Tíminn - 17.04.1973, Blaðsíða 14

Tíminn - 17.04.1973, Blaðsíða 14
14 TÍMINN Þriðjudagur 17. apríl 1973. Eg er ekkert að ásaka hann, þær eru báðar mjög aðlaðandi, en hann er alltof ungur ennþá til þess að festa ráð sitt. Ég mundi kjósa, að Sherida hefði ekki alveg svona stór og dökk augu, og væri ekki eins iturvaxin og hún er. Ég hef áhuga á þvi að hún geti verið hjá okkur áfram. — Það verður hún ugglaust, svaraði Mallory þurrlega. — bú hefur beint huga þinum að Logan, en ég hef verið að hafa auga með Jönu. Eitthvað er það, sem liggur þungt á henni um þessar mundir. — Hún er dálitið rengluleg, en hún er hálfgert barn ennþá. — Ekki hef ég trú á þvi að nokkuð sé að heilsu hennar. En hún er óhamingjusöm, og svo vit- laus er ég ekki að ég viti ekki hvað það er, sem kvelur hana. Þú hlýtur sjálf að hafa komizt að þvi fyrir löngu. Það er Simon. Lea hallaði sér afturá bak, og tók stóran teig úr sigarettunni. — Já, ég vissi þetta vel, sagði hún hin rólegasta, og ég hef reynt að laga það, en þú hefur náttúr- lega ekkert tekið eftir þvi? — Jú, ég hef tekiö eftir þvi, að þú hefur reynt að sjá um að þau umgangist sem allra minnst. En ertu alveg viss um aö þaö sé skynsamlegasta lausnin? — Ja herna, Mallory, þér er þó ekki alvara með að hvetja þau til samfunda? Simon hefur verið giftur og er nú skilinn við konu sina, sagði Lea, ekki með öllu reiðilaust. — O, slikt telst ekki til stór- tiðinda á vorum dögum. — Jana er áreiðanlega of ung og óreynd til þess að ganga Simoni á hiind. Hún er þannig stúlka að hún tekur ástarævintýri ákaflega al- varlega. Ég hef mikiö álit á Simoni sem lækni, og engu siður sem manneskju, en hann er ekkert fyrir Jönu. — Sjálfsagt er það rétt hjá þér. Maollory stóð á fætur. — Hún þyrfti að vera meira út á við. liún þarf að hitta fleiri jafnaldra sina. — Ég vildi óska að hún fengist til að sjá sig um, Mallory. Ég hef það á tilfinningunni, mér til óþæginda, að henni finnist hún þurfi að vera heima min vegna. Ilún gat þó ekkert að þvi gert, er skeði úm árið. Ég hef reynt að spjalla við hana um þetta, en það er eins og að höggva i harðan stein. Mallory bauð góða nótt. Lea beindi stól sinum aö arninum, og starði i þungum þönkum i eldinn. Likami hennar varð afllaus og skrapp saman. Hið barnslega andlit varð ellilegra og dálitið tekið. Munnurinn herptist saman, og á milli augnanna kom djúp hrukka. 