Tíminn - 17.04.1973, Qupperneq 16
16
TÍMINN
Þriðjudagur 17. aprll 1973.
Hvöt
íslands-
meistari
í blaki
HVÖT varð islandsmeistari I
blaki. Úrslitin fóru fram um helg-
ina á Akureyri. Úrslitaleikur
Hvatar og ÍMA var mjög spenn-
andi og oft á tiðum vel leikinn.
Hvöt sigraði fyrstu hrinuna,
15:11, en aðra hrinuna vann ÍMA.
Úrslitahrinuna unnu svo Hvatar-
menn með yfirburðum, 15:3. t
hinum leiknum, sem fór fram,
sigraði ÍS UMSE með
yfirburðum, 15:9 og 15:3.
Lokastaðan i mótinu varð
þessi: Hrinur Mörk S
Hvöt 6:2 111-77
1S 4:2 82-51
IMA 3:4 77-78
UMSE 1:6 39-103
*
Skíðalands
mótið í dag
Skiðalandsmótið verður
sett i dag kl. 15 á Siglu-
firði. í dag verður keppt
i 15 km skiