Tíminn - 14.04.1973, Blaðsíða 15
Laugardagur 14. apríl 1973
TÍMINN
15
n fé,
lir
VEL
PP-
INA
minum við gamla nemendur
mina. Þær láta það mjög gjarna i
ljós, að námið hafi ekki sizt komið
þeim aðhaldi i þeirra einkalifi, og
að þær hefðu ekki viljað fara á
mis við það.
Námstimi og
tilhögun
— Hversu langur er náms-
timinn hérna? (Ég á bæði við ára-
fjölda og lengd hvers skólaárs).
— Heildarlengd námstimans
eru þrir vetur og eitt sumar. Við
litum á fyrsta námsárið sem
undirbúningstima. Það hefst
venjulega um miðjan september,
og fram til fyrsta október er
undirbúningsnámskeið hér i
skólanum, þar sem aðalgrein-
arnar eru uppeldisfræði eða sá
þáttur hennar, — sem við köllum
starfshætti á leikskólum og dag-
heimilum- og föndur, barnabók-
menntir og sitthvað fleira.
En aö þessum fyrstu tveim
vikum loknum, eða frá fyrsta
október til fyrsta mai, starfa
nemendur á barnaheimilum og
taka laun, en eru undir eftirliti
skólans. Þetta er til þess gert, að
némendurnir geti sjálfir gert sér
grein fyrir þvi, hvort þeim muni
lika fóstrustarfið, þegar þeir
kynnast þvi af eigin raun, eða
hvort þeir kjósa að hætta við það
áður en lengra er haldið. í annan
stað geta svo lika bæði kennarar
skólans og fóstrur barnaheimil-
anna gert sér grein fyrir þvi,
hvort viðkomandi nemandi muni
vera hæfur til þess að gegna sliku
starfi. En þótthægt gangi i fyrstu,
er ekki þar með sagt, að nemand-
Framhald á bls. 27.
gu til þess aö útskýra
EINN AF hinum fjölmörgu skólum þjóð-
félags okkar er Fóstruskólinn í Reykja-
vík. Það verður ekki sagt, að hann hafi
verið eins mikið í sviðsljósinu og margir
aðrir skólar, og verður því þó ekki neitað,
að hlutverk hans er harla veigamikið, og
satt að segja finnst manni, að vel mætti
minnast á hann oftar en gert hefur verið.
Fyrsti árgangur skólans i söngtima hjá Róbert Abraham Ottóssyni.
Leikiö á blokkflautur.
Valborg Siguröardó 11 ir,
skólastjóri Fóstruskólans.
f 1
I- ■' §*• % i 1 ’ j
Séö inn i kennslustund. Hér fer auösjáanlega saman iöja og athygli.