Tíminn - 20.01.1973, Blaðsíða 15

Tíminn - 20.01.1973, Blaðsíða 15
Laugardagur 20. janúar 1972 TÍMINN 15 A sextándu öld var algengt, að fólk I norrænum nágrannalöndum okkar þambaði átta til tiu potta af bjór á hverjum degi, og þar að auki kom svo brennivln og mjöður. Mjólk var að sjálfsögðu einnig drukkinn. En við vatni var varla litið, þegar fólk þyrsti eftir saltmetið, sem það hafði Iátið i sig. Nú er ekki lengur siður að yrkja mestmegnis um þorsta sinn og dugnað við að slökkva hann með áfengum drykkjum, er fyrr meir var mikið iðkað. Samt sem áður fer þvi fjarri, að löngun i þess meðal aðalsmanna og borgara, eru drukknir orðnir og fullir, þegar þeir koma á þingið, og verður tiðum af þessum sökum mikið háreysti, óp,öskur, þrætur og deilur, hvar af flýtur, að margir spilla eða fortapa sinum rétti. Þar fyrir höfum vér séð nauðsyn bera til, að landsþing hér eftir byrji á sumrin ekki seinna en klukkan sjö og að vetri i siðasta lagi klukkan átta”. Þaö er svo önnur saga, hvort menn hafa hætt að tæma öl- kollurnar, þótt þeir væru rifnir upp snemma dags. konar drykkjarvöru hafi yfirgefið mannskepnuna, og enn rennur óhugnanlega mikið af áfengum drykkjum um kverkar fólks. Til er mergð af alls konar drykkjuvisum, sem sungnar voru, eða formálum, sem hafðir voru yfir á jnannfundum og veizlum á miðöldum, þegar efnt til var hópdrykkju, Þá var mikill siður að drekka svokölluð minni, og þessum minnum var raðað af natni eftir tign þeirra máttar- valda, er þau voru helguð: Minni guðs föður, Krists, heilags anda, Mariu guðsmóður og óteljandi dýrlinga. Tuttugu tunnur Þó að menn hefðu i rauninni mesta dálæti á drykkju á þessum öldum, og það væri talið merki um hreysti og karlmennsku að drekka sem mest (og er jafnvel ekki aldauða enn), brá þvi þó fyrir, likt og konungsboðið frá 1595 ber með sér, að reynt væri heldur að hamla gegn drykkju- skap. Var þá helzt gripið til þess að fyrirskipa, hversu mikið af áfengum drykkjum mætti drekka i þessari eða hinni veizlunni. Með þessu var stefnt að þvi að afstýra stórslysum, þó að sennilega hafi orðið af þvi litill árangur. Vandinn viö siðaskiptin Við siðaskiptin á sextándu öld komust menn i mikinn vanda. Visur og formálar, sem heyrðu til hinum fornu minnum, báru strangkaþólskan svip, svo sem að likum lætur, og siða- skiptapostularnir komust i mikinn vanda, þvi að þarna var rótgróin siðvenja, sem erfitt var að hnekkja. Nafnkunnur maður, Olaus Petri, reyndi að fleyta fólki yfir þennan þröskuld, sem breytingin á trúarbrögðunum leiddi af sér, með þvi að yrkja og gefa út i skyndi minni og skála- vlsur, þar sem kenningin var svo I Sviþjóð voru þær reglur settar, að á mannamótum, sem aðeins náðu til eins byggðarlags, mætti ekki færa nema tuttugu tunnur öls. Það voru samt all- nokkrar birgðir, þar sem aðeins fáir tugir manna voru saman komnir, — sem sagt tvö þúsund og fimm hundruð pottar. Spýjurennan t ráðhúsum og samkomuhúsum iðngildanna þótti sjálfsagt að hafa sérstaka spýjurennu. Gildis- bræður höfðu yfirleitt mjög nákvæmar reglur um drykkjusiði sina, og var það ein krafan, sem hrein og klár, að þetta mátti sem bezt syngja án hneykslunar i brúðkaupsveizlum og öðrum samkvæmum þess tima. Þörfin var ákaflega mikil, þvi að menn þurftu raunar miklu oftar að gripa til þess konar visna og for- mála — sums staðar var jafnbrýn þörf á sliku og sjálfri kvöld- bæninni. Danskt konungsbréf frá 