Tíminn - 17.04.1973, Page 8
8
TÍMINN
Þriöjudagur 17. aprll 1973.
ALÞINGI
Einar Ágústsson, utanríkisráðherra, flutti skýrslu sína á Alþingi í gær:
ÁKVÖRÐUN UM ENDURSKOÐUN
VARNARSAMNINGSINS VERÐUR
TEKIN BRÁÐLEGA
Yfirlýsing frá Alþýðubandalaginu um varnarmálin
— Hannibal Valdimarsson vill senda má'iflytjanda
til Alþjóðadómstólsins í Haag
EJ—Reykjavík
Einar Ágústsson, utan-
ríkisráðherra, flutti skýrslu
sfna um utanríkismál á
fundi í sameinuðu Alþingi í
gær. I ræðu sinni fjallaði
hann um ástand utanríkis-
mála og þau utanríkismál-
efni, sem sérstaklega
snerta hagsmuni Islend-
inga. Varðandi landhelgis-
málið ítrekaði hann þá
skoðun sína, að Islendingar
gætu ekki átt það lifshags-
munamál sitt undir er-
lendum dómstólum, og um
varnarmálin sagði hann
m.a., að ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar um endur-
skoöun varnarsamningsins
yrði væntanlega tekin
bráðlega.
1 framhaldi af skýrslu utan-
rikisráðherra urðu verulegar um-
ræöur, og voru gefnar yfir-
lýsingar af hálfu tveggja þing-
flokka. Þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins gaf yfirlýsingu varðandi
landhelgis málið, en Alþýöu-
bandalagið gaf yfirlýsingu um
varnarmálin.
Eins og áður segir, flutti utan-
rikisráðhcrra itarlega skýrslu um
alþjóöamál og islenzk utanrikis-
mál, og eru ekki tök á að birta
ncma litinn hluta þeirrar skýrslu
hér. En hér fara á eftir nokkur
mcginatriði skýrslunnar varð-
andi islenzk utanrikismál, eins
kaflar úr skýrslunni um ástand
alþjóða mála.
Merkir áfangar
bætt samskipti
ÞEGAR litið er á þróunina
siöustu mánuðina i alþjóða-
málum, ber hæst vopnahléssam-
komulagið i Vietnam og sam-
komulag þýzku rikjanna um að
koma samskiptum sin á milli i
eðlilegt horf.
Með samningi þýzku rikjanna
um grundvallarsamskipti þeirra
á milli, sem undirritaður var 21.
desember 1972’, náðist mjög
merkur áfangi i samskiptum
austurs og vesturs. t kjölfar þessa
samnings skapast möguleikar á
samstarfi Evrópuþjóða, sem með
góðum vilja kann að valda alda-
hvörfum i álfunni.
Stjórnmálasambandi hefur nú
veriö komið á við Þýzka alþýðu-
lýöveldið og þar með eðlilegum
samskiptum við það riki. Bæði
þýzku rikin munu innan tiðar
verða fullgildir aðilar að
Sameinuðu þjóðunum og sér-
stofnunum þeirra. Þótt ekki kæmi
fleira til, er hér um að ræða mjög
stórt skref i þá átt að útrýma
leifum kalda striðsins i Evrópu.
Fundir, sem nú standa yfir i
Helsingfors til undirbúnings ráð-
stefnu um öryggi oe samvinnu i
Evrópu, og viðræf>urum niður-
skurð herafla i Evrópu i Vinar-
borg, bera einnig vitni um
vaxandi viðleitni til að draga úr
spennunni i framhaldi af
innbyrðissa.mningi þýzku
rikjanna og staðfestingu á
samningum Þýzka Sambands-
lýðveldisins við Sovétrikin og
Pólland á siðasta ári.
Viðræðurnar í Vin
og Helsingfors
Um viðræðurnar i Vinarborg
viröist ekki mikið hægt að segja
að svo stöddu, en Island á ekki
fulltrúa þar eins og kunnugt er.
Þeir röskir tveir mánuðir siðan
fundirnir hófust hafa aö mestu
farið i þóf um formsatriði og
fundarsköp, en nú virðist sem
lausn sé fundin þar á. Er þess þvi
að vænta, að málefnaleg
skoðanaskipti geti nú hafizt fyrir
alvöru. Það er fyrirsjáanlegt, að
samningar um niðurskurð
herafla i Evrópu eru mjög við-
kvæmir og vandasamir, þeir
munu taka langan tima og
krefjast mikillar þolinmæði. Hins
vegar er ljóst, að miklu skiptir, að
vel takizt til um framkvæmd
þessara viðræðna.
