Tíminn - 17.04.1973, Blaðsíða 1

Tíminn - 17.04.1973, Blaðsíða 1
„Hótel Loftleiðir býður gestum sínum að velja á milli 217 herbergja með 434 rúmun — en gestum standa lika íbúðir til boða. Allur búnaður miðast við strangar kröfur vandlátra. LOFTLEIOAGESTUM LIÐUR VEL. WOTEL miMtfí KJARVAL UT — MAÓ INN Klp—Reykjavik. — Kjarvals- sýningunni i Myndlistarhiísinu Skutu örv- um í mark — og hlutu prófverkefni eftir því LÍKLEGA er það nokkurn veginn fastur siður, að dregið sé um prófverkefnin i menntaskólunum, þegar milli einhvers er að velja. En svo má lika finna aðferðir, sem eru ofboð litið nýstár- legri. Það gerði Þórir Sigurðsson eðlisfræðikennari i mennta- skólanum við Tjörnina. Hann hengdi skotskifu upp á þil, fékk nemendunum örvar og lét þá skjóta til marks. Þannig áttu nemendur það undirþvi, hversu höndin var styrk og augað glöggt, hvaða verkefni þeir fengu til stúdentsprófs i eðlisfræði. Það fylgir sögunni, að eðlisfræðikennarinn hafi engan veginn ætlað þeim að leysa af hendi þyngri próf- þraut, er klaufar voru i með- höndlun örvanna, heldur en hinum. Þetta var bara likt og dálitið krydd i hina miklu samsuðu fræðanna, sem fram fer i blessuðum skólunum okkar. við Klambratún lauk á sunnu- dagskvöldið. Þann dag var nán- ast örtröð i sýningarsainum, og er hætt við, að sumir hafi ekki getað notið sem skyldi hinna frábæru listaverka, sem þarna voru, af þeim sökum. Að sögn Alfreðs Guðmunds- sonar forstöðumanns hússins, mun um 55 þúsund manns hafa komið á þessa sýningu. Er þetta þvi ein bezt sótta myndlistarsýn- ing, sem hér hefur verið haldin. Þegar við komum i Myndlistar- húsið i gær, bar fyrir augu okkar hóp kinverskra manna, sem vann að þvi að losa stóra gáma. I ljós kom, að þetta voru verkamenn frá Peking, sem sendir höfðu ver- ið gagngert hingað til lands til að vinna að uppsetningu á kinverskri listmunasýningu, sem verður opnuð eftir páska i Kjar- valssalnum. Einn úr hópnum talaði góða ensku, og sagði hann okkur, að þeir væru 15 saman og hefðu verið sendir hingað i siðustu viku til að vinna að uppsetninguþessarar sýningar, sem yrði bæði mikil og stór i sniðum. Þeir hefðu allir unnið áður að uppsetningu svip- aðra sýninga, en þetta væri i fyrsta sinn, sem þeir færu eins langt frá heimalandi sinu og nú. Allir voru Kinverjarnir eins klæddir — i bláum vinnugöllum með derhúfur á höfði og létta strigaskó á fótum. Ekki notuðu þeir nein hjálpartæki við að losa gámana, heldur báru þeir hvern kassa á bakinu likt og þeir voru vanir i sinu heimalandi. Að öðru leyti voru þeir ekki óáþekkir öðrum verkamönnum. Þeir hlógu og gerðu að gamni sinu og virtust sýnilega skemmta sér konunglega hérna hinum megin á hnettinum. y Islenzk matvæla- kynning í LOFTLEIÐIR munu hefja flug- ferðir til Chicago-borgar í byrjun maímánaðar, og verður fyrsta ferðin. 2. maí. Þá samtimis hefst þar kynning á islenzkum matvælum. Standa búvörudeild Sambands isienzkra samvinnu- félaga og sölustofnun iagmetis- iðnaðarins að þessari kynningu, ásamt Loftleiðum. Chicago Þessi kynning á að standa i eina viku, og verður einkum kynnt islenzkt lambakjöt og ýmsar niðursuðuvörur. Er þetta að sjálfsögðu einn þátturinn i margháttaðri viðleitni íslendinga til að koma á framfæri vöru, sem virðist likleg til þess að öðlast almenna hylli, og færa þannig út kviarnar á erlendum markaði. Færeysk menning- arvika í Reykjavík NORRÆNA húsið mun gangast fyrir færeyskri menningarviku um næstu mánaðamót, og mun hún standa frá 27. aprfl, til annars dags maímánaðar. Munu koma hingað um tuttugu Færeyingar, þar á meðal sumir helztu rit- iiöfundar listamenn og