Tíminn - 20.01.1973, Qupperneq 11

Tíminn - 20.01.1973, Qupperneq 11
Laugardagur 20. janúar 1973 TÍMINN 11 vegna hefur borgin ekki fengizt á umræddu timabili til þess að ráðast i neinar aðrar ibúðar- byggingar, ef frá eru taldar ibúðir þær, sem reistar hafa verið fyrir aldraða. Borgin hefur fengið, frá Framkvæmdanefnd- inni.ibúöir sem hér segir fram til þessa, 1969 52 ibúðir, 1971 80 ibúðir, 1972, 14 ibúðir. Þetta eru alls 146 ibúðir, sem borgin hefur þegar fengið frá Framkvæmda- nefnd byggingaráætlunar, en eins og ég sagði áðan er ráð fyrir þvi gert að borgin fái 60 ibúðir fyrri hluta næsta árs og siðan 40 ibúðir siðar á árinu og verða þá ibúðirnar komnar upp i 246. Er það nokkurn veginn hlutur borgarinnar úr heildaráfánga byggingarframkvæmdanna. Við borgarfulltrúar vinstri flokkanna teljum, að nú þegar ibúðar- byggingum framkvæmda- nefndarinnar er að ljúka, sé tima- bært að Borgarstjórn Reykja- vikur samþykki nýja byggingar- áætlun, þess vegna höfum við leyft okkur að flytja svo- hljóðandi tillögu, sem ég mun leyfa mér að lesa, með leyfi for- seta: Tillaga andstöðu- flokka íhaldsins „Borgarstjórn Reykjavikur samþykkir að beita sér fyrir eftirfarandi áætlun i byggingu leiguibúða. Reistar verði samtals 350 ibúðir á árunum 1974 — 1977. A árinu 1973 verði unnið að undir- búningi og kappkostað að ljúka á þvi ári þeirri 5 ára áætlun i ibúðarbyggingum , sem borgarstjórn samþykkti hinn 17. marz 1966. 1. Byggðar verði 100 ibúðir fyrir aldrað fólk. Ibúðir þessar verði bæði fyrir ein- hleypinga og hjón og sérstaklega hannaðar með það i huga að henta sem bezt öldruðu fólki. 2. Byggðar verði 150 tveggja her- bergja ibúðir, sem eingöngu verði leigðar ungu fólki, sem er að stofna heimili. Hámarsksleigu- timi sömu fjölskyldum i þessum ibúðum verði 3-5 ár. 3. Byggðar verði 100 ibúðir, tveggja, þriggja og fjögurra herbergja að stærð, og leigðar efnalitlu fólki, sem er i húsnæðisvandræðum. 4. Byggingarsjóður borgarinnar veiti árlega eigi færri en 100 lán út á ibúðarhúsnæði með sömu kjörum og tiðkast hafa að undan- förnu. Lán þessi verði að upphæð 200 þúsund krónur og eingöngu veitt út á ibúðir, sem falla undir lánareglur Byggingarsjóðs rikisins. Borgarstjórn felur borgarráði að sjá um fram- kvæmd þessarar áætlunar. Ibúðirnar verði i eigu Byggingar- sjóðs Reykjavikurborgar”. A s.l. ári fluttum við borgarfulltrúar- vinstriflokkanna tillögu um byggingu 300 leiguibúða á 4 árum. Hin nýja tillaga okkar gerir hins vegar ráð fyrir 350ibúðum, þar eð ibúðarbyggingar fyrir aldraða eru felldar inn i áætlunina. Til- tekið er i tillögunni að reistar skuli 150 ibúðir, er verði eingöngu fyrir ungt fólk, sem er að stofna heimili, og að hámarksleigutimi i þeim ibúðum verði 3-5 ár. Vandi unga fólksins, sem er að byrja búskap, er sérstaklega mikill. Þvi er nauðsynlegt, að borgin reisi sérstakar ibúðir fyrir það. En við teljum rétt, að þessar litlu ibúðir, sem ætlaðar eru ungum hjónum, komi sem flestum að notum. Þess vegna leggjum við til, að hámarksleigutimi á Kristján Benediktsson ibúðunum verði 5ár, enda má ætla að sá timi nægi ungum hjónum, til þess að undirbúa sig til flutnings i stærri ibúö, ef þörf krefur. Tillagan gerir ráð fyrir þvi að auk þess verði reistar 100 ieiguibúðir