Tíminn - 12.04.1973, Qupperneq 11
Fimmtudagur 12. aprll 1973.
TÍMINN
11
Umsjón: Alfreð Þorsteinsson
Keflvíkingar urðu sigurvegarar í meistarakeppninni:
STEINAR SÝNDI ENN
EINN STÓRLEIKINN
Skoraði bæði mörk Keflvíkinga gegn Eyjamönnum
Keflvikingar báru sigur úr
býtum i Meistarakeppni KSt.
Þeir tryggöu sér sigur á þriöju
dagskvöldiö meö því aö sigra
Vestmannaeyinga I fjörugum leik
2:1. Leikurinn var mjög vel
leikinn, miöaö viö aöstæöur, sem
voru lélegar. Melavöilurinn var
blautur og þungur og mjög erfitt
aö leika á honum. Það er greini-
legt aö Keflvikingar eru i mjög
góöri æfingu og strax i byrjun
ieiksins, sást hvaöa lið var betra.
Kefl vikingar, meö Steinar
Jóhannsson i broddi fylkingar,
sóttu nær stööugt i byrjun og oft
munaöi mjóu aö tækist aö skora.
í siðari hálfleik sóttu þeir stift
og á 10. min var Grétar Magnús-
son nær búinn að skora, þegar
hann skallaði rétt yfir slá, eftir að
Steinar var búinn að gefa góða
sendingu inn i markteig Eyja-
manna. Tveimur min. siðar átti
Ólafur Júliusson gott skot frá
markteigshorni, sem Arsæll
Sveinsson, markvörður Eyja-
manna bjargaði naumlega.
Markið lá i loftinu og þegar
Steinar fékk knöttinn út við
hliðarlinu og lék laglega upp
endalinuna, kom geysileg hætta
upp við mark Eyjamanna.
Steinar lék inn i markteiginn og
skaut 'þaðan skoti, sem lenti f
Einari Friðþjófssyni og af honum
í mark Eyjamanna.
Það var eins og Eyjamenn
vöknuðu til lifsins við að fá á sig
mark. Þeir tviefldust og sóttu
nær stöðugt að marki Kefl-
vikinga. Þeim tókst að jafna á 19.
min. þegar Asgeir Sigurvinsson
gaf knöttinn vel fyrir mark Kefl-
vikinga, þar sem Tómas Pálsson
tók við honum og sendi hann í
netið. Við markið dofnaði yfir
leiknum og leit út fyrir að það
yrði jafntefli.
En Keflvikingar sættu sig
Steinar Jóhannsson, markakóngur úr Keflavik, sést hér skora gegn Eyjamönnum f fyrrakvöld. (Tima-
mynd Róbert)
greinilega ekki við það, á 43. min.
gefur Astráður Gunnarsson, góð-
an stungubolta fram á Steinar
Jóhannsson, sem tekur á sprett
að marki Eyjamanna. Þegar
hann er kominn i vitateig, spyrnir
hann föstu skoti að marki — Ar-
sæll nær að verja, en hann missir
knöttinn frá sér. Steinar sem var
á góöri ferð, nær honum og
spyrnir honum i mark og tryggði
Keflvikingum sigur. Markið sem
Steinar gerði var hans áttunda
mark á keppnistimabilinu. Hann
hefur skorað mark í hverjum leik
og er örugglega okkar lang bezti
miðherji i dag.
Keflvikingar hafa sjaldan verið
eins góðir, það verður örugglega
vont að hamra gegn þeim i
sumar. Vörnin hjá þeim er góð og
framlinuspilararnir mjög friskir
Fötluðum gert kleift að
stunda íþróttir d íslandi
og fljótir. Það er greinilegt, að
enski þjálfarinn Joe Hooley,
hefur haft góð áhrif á liðiö.
Asgeir Sigurvinsson bar af i
Eyjaliðinu, hann hefur geysilega
yfirferð og er meö mjög gott út-
hald. Vörnin er veikur blettur hjá
Eyjamönnum, en hún á örugg-
lega eftir að verða betri, þvi að
miklar breytingar hafa átt sér
stað i henni og eru leikmenn ekki
enn búnir að átta sig á stöðum
sinum. Einn leikmaður var
bókaður i leiknum, það var Einar
Friöþjófsson, miðvörður Eyja-
manna.