menningarfrömuðir Færeyja, til þess að kynna færeyska menningu. Meðal þess, sem upp á verður boðið, er málverkasýning, heimilisiðnaðarsýning, bóka- sýning og kvikmyndasýningar. Margir Færeyingar munu flytja fyrjrlestra, þeirra á meðal Jóhannes av Skarði og Steinbjörn Jacobsen um bókmenntir, Erlendur Patursson um sam- vinnu Grænlendinga, Islendinga, Færeyinga og Norðmanna i fisk- veiði- og fisksölumálum, Jóhannes Rasmussen um náttúru og jarðfræði Færeyja, Jóhan Hendrik Winther Poulsen um skyldleika færeysku og islenzku og Arni Thorsteinsson um færeysk fornminni. Siðasta kvöldið verður sam- koma i súlnasal Hótel Sögu, þar sem Öskar Hermansen stjórnar söng, dansi og hljóðfæraleik. Kinverjarnir báru hvern kassa á bakinu niður I kjaliara Myndiistarhússins og fóru létt með þá. Þeir voru sendir hingað frá Peking, 15 saman, til aö vinna að uppsetningu á kfnverskri listmunasýningu, sem verður opnuð eftir páska. (Timamynd Róbert) Girnileg fasteign, en óneitanlega peningafrek ÞÓRUSTADIR i ölfusi eru tii Flogið hefur fyrir, að býlið eigi milljónir króna, en ekki veit sölu, og sennilega er það ein hin að kosta tuttugu og fimm blaðið sönnur á þvi. verðmætasta fasteign, sem fram er boðin um þessar mundir. Bóndinn á Þórustöðum, Ingólfur Guðmundsson, hefur setið jöröina i niu ár, og er nú efstur á blaði ailra einstaklinga i hópi mjólkur- framleiðenda á viöskiptasvæði Mjólkurbús Flóamanna meö 206 þúsund litra innlegg á sfðasta ári. Þar að auki hefur Ingólfur haft gott svinabú með um fjörutiu gyltur, og má af þvi ráða, að hann hefur haft ærið mikið umleikis. Mun hann hafa i hyggju að selja svinahjörð sina, en kúastofninn mun ekki vera falur. Verðmæti jarðarinnar má nokkuð ráða af þvi, að brunabóta- mat bygginga - er þar tæpar seytján milljónir króna, og tún er þar áttatiu til niutiu hektarar að stærð. Hins vegar er jörðin landlitil, þvi að landareignin öll er ekki nema hundrað og tuttugu til þrjátiu hektarar En hver skiki er gróinn og ræktanlegur. Eins og kunnugt er liggja Þóru- staðir sérlega vel við samgöngum og eru auk þess i gróðursælli hlýindasveit. Lét ei að Klp—Reykjavik Það vill oft vera anzi mikið um að vera fyrir utan veitingahús borgar- innar, þegar hleypt er þaðan út að lokinni skemmtun. Sumt af þvi er miður fallegt og oft heldur litið afþvi að læra.Þó koma fyrir einsfaka atvik, sem getur verið gaman að, eins og t.d. það sem gerðist fyrir utan Röðul aðfararnótt sunnudagsins, og fjöldi manns horfði á. Upphafið var, að tveir náungar hófu að þjarma illa að einum manni, og gekk þeim erfiðlega að koma honum undir. Engin lögregla var á staðnum frekar en fyrri daginn, og hópaðist þvi fólkið að til að sjá slagsmálin. Þegar slagurinn hafði staðið góða stund, og allt útlit var fyrir jafntefli, vatt þriðji sér út úr hópnum og vildi hjálpa hinum tveim. Þetta likaði sér hæða ekki ungri og myndarlegri stúlku, varla meir en 17 ára, og hélt þvi á eftir honum til að hjálpa þessum eina og jafna leikinn örlitið. Aðkomu- maðurinn kunni ekki við þessa „afskiptasemi” og rétti þvi stúlkukindinni vel útilátið högg, þannig að sprakk fyrir. Sú stutta tók sér þá smá hvild til að jafna sig, en sneri sér siðan að náunganum og rétti honum eitt heljarmikið högg beint á lúðurinn, þannig að hann sveif langar leiðir og iá i öngviti á eftir. Að þessu afreki ioknu dustaði stúlkan rykið af höndum sér og hélt á brott. Það er af slagsmála- kempunum að segja, að þeim varð svo um þetta, að þeir gleymdu öllum erjum, en félagar þess rotaða báru hann á brott með tærnar beint upp I loftiö.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.