fyrir efnalitið fólk, og siðast en ekki sizt, að reistar verði 100 ibúðir fyrir aldraða. Ég ræddi fyrir skömmu um það hér i borgarstjórn, að nauðsynlegt væri að auka ibúðarbyggingar fyrir aldraða, og ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um það mál nú. Að lokum gerir húsnæðismálatillagan ráð fyrir þvi, að lánveitingar til fólks, sem er að festa sér húsnæði og á i f járhagsvandræðum, verði hafnar á ný. Skulu lán þessi vera 200 þús. á hverja ibúð og eigi færri en 100 lán næsta ár. Undanfariö hefur þessi lánastarfsemi byggingarsjóðs legið niðri, ef frá eru taldar lánveitingar til kaup- enda borgarhúsnæðis. Húsnæðis málatillaga okkar, sem ég hefi nú lýst, tekur aðeins til byggingar leiguhúsnæðis. Varðandi bygg- ingu söluibúða tel ég heppilegast að borgin stuðli að byggingu sem flestra verkamannabústaða i Reykjavik”. Útrýming heilsuspillandi húsnæðis Vinstri flokkarnir fluttu svo- hljóðandi tillögu i borgarstjórn- inni um útrýmingu heilsuspill- andi húsnæðis: „Borgarstjórn Reykjavikur sambvkkir að beila sér fyriráætlun þess efnis, að á næstu þremur árum verði tekið úr notkun allt það ibúðarhúsnæði i eigu borgarinnar, sem að dómi heilbrigðisyfirvalda er heilsu- spillandi. Felur borgarstjórnin félagsmálastjóra og borgarlækni að gera áætlun um, hvernig framangreindu verkefni skuli hagað og leggja tillögur þar um fyrir borgarráð hið fyrsta. 1 áætluninni skal við það miðað, að öll þau hús I Höfðaborg og Sel- búðum, sem enn er búið i, verði rýmd á næsta ári”. Steinun n Finnbogadóttir, borgarfulltrúi SFV, mælti fyrir þessari tillögu og sagði: Arum saman hefur minni- hlutinn i borgarstjórn barizt fyrir þvi, að þessar heilsuspillandi ibúðir yrðu teknar úr notkun. Það sýnist fjarstæðukennt i meira lagi, að á öðrum eins uppgangs- timum og verið hafa, skuli vera til i Reykjavik og það i eigu sjálfs borgarsjóðs ein einasta slik ibúð i notkun. Og næsta furðuíegt, að borgaryfirvöld skuli geta leyft sér að vista fólk i heilsuspillandi húsakynnum. Þetta hefur þó við- gengizt, þrátt fyrir góðæri siðustu áratuga, og er þá vissulega ekki hægt að komast hjá þvi að skrifa það á reikning ráðandi meirihluta i borgarstjórn. Þótt borgin hafi eignazt nýjar ibúðir og nokkuð verið lagt niður af gömlum og heilsuspillandi ibúðum er enn langt i land, til að þessu óhæfa húsnæði hafi verið útrýmt. 16 ibúðir eru enn i notkun i Höfða- borg, 8i Selbúðum. Ég nefni þessi dæmi sem talandi vott þess, hvað borgaryfirvöld geta boðið bágstöddu fólki. Ég veit ekki, hvort allir borgarfulltrúar hafa skoðað húsakynnin á þessum stöðum, Höfðaborgin og Sel- • • x • - ~ .í — — -4. 1 i.4 Sigurjón Pétursson Smyrilsvegi 29. Það væri sannar- lega ómaksins vert að hver einasti borgarfulltrúi kynnti sér ástandið þar og aðbúnað allan. Svo ég viki aðeins aftur að Smyrilsvegi 29, nú eru þar 6 ibúðir og i 5 af þeim búa fjöl- skyldur með börn. Þessar ibúðir eru kaldar og saggafullar, og veggirnir mislitir af slaga og myglu. Ekki er þarna um aðra kyndingu að ræða en kolakynd- ingu, en kol munu nú ófáanleg i borginni og þau sótt austur á Selfoss. Ekki er um annað vatn að ræða i þessum ibúðum en kalt vatn og þvottahús eru engin. Mér er sagt, að þetta hús hafi verið bænhús fyrir 42 árum og það sel ég ekki dýrara en ég keypti. En hitt er ég viss um, að ef borgar- stjórn lætur það viðgangast enn um langan tima að hýsa þarna barnafjöldskyldur, þá þyrfti hún að biðja fyrir ser, hvort sem hún ieitar f bænhús eða ekki. Svo syndsamlegt finnst mér það at- hæfi að standa fyrir vistun fólks i slikum húsakynnum, að ég tali ei um börnin. Enn munu vera i eigu borgarsj. 