5 Katrin Maitland sat i reykklefa fyrsta farrýmis lestarinnar, og horfði hugsandi á landslagið, sem lestin þaut um. Þetta var einn af hinum fágætu vordögum þegar náttúran öll virtist titra af ólgangi lifi. Það var eins og hin grænklæddu tré, sem blöktu i hinum létta, hreina andvara, hefðu engar rætur, en svifu i lausu lofti. — Ég er hamingjusöm, hugsaði Katrin, — Ég ætti að minnsta kosti að vera það-Nú er ég á heim- leið og ég fyrirlit Lundúnaborg. Ég getekki skilið, að ég skuli ekki vera i sjöunda himni. Andlit hennar var ekki stórt og umvafið svörtum lokkum meö rauðleitum blæ. Litla söðulnefið hæfði andlitinu vel, og bæði augnakrókarnir og munnvikin sveigðust upp á við. Hún var i þröngu pilsi og djúprauðri treyju, i sama lit og neglurnar og varirnar. Hendurnar voru smáar og vel lagaðar. Þær voru vel ljfandi og tóku þátt i samtölum, eins og titt er i Frakklandi. Hún andvarpaði og snéri sér frá glugganum til þess að taka i hönd sér timarit um listir. ,,Eftir- tektarverð frumsýning ungs litsamanns hjá Manvers” las hún. „Ungfrú Katrin Maitland hefur vakið mikla eftirtekt fyrir landslagsmyndir sinar frá Corn- wall. Gagnrýnendur eru mjög hrifnir af hinni djörfu og sterku litarmeðferð. Ungfrú Katrin er dóttir sóknarprestsins i Bravizor- sókn i Cornwall, og hún hefur einnig málað andlitsmyndir, sem þykja hafa tekizt mjög vel. Andlitsmyndirnar hafa enn ekki farið á sýningu’’ Katrin leit á úrið sitt.. Eftir tuttugu minútur er ég heima, hugsaði hún.Hvernig skyldi þetta fara? Verður það sami harm- leikurinn? Það er auðvitað til litils fyrir mig að hugsa um þetta fyrr en ég næ fundi hans — og hennar. Þrátt fyrir allt hef ég verið að heiman i þrjá mánuði. Það er ekki langur timi, og sjálf- sagt er hún sama sinnis, en hann getur hafa skipt um skoðun, hugsaði hún. Logan, hvislaði hún, hve fagurt og gott nafn. Lestin hemlaði, og stanzaði svo alveg framan við stöðvarhúsið. Ferowen, sem var fýlulegri en nokkru sinni, tók á móti farangri hennar. — Ilallo, Katrin, velkomin heim, sagði velþekkt rödd að baki hennar. — Logan! Hún hrópaði nafnið og fann að hún blóðroðnaði. — Hvað ertu hér að gera? — Ég er að gá að pökkum til pabba. Ég kom við á prestsetrinu og sagði, að enginn þyrfti að fara hingað ofan-eftir, þvi að ég mundi aka þér heim. Og vertu svo ekki að neinni vitleysu, þu veizt vel að ég kom aðeins til þess að sækja þig Katrin. Hoppaðu inn i bilinn. Hann opnaði huröina fyrir hana. — Það er alveg yndislegt að vera komin heim aftur, sagði Katrin, og sogaði að sér sjávar- loftið. — Hvernig liður ykkur hér? Logan sagði henni undan og ofan af um kunningja og atburði, en spurði hana svo, hvernig henni hefði likað i Lundúnum. Hvers vegna minnist hann ekki einu orði á hana, hugsaði hún. — Hvernig liður Leu, Logan? Hún var bara hissa hvað hún gat haft röddina eðlilega. — Hún er stálhraust. Hún er búin að fá nýjan ritara. Sherida Binyon heitir hún, há, dökk og grönn stúlka, hárið með gullinni slikju og augun eins og blómstur merkurinnar. Af einni eða annarri ástæðu finnst henni