Tíminn - 20.01.1973, Blaðsíða 19

Tíminn - 20.01.1973, Blaðsíða 19
Laugardagur 20. janúar 1973 TÍMINN 19 Urrisjón Alfreð Þorsteinsson Rússinn Arsjanov sézt hér detta á marklínunni i úrslitahlaupi 800 m hlaupsins i Miinchen, en Bandarikjamaðurinn Wottle, maðurinn með húfuna;sigrar, en báðir hljóta sama tfma, 1:45,9 min. Kenyamaöurinn Boit varð þriöji á 1:46,0 mín. Valur og Fram leika á morgun - þrír leikir í 1. deild kvenna í islandsmótinu verða leiknir í Laugardalshöllinni á morgun. Niðurröðun leikja í mótinu og öll framkvæmd er til skammar Mjög þýðingarmikill leikur verður leikinn i 1. deild kvenna I handknattleik á morgun. Þá mæt- ast tvö beztu kvennalið landsins, Valur og Fram. Þessi lið hafa barizt um tslandsmeistaratitilinn i handknattleik kvenna undanfar- in ár. Leikur liðanna hefst i Laugardalshöllinni kl. 13.30. Það má búast við þvi, að þar verði hart barizt, enda mikið i húfi, bæði liðin sigruöu örugglega i sin- um fyrstu leikjum í mótinu. Valur vann Ármann 15:10 og Fram vann KR 14:10. Það er nokkuð einkennilegt að Valur og Fram skuli mætast strax i annarri umferð. Móta- nefndin virðist ekkert gera i þvi að láta kvennamótið verða skemmtilegt. Með réttu ætti leik- ur Vals og Fram að verða síðasti leikur i fyrri umferðinni. Þá er nokkuð einkennilegt, að Ár- mannsliðið, sem er okkar efnileg- asta kvennalið, skyldi mæta Val i fyrsta leik mótsins. Með þvi að láta Armann, Val og Fram leika innbyrðis strax i mótinu, er búið að fyrirbyggja að kvennamótiö verði skemmtilegt. Niðurröðunin i Islandsmóti kvenna er til skammar i alla staði. Það má bezt sjá á áðurnefndum atriðum og einnig þvi, að þegar Fram og Valur eru búin að leika á morgun, er mánuður i næsta leik hjá liöun- um. Það virðist ekkert vera gert, til að gera íslandsmótiö hjá kvenfólkinu skemmtilegt — alltaf gamla sagan, kvennahandknatt- leikur er látinn sitja á hakanum. Hinir kvennaleikirnir á morgun verða leiknir strax á eftir leik Vals og Fram, þá mætast Ár- mann og Vikingur og KR og Breiðablik. Staðan i 1. deild kvenna er nú þessi: Valur 1 1 0 0 15: :10 2 Fram 1 1 0 0 14: :10 2 Vikingur 1 0 1 0 8: :8 1 Breiðablik 1 0 1 0 8: :8 1 KR 1 0 0 1 10: :14 0 Armann 1 0 0 1 10: :15 0 Hljómskálahlaup ÍR hefjast á morgun Hljómskálahlaup ÍR hefjast að nýju á morgun sunnudaginn 21. janúar, kl. 14, við Hljómskálann. Er þetta 5. árið i röð, sem íR-ingar gangast fyrir Hljómskálahlaupi, þar sem keppt er i aldursflokk- um. Hlaupin eru opin öllum, sem áhuga hafa á að taka þátt i þeim sér til ánægju og heilsubótar. Vega- lengd hlaupsins er sú sama og undanfarin ár, eða um 800 m, fyrir alla aldursflokka, nema keppnis- fólk, sem hleypur 2 til 4 hringi. Skráning i hlaupið fer fram á staðnum, og eru væntanlegir keppendur beðnir að mæta timanlega. Beztu heimsafrekin í frjálsum fþróttum 1972: FINNAR JAFN- BEZTIR A MILLI- VEGALENGDUM t dag birtum við beztu afrekin i heiminum i 800, 1500 og 2000 m hlaupum og einnig i miluhlaupi. Frábær afrek voru unn- in á þessum vegalengd- um i fyrra. Wottle, USA, jafnaði heimsmetið i 800 m hlaupi, hljóp á 1:44,3 min, Vasala, Finnlandi setti Evrópumet i sömu grein, hljóp á 1:44,5 min. Þá setti Puttemans, Belgíu, heimsmet i 3000 m hlaupi, hljóp á 7:37,6 min. 1500 m hlaup: Vasala, Finnl. 3:36,3 min Keino, Keynya 3:36,8 min Boit, Kenya 3:37,4 min Dixon, N-Sjál. 3:37,5 min Ivanov, USSR 3:37,8 min Van Zijl, S.Afriku 3:37,9 min Foster, Bretl. 3:38,2 min Stewart, Bretl. 3:38,2 min Howe, USA 3-38,2 min Michael, USA 3:38,3 min Ensk mila: Ryun, USA 3:52,8 min Stewart, Bretl. 3:55,3 min Foster, Bretl. 3:55,9 min Douglas, Bretl. 3:56,0 min Van Zijl, S.Afriku 3:56,0 min Kirkbride, Bretl. 3:56,5 min Pretortaine, USA 3:56,7 min Polhill, N-Sjál. 3:57,0 min Vasala, Finnl. 3:57,2 min Hilton, USA 3:57,6 min Ekman, Sviþj. 3:57,7 min 800 m hlaup: Wottle, USA Vasala, Finnl. Wohlhuter, USA Swenson, USA Ryun, USA Arzanov, USSR Philipps, USA Brown, USA Fromm, A-Þýzkal. Plachy, Tékk. 3000 m hlaup: Puttemans, Belgiu, 3:37,6 min 1:44,3 min Virén, Finnl. 7:43,2 min 1:44,5 min Prefontaine, USA 7:44,2 min 1:45,0 min Bedford, Bretl. 7:46,4 min 1:45,1 min Gárderud,Sviþj. 7:47,8 min 1:45,2 min Hilton, USA 7:48,0 min 1:45,3 min I.Stewart, Bretl. 7:48,4 min 1:45,3 min del Buono, Italiu 7:49,4 min 1:45,4 min Quax, N-Sjál. 7:49.6 min 1:45,4 min Gammoudi, Túnis 7:50,2 min 1:45,7 min Halle, Noregi 7:50,6 mín

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.