160, ibúðir er heil brigðisyfirv. sjalf hafa úrskurð að heilsuspillandi. Það er þvi ei út i bláinn að við borgarf.trúar vinstri í'lokkanna erum enn einu sinni að vekja athygli á málinu. Vænti ég þess, að öll borgar- stjórnin sameinist nú um það að uppræta hið fyrsta þetta ófremdarástand, sem er borginni' til jafnmikillar vansæmdar, sem það er fólkinu i ibúðunum til vanliðunar og tjóns. Það er hryggileg staðreynd, að börn á skólaskyldualdri búsett I þessum ibúðum skuli minnka sin svo fyrir húsakynnin, að þau íreistast til að segja ekki rétt til heimilisfangs og biða þess, að skólaíélagarnir hverfi á brott áður en þau halda heim. Útrýming þessara óhæfu ibúða getur ekki verið óleysanlegt vandamál i borginni, i borg, sem jafnmikil velmegun rikir og hér i Reykjavik. Tilvist þeirra bendir til viljaskorts eða framkvæmda- leysis þeirra, sem ferðinni ráða i þessum efnum, og það er ekki hægt að afsaka”. Velferðarmál aldraðra Einnig Steinunn fyrir þessari tillögu: „Borgarstjórn ályktar, að enn sé allt of litið gert af opinberri hálfu öldruðu fólki i borginni til hagsbóta. Félagsleg aðstoð og þar með bætt starfsaðstaða þess er enn mjög ófullnægjandi, enda þótt nokkuð hafi þokazt áfram siðustu ár. Það hlýtur að vekja nokkra furðu, að Reykjavikur- borg hefur aldrei fram á þennan dag reist né rekið elliheimili, og hefur þó þörfin á þvi sviði verið mjög mikil. Borgin hefur heldur ekki i teljandi mæli mætt þeirri knýjandi nauðsyn, sem er á hjúkrunarheimilum fyrir sjúkt og aldrað fólk. Borgarstjórnin telur þvi brýnt: 1. að undirbúin verði bygging dvalarheimiiis fyrir aldraða, sem hafa fótavist. 2. að komið verði á fót dags- vistarstofnun aldraðra sem að öðru leyti dvelja i heimahúsum. 3. að ibúðarþörf aldraðra verði könnuð i þeim tilgangi að fá úr henni bætt hið fyrsta. 4. að félagsleg aðstoð við aldrað fólk verði aukin og aðstaða þess til starfs við hæfi verði bætt”. Björgvin Guömundsson Steinunn sagði m.a.” Þessi mál hafa oft áður verið rædd hér i borgarstjórn, en þvi miður með of litlum árangri. Þessi mál eru marghliða og segja má að engri hlið þeirra hafi verið gerð sóma- samleg skil af borgaryfirvöldum. Það segir sina sögu, að Reykja- vikurborg hefur hvorki reist né rekið elliheimili á öllum sinum ferli, hún hefur látið það nægja að áhugasamir einstaklingar, eða samtök einstaklinga, hafa sýnt lit á að bæta úr i þessu efni. Þessa munu sennilega fá dæmi i svo stórum bæ sem Reykjavik og þar að auki höfuðborg. En það er sem sagt þessi vanræksla, sem þrengt hefur kosti aldraðra i Reykjavik, heldur má segja það sama um hvert annað i þeim efnum, þar er margt ógert, en flest hálfgert. 