Tíminn - 20.01.1973, Qupperneq 27

Tíminn - 20.01.1973, Qupperneq 27
Laugardagur 20. janúar 1973 TÍMINN 27 Síðumúlafangelsið fyrir afbrota unglinga Klp-Reykjavik Eins og við höfum áður sagt frá i fréttum, var fyrirhugað að taka fangelsið við Siðumúla aftur til notkunar snemma á þessu ári. Var ráðgert að hafa þar bæði kvennafangelsi svo og fangelsi fyrir úttektar- og gæzluvarð- haldsfanga. Nú hefur það gerzt, að mennta- málaráðuneytið hefur fengið þetta fangelsi að láni hjá dóms- málaráðuneytinu um óákveðinn tima til bráðabirgðavistunar af- brotaunglinga. Menntamálaráðu- Fangelsið við Siðumúla mun fyrst um sinn verða notað tii bráðabirgða- vistunar afbrotaunglinga. Athugasemdir frá Sjómanna- sambandinu Vegna dálitilla missagna um samningaumleitanir um kaup og kjör á togurum, þykir rétt að eftirfarandi komi fram: Samingum um kaup og kjör undirmanna á togurum var sagt upp á s.l. sumri, þannig að þeir yrðu lausir 1. okt. s.l. A fundi með togaraeigendum þann 4. sept. s.l. voru kröfur sjó- mannafélaganna lagðar fram og skýrðar. Aðaleíni framlagðra krafna var, að mánaðarkaup hækkaði um 31-35% dálítið mis- jafnt eftir þvi i hvaða stöðu menn eru á skipi. Þá var gerð krafa til að prósenta af afla og aflaverðmæti hækkaði úr 13,25% i 15% og ýmsir kaupliðir svo sem timakaup, dag- peningar i veikindum, fæðispen- ingar o.fl. hækki allmikið. Lögð var fram krafa um hækk- un á lif- og örorkutryggingum, en hún var orðin allmikið lægri á togurum en á bátum og kaupskip- um. Gerð var krafa um að fridög- um yrði fjölgað úr þremur i fimm á mánuði. Þá vara lögð fram krafa um frágang veiðarfæra o.fl. þegar farið er úr höfn og hafa þau mál verið rædd allmikið á þeim fundum, sem haldnir hafa verið og þokast nokkuð i rétta átt. Auk mjög margra atriða, sem ekki hefur náðst samkomulag um er tala skipverja, en um það atriði hefir verið mikið rætt og þá helzt i sambandi við prósentur af afla og aflaverðmæti. Samningafundir 12 eða 13 hafa verið haldnir og þótt dálitið hafi þokazt i átt til samkomulags i einstökum atriðum ber ennþá mikið á milli. Vinnustöðvun hefir nú verið boðuð og kemur til framkvæmda kl. 24.00 þann 22. þ.m. hafi samningar þá ekki tekizt. Félögin, sem aðild eiga að þess- um samningum eru: Sjómanna- félag Reykjavikur, Sjómanna- félag Hafnarfjarðar, Sjómanna- félag Eyjafjarðar, Akureyri, Sjó- mannadeild vlf. Akrness, Akranesi, og Matsveinafélag S.S.l. og eru þessi félög til innan Sjómannasambandsins. Samningsaðilar atvinnu- rekendamegin eru: Félag isl. botnvörpuskipaeigenda og h.f. Júpiter og hf. Marz. Fjöldi togara, sem þessir samningar yrðu gerðir fyrir eru rúml. 20, en það eru togarar, sem eru stærri en 500 smálestir skv. fyrri mælingareglum. Það skal tekið fram að samningar um kaup og kjör á togurum 300-500 smál. hafa ekki ennþá verið gerð- ir, en allmargir togarar af þeirri stærð eru væntanlegir til lands- ins. Samningar um kaup og kjör á þeim munu verða gerðir við Landssamband isl. útvegsmanna. Sjómannasamband tslands. Dráttarbátur Framhald af bls. 1. lofar þvi, að brezka stjórnin taki kröfur togaraskipstjóra til alvar- legar athugunar. Talið er liklegt, að togaraskip- stjórar geri enn eina tilraun til að fá herskipavernd, og i gær voru fundahöld i Hull og Grimsby, og var þar rætt um leiðir til að verj- ast klippum varðskipanna. Engin hreyfing var komin á brezku togarana úti fyrir austur- landi i gærkvöldi, þannig að reikna má með, að þessar að- gerðir brezku rikisstjórnarinnar hafi eitthvað friðað togaraskip- stjórana. VEITINGAHÚSIÐ Lækjarteig 2 Hljómsveit Guðmundar Sigurðssonar öldurót - og Gosar Opið til kl. 2 neytið hefur með mál unglinga undir 16 ára aldri að gera, og hef- ur það verið i vandræðum með að fá húsnæði, þar sem hægt sé að halda unglingum, sem hafa lent i kasti við lögin, á meðan á rann- sókn máls þeirra stendur. Að sögn Snjólfs Pálmasonar rannsóknarlögreglumanns, sem hefur rannsakað afbrot unglinga undanfarin ár, hefur það oft vald- ið honum og starfsfélögum hans miklum vandræðum að geta ekki haft þessa unglinga i vörzlu lög- reglunnar, fyrst eftir að upp um þá hefur komizt. Hefði oft gengið erfiðlega að hafa uppi á ung- lingunum aftur, ef leita þarf við- bótaupplýsinga hjá þeim i sam- bandi við