Tíminn - 17.04.1973, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 17. aprfl 1973.
TÍMINN
15
Umsjórt: Alfreð Þorsteinssonj
ÍSLANDSMEISTARAR VALS 1973: Standandi frá vinstri: Guðmundur Harðarson, þrekþjálfari, Geirarður Geirarðsson, liðsstjóri, Torfi
Asgeirsson, Björgvin Björgvinsson, Stefán Gunnarsson, Jón Jónsson, Agúst ögmundsson, Þorbjörn Guðmundsson, GIsli Blöndal, ólafur
Jónsson, Reynir ólafsson, liðsstjóri, Þórarinn Eyþórsson, þjálfari og Þórður Sigurðsson, formaður handknattleiksdeildar Vals. Fremri röö
frá vinstri: Gisli A. Gunnarsson, Jóhann I. Gunnarsson, ólafur Guöjónsson, Ólafur Benediktsson, Gunnsteinn Skúlason, fyrirliöi, Jón
Breiðfjörð, Bergur Guðnason og Jón Karlsson.
ÍSLANDSMEISTARATITILLINN
KOMINN AÐ HLÍÐARENDA
Gunnsteinn sýndi að hann er góður fyririiði, hann stjórnaði Valsliðinu fróbærlega
og var maðurinn ó bak við hinn langþróða sigur
ÞAÐ TÓSKT HJÁ VAL. Geysilegur fögnuður var i
Laugardalshöllinni á sunnudagskvöldið, þegar
Valur sigraði ÍR 18:12 og tryggði sér þar með hinn
langþráða íslandsmeistaratitil i handknattleik. Var
leikurinn á sunnudagskvöldið kóronan á glæsilega
sigurgöngu Valsliðsins i vetur, sigurgöngu, sem
verður áreiðanlega lengi í minnum Valsara. Með
þessum sigri er íslandsmeistaratitilinn kominn að
Hliðarenda, eftir 18 ára fjarveru, en það var 1955,
sem Valur varð síðast íslandsmeistari i hand-
knattleik karla. Með þessum sigri sinum braut
Valur einveldi Fram ogFH á bak aftur, en Fram og
FH hafa skipzt á um að vinna íslandsmeistaratitil-
inn siðustu 15 árin. Það var þvi vissulega orðið
timabært, að annað félag kveddi sér hljóðs á
þessum vettvangi. Þórarinn Eyþórsson, þjálfari
Valsliðsins, má svo sannarlega vera ánægður með
strákana sina. En þeir hafa æft mjög vel i vetur og
lagt hart að sér, til að ná þessum langþráða áfanga.
Valsliðið er tvimælalaust jafn-
sterkasta félagsliðið okkar i dag
og leikur sterkan varnarleik, en
það má segja að varnarleikur
liðsins hefur fært þvi Islands-
meistaratitilinn. Liðið sem heild
er mjög gott, jafnir og baráttu-
glaðir einstaklingar, sem vinna
vel saman. Leikmenn eins og
Gunnsteinn Skúlason, Ólafur
Jónsson, Jón Karlsson, Stefán
Gunnarsson, Bergur Guðnason,
Ólafur Benediktsson, Ágúst
Ögmundsson og Gisli Blöndal eru
menn, sem flestir þjálfarar vildu
hafa i sinu liði. En snúum okkur
þá að leik Vals og IR:
IR-ingar skoruðu fyrsta mark
leiksins. Vilhjálmur Sigurgeirs-
son skoraði laglegt mark af linu á
5. min. Gunnsteinn Skúlason,
bezti maður Valsliðsins, var ekki
af baki dottinn, hann sannaði það
að hann er góður fyrirliði. Þegar
niu min. voru liðnar af leiknum
var hann búinn að skora þrjú
mörk og breyta stöðunni i 3:1
fyrir Val. Þetta einstaklings-
framtak hans var til þess að Vals-
menn fundu öryggið, og þegar 17
min. voru liðnar af leiknum var
staðan orðin 5:1. Það var ekki
fyrr en á 24. min. að Brynjólfi
Markússyni tókst að skora annað
mark IR-liðsins og minútu siðar
minnkaði Þórarinn Tyrfingsson
muninn i 5:3. Þá skoraði Gunn-
steinn 6:3 og Valsmennn bættu
tveimur öðrum mörkum við fyrir
leikshlé.
Þegar 7 min. voru liðnar af
siðari hálfleik, var staðan orðin
10:3 fyrir Val. Um miðjan hálf-
leikinn voru ÍR-ingar búnir að
minnka muninn i 10:6. Þá tók
Gunnsteinn til sinna ráða og
skoraði tvö skemmtileg mörk á
stuttum tima og þegar 7 min. eru
til leiksloka, þá voru Valsmenn
búnir að ná yfirburðarstöðu 15:6.
