
sem hringt hafa til blaðsins
Állir vilja sjá Brekkukotsannál
i sjónvarpinu, en ekki eru allir aö
saina skapi ánægðir meö, aö
kvikmyndin veröur sýnd næstu
mánudagskvöld tvö. Það þýöir
sem sé, aö fólk, sem vinnur
vaktavinnu, — aðra vikuna fyrri
hluta dags, en hina næstu siöari
hluta dags, og þeir eru mjög
margir — getur ekki séð hema
annan þáttinn fyrr en þá einhvern
timaseinna við endursýningu, og
þá ef til vill ekki i réttu samhengi.
— Hvers vegna i ósköpunum eru
þessar myndir ekki sýndar á
laugardagskvöldum og sunnu-
dagskvöldum? spurði prentari,
sem hringdi til blaðsins.
Fara til Skot
lands til
að spila golf
Klp-Reykjavik
Golfáhugamenn viða um land
munu i ár, eins og undanfarin
þrjú á, fjölmenna til Skotlands,
þegar vora tekur hér. Er ráðgert
að halda af stað i þessa fjórðu
golfferð Islendinga til Skotlands
þann 30.aprfl og koma til baka
þann 8. maí.
Eins og i fyrri ferðunum verður
dvalið i North Berwick, sem er
litið þorp skammt frá Edinborg,
en þar og i næsta nágrenni eru
margir af beztu og frægustu golf-
völlum Skotlands.
Samkvæmt upplýsingum, sem
við fengum hjá Sigurði Matthias-
syni og Birgi borgilssyni hjá
Flugfélagi Islands, en þeir sjá um
skipulag þessara ferða, hafa um
40 manns þegar látið skrá sig, en
þeir sögðust búast við, að i þess-
ari ferð yrðu þátttakendur á milli
60 og 80 eins og i hinum ferðunum
þrem.
LÁN
HÚSNÆÐIS
MÁLA-
STJÓRNAR
HÆKKUÐ
Hinn 8. janúar sl. staðfesti
félagsmálaráðherra samþykkt
húsnæðismálastjórnar frá 19.
desember sl. um hækkun á ibúöa-
lánum Húsnæðismálastofnunar
rikisins. Samkvæmt þvi hafa nú
meðangreind hámarkslán til
ibúðabygginga tekið gildi:
1. Hámarkslán úr byggingasjóði
rikisins til smiði ibúða, sem bygg-
ing verður hafin á eftir 31. desem-
ber 1972, mega nema kr.
800.000.00 á hverja ibúð.
2. Hámarkslán úr byggingasjóöi
rikisins til smiði ibúða, sem bygg-
ing var hafin á fyrir árslok 1972,
en verða ekki fokheldar fyrr en
eftir þann tima, mega nema kr.
700.000.00 á hverja ibúð.
1 kjörfar þessa siglir einnig
hækkun á ibúðalánum stofnunar-
innar vegna kaupa á eldri ibúð-
um. Mega þau nú nema á hverja
ibúð, allt að hálfri fjárhæð há-
marksláns skv. 1 lið tilkynningar
þessarar.
Bakkahverfi, Seljahverfi,
Fellahverfi og Hólahverfi
TK-Reykjavfk
A fundi borgarstjórnar i fyrra-
kvöld sagði borgarstjóri það mjög
óviðeigandi aö kalla alla þá
byggð, sem risin væri i Breiðholti,
einu nafni Breiðholtshverfi.
Hverfin væru raunar 3 eða 4 og
hefði verið rætt um það i borgar-
ráöi að gefa þessari byggð fjögur
hverfaheiti og hætta þar með að
nefna Breiðholtshverfi. Breiðholt
I ætti að heita Bakkahverfi,
Breiðholt II. Seljahverfi og Fella-
hverfi, og Hólahverfi ætti að
koma i stað Breiðholts III.
1 ræöu borgarstjóra kom fram
gagnrýni á fjölmiðla fyrir að
kalla byggðina i Breiöholti Breið-
holtshverfi og gæfi það villandi
mynd af byggðinni.
bó-Reykjavik
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins sat á fundum i gær og
reyndi að komast að samkomu-
lagi um loðnuverðið. Samkvæmt
upplýsingum Sveins Finnssonar
skrifstofustjóra, þá voru litlar
horfur á þvi, að samkomulag
næðist i gærkvöldi, en allt kapp er
nú lagtá að ná samkomulagi, þar
Togaradeilan:
Sáttafundur
á mánudag
bÓ-Reykjavfk
Sáttasemjari hefur boðað
undirmenn á togurunum og
togaraeigendur til fundar á
mánudag 22. janúar, klukkan 10.
bessi fundur getur varla verið
mikið seinna, þar sem verkfall
undirmanna skellur á, ef
samningar nást ekki, klukkan 24
á mánudagskvöld.