1 tillögu okkar er lögð sérstök áherzla á eftirfarandi 4 atriði i þessu stóra og mikilsverða máli. Félagslega aðstoð við aldrað fólk þarf að stórauka frá þvi, sem nú er, og sérstaklega ber nauðsyn til að þvi verði sköpuð meiri og betri skilyrði til starfa (truflanir). Þetta er veigamikið atriði bæði i félagslegu og heilbrigðislegu til- liti. Starfið er öldruðu l'ólki heilsulind, auk þess sem það er þjóðfélagslegt velferðarmál. Við leggjum einnig til, að ibúðarþörf aldraðra verði vandlega könnuð i þvi skyni að úr henni verði bætt. Þetta er einnig mikilsvert atriði jafnt einstaklingum sem sam- félaginu. Einkaheimili aldraðra við hæli,1'orðar gömlu fólki frá stolnunum betur en flest annað, og slikt er hagur allra. Heimilis- aðstoð aldraðra snertir þetta atriði verulega, hún er rækt hér nokkuð og hefur sannað ágæti sitt, en hana þarl' að auka. Þriðja atriði, sem við leggjum áherzlu á, að þessu sinni, er að stofnuð verði dagvistarheimili handa gömlu fólki, sem dvelst i heimahúsum, annað hvort einsamalt eða hjá skyldmennum, sem olt vinna utan heimilis daglangt og það þarl ekki að koma til, þó vandinn sé fyrir hendi. Þar geta gripið inn f vandkvæði á samfélaginu og heimilinu, ef einhver er alveg bundinn yfir þessu fólki. Slik fyrirgreiðsla sem þetta, hefur enn ekki verið framkvæmd, en áður hel' ég flutt tillögu um þetta efni og nokkru siðar borgarfulltrúi Albert Guðmundsson. Mér þykir fyllsta ástæða til að geta þess, að félagsaðslaða aldraðra i Tónabæ áöur og nú i Félags- heimili Fóstbræðra gel'ur vis- bendingu um þörfina og mót- tökurnar á öllu er miðar i rétta átt . Einnig gerir tillaga okkar ráð lyrir þvi, að undirbdin verði bygging dvalarheimilis aldraðra sem fótavist hafa, og það er einmitt sú synd, sem Reykjavik hefur með sér, að hún á ekkert elliheimili og hlýtur að bregðast við þvi nú þegar. Þörfin á sliku heimili er ótviræð. Það er kunnugt að elliheimilin hér i borg eru yfirl'ull og biðlistar að stað- aldri og þeir langir. Þannig að fólk, sem nauösynlega þarf vistunar, verður að biða lang- timum saman til mikilla óþæg- inda, svo að ekki sé meira sagt. Þó að elliheimili þyki ekki sem æskilegustfverður aldrei hjá þvi komizt með öllu þvi að tilvist þeirra er brýn nauðsyn, en þvi meiri áherzla sem lögð verður á þau þrjú atriði tillögu okkar, sem ég hef þegar getið um, þvi meiri vonir getur maður gert sér um, að færri vistrúm á elliheimili verði nauðsynleg”. Steinunn Finnbogadóttir SINNUM LENGRI LÝSING 2500 klukkustunda lýsing við eðlilegar aðstæður (Einu venjulegu perurnar framleiddar fyrir svo langan lýsingartíma) NORSK ÚRVALS HÖNNUN Heildsala Smásala Einar Farestveit & Co Hf Bergstaðastr. 10A Sími 16995 JON LOFTSSONHF Hringbraut 121tf V10 6Ó0 SPONAPI.OTUR 8-25 mm PI.ASTII. SPéíNAPI.ÖTÚR 12—19 imn IIARDPI.AST IIÖRPI.OTl'R 9-26 mni IIAMPPI.OTl’R 9-20 mm HIRKI-GABO.N 16-25 mm BKVKI-G.ABON 16-22 mm KROSSVIDL'R: Birki 3-6 inm Heylti 3-6 tnm Fura 1-12 mm IIARDTKX meft rakaheldu limi 1/8" 4x9' a merisk jiigósla vneskt IIARDVIDÚR : Kik. japönsk, áströlsk. B e y k i danskt. Teak Afrumosia Vlahognv Iroko Palisander Oregon Pine Ramin Gullálmur Abakki Am. Ilnota Birki I 1/2-3" Wenge SPONN: Kik - Teak - Oregon Pine - Kura - Gullálmur Almur - Abakki - Beyki Askur - Koto - Am.Hnota Afromosia - Mahognv Palisander - Wenge. FVRIR Í.IGG J ANDI VÆNTANLKGT OG Nyjar birgftir teknar heim v ikulega. V KRZI.ID ÞAR SEM CR- VAI.ID KR MKST OG KJÖRIN BK/.T.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.