1595 segir langa sögu i stuttu máli: „Vér höfum komizt að raun um, að landsþing hefst ekki, fyrr en komið er langt fram á dag, svo að margir af vorum þegnum, bæði til þeirra var gerð, að þeir urðu að komast að spýjurennunni til þess að æla. 1 sænskum bálki um þetta segir: ,,Nú verður bróðir drukkinn meira en honum er hollt, svo að hann ælir á gólfið. Þá bætir hann gildinu einu pundi malts....” Þegar minni voru borin, urðu allir að drekka. Aftur á móti voru þeir skektaðir sem drukku einir. Drykkjuskapurinn innan veggja gildishúsanna var skipulagður og færður i fast og vel séð um, að hann væri mikill. Þar að auki áttu menn að minnast þeirra, sem Hraustlcga skálað, cnda kannski vcrið aðdrekka minni heilags anda. Saltmetið, sem forfeðurnir nærðust á, kallaði lí ka á mikla dn ^kkju stóðu utan félagsskaparins. 1 reglum eins gildis við Kopper- berg i Sviþjóð voru þessi ákvæði: „Allir gildisbræður skulu standa upp og kveöa, þegar minni eru skenkt. Þá skulu og gest- gjafar taka horn og handþurrkur og ganga kveðandi til dyra og gefa öl fátækum mönnum, sem standa úti fyrir”. Skáldskapur, sem enn er öllum tiltækur Sumt úr þessum gömlu reglum gildisbræðra hefur orðið mjög lifseigt, og eru atriði úr þeim enn varðveitt f venjum sænskra háskólastúdenta, bæði i fyrir- mælum um ádrykkjur og söngva — til dæmis i þeim félagsskap háskólastúdenta i Uppsölum, sem Gunnar Wennerberg, upphafs- maður glúntanna, heyrði til. Einn drykkjusöngva hans, Hár ár gudagott att vara, hefur, sem kunnugt er, verið slitinn úr sam- hengi sinu og verið sunginn um allar jarðir — þótt einkennilegt sé, einnig á fundum góðtemplara. Bergmál þessa alls höfum við Islendingar svo i kvæðum sumra islenzkra skálda, sem voru stúdentar erlendis, til dæmis Jónasar Hallgrimssonar og Hannesar Hafsteins. Sjór af púnsi Meðal Svia eru stúdentasam- tökin sums staðar kölluð „þjóðir”. „Þjóðlifið” á upphaf sitt i drykkjugildum stúdenta i Uppsalaháskóla, er haldin voru i kringum púnsborð i ógurlegu reykjarkafi. „Listar voru eins og varnar- virki i kringum hvitmáluð borðin, svo að ekki væri öllu rutt niður á gólf”, segir i frásögn af þessum púnsdrykkjum. „Langt frarn á nótt var borðið einn hafsjór af púnsi, þar sem brotin glös lágu á við og dreif”. Seinna var framreiðslan færð i annað horf. Allir urðu að fá sér matarbita, áður en þeim var veitt áfengi, og söngur varð miklu almennari en áður i samkvæmum stúdenta. Áriö 1787 Sviakonungar höfðu sett á stofn rikisbrugg sér til tekna, og máttu engir aðrir stunda brennivfns- brugg. Árið 1787 afnam Gústaf III einkarétt rikisins, en leyfði heimabrugg gegn sérstöku afgjaldi. En nú varð að brugga mikið og drekka mikið, svo að kóngur og riki hans yrði ekki af tekjum. Það varð að reka strangan bruggáróður, og fjöldi presta i landinu reið á vaðið með heimabruggið. Svo rösklega var að verið, að árið 1788 voru bruggmálin sænsku komin i bezta horf. Þegar konungur sendi herlið til Finn- lands um mitt sumarið til þess að berjast við Rússa, voru „hermennirnir langflestir drukknir við brottförina, og suma varð að draga út á skipsfjöl”, segir i endurminningum manns, sem nærstaddur var. I Austur-Gotlandi voru þessi orð skrifuð: „Arið 1787 var tæpast brennivin að fá i nokkru sænsku þorpi. En árið eftir,88, þá var hér gnóglegt brennivin og mikil gleði, kæru vinir — mikil gleði”.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.