Lokastaðan
í meistara-
keppni KSÍ
Keflvikingar töpuðu ekki
leik í Meistarakeppninni í
ár. Þeir iéku fjóra leiki í
keppninni og fóru þeir
þannig:
IBK-IBV
Fram-IBK
IBK-Fram
IBV-IBK
Lokastaðan var þessi i
Meistarakeppninni:
Keflavik 4 4 0 0 8:1 8
Vestm.ey. 4 2 0 2 6:5 4
Fram 4 0 0 4 1:9 0
Eftirtaldir leikmenn skoruöu
mark i keppninni:
Steinar Jóhannsson, IBK 5
Tómas Pálsson, IBV 3
Eggert Steingrimsson, Fram 1
Friðrik Ragnarsson, IBK 1
Haraldur Júliusson, IBV 1
Jón Ólafur Jónsson, IBK 1
Ólafur Júlisson, IBK 1
örn óskarsson, IBV 1
Eitt sjálfsmark var skorað i
keppninni, það gerði Agúst Guð-
mundsson, Fram i leik gegn IBV.
Liverpool
vonn
Tottenham
Liverpool vann Tottenham i
fyrri leik liðanna i UEFA-bikar-
keppni Evrópu á þriðjudags-
kvöldið. Leikurinn fór fram á
Anfield Road, heimavelli Liver-
pool. Alex Lindsey skoraði eina
mark leiksins. Siöari leikur
liðanna fer fram á heimavelli
Tottenham. Þá má búast við að
Tottenham-liðið sem lék varnar-
leik á þriðjudaginn, leiki stift upp
á vinning.
Á íþróttaþingi ISI á
síðasta ári var sa mþykkt að
vinna að framgangi þess,
að fatlað íþróttafólk gæti
tekið þátt i íþróttum, en
víða erlendis eru haldin
sérstök iþróttamót fyrir
fatlað fólk. Skipaði lSi sér-
staka undirbúningsnefnd í
þessu skyni og eiga sæti í
henni þeir Sigurður
Magnússon frá ISI, sem er
formaður, Guðmundur
Löve frá öryrkjabandalagi
íslands og Trausti Sigur-
laugsson frá Sjálfsbjörgu.
Undirbúningsnefndin hefur
þegar haldið nokkra fundi og
unnið að uppbyggingu þessa
brýna verkefnis.
Um siðastliðin áramót sendi
nefndin út kynningarbréf til allra
aðildarfélaga i öryrkjabanda-
laginu og innan Sjálfsbjargar, en
samtals er þar um að ræða milli
30-40 félagsdeildir viðsvegar um
landið. Samtímis þessu sendi
Iþróttasambandið erindi til allra
héraðssambanda innan ISl og
gerði þeim grein fyrir hvers
konar undirbúningsstarf verið
væri að vinna á þessu sviði og
óskaði eftir liðveizlu héraðssam-
bandanna við að koma þessum
málum i framkvæmd i samstarfi
við samtök fatlaðra.
Sund, lyftingar,
blak og bogfimi
Nefndin ákvað að fyrst um sinn
skyldi einkum miðað að þvi að
leggja stund á fjórar iþrótta-
greinar, þ.e. sund, lyftingar, blak
og bogfimi. Astæðan fyrir þvi, að
nefndin velur einkum þessar
greinar, er fyrst og fremst sú, að
ætla má að aðstaða til iðkunar
þessara iþróttagr. sé helzt fyrir
hendi, en eins og kunnugt er, eru
öll iþróttahús og önnur iþrótta-
mannvirki mjög ásetin af iþrótta-
iðkendum alla daga vikunnar frá
morgni til kvölds og á það við um
iþróttahús nær alls staðar á
landinu.
Sérstakar keppnisreglur
Nefndin hefur þegar látið þýða
leik- og keppnisreglur fyrir fram-
angreindar iþróttagreinar og ver-
ið er að vinna að fjölritun þeirra,
svo að hægt verði að dreifa þeim
meðal hlutaðeigandi aðila, þegar
þar að kemur. Þess skal getið, að
ISl á i sinum fórum alþjóðareglur
i öðrum greinum fyrir fatlaða og
getur þvi látið þýða þær eftir þvi
sem ákvörðun kann að verða tek-
in um að bæta við fleiri iþrótta-
greinum.
Kvikmyndir
Nefndin hefur lagt sig fram um
að fá hingað erlendis frá
kynningarefni, sem komið gæti að
notum i þvi kynningarstarfi, sem
óhjákvæmilega er framundan að
halda uppi i samtökum fatlaðra.
Það kynningarefni, sem einkum
kemur til greina i þessu efni, eru
kvikmyndir og litskuggamyndir.