Fundirnir i Helsingfors til
undirbúnings ráðstefnu um
öryggi og samvinnu i Evrópu
hófust 22. nóvember 1972. 1 fund-
inum taka þátt samtals 34
riki, öll riki Evrópu nema Albania
og auk þess Bandarikin og
Kanda. island hefur átt fulltrúa
á fundum þessum frá upphafi.
Á undirbúningsfundum hefir
enn ekki náðst samkomulag um
dagskrá ráðstefnunnar og hafa
komið fram mörg torleyst
ágreiningsefni. Þó liggur nokkuð
ljóst fyrir, að dagskráin mun i
stórum dráttum fjalla um:
1. - öryggismál, þ.á.m. grund-
vallarreglur varðandi samskipti
rikja.
2. Samvinnu á sviði viðskipta-,
efnahags-, visinda-, tækni-,
menningar- og umhverfismála.
3. Mannleg samskipti, aukin
samskipti á sviði menntunar- og
upplýsingastarfsemi.
4. Ráðgefandi nefnd til að fjalla
um málefni viðkomandi öryggi og
samvinnu.
Þessi 4 dagskráratriði, sem ég
hef rakið hér á undan, eru aðeins
rammi um fjölmarga mála-
flokka, sem enn virðist nokkuð
langt i land að samkomulag náist
um.
Mér finnst ástæða til að þakka
einarðlegt frumkvæði Finna til
undirbúnings þessu máli nú um
alllan ga hrið og fyrir þá frábæru
aðstöðu, sem þeir hafa látið
þessum fundum i té og örugga
stjórn á þeim. ísland styður þvi,
að allir þrir áfangar sjálfrar ráð-
stefnunnar verði haldnir i
Helsingfors og má telja góðar
horfur á, að svo geti orðið.
Víatnamstríöið
Styrjöldin i Vietnam hefur nú
um árabil ekki aðeins valdið
óumræðilegum þjáningum
fólksins i þessustriöshrjáða landi
og annarra, sem þar hafa átt
beinan hlut að, heldur jafnframt
eitrað andrúmsloftið milli stór-
veldanna og legið eins og mara á
eðlilegum samskiptum þeirra.
Islenzka rikisstjórnin hefur við
margvisleg tækifæri lýst
áhyggjum sinum vegna þeirrar
harðýðgi, sem sýnd hefur verið
við striðsreksturinn i Vietnam,
Hún hefur bent á, að hernaðarleg
lausn vandamálanna i Indókina
væri óhugsandi og þvi hvatt til, að
deilan yrði leyst á pólitiskum
grundvelli, þar sem tryggður
væri sjálfsákvörðunarréttur
ibúanna.
Það var þvi mikið fagnaðar-
efni, að samningar tókust milli
striðsaðila i lok janúar s.l. um
vopnahlé i Vietnam,sem siðan var
staöfest af alþjóðlegri ráðstefnu
12rikja um Vietnam, sem lauk 2.
marz s.l.
Komið hefur verið á fót eftir-
litsnefnd til að fylgjast með
vopnahléinu, en hún hefur ekki
fengið fullnægjandi starfs-
skilyrði. Gengið hefur á ýmsu um
framkvæmd vopnahlésins og hafa
deiluaðilar sakað hvor annan
Einar Agústsson utanrikisráð-
herra
margsinnis um að hafa brotið
vopnahléssamkomulagið.
Veldur það áhyggjum, að
árekstrar i Vietnam hafa farið
vaxandi upp á siðkastið og það
ekki siður, aðástandið er nú mjög
alvarlegt i Kambódiu, þar sem iiú
er barizt af jafnvel meiri hörku en
fyrr. Þrátt fyrir þetta verður að
vona að deiluaðilar beri gæfu til
að nýta það tækifæri, sem gafst
með vopnahléinu til að koma á
varanlegum friði i Suðaustur
Asiu.
Stjórnmála samband
viö Kóreru
Ég ætla að vikja nokkrum
orðum að málefnum Kóreu, en
eins og kunnugt er hefur aldrei
gróið um heilt milli Suður- og
Norður-Kóreu eftir Kóreustriði.
1950-1953. A siðasta ári virtist rofa
nokkuð til i samskiptum rikjanna
eftir að viðræður hófust þeirra á
milli til að reyna að leysa
ágreiningsefnin. Siðustu vikur
hafa sendinefndir frá báðum
löndunum komið til Reykjavikur
og rætt við mig. Bæði rikin
segjast hafa áhuga á sameiningu
landanna með friðsamlegum
hætti, en ásaka hvort annað
jafnframt um að vinna ekki
heilshugar að samningum til að
ná þvi takmarki. Erfitt er úr
fjarlægð, þegar mati samnings-
aðila ber ekki saman, að gera sér
grein fyrir raunverulegum
árangri þeirra viðræðna
landanna.er nú standa yfir.
