Tíminn - 20.01.1973, Side 5
Laugardagur 20. janúar 1973
TÍMINN
5
Frönsk póstyfirvöld
ófróð um söguna
Nýlega var gefið Ut i Frakklandi
frimerki, sem valdið hefur
miklum úlfaþyt, vegna þess að
myndin á þvi stangast á við
sögulega staðreyndir. Hún sýnir
Napoleon ungan að árum með
hinn þrilita fána Frakklands
(bláan, hvitan og rauðan) i
hendinni stjórna stórárás yfir
brú eina gegn austurriska
hernum i orustunni við Arcole á
ftaliu 17. nóvember árið 1796.
Sagnfræðingar draga i efa, að
Napoleon hafi verið svo kjark-
mikill að hann hefði tekið þátt i
orustunni.Og þeir eru alveg
vissir um það, að hann hefur
ekki haldið á hinum þrilita fána
i orrustunni við Arcole, vegna
þess að á þessum tima hafði
franski herinn allt annan fána.
Franska póststjórnin hefur nú
látið undan hinum öflugu mót-
mælum og ákveðið að hætta
dreyfingu frimerkisins.
Maður sem nýtur
starfs sins er aldrei
gamall”
Pablo Casals, hinn mikli
spænski sellóleikari, sem lifað
hefur I útlegð siðan 1939, hélt
upp á 96 ára afmaji sitt fyrir
skömmu með miklum veizlu-
höldum og gleðskap. Fór
veizlan fram að heimili hans i
útjaöri borgarinnar San Juan á
Puerto Rico i Karabiska hafinu.
og eins og venjulega var há-
punktur veizlunnar heimakon-
sert þar sem Casals lék á eftir-
lætisliljóðfærið sitt, sellóið, og
naut undirleiks fiðlu og pianós.
93 ára að aldri gaf Calas þá yfir-
lýsingu, að aldurinn væri af-
stætt hugtak og sagðist alls ekki
hafa i huga að draga sig i hlé.
,,Ef ég held áfram starfi minu
og drekk i mig fegurð lifsins,
finn ég að aldurþarf ekki endi-
lega að merkja það að vera
gamall.Maður sem nýtur starfa
sins, er aldrei gamall. Ég
sjálfur endurfæðist hvern dag.
i úðunarleiöangri
Pað fer hálfgerður hrollur um
lólk i Walsonville i Kaliforniu,
þegar það lylgist með l'lug-
vélunum, sem úða grænmetis-
akrana þar i nSgrenninu.
Sumum finnst na-sla merkilegt,
að vélin skuli ekki lenda beint á
simastaurnum. Hún gerir það
þó ekki, heldur flýgur af mikilli
nákva'mni milli þeirra. Einnig
gæli maður búizt við, að flug-
maðurinn væri að hugsa sér að
lenda á einhverjum akrinum,
þvi að slutt er orðið eftir niður á
jörðina. Kannski hefur linsan
framan á myndavél Ijós-
myndarans einhver áhril' á útlit
og alstöðu hinna ýmsu hluta á
myndinni.
A hverjum degi verð ég að byrja
aftur”. En hann hefur sagt, að
tónlistarástriða sín sé ekki eins
mikil og þráin eftir heimsfriði:
„Ég er fyrst og fremst maður,
siðan listamaður. Sem maður
ber ég mesta umhyggju fyrir
velferð náungans.”
„Sjálf-útlegð” sina frá Spáni,
eftir sigur Francisco Francos i
borgarastyrjöldinni 1936-39, sé
ekki mótmæli gegn stjórn-
málum, heldur mannlegri tign.
Hann er ennþá spænskur
borgari og segir: „Þegar
Franco hefur afsalað sér rikis-
borgararéttinum, mun ég snúa
heim”.
McQueen og MacGraw
Steve McQueen og Ali
MacGraw (sem allir þekkja úr
Love Story) hafa leigt sér hús á
Jamaica, þar sem Steve mun
gera mynd sina „Papillon” nú á
næstunni. Eins og margoft
hefur verið sagt frá i slúður-
dálkum heimsblaðanna, hafa
þau Ali og Steve mjög dregið sig
saman undanfarna mánuði, eða
allt siðan i sumar, er þau unnu
að gerð Texas-myndar Steves,
„Getaway”. Bæði hafa þau
skilið við ektamaka sina og
hyggjast senn rugla saman
reitum sinum. Ali var gift for-
stjóra kvikmyndafélagsins
Paramount, en hún hljóp frá
mannisinum eftir að hann hafði
lokið hinni margfrægu
„Godfather” - mynd sinni, sem
hann hafði helgað sig gjörsam-
lega i meira en ár. Svo að aftur
sé vikið að þeim skötuhjúum og
nýja húsinu á Jamaica, þá hefur
Steve aðeins sett eitt skilyrði
fyrir húsinu. Það er á þá leið, að
dagstofa þess verði nægilega
stór til þess að hýsa þau sex
mótorhjól, sem hann tekur með
sér til eyjarinnar. Steve er sér-
legur áhugamaður um mótor-
hjól og þykir mjög liötækur og
lipur á þvi sviði.
Petuela hrædd
Söngkonan Petuela Clark býr
i laglegu einbýlishúsi skammt
frá Genf ásamt manni sinum og
þrem börnum, hinu yngsta
aðeins nokkurra mánaða. Fáa
grunar sennilega, hvað leynist
undir þessu fallega húsi, en þar
er byrgi búið öllum þeim tækj-
um og tólum, sem þarf á að
halda i kjarnorkustyrjöld. Frá
öllu er nákvæmlega gengið af
sérfróðum mönnum, og á þess-
um stað eru öll skilyrði til
margra mánaða dvalar neðan-
jarðar. Ein vinnukona Petelu
hefur það m.a. að föstu starfi að
halda byrginu i lagi og
endurnýja vistir þess eftir þvi
sem þarf.
— Ég sá myndina Dr.
Strangelove fyrir nokkrum
árum, segir Petuela, og ég hef
aldrei gleymt henni. Ég óttast
það mest, að einn góðan veður-
dag springi sprengjan,
og þvi vil ég vera örugg með
fjölskyldu mina.
**
ALLA DAGA MANUDAGA MANUDAGA ÞRIÐJUDAGA FIMMTUDAGA ALU DAGA UUGARDAGA UUGARDAGA
FÖSTUDAGA F0STUDAGA SUNNUDAGA