Tíminn - 14.04.1973, Page 13
Laugardagur 14. apríl 1973.
TiMINN
13
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Ilelgason, Tómas Karlsson,
Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaös Timans).
Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif-
stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif-
stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug-
lýsingasimi 19523. Askriftagjald 300 kr. á mánuði innan lands,
i iausasölu 18 kr. eintakið.
Blaðaprent h.f
k-----
Benedikt og Gylfi
í leiðurum Alþýðublaðsins hefur þess þrá-
faldlega verið krafizt undanfarið, að islenzka
rikisstjórnin breyti afstöðu sinni gagnvart
málarekstri Breta og Vestur-Þjóðverja gegn
íslendingum fyrir Alþjóðadómstólnum i Haag
og sendi málflytjenda til dómsins, nú, eftir að
hann hefur úrskurðað sér lögsögu i málinu á
grundvelli vandræðasamninganna frá 1961.
Hefur Alþýðublaðið sifellt vitnað til yfirlýsinga
þeirra, sem Gylfi Þ. Gislason, formaður
Alþýðuflokksins, gaf i útvarpsumræðunum er
til umræðu var tillaga Sjálfstæðisflokksins um
vantraust á rikisstjórnina. Gerði Gylfi kröfuna
um málflutningsmann til Haag að einum aðal-
þættinum i ræðu sinni og greiddi atkvæði með
vantrausti á rikisstjórnina á eftir.
í eldhúsdagsumræðunum i fyrrakvöld var
það Benedikt Gröndal, varaformaður Alþýðu-
flokksins, sem hafði orð fyrir flokknum. Kvað
þar við annan og skynsamlegri tón um stefn-
una i landhelgismálinu.
Benedikt Gröndal hefur verið frá þingstörf-
um um alllanga hrið og dvalið við ráðstefnu-
hald i hafsbotnsnefnd i New York og kynnt
stefnu íslendinga i landhelgismálum i Skot-
landi. Hann er nú nýlega kominn heim og er
sýnilegt, að Benedikt hefur tekið ráðin af
Gylfa og kveðið niður ,,Haag-heimskuna” i
flokknum.
í ræðu sinni i fyrrakvöld sagði Benedikt, að
visu, að það væri eðlilegt að skoðanir væru
skiptar um þetta atriði og ekki sakaði, þótt ólik
viðhorf kæmu fram i umræðum um málið, en
siðan tók hann myndarlega af skarið og talaði i
nafni Alþýðuflokksins og fyrir flokkinn allan
sem sá, sem valdið hefði i þessu máli, er hann
sagði,,en Alþýðuflokkurinn mun ekki taka þátt
i neins konar aðgerðum, sem gætu leitt til þess,
að afstaðan til dómstólsins i Haag verði til að
spilla þeirri þjóðareiningu, sem verið hefur um
landhelgismálið siðan Alþingi markaði stefn-
una. Þá einingu viljum við Alþýðuflokksmenn
umfram allt varðveita, enda er hún höfuð-
styrkurinn i þeirri erfiðu baráttu, sem háð er.
Sameinaðir munum við íslendingar vinna
deiluna um 50 milna fiskveiðilandhelgi okkar
og gangi hafréttarráðstefna Sameinuðu þjóð-
anna vel 1974 og 1975 gætum við öðlast mun
meiri rétt yfir landgrunninu öllu og meiru. Við
skulum vona að svo verði.
Aldrei fyrr hefur það skeð i stjórnmálum á
íslandi að varaformaður stjórnmálaflokks
berji til baka skoðanir óg stefnuyfirlýsingar
formanns flokks i stærsta lifshagsmunamáli
íslendinga i ávarpi til þjóðarinnar allrar og i
nafni flokksins alls og án nokkurra fyrirvara.
Getur verið að þetta boði að skynsamari og
heiðarlegri stjórnmálamenn séu að taka æðstu
völdin i Alþýðuflokknum.
Endurskoðun að hefjast
í ræðu sinni i útvarpsumræðunum i fyrra-
kvöld sagði Einar Ágústsson utanrikisráð-
herra, m.a. um varnarmálin að næsta skrefið
yrði að taka ákvörðun um, hvernær endur-
skoðun varnarsamningsins skyldi hefjast og
taldi að það yrði bráðlega, þvi hvað sem
skoðanamun liði um það, til hvers sú endur-
skoðun eigi að leiða, virtust allfelstir sammála
um að hún skuli fara fram, enda eðlilegt að 20
ára samningur þurfi endurskoðunar við. -TK.