Siðasta allsherjarþing
Sameinuöu þjóðanna ákvað að
fresta umræðum á þinginu um
Kóreumáiið og studdi Island þá
ákvöröun. Sú afstaða byggðist á
þeirri von, að verulegur árangur
yrði af innbyrðissamninga-
viðræðum landanna, og að ekkert
yrði gert á allsherjarþinginu til
að torvelda þessar viðræður, sem
þá voru nýlega hafnar.
Á fundi utanrikisráðherra
Norðurlandanna i Osló i lok
siðasta mánaðar var það
sameiginlegt álit ráöherranna, að
það myndi hafa hagstæð áhrif á
ástandið I Kóreu, ef sem flest
riki kæmu á eðlilegu sambandi
við rikisstjórnir beggja landanna.
1 samræmi við þetta hafa Sviþjóð
og Finnland fyrir nokkrum
dögum fyrst Norðurlandanna til-
kynnt stofnun stjórnmála-
sambands við Norður-Kóreu.
ísland mun innan tiðar einnig
koma á stjórnmálasambandi við
Norður-Kóreu, en slikt samband
höfum við nú þegar við Suður-
Kóreu.
Undirbúningur haf-
réttarráöstefnunnar
Undirbúningsnefnd Hafréttar-
ráðstefnunnar hélt fundi i New
York 5. marz — 6. april s.l. Var
ötullega unnið i hinum þrem
undirnefndum, þ.e. i fyrstu undir-
nefnd, sem fjallar um hið alþjóð-
lega hafsbotnssvæði, þriðju
undirnefnd sem fjallar um
mengun og visindalegar rann-
sóknir og annarri undirnefnd,
sem hefur til meðferðar öll önnur
atriði, þ.á.m. lista yfir verkefni
ráðstefnunnar, viðáttu landhelgi
og fiskveiðilögsögu, landgrunnið
og fiskveiðar á úthafinu.
Verkefnið er að ganga frá
uppkasti að samningstextum
fyrir Hafréttarráðstefnuna og
miðar þvi starfi eftir atvikum
talsvert áfram i fyrstu og þriðju
nefnd. I annarri nefnd stóð lengi á
þvi, að ekki náðist samkomulag
um lista yfir verkefni ráðstefn-
unnar, en niðurstaða fékkst i þvi
efni á sumarfundinum i fyrra. A
nýafstöðnum fundi i New York
þokaðist mikið áleiðis i annarri
nefnd og varð að samkomulagi að
skipa vinnunefnd, sem öll riki, er
sæti eiga i undirbúningsnefnd-
inni, taka þátt i.
Hlutverk vinnunefndarinnar er
að ræða þær tillögur, sem fram
koma i annarri nefnd, og reyna að
ná samkomulagi um samnings-
texta fyrir ráðstefnuna.
Margar tillögur
liggja nú fyrir
Ýmsar tillögur liggja nú fyrir
varðandi viðáttu landhelgi og
fiskveiðilögsögu, landgrunn og
fiskveiðar á úthafinu. Þannig
hafa Sovétrikin lagt fram tillögu
um 12 milna landhelgi, sem jafn-
framt yrðu ytri mörk fiskveiði-
lögsögu, en þó þannig, að
þróunarriki og riki, sem byggja
hagsmuni sina á fiskveiðum,
heföu forgangsrétt á hafinu fyrir
utan eftir þvi sem þörf væri á
fyrir þau. Japan hefur lagt fram
svipaða tillögu. Bandarikin og
Kanda hafa lagt fram tillögur,
sem miða að þvi, að greint sé á
milli strandfiskstofna og flökku-
fiskstofna, þannig aö lögsaga
strandrikja nái til hinna fyrr-
nefndu en millirikjasamningar
fjalli um hina. Kenýa hefur lagt
fram tillögu um efnahagslega
lögsögu innan 200 milna hámarks
og Mexico, Colombia og
Venezúela hafa nú lagt fram
tillögu um 200 milna efnahagslög-
sögu, en að yfirráð yfir hafs-
botninum nái svo langt sem
nýting auðlinda þar er möguleg.
Argentina hefur dreift óformlegu
uppkasti, þar spm miöað er við
allt að 12 milna landhelgi, 200
milna efnahagslögsögu varðandi
landgrunnsbotn og hafið yfir
honum og lögsögu yfir land-
grunnsbotni þar fyrir utan svo
langt sem nýting er möguleg.
Astralia hefur lagt fram svipaða
tillögu. Loks er vitað, að Indland
hefur i undirbúningi tillögu um
200milna lögsögu, sem ekki hefur
enn verið lögð fram.