fjöl- skyldan dálitið leikræn, en hún mun venjast okkur, sagði hann. — Ertu skolinn i henni, Logan? — Nei, svaraði hann þurrlega. — Ég er ekki sérlega hrifinn af dökkum augum, og þar að auki þykir mér vænt um þig. Hún svaraði engu, og snéri sér undan. Hann stöðvaði bilinn, og neðan við þau var spegilsléttur haf- flöturinn. — Mér finnst þetta ekki sérlega skemmtilegt, Logan. — Ég er heldur ekki að gera tilraun til að vera gamansamur. En nú skulum við i eitt skipti fyrir öll tala út um okkar málefni, Katrin. — Nei, ekki núna. Ö, að þú bara gætir skilið hvernig mér liður, Logan. — Heyrðu mig Katrin, þessi andskotans tökubarns sálar- flækja er farin, að verða nokkuð þreytandi. Það er hún, sem gerir þér litið leitt, ekki satt? Hún svaraöi ekki, hún vissi vel að hann sagði alveg satt, en það gat ekki breytt hinum raunhæfu staðreyndum. Hvað skyldi hann geta vitað um þetta, hugsaði hún. Allir vita að Maitlands hjónin tóku mig til fósturs þegar ég var sex mánaða gömul, en enginn veit hvað það segir mér, að hinir raunverulegu foreldrar minir lögðu mig frá sér á járnbrautar- stöð i rifnum og skitnum druslum. Hverskonar erfð gæti ég ekki hafa hlotið eftir slika foreldra? hugsaði hún örvingluð. — Eigum við ekki að halda áfram, Logan? — Jú, jú, við tölum um þetta betur seinna. Hann setti bilinn i gang og þau óku heim áleið i djúpri þögn. 6 Logan stöðvað bifreiðina fyrir utan Bastions-húsið. Þau Katrin gengu inn og heilsuðu fyrst Sheridu og Mallorv. — Þetta var ángæjulegt, sagði Mallory -. Við verðum að halda upp á endur- fundina með glasi af sherry. Sheridu geðjaðist að Katrinu við fyrstu sjón. Það er eitthvað svo eðlilegt og traust við hana, Lárétt 1) Kjúklingar,- 6) Eybúa.- 8) Likneski- 10) Kraftur,- 12) Númer.-13) Rugga,-14) Skel.- 16) Gæflynd,- 17) Fugl,- 19) Hundur,- Lóðrétt 2) Rógur,- 3) Þyngd - 4) Eins,- 5) Maður,- 7) Klóka,- 9) MáL- 11) Sáðkorn,- 15) Fæða,- 16) Ilis.^ 18) Keyrði,- Lóðrétt 2) Ket,- 3) At,- 4) Tif.- 5) Glufa.- 7) Ótukt - 9) Ama,- 11) Amu,- 15) Tik - 16) Ask,- 18) Sá,- D R E K I Tomm segir aö það hafi verið hér . . Hann og Rex voru riðanrii a Joomba. Ljónynjan stökk á eitir antilópu. E5JS7 Menn sem voru á þessari grein lömdu hann og Rex af baki Joomba man ekki fleira.fLvX V lyii Þriðjudagur III 17. apríl 12.00 Dagskráin. Tónleikar. iSiií: Tilkynningar. ;;i;i;i;i; 12.25 Fréttir og veðurfregnir. ;;;$$; Tilkynningar. iÍiSÍii 13 00 Eftir hádegið Jón B. ;;i;;;i;i; Gunnlaugsson leikur létt lög m °§ spjallar við hlustendur. ;i;i;i;i;i 14.15 TU umhugsunar (endurt. SÍÍ þáttur) Þáttur um áfengis- :;i;i;i;i; mál i umsjá Arna Gunnars- ;i;i;i;;i; sonar fréttamanns. Rætt við ÍiíÍ þrjá ungtemplara. íiÍ 14.30 Frá sérskólum f iiÍiÍiÍiÍÍ Reykjavik: XVIII: Tónlist- íiíií arskólinn. Anna ijiiiiii Snorradóttir talar við Jón :;i;i;i;;;: Nordal skólastjóra. m 15 00 M iðdegistónleikar: Dönsk tónlist. ÍÍjÍiÍi 16.00 Fréttir. i;i;i;i;i; 1 6 . 