Norman Borodin, APN:
Rússneskir leiðtogar
heimsækja Norðurlönd
Rússar leggja kapp á samvinnu við Norðurlandaþjóðirnar
Rússneskir leiötogar
sækjast nú eftir góöu vin-
fcngi við Norðurlönd, eins
og sést á heimsóknum
þeirra þangað. I eftir-
farandi grein eftir einn af
fréttamönnum rússnesku
fréttastofunnar APN er
rætt um þessi feröalög og
þá þýöingu, sem Rússar
telja þau hafa.
Heimsóknir N.Podgorny til
Finnlands og A. Kosygins til
Sviþjóðar eru mikilvægir at-
burðir, sem fara langt fram úr
tvihliða eðli samskipta Sovét
rikjanna við þessi tvö Norður-
lönd. Þessar tvær heimsóknir
stuðla ekki bara að frekari
eflingu vináttutengsla milli
þessara landa, heldur hafa
þær dregið athygli heimsins
að þeirri óumdeilanlegu stað-
reynd, að framkvæmd lög-
máls Lenins um friðsamlega
sambúð milli rikja af óliku
stjórnskipulagi er raunhæf og
áhrifarik.
N.# Podgorny, forseti
Sovetrikjanna heimsótti
Finnland i boði U. Kekkonen,
Finnlandsforseta til að taka
þátt i hátiðahöldum þeim, sem
voru helguð 25 ára afmæli
samnings þess, sem undir-
ritaður var milli Sovétrikj-
anna og Finnlands um vináttu,
samvinnu og gagnkvæma að-
stoð.
Meðan á heimsókninni stóð
átti N. Podgorny viðræður við
U. Kekkonen og samþykktu
þeir að gefa út sameiginlega
yfirlýsingu, þar sem lögð er
áherzla á,að samningur þessi
hafi staðizt prófraun timans,
en hann var undirritaður fljót-
lega eftir upphaf „kalda
striðsins”.
Kekkonen, Finnlandsforseti
sagði, að eitt af markmiðum
samningsins hefði verið að
koma i veg fyrir útbreiðslu
styrjaldarhræðslu og efla öll
skilyrði til að vernda friðinn,
einkum i Norður-Evrópu.
Samningurinn kom i veg fyrir
heilabrot erlendra spákaup-
manna varðandi eftirstriðs-
pólitik Finnlands. i sovézk-
sænsku yfirlýsingunni segir,
að bæði rikin muni halda
áfram að stuðla að batnandi
pólitisku andrúmslofti i
Evrópu og er þar tekið fram,
að tilraunir landa Norður-
Evrópu til að tryggja frið i
þeim heimshluta, muni flýta
fyrir slökun spennu i allri
Evrópu. 1 þvi sambandi
minntust aðilar á mikilvægi
finnsku tillagnanna um að
koma á kjarnorkufriu svæði i
Norður-Evrópu.
N. Podgorny sagði, að
sovézk-finnski samningurinn
hefði verið eitt fyrsta milli-
rikjaskjaliö, sem varð alvar-
leg hindrun i vegi árásar-
aðila Vesturlanda á timum
„kalda striðsins”. Siðan hefði
ástandið i Evrópu batnað
mikið. Mörg ákvæði, sem fyrst
voru sett fram i sovézk-
finnska samningnum fyrir 25
árum, hafa orðið fastur liður i
millirikjasamningum, sem
ekki fyrir löngu hafa verið
undirritaðir af Sovétrikjunum
og rikjum með öðru stjórn-
skipulagi.
Forsetar landanna tóku það
fram, að samningurinn frá
árinu 1948 hefði tryggt öryggi
finnsku og sovézku landamær-
anna, þar sem þau liggja
saman. 1 sovézk-finnsku yfir-
lýsingunni segir, að i þvi tilliti
hafi hann orðið mikilvægur
þáttur i verndun friðar og
öryggis Evrópu, mikilvægt
framlag til slökunar spennu og
bætt hið pólitiska andrúmsloft
i Evrópu.
N. Podgorny sagðist meta
mikils ýmis frumkvæði
Finnlands i þágu friðarins og
minntist sérstaklega á hlut-
verk Finnlands varðandi fjöl-
hliða undirbúningsviðræð-
urnar, sem nú standa yfir i
Helsinki. 1 sovézk-sænsku
yfirlýsingunni létu báðir
aðilar i ljós von um, að við-
ræðunum i Helskinki ljúki
eftir nokkra mánuði.