Tillaga Islendinga
Islenzka sendinefndin vann að
þvi að skapa samstöðu með þeim
rikjum, sem fylgjandi eru við-
tækri lögsögu yfir auðlindum
undan ströndum, en þegar ljóst
varð undir lok siðasta fundar
annars vegar, að nokkur timi
mundi liða þar til grundvöllur
yrði fyrir samræmdri tillögu
þessara rikja, og hins vegar að
vinnunefnd annarrar nefndar
muni brátt hefja umræður um
hinar einstöku tillögur, þótti rétt
að flytja islenzka tillögu. Var hún
lögð fram hinn 5. april s.l. og
hljóðar þannig i islenzkri
þýðingu:
„Lögsaga strandrikja yfir auð-
lindum á hafsvæðum utan land-
helgi þeirra:
Strandriki er heimilt að ákveða
ytri mörk iögsögu og yfirraöa yfir
auðlindum á hafsvæðum utan
iandhelgi þess.
Ytri mörk svæðisins skulu
ákveðin innan sanngjarnrar fjar-
lægðar með hliösjón af landfræði-
iegum, jarðfræðilegum, vist-
fræðilegum, efnahagsiegum og
öðrum aöstæðum á staðnum, sem
máli skipta og skuiu ekki ná
lengra en 200 sjómilur”.
Allar ofangreindar tillögur
verða nú i athugun hjá rikis-
stjórnum fram að Genfar-
fundinum i sumar, en þá verður
reynt að samræma þær eftir þvi
sem unnt er, og hefur tsland þá
tryggt sér aðild að öllum slikum
tilraunum. Auk þess er ráðgert,
að timinn fram að sumar-
fundinum verði notaður til að
hafa nánari samráði
Þróunin í undirbúnings-
nefndinni
Að lokum skal þess getið, að
engar atkvæðagreiðslur fara
fram i undirbúningsnefndinni,
heldur er reynt að fá sem
viðtækasta samstöðu. En þar sem
mikið ber á milli, sérstaklega að
þvi er varðar viðáttu lögsögu
strandrikisins, er ráðgert, að þar
sem samkomulag næst ekki,
verði mismunandi textar lagðir
fyrir ráðstefnuna sjálfa, þegar
þar að kemur. Vaxandi likur er
nú fyrir þvi, aðhamark landhelgi
sem slikrar veröi 12milur, að
vaxandi fylgi verði við 200 milna
efnahagslögsögu sem hámarki og
að sum riki muni leggja mikla
áherzlu á, að lögsaga yfir auð-
lindum sjávarbotnsins sjálfs nái
svo langt, sem hann verður
nýttur. Er það siðastnefnda i
samræmi við þá ákvörðun sem
tekin var á Genfarráðstefnunni
1958, en vegna vaxandi tækni gæti
þar i sumum tilvikum verið um
að ræða svæði,sem ná nokkur
hundruð milur frá ströndum.
Ofangreind tillaga íslands er
miðuð við, að sem flest riki geti
sameinastum það, sem þar segir.
Ljóst er, að fundur undir-
búningsnefndarinnar i sumar ætti
að geta orðið mjög árangurs-
rikur, þar sem nú er búið að ryðja
úr vegi ýmsum byrjunarörðug-
leikum. Verður þá hægt að kryfja
öll mál til mergjar og gera loka-
tilraun til að ná sem viðtækustu
samkomulagi fyrir ráðstefnuna.
Að svo miklu leyti, sem sam-
komulag næst ekki, er ráðgert að
hinar mismunandi tillögur verði
lagðar fyrir ráðstefnuna sjálfa.
Samstarf
Norðurlanda
Samstarf Norðurlandanna á
sviði utanrikismála, menningar-
mála og félagsmála hefur haldið
áfram i svipuðu formi og áður til
ávinnings fyrir öll löndin.
Sá ótti, sem ýmsir hafa borið i
brjósti um, að nánari efnahagsleg
og pólitisk tengsl sumra landanna
við Efnahagsbandalag Evrópu
yrðu til að torveldá hið hefð-
bundna samband Norðurland-
anna, er að minu viti ástæðulaus.
Tengsl landanna standa á
traustari stoðum en aðeins pólit-
iskum og viðskiptalegum.
Sameiginlegur uppruni, saga,
tunga og menning er fyrst og
fremst grundvöllurinn fyrir
samvinnu þeirra.
Utanrikisráðherrafundur
Norðurlanda, sem haldinn var I
Osló i lok siðasta mánaðar
ályktaði um mörg þau alþjóða-
mál, sem á döfinni eru. Fundur-
Framhald á bls. 19