Tíminn - 20.01.1973, Blaðsíða 24

Tíminn - 20.01.1973, Blaðsíða 24
24 TÍ.MI.N.N Laugardagur 20. janúar 1973 iit i * ' 1 m 1 T**** *^» 'Hf; 1 /' -j..#.. . y ] Hluti hinna 80 dansara og söngvara frá Júgóslaviu. Eins og sjá má er þetta ungt, fjörlegt og bráðmyndarlegt fólk. „Hoppsasí og tra-la-la” á sviði Þjóðleikhússins 2. febrúar n.k. - 80 manna flokkur dansara og söngvara frá Júgóslavíu Stp—Reykjavík Um n'æs'tu mánaðamót kemur hingað til lands 80 manna flokkur dansara og söngvara frá Júgóslaviu, sem sýna mun þjóö- dansa og flytja þjóðlög frá Slóveniu, Serbiu, Makedóniu og Króatiu á sviði bjóðleikhússins. Verða sýningarnar tvær, báðar sama dag, föstudaginn 2. febrúar kl. 8 og 11 e.h. Listamennirnir eru frá borginni Ljubljana i Slóveniu og koma hér við á leið sinni vestur um haf i sýningarferðalag um gervöll Bandarikin. Hefur flokk- urinn hlotið mikla viðurkenningu viða um lönd, en hann hefur sýnt i flestum löndum Evrópu og nokkrum Afrikurikjum og fer nú i fyrsta skipti til Bandarikjanna. betta mun vera fjölmennasti hópur erlendra listamanna, er til þessa hefur komið fram á fjölum bjóðleikhússins. Fyrir fimm ár- um sýndi annar söng- og dans- íiokkur frá Júgóslaviu, sem „Frúla’” hét, i bjóðleikhúsinu. Hélt hann tvær sýningar við mikla aðsókn og hrifningu. Efnisskrá danssýninganna er mjög fjölbreytt. Skiptast á dansar og þjóðlög frá ýmsum héruðum Júgóslaviu, og má þar nefna fjör- mikla dansa frá Gorenjsko (Slóveniu) og Sumadija (Serbiu) dansana „Sopsko Oro” frá Make- dóniu, „Starobosansko Kolo” frá Serbiu og margt fleira. Milli dansatriðanna syngur kórinn þjóðlög, og heitir stjórnandi hans Marko Munih. Dansarnir eru úr hinum við- fræga France Marolt þjóö- dansaflokki, en söngvararnir eru i Tone Tomsic þjóðlagakórnum. Dansflokkur þessi var stofnaður fyrir um 25 árum og er kenndur við stofnanda hans og helzta for- göngumann, France Marolt, sem var á sinum tima þekktur fræði- maður á sviði þjóðlegrar, slav- neskrar dans- og tónmenntar, og vann mikið brautryðjandastarf við söfnun og skráningu þjóðlaga og dansa. Hér sjást nokkrir Júgóslavanna. Fjörið er mikið og búningarnir skrautlegir Kaktusblómiö. Á frummál- inu: „Cacktusf lower'/ Leikstjóri: Gene Saks, kvikmyndari: Charles D. Lang. Handrit er samið upp úr frönsku gamanleikriti eftir Bouillet.og tónlist er eftir Ouncy Jones. Bandarisk frá 1969. Myndin er i litum og með islenzkum texta. Sýningarstaður: Stjörnubió. betta er fyndin og leikandi gam- anmynd. Aðalpersónurnar eru fjórar,- miðaldra tannlæknir (Waltner Mahieu) aðstoðarstúlka hans á tannlæknisstofunni (Ingrid Bergman), kærasta tannlæknis- ins (Goldie Hawn) og ungur rit- höfundur (Tino Scotti). Eftir hæfilegan misskilning og bjarg- anir nær réttur aldursflokkur saman, en áður hafa áhorfendur hlegið dátt sér til upplyftingar og skemmtunar. betta var frumraun Goldie Hawn, sem sýndi ótvirætt, hvað i henni býr. Hún er brjóstumkenn- anleg og einlæg i túlkun sinni á Toni Simmons. Hún slær alveg hæfilega á létta strengi. bað er ákaflega gaman fyrir aðdáendur Bergman aðsjá hana leika aftur Hún er hæfilega piparjúnkuleg i málrómnum, þegar hún svarar i simann hjá lækninum, og mátu- lega særð, þegar hann biður hana að hjálpa sér i vandræðum sinum. Svo springur hún út eins og kaktusinn, þegar hún fær hæfilegt umhverfi og uppörfun, og e.t.v. tekst henni þá bezt i leiknum. Bergman hefur ekki fyrr leikið i gamanmynd, sem ég hef séð, en það er sannarlega gaman að sjá hana aftur. bað hafa verið álög á mörgum leikkonum, að þær hafa leikið i hverri myndinni á fætur annarri á vissu aldursskeiði og siðan aldrei sézt meir. Sem betur fer, er þessum álögum nú að létta. Karlmennirnir fara allir skinandi með sin hlutverk, og val i aukahlutverk er gert af mikilli nákvæmni. Ouncy Jones annast tónlistina af aikunnri smekkvisi, og Sara Vauham syngur titillagið dásam- lega vel. Kvikmyndun er vel unn- in og lifleg. Myndin fer aldrei út i rjómatertufarsa, þó að það jaðri við aðeins of mikinn misskilning á köflum. Annars sýnir hún lika vel bilið á milli kynslóðanna, þegar tannlæknirinn gefur Toni minnkastólu, er hún eins og illa gerður hlutur með hana um háls- inn, og gefur hana burt sem fljót- ast, enda dreymt um svartar leðurbuxur. Fágaður leikur og vandað handrit gerir myndina eftirtektarverða, og sannar, svo ekki verður um villzt, að hægt er að sameina skemmtun og list. bað þarf engum að leiðast, sem leggur leið sina i Stjörnubió þessa dagana. p . SkólavörBustfg 3A. II. h»8. Slmar 22011 — 19253. FASTEIGNAKAUPENDUR Vantl yður fastelgn, þá hafið samband við skrifstofu vora. Fasteignir af öllum stærðum og gerðum fullbúnar og í .smlðum. FA8TEIGNASELJENDUR Vinsamlegast látið skrá fast- 1 eignir yðar hjá okkur. Áherzla lögð á góða og ör- ugga þjónustu. ‘ Leitið uppl. um vert og skilmála. Maka- skiptasamn. oft mögulegir. Önnumst hvera konar samn- ingagerð fyrir yður. Jón Arason, Hdl. Málflutnlngur . faitelgnuala

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.