Sáttasemjari var búinn aö
halda marga fundi með
deiluaðilum fyrir og eftir áramót,
en sföasti fundurinn var haldinn
11. janúar og þá miðaði ekkert i
samkomulagsátt.
bað er vissulega rétt hjá
borgarstjóra, að hér er um mörg
hverfi að ræða. En sökin á þvi, aö
þessi byggð er nefnd Breiðholts-
hverfi, er ekki hjá fjölmiðlum
heldur hjá borgaryfirvöldunum
sjálfum, sem ekki höföu frjórri
hug en svo, að þeir nefndu þessi
hverfi Breiðholt I, næsta hverfi
Breiðholt II og hið þriðja Breið-
holt III. Fjölmiðlar urðu að sjálf-
sögðu siðan að skila þessari hug-
myndaauðgi og málgnótt borgar-
yfirvalda rétt frá sér. Borgar-
stjórinn er raunar að fylgja þeirri
tizku, sem er orðin ýmsum æði
töm, að kenna fjölmiðlum um
ýmislegt, sem betur má fara i
þjóölifinu, en nokkuð ósanngjarnt
verður það vægast sagt að teljast
i þessu tilviki.
sem loðnuskipin eru flest að
leggja af stað til veiöa, og
reyndar eru sum farin, sem
kunnugt er.
AA-Höfn
Stórviöri hafa gengið hér, það
sem af er þessu ári, og hafa bátar
þvi litiö komizt á sjó ennþá. bó
hafa þeir róið einn og tveir öðru
hverju, en afli verið misjafn. I
fyrradag fóru þó allir á sjó, og er
það fyrsti dagurinn. Afli var þá
sæmilegur, flestir með 4-5 tonn.
Héðan verða i vetur gerðir út 14
bátar, 2 verða á loðnu, ef og
meðan hún veiðist, 5-6 á linu
framan af en hinir á netjum eða
trolli, og þau veiðarfæri munu
linubátarnir taka upp, þegar á
liöur.
Skinney er nú tilbúin á loðnuna
og mun fara út, strax og sjó lægir.
Hinn loðnubáturinn, Bergá, er
sem stendur i Vestmannaeyjum,
þar sem verið er að láta i hana
Tillögur borgarstjórans nú um
nýjar nafngiftir á hverfin i Breið-
holti eru góðra gjalda verðar. En
stundum er erfiðara aö halda
heilræðin en kenna þau.
Nokkru eftir að borgarstjórinn
hafði beint þessum tilmælum til
fjölmiðla og almennings, að hætt
yrði að tala um Breiðholtshverfi,
heldur rætt um Bakkahverfi,
Seljahverfi, Fellahverfi og Hóla-
hverfi i staðinn og þá hvert um sig
eftir þvi hvar hlutirnir væru að
gerast i Breiðholti, var borin und-
iratkvæði tillaga, sem runnin var
undan rifjum borgarstjórans
sjálfs, og ihaldsmeirihlutinn réð
algerlega orðalagi á, og borgar-
stjórinn gerði enga athugasemd
við, þótt hann ræddi tillöguna að
öðru leyti. 1 þessari tillögu var
nefnilega ekki rætt um Bakka-
hverfi.Seljahverfi eða Hólahverfi
heldur um Breiðholtshverfi.
Borgarstjórinn verður að vera
samkvæmari sjálfum sér, ef hann
ætlast til, að mark sé á honum
tekiö. En i hnúkana tekur, þegar
fjölmiðlar eru skammaðir fyrir
að hafa eftir þau heiti, sem hann
sjálfur notar um hverfi borgar
innar.
dælu, og á þvi verki senn aö verða
lokið. Hún var áður þekkt undir
nafni Guðrúnar borkelsdóttur en
hefur átt hér heima siðustu árin
og gæfan ekki yfirgefið skipið viö
nafnaskiptin. Hún mun stunda
loönuveiðarnar með flotvörpu.
1 fyrra hóst hér bygging mikils
frystihúss sem á aö risa i þrem
áföngum og á samkvæmt áætlun
að kosta tæplega 200 milljónir
króna. bá er og verið að leggja
siöustu hönd á smiði nýrrar
mjólkurstöðvar, og veröur hún
væntanlega tekin i notkun i
byrjun næsta mánaðar. betta er
nýbygging frá grunni, gerð sam-
kvæmt ströngustu kröfum, og
verður mikil bót frá fyrra hús-
næöi, en það er gamalt og úrelt á
flestan hátt.
Loðnuverðið:
Samkomulag ekki enn
SLÆMAR GÆFTIR
FRÁ ÁRAMÓTUM
— 14 bátar á vertíð frá Hornafirði
Um helgar er sjónvarpsdag-
skráin að jafnaði fram úr hófi
léleg , sagði þessi maður,og
menn geta bara litið á dagskrána
núna á sunnudaginn og laugar-
daginn þar á eftir — hún var
prentuð i Timanum á föstu-
daginn. Hefði verið mikil eftirsjá
að sumu, sem þar er borið á borð,
þótt það hefði vikið fyrir Brekku-
kotsannál?