eitthvert mál. Taldi hann, að með tilkomu þessa húss yrði hægt að ná mun betri árangri i rannsókn mála, þvi hægt væri að yfirheyra þá þar i ró og næði, i stað þess að þurfa að vera með þá inn á skrifstofu, og þurfa þá ætið að sleppa þeim strax til að geta byrjað á næsta máli. Samkvæmt upplýsingum, sem við fengum hjá dómsmálaráðu- neytinu, mun menntamálaráðu- neytið fá að hafa þetta húsnæði, þar til það hefur fengið annað. Ekki væri enn full ákveðið, hve- nær það yrði opnað, en verið væri að vinna við breytingar á þvi þessa dagana. Staða yfirfangavarðar Siðu- múlafangelsins hefur verið aug- lýst laus til umsóknar fyrir skömmu, og ætti umsóknarfrest- ur að renna út i byrjun næsta mánaðar. Þá ætti sá sem stöðuna fengi eftir að ráða annað starfs- fólk og koma öllu i lag, svo búast mætti við, að þetta gamla fang- elsi yrði ekki komið aftur i gagnið fyrr en um mánaðamótin, febrú- ar-marz. Víðivangur Framhald af bls. 3. öðru. Til að mynda hefur það ekki verið til fyrirmyndar, hve seint og illa hefur gengiö að koma götulýsingu i hverfinu i almennilegt horf, einkum i Breiðholtshverfi I. — I fram- haldi af þvi má nefna, að mörgum finnst, sem skipulag þess hverfis hefði mátt vera með öðrum hætti. Stendur mörgum stuggur af undir- göngum i fjölbýlishúsunum, ekki sizt, þar sem lýsing hefur verið af skornum skammti. En ég tcl engan vafa leika á þvi, að aðstæður af þessu tagi bjóða beinlinis upp á afbrot. Fleiri dæmi mætti nefna, en siöast en ekki sizt hlýtur að koma til umræöu löggæzlan i hverfinu, sem fram til þessa hefur verið allt of lítil miöað við þann mikla mannfjölda, sem býr i hverfinu. Þess vegna er sú krafa sett fram nú, að gerðar verði tafariausar ráðstafanir i lög- gæzlumálum hverfisins i sam- ræmi við stærð þess og Ibúa- fjölda. Breiðholtshverfi er I dag á stærð við Akureyri, hvað ibúa- fjölda snertir. Þó er engin lög- gæziustöð í hverfinu, eins og bent hefur verið á. Og sú stöð, sem þjóna á hverfinu, er mjög ilia I sveit sett til að þjóna Breiðholtshverfi, þvf að sam- göngur milli Breiöholts- og Arbæjarhverfis eru alls ekki góðar. Má I þvi sambandi minna á, að lögreglumenn voru óheyrilega lengi á leið- inni, þegar kallað var út vegna morðlilraunarinnar á dögun- um.” -TK viðgerðir Fljótt og vel af hendi leyst. Reynið viðskiptin. Bi freiöasti llingin Síðumúla 23, sími 81330. Akranes Framsóknarfélag Akraness heldur Framsóknarvist, i félags- heimili sinu að Sunnubraut 21 Akranesi, sunnudaginn 21. janúar kl. 16. öllum heimill aðgangur, meðan húsrúm leyfir. Aöalfundur FUF í Reykjavík verður haldinn miövikudaginn 31. jan. n.k. Fundarstaður og l'undartimi auglýst slðar. Stjórnin. Félag Framsóknarkvenna í Reykjavík Fundur verður að Ilallveigarstöðum n.k. miðvikudag 24. þ.111. kl. 20.30. Fundarefni: Félagsmál. Snyrtidama mun leiðbeina um dag- og kviildsnyrtingu. Konur úr Kvcnfélaginu Frcyju i Kópavogi eru velkomnará l'undinn. Fjölmen nið. Sljórnin. Rangæingar Framsóknarfélag Itangæinga efnir til fjögurra kvölda spilakeppni i félagshcimilinu IIvoli, ilvolsvelli, sunnudags- kvöldin 28. janúar, 18. febrúar, 4. marz og 18. marz n.k. Keppnin hcfst klukkan 21.00 öll kvöldin. Góð heildarverð- laun og verðlaun l'yrir hvert kvöld. Stjórnin Almennir stjórnmdlafundir ó Sauðórkróki, Blönduósi og Hvammstanga Skagfirðingar h ramsóknarfélögin I Skagafirði halda almcnnan stjórnmála- fund I Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki sunnudaginn 21. jan. og hefst hann kl. 3. Á fundinum mæta Ólafur Jóhanncsson, forsætisráðherra og Björn Pálsson, alþingismaður. Austur-Húnvetningar Framsóknarfélögin i Austur-Ilúnavatnssýslu lialda almenn- an stjóromálafund i Félagsheimilinu á Blönduósi mánudags- kvöld 22. jan. kl. 9. A fundinum mæta Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra og Björn Pálsson, alþingismaður. Aðalfundur i lok fundarins er gcrt ráð fyrir að halda aðalfund Fram- sóknarfélags Austur-Húnvetninga. Vestur-Húnavatnssýsla F lamsóknarfélag Vestur-Húnvetninga heldur almennan stjórnmálafund i F élagsheimilinu á Hvammstanga þriðju- dagskvöldið 23. jan. kl. 9. Á fundinum mæta ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra og Björn Pálsson, alþingismaður.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.