Sovézk-finnski samningur-
inn frá 1948 varð traustur
grundvöllur og undirstaða
margra gagnkvæmra
samninga milli rikjanna um
samstarf á sviði visinda og
efnahagsmála, verzlunar,
menningarsamskipta og
sameiginlegrar uppbyggingar
iðnaðarfyrirtækja i báðum
rikjunum.
I sovézk-finnsku yfirlýsing-
unni segir, að samskipti og
samvinna milli landanna
aukist stöðugt á öllum svið-
um, og hin persónulegu sam-
skipti leiðtoga beggja land-
anna hafi borið góðan
árangur. Einnig kemur þar
fram, að bæði rikin eru mjög
ánægð yfir vaxandi þróun
sovézk-finnskra samskipta á
sviði menningar svo og þeirri
eflingu, sem orðið hefur i
efnahagssamvinnu og við-
skiptum.
U. Kekkonen. Finnlands-
forseti, tók á móti boði um að
koma i opinbera heimsókn til
Sovétrikjanna og verður
timinn ákveðinn siðar.
Viðræður A. Kosygin og Olof
Palme, forsætisráðherra
Sviþjóðar, um tvihliða sam-
skipti og alþjóðavandamál
voru árangursrikar og hag-
stæðar.
— I ræðu er Alexei Kosygin,
forsætisráðherra Sovétrikj-
anna, flutti i hádegisverðar-
boði i sovézka sendiráðinu
vakti hann athygli á, að „við-
leitnin til þess að auka sam-
starf, verður æ sterkari i
alþjóðlegum samskiptum”.
„Aðeins með þvi að efla og
þróa viðleitni er mögulegt að
skapa varanlegt friðarástand,
öryggi og traust, sem er
þjóðunum nauðsynlegt,” sagði
sovézki forsætisráðherrann.
Alexei Kosygin benti á, að
tilgangur hans með heimsókn-
inni til Sviþjóðar „var einmitt
að leggja áherzlu á þá stað-
föstu ósk sovézku rikis-
stjórnarinnar og sovézku
þjóðarinnar að þróa viðtæk
samskipti og samvinnu við
Sviþjóð i anda sannrar
nágrannavináttu og hefðbund-
innar friðsemdar i samskipt-
um milli landanna.”.
„Markmið okkar er að finna
leiðir, hvar sem það er hægt,
til frekari aukningar á sam-
vinnu okkar”.
Sovézki forsætisráðherrann
lýsti sig fylgjandi þvi, að báðir
aðilar ihuguðu „sovézk--
sænska samvinnu almennt um
mörg ár, ef það gæti leitt til
þess, að löndin gætu stutt
hvort annað efnahagslega bet-
ur en áður”.
Þau vandamál, sem rædd
voru og andrúmsloftið, sem
rikti á þeim umræðum voru
sönnun þess, að bæði löndin
óska eftir að koma sovézk-
sænskum samskiptum á enn
hærra stig, þróa langtima
samband milli beggja rikj-
anna og þjóða þeirra á sviði
efnahagsmála, verzlunar og
menningarmála. Báðir aðilar
samþykktu, að Sovétrikin og
Sviþjóð væru raunverulegir
félagar á öllum þessum
sviðum.
A. Kosygin benti á, að
Sovétrikin virtu hlutleysis-
stefnu Sviþjóðar, sem hefði
orðið þáttur i friði og öryggi
Norður-Evrópu. Utanrikis-
stefna Sviþjóðar bæri þess
vott, að þetta land léti vanda-
mál striðs og friðar sig miklu
skipta.
Sovétrikin meta mikils
tilraunir Sviþjóðar til aö koma
á eðlilegu ástandi i Evrópu og
þróa millirikjasamstarf, svo
og viðleitni landsins á sviði af-
vopnunar og undirbúnings
fyrir öryggisráðstefnu
Evrópu.
Árangur heimsókna
Podgorny og Kosygin til
Finnlands og Sviþjóðar ber
þess vott, að þriðja ár sovézka
friðarfrumkvæðisins, sem er i
samræmi við friðaráætlun 24.
flokksþingsins, hefst á
jákvæðan hátt.
(APN)