Eitthvað þessu likt sögðu fleiri,
sem hringdu til blaðsins, vegna
þess, hvaða timi Brekkukotsann-
ál er valinn og sumir nefndu
önnur dæmi eldri um efni, er al-
menningi hefði vafalaust verið
keppikefli að sjá, en ekki hefði
verið valinn timi, þegar liklegast
var, að allir gætu látið eftir sér að
horfa á sjónvarp.
betta eru raddir þeirra, sem
sjónvarpið á að þjóna. Timinn
hefur aftur á móti hlerað, að
mánudagurinn hafi verið valinn
fyrir Brekkukotsannál vegna
þess að þá eru ekki neinar leik
sýningar i leikhúsum i Reykjavik,
svo að kvikmyndin drægi ekki úr
aðsókn að þeim. -JH.
Borgarstjórinn i Reykjavik kennir blöðum heilræði, sem hann heldur
ekki sjálfur.
V
Hafsteinn heiðraður
Hlýhugur og samúð almenn-
ings gagnvart Hafsteini
Jósefssyni og fjölskyldu hans
þessa dagana sýnir enn einu
sinni, að tslendingar eru
hjartgóð og hjálpsöm þjóð.
Peningar streyma nú inn i
þeirri söfnun, sem hafin er til
styrktar Hafsteini og fjöl-
skyldu hans. Ilafsteinn varð
fyrir varanlegu likamstjópi,
er hann setti lif sitt I hættu við
að bjarga iifi annarra, en ekki
á félagi hans, Ólafur ög-
mundsson, sem afvopnaði
byssumanninn og yfirbugaði,
siður lof og þakkir skilið.
Formaður Rauða kross ls-
lands hefur nú afhent Haf-
steini heiðurspening frá Al-
þjóða rauðakrossinum og 100
þúsund króna heiðursverðlaun
frá Rauðakrossi tslands.
Borgarstjórn Reykjavikur
ákvað á fundi i fyrrakvöld að
veita Hafsteini 150 þúsund
króna viðurkenningu fyrir
hugrckki hans.
Nokkuð hefur verið rætt um
þær bætur, sem Hafsteinn á
rétt á frá tryggingakerfinu, og
hefur mönnum þótt lágar þær
tölur, sem Mbl. birti I þessu
sambandi. Þær tölur eru ekki
alls kostar réttar, þar sem
vafalaust má telja, að úr-
skurðað verði, að Hafsteinn
hafi verið að bjarga mannslifi,
og hlýtur hann þvi slysabætur
að fullu og á þá rétt á 727 krón-
um á dag, virka daga sem
helga. Þegar lækningatimabili
lýkur, er örorka Hafsteins úr-
skurðuð, og verði hún metin
75%, á hann rétt á 7.244 krón-
um á mánuði og 3.707 krónum
á mánuði fyrir hvert barn á
framfæri eða samtals rúm-
lega 22 þúsund krónur á mán-
uði og til viðbótar fjölskyldu-
bætur vegna barna eða alls
um 26 þúsund krónur á mán-
uði.
Þá fær Hafsteinn gervilim
og læknishjálp alla sér að
kostnaðarlausu.
En það verður auðvitað
aldrei bætt með neinum fjár-
munum, þegar ungur maöur i
blóma lifsins missir annan fót-
inn fyrir ofan hné.
Úrbóta þörf
i framsöguræðu i borgar-
stjórn Reykjavikur i fyrra-
kvöld fyrir tillögu borgarfull-
trúa Framsóknarflokksins um
að tafarlaust verði komið upp
löggæzlustöð I Breiðholts-
hverfi, sagði Alfreð Þorsteins-
son m.a.:
„i framhaldi af þessari
ályktun, sem ég er algerlega
sammála, er mjög auövelt að
færa rök fyrir þvi, að ibúar
Breiöholtshvcrfis búi við
meira öryggislcysi en Ibúar
annarra hverfa Reykjavikur.
i þvi sambandi er löggæzla af
skornum skammti efst á blaði,
en áöur en ég vik að þvi máli,
þykir mér rétt að minnast á
það, að sáralitiö hcfur veriö
gert til þess að koma upp
ýmiss konar félagslegri að-
stöðu fyrir Ibúa Breiðholts-
hverfis. Æskulýösstarf hefur
verið næsta litið og aöallega
sótt I annað hverfi. Þá hef ég
áður gagnrýnt á borgar-
stjórnarfundi, hve seint geng-
ur að koma upp iþróttaaðstöðu
i hverfinu fyrir börn og ung-
linga. Og i þvi sambandi er
e.t.v. alvarlegast, að enn mun
sennilega liða nokkuð langur
timi, þar til Iþróttaaðstaöa
fæst, a.m.k. i Breiðholtshverfi
III, sem verður stærsti hluti
hverfisins. — A meðan verður
gatan leikvöllur unglinganna
— og við vitum, hvers konar
uppeldisstofnun hún getur
verið.
Undan þessu hafa Ibúar
Breiðholtshverfis kvartað,
eins og eöliiegt er. Þeir hafa
einnig kvartað undan ýmsu
•Framhald á bl&. 27