Hefur nefndin skrifað til Alþjóða-
iþróttasambands fatlaðra, einnig
til Bandarikjanna, Þýzkal. og
Noregs. Nefndinni hefur þegar
borizt kvikmynd frá Alþjóða-
iþróttasambandinu og er sú mynd
gerð i Júgóslaviu og sýnir þessa
starfsemi þar i landi. Einnig mun
nefndin fá innan skamms alveg
nýja kvikmynd frá Bandarikj-
unum, sem gerð var um þátttöku
Bandarikjanna i Olympiuleikum
fatlaðra i Israel 1968. Upplýsinga-
þjónusta Bandarikjanna hér á
Islandi hefur orðið við þeim til-
mælum að útvega sér þessa mynd
frá Bandaríkjunum og lána
nefndinni hana eftir þörfum til
sinnar kynningarstarfsemi.
iþróttakennarar utan
Loks hefur nefndin þaö i undir-
búningi að senda iþróttakennara
utan til að afla sér þekkingar og
sérkunnáttu i æfingum og keppni
fyrir fatlað fólk. Er það ætlun ISl
að þessi iþróttakennari geti siðan
orðið leiðbeinandi hérlendis fyrir
aðra aðila, sem kynnu að taka að
sér það hlutverk að aðstoða fatlað
fólk við sinar iþróttaiðkanir.
Lyftingar
annað kvöld
Reykjavfkurmótið I lyftingum
verður háð i anddyri Laugardals-
hallarinnar annað kvöld, föstu-
dagskvöld, og hefst klukkan 19.
Allir okkar beztu lyftingamenn i
Reykjavík taka þátt i mótinu, auk
gesta frá landsbyggðinni, en þeir
eru Friðrik Jósefsson , Hreinn
Halldórsson og Skúli Óskarsson.
Útgáfa íþrótta-
blaðsins í hönd-
um nýrra aðila
A blaðamannafundi, sem
1S1 gekkst fyrir I gær upplýsti
Gisli Halldórsson, forseti
sambandsins, að útgáfufyrir-
tæki i Reykjavík hcfði tekið að
sér rckstur tþróttablaðsins.
Hinn 2. febrúar s.l. var
undirritaður samstarfs-
samningur milli t.S.l. og
fyrirtækisins Frjálst Fram-
tak h.f., varðandi útgáfu
Iþróttablaðsins. Samkvæmt
samningum verður fulltrúi
t.S.t. áfram ritstjóri og
ábyrgðarmaöur blaðsins, en
Frjálst Framtak h.f. tekur að
sér að annast um útgáfu
blaðsins á sinn kostnað, svo
sem prentun, umbrot,
prófarkalestur, myndamóta-
gerð, bókbánd, dreifingu og
innheimtu blaðsins, svo og
söluog innheimtu auglýsinga.
A sama hátt renna tekjur
vegna áskriftagjalda og
seldra auglýsinga til Frjáls
Framtaks h.f.
Alltfráþvi að Iþróttablaðið
hóf göngu sina, hefur hin
fjárhagslega hlið útgáfunnar
verið vandamál og stundum
hefur útkoma blaðsins legið
niðri um lengri eða skemmri
tima af þeim sökum.
Með þessa staðreynd i huga
tekur I.S.l. upp samstarf við
Frjálst Framtak h.f. Fyrir-
tækið hefur einkum lagt fyrir
sig aö annast um útgáfustarf-
semi og starfsfólk þess til-
einkað sér ýmsa þekkingu og
reynslu,sem er þýðingarmikið
atriði. Allt, sem lýtur að
dreifingu og sölu,
aug1ýs i ngasöfnun og
áskrifendasöfnun, þarf að
vinnast af æfðu starfsfólki og
með skipulögðum hætti, ef vel
á að vera.
Við þessar breytingar mun
tþróttablaðið stækka um allt
að helming, og
áformað er að fjórfalda
áskrifendafjöldann. Slik
stækkun blaðsins og út-
breiðsluaukning gefur vissu-
lega aukinn möguleika I efnis-
vali, sem iþróttahreyfingin i
landinu þarf að nýta sem bezt,
enda mun lögð á það áherzla
að hafa efni þess sem fjöl-
breyttast og við flestra hæfi.
Blaðið mun koma út eigi
sjaldnar en 6 sinnum á ári.
Þessi samstarfssamningur
gildir frá 1. febrúar 1973 tíl 31.
desember 1977.