Undir lokin minnkuðu IR-ingar
muninn i 16:11, en leiknum lauk
með góðum sigri Vals 18:12 og
þar með voru þeir búnir að hefna
LOKA-
STAÐAN
LOKASTAÐAN i 1.
deild íslandsmótsins i
handknattleik karla
var þessi:
Valur 14 12 0 2 282:198 24
Fram 14 10 1 3 277:249 21
FH 14 10 1 3 286:258 21
Víkingur 14 6 2 6 299:297 14
1R 14 617264:25513
Haukar 14 4 2 8 235:257 10
Armann 14 3 2 9 232:274 8
KR 14 0 1 13 226:313 1
Fimm efstu liðin eru með
hagstæða markatölu eftir
keppnina. Vikingur skoraði
flest mörkin, en Valur fær fæst
á sig. KR-liðið skoraði fæst
mörkin og liðið fékk flest
mörkin á sig.
Markhæstu leikmenn:
Einar Magnússon, Viking 100
Geir Hallsteinsson, FH 89
Brynjólfur Markússon, IR 75
Ingólfur Óskarsson, Fram 75
Bergur Guðnason, Val 73
Haukur Ottesen, KR 66
Viðar Simonarson, FH 59
VilhjálmurSigurgeirss. ÍR 56
Vilberg Sigtryggsson, Arm. 55
AgústSvavarsson, 1R 54
Björn Pétursson, KR 53
Axel Axelsson, Fram 51
Guðjón Magnússon, Viking 51
fyrir hinn svarta sunnudag 24.
febrúar 1971. En þá stálu IR-ingar
íslandsmeistaratitlinum af þeim
á siðustu stundu.
Gunnsteinn Skúlason, fyrirliði
Vals, sýndi það á sunnudaginn, að
hann bregzt sjáldan á úrslita-
stundu. Hann stjórnaði liði sinu
vel og var bezti maður leiksins.
Valsvörnin var sterk i leiknum,
en kannski voru leikmenn Vals oft
of harðir, — með óþarfa hrind-
ingar. Gunnsteinn skoraði flest
mörk Vals, eða sex aðrir, sem
skoruðu, voru: Bergur 3 (1 viti,)
Stefán 3, Gisli, Ólafur, Jóhann,
Jón K. Agúst og Jón J. eitt hver.
IR-liðið náði sér ekki á strk i
fyrri hálfleik, leikmenn liðsins
fundu ekki svar við sterkri vörn
Vals. Þeir skoruðu aðeins þrjú
mörk i fyrri hálfleik, sem er mjög
sjáldgæft hjá IR-liðinu. Mörk 1R i
leiknum skoruðu: Agúst 4,
Brynjólfur 3, Vilhjálmur 2 (1
viti), Gunnlaugur 2 og Þórarinn,
eitt.
Leikinn dæmdu þeir Karl
Jóhannsson og Jón Friðsteinsson
ágætlega.
—SOS
GUNNSTEINN....sést hér skora eitt af mörkum sínum gegn 1R.
BREIÐABLIK FELL
Ármann gerði jafntefli 8:8 við leiðinlegt Víkingslið
Ármannsstúlkurnar
björguðu sér frá falli i
íslandsmótinu i hand-
knattleik kvenna 1. deild
á sunnudaginn, þegar
þær gerðu jafntefli við
Viking 8:8. Leikurinn
var leiðinlegur á að
horfa, enda eru aldrei
skemintilegir leikir,
þegar Vikingur er annað
liðið sem leikur. Vik-
ingsstúlkurnar leika
svokallaðan gönguhand-
knattleik, halda knettin-
um i sókn og ógna litið.
Með réttu ætti að dæma
tafir á liðið i annarri
hvorri sókn. Eins og sést
á stöðunni i 1. deild
kvenna, þá hefur Vík-
ingsliðið skorað fá mörk
og fengið fæst mörkin á
sig. Það stafar eingöngu
á þvi, hvað þær halda
knettinum lengi i leikj-
um.
Það er kannski eðlilegt hjá
þessu liði, þvi að það er skipað
nær eingöngu þungum og
hreyfingarlitlum stúlkum. En nóg
um það, Armann náði jafntefli og
er þar með Breiðablik fallið niður
i 2. deild. Erla Sverrisdóttir, hin
snjalla handknattleikskona úr
Armanni, var tekin úr umferð i
leiknum og hafði það mikið að
segja fyrir Armannsliðið. Erla
skoraði samt þrjú mörk og skauzt
upp fyrir Oldu Helgadóttir,
Breiðablik i markaskori i deild-
inni. Þegar Erla var tekin úr um-
ferð, losnaði um hina snjöllu
vinstrihandarskyttu Sigriði
Rafnsdóttur, sem skoraði þrjú
gullfalleg mörk.
BEKARGLIMA
Fyrsta bikarglíma
£ " w yngri glímumanna
FYRSTA bikarglima yngri glimumanna, þ.e.
drengja og unglinga, fer fram í íþróttaskemm-
unni á Akureyri sunnudaginn 29. april 1973 kl.
1,30 siðdegis.
Þátttöku (nafn og aldur) þarf að tilkynna til Garðars
Erlendssonar c/o Blikk og Stál, box 4034 Rvik, fyrir 25. april.
Mótanefnd G. L. í.