1 5 Veðurfregnir. ÍÍÍi Tilkynningar. ;i;i;i;i;i 16.25 Popphornið. iÍÍÍ 17.10 Framburðarkennsla i •iÍi þýzku, spænsku og Í;i;i;i esperanto. ;i;i;i;ií 17.40 Útvarpssaga barnanna: •iÍi ..Júlli og Dúfa” eftir Jón ií;i;i;i; Sveinsson. Freysteinn ÍÍÍi Gunnarsson isl. Hjalti ;i;i;i;i;i Rögnvaldsson les sögulok. m 18-00 Eyjapistill. Bænarorð. jiií Tónleikar. Tilkynningar. M 18 45 Veðurfregnir./ Dagskrá i;i;i;i;i kvöldsins. ÍiÍÍÍ 19.00 Fréttir. Tilkynningar. i;g;i 19.20 Fréttaspegill.+ ÍÍi; 19.35 Umhvcrfismál. i;i;i;i 19.50 Barnið og samfélagið Íii; Ragnhildur Ingibergsdóttir Í*i;i yfirlæknir talar um orsakir M andlegs vanþroska. ;i;i;i; 20.00 Lög unga fólksins. i;i; Ragnheiður Drifa ÍÍÍ Steinþórsdóttir kynnir. i;ÍÍ 20.50 íþróttir. Jón Ásgeirsson iÍÍi sér um þáttinn ÍÍí 21.10 Japönsk tónlist eftir ÍiÍ Toru Takemitsu. a. „Kóral- ÍÍÍÍ eyjan” fyrir sópranrödd og iiiii hljómsveit. Mutsumi jii; Masuda syngur, Yomiuri :;i;i;ii Nippon hljómsveitin leikur, iÍÍÍ Hiroshi Wakasugi stj. b. ÍÍÍ „Vocalism Ai”, tónverk fyr- ÍÍÍi ir segulband. i;i;i;i 21.30 Tvær eyfirzkar konur á ÍÍi; tali. Sigriður Schiöth ræðir ÍÍÍ; við Aldisi Einarsdóttur á ii;; Stokkahlöðum. ;ÍÍ 22.00 Fréttir. íi;Í 22.15 Veðurfregnir. Lestur ÍÍi Passiusálma (48) ÍÍÍ 22.25 Tækni og visindi. Hörður ÍÍ Kristinsson grasafræðingur Íi: talar um fléttusambýlið. i;i 22.40 Harmonikulög. John ?ÍÍ Molinari leikur. ÍÍ! 23.00 A hljóðbergi. ;§;§; 23.40 Fréttir i stuttu máli. §§§ Dagskrárlok. illlBiiii Þriðjudagur 17. apríl 1973 iÍ 20.00 Fréttir ;§!§ 20.25 Veður og auglýsingar ;§§i 20.30 Ashton-fjölskyldan 49. ÍÍ þáttur: Þýðandi Heba §;§; Juliusdóttir. Efni 48. þáttar: ;§;§ Davið og Sheila fara a𠧧;! sækja börn sin til Wales. §§§ Vinnuveitandi Daviðs §;§;: kemur óvænt i heimsókn og :§;§: segir honum, að hann þurfi §;§!; ekki að koma i vinnuna ;§;§ framar. Freda gerir tilraun ;!§§ til að hjálpa Doris, en fær !;§§ óbliðar móttökur hjá §§i; foreldrum hennar. Edwin §!;§ ákveður að segja upp !§!§ störfum hjá prentsmiðj- !§!§ unni, en þegar hinn nýi §;§; eigandi hefur sagt honum ii frá áætlunum sinum, dregur :§!§ hann uppsagnarbréfið til :§;§: baka. §;:§: 21,25 Maður er nefndur :!§§!; Valdemar Björnsson f jár- §;!§ málaráðherra i Minnesota i ;§;§ Bandarikjunum. Jón Hákon §:§! Magnússon ræðir við hann. ;§!§ 22.00 Frá I.istaháið ’73 André §Íi Watts leikur Fantasiu i C- §§;i dúr, op. 15 (Wanderer- §;§; fantasiuna) eftir Franz ;§!§ Schubert. :§:§ 22.30 Dagskrárlok

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.