Tíminn - 20.01.1973, Side 23
Laugardagur 20. janúar 1972
TÍMINN
23
Verkalýðsfélag Borgarness stofnar
Fræðslu- og menningarsjóð
Aðalfundur Verkalýðsfélags
Borgarness var haldinn 14. janú-
ar s.l. Fundurinn var haldinn að
Gunnlaugsgötu 1, en það hús hafa
fjögur stéttarfélög í Borgarnesi
nýlega keypt. Félögin, sem eru
aðilar að kaupunum eru:
Verkalýðsfél. Borgarness, Iðn-
sveinafélag Mýrasýslu, Verzl-
unarmannafélag Borgarness og
Vörubilstjórafélag Mýrasýslu.
Þessi félög hafa stofnað Húsfélag
stéttarfélaga i Borgarnesi, en það
sér um rekstur hússins. 1 stjórn
Húsfélagsins eiga sæti: Guð-
mundur V. Sigurðsson, Unnsteinn
Arason, Guðrún Eggertsdóttir,
Björn Hermannsson og Jón A.
Eggertsson.
A neðri hæð hússins hefur hvert
félag sina skrifstofu, en á efri hæð
er fundarsalur og eldhús. Með til-
komu þessa húsnæðis gjörbreyt-
ist aðstaða þessara félaga og
skapar möguleika á stórauknu
félagsstarfi.
Verkalýðsfélagið hafði áður
skrifstofu á ófullkomnu leiguhús-
næði. Er mikil ánægja rikjandi
meðal félagsmanna, að félagið
skuli nú hafa flutt starfsemi sina i
eigin húsnæði, en það hefur verið
áhugamál félagsmanna um ára-
tuga skeið.
I skýrslu stjórnar kom fram, að
mikið var starfað i félaginu á ár-
inu. Allir samningar félagsins
voru endurskoðaðir og gefnir úr.
Alls gerði félagið 6 sérsamninga
við fyrirtæki i Borgarnesi auk
hins almenna samnings.
8. og 9. april var haldið nám-
skeið 1 Borgarnesi á vegum
Verkalýðsfélagsins og M.F.A. var
þar fjallað um „Vinnustaðinn”.
Námskeiðinu stjórnaði Baldur
Öskarsson fræðslustjóri M.F.A. A
námskeiðinu voru flutt erindi, en
á milli þeirra störfuðu umræðu-
hópar. Þátttakendur voru 36.
Tókst námskeiðið mjög vel og
vakti áhuga fólks á bættum að-
búnaði á vinnustöðum.
A árinu var stofnaður nýr sjóð-
ur Fræðslu- og Menningarsjóður
og er tilgangur hans að styrkja
fræðslu og menningarstarf á
félagssvæðinu.
Orlofshús félagsins i ölfusborg-
um var leigt út i 20 vikur á árinu.
Haldnir voru 27 stjornar- og
trúnaðarmannaráðsfundir og 4
félagsfundir. Arshátið var haldin
á þorranum og farin var leikhús-
ferð til Reykjavikur, voru þátt-
takendur 80 i þeirri ferð.
Hin árlega skemmtiferð félags-
ins var farin 1.-3. júli. Farið var
norður á Strandir og til baka aftur
um Tröllatunguheiði og Dali.
Ekið var fyrir Snæfellsnes.
I félagið gengu 34 en alls eru
félagar 292.
Skrifstofa félagsins er opin allt
árið eitt kvöld i viku. A aðalfund-
inum var ákveðið að breyta um
fyrirkomulag á innheimtu félags-
gjalda og verða félagsgjöldin nú
tekin sem hundraðshluti af laun-
um. Var samþykkt samhljóða á
fundinum, að félagsgjald árið
1973 verði 1,25% af dagvinnutekj-
um, en lágmarksfélagsgjald er
1500 kr.
Stjórn félagsins var sjálfkjörin,
en hana skipa:
Formaður: Guðmundur V.
Sigurðsson. Ritari: Ardis
Kristinsdóttir. Gjaldkeri: Ingi-
björg Magnúsdóttir. Fjármála-
ritari: Guðleif B. Andrésdóttir.
Varformaður: Jón Agnar Egg-
ertsson,. Vararitari: Sigrún
Stefánsdóttir. Varagjaldkeri:
Sigurður Eiðsson. Varafjármála-
ritari: Reiðar Jóhannsson.
Trúnaðarmannaráð: Eggert
Guðmundsson, Aðalsteinn
Björnsson, Egill Pálsson. Vara-
menn: Olgeir Friðfinnsson, Þor-
geir Guðmundsson, Finnur
Einarsson.
Mótmælastaða við
sendiráð Bandaríkjanna
1 dag verður víða um heim efnt
til mótmæla gegn styrjaldar-
rekstri Bandarikjamanna í Viet-
nam og annars staðar i Indó-
Kina. Þessi mótmæladagur er
skipulagður að frumkvæði sam-
taka i Bandaríkjunum sjálfum.
Vietnam-nefndin á Islandi
tekur þátt i þessum degi með
mótmælastöðu við bandariska
sendiráðið i Reykiavik.er hefst
klukkan tvö, og lýkur með
stuttum fundi klukkan fjögur, en
þá mun Vilborg Dagbjartsdóttir,
formaður Rithöfundasambands
tslands, flytur ávarp.
Kröfur dagsins verða hér sem
annars, staðar: „Undirritið
friðarsamkomulagið strax” —
„Bandarikin burtu úr Indó-
Kina”, en þriðja krafa Vietnam-
nefndarinnar er sérstök hér:
„Nató burt af íslandi.”
Ahti Karjalainen, utanriksiráöherra Finnlands hélt hádegisveröarboð fyrir Harald Kröyer I byrjun
janúarmánaöar. A þessari mynd, sem tekin var viö þaö tækifæri, eru Ilaraldur Kröyer, Karjalainen og
prótokollmeistari finnska utanrikisráöuneytisins, Olli Auero.
* ] «r
W c; 1
Finnar styðja íslendinga
sagði Kekkonen við Harald Kröyer, er hann lét af störfum
ÞÓ-Reykjavik
Haraldur Kröyer sendiherra lét
af störfum sem sendiherra tsl.
i Finnlandi i byrjun janúarmán-
aðar, en sem kunnugt er, þá er
Haraldur nýskipaður sendiherra
hjá Sameinuðu þjóðunum. Áður
en Haraldur fluttist til Banda-
rikjanna, átti hann blaðaviðtal
við finnska blaðamenn, og hér á
eftir kemur grein, sem birtist i
Hufvudstadbladet i Helsinki 6.
janúar siðastliðinn.
,.Er ég læt nú af störfum. vil
ég lýsi þvi yfir, að enginn
ágreiningur er milli þjóða
vorra,” sagði Haraldur Kröyer
sendiherra við blaðamenn i gær i
þvi tilefni, að hann lætur nú af
störfum og flytzt til Banda-
rikjanna, en þar verður hann
sendiherra tslands og fasta-
fulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum.
Enda þótt Finnland væri
meðal þeirra landa, sem i desem-
ber s.l. sátu hjá við atkvæða-
greiösluna i Sameinuðu þjóðun-
um um ályktunina um náttúru-
Timínner
• peningar
| Auglýsid
| ITimanum j
auðæfi, en hún skiptir tsland
miklu máli, hef ég siðan orðið
sannfærður um það, aö Finnland
styður stefnu tslands I fiskveiði-
lögsögumálinu, sagði sendi-
herrann.
t kveðjuhófi sem Karjalainen,
utanrikisráðherra, hélt fyrir
Harald Kröyer, sendiherra, fyrir
þremur dögum, sagði ráð-
herrann, að „enda þótt fulltrúi
Finnlands hjá S.þ. hefði setið hjá
við atkvæðagreiðsluna af sér-
stökum ástæðum, sem ekki varða
málstað tslands, styður rikis-
stjórn Finnlands enn sem fyrr
baráttu tslands i fiskveiðilög-
sögumálinu og skilur óskir Isl-
endinga um að tryggja sér viðun-
andi lifsviðurværi.”
Og þegar Kekkonen, forseti, og
Haraldur, sendiherra, hittust i
gær til að kveðjast, sagði for-
setinn, að þrátt fyrir þaö, að
Finnland hefði að formsástæðum
setið hjá við atkvæðagreiðsluna,
væri hin yfirlýsta stefna Finn-
lands stuðningur við baráttu ts-
land við að afla viðurkenningar i
hinni nýju fiskveiðilögsögu.
Sendiherrann sagðist mundu
skýra rikisstjórn sinni frá þessum
ummælum. Eftir að Finnland
hafði setið hjá i atkvæða-
greiðslunni, létu bæði utanrikis-
ráðherra og forsætisráðherra ts-
lands i ljós vonbrigði vegna
afstöðu Finnlands, og óttuðust, að
Finnar heföu breytt fyrri afstöðu
til málstaðs tslands.
atlanti
Magnús
E. Baldvínsson
Laugavegi 12 - Slmi 22£
Munið ráðstefnu ÆSÍ
um utanríkismál nú um helgina
Fulltrúar úr sendiráðum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna gera grein
fyrir stefnu stjórna sinna í alþjóðamálum.
Björn Bjarnason lögfræðingur og Olafur R. Einarsson sagnfræðingur
ræða málefni Evrópu.
Fulltrúar æskulýðssamtaka stjórnmálaflokkanna gera grein fyrir stefnu
þeirra í utanríkismálum.
Frjálsar umræður. Öllum heimill aðgangur.
Ráðstefnan hefst í Norræna húsinu kl. 13.30 í dag laugardag,
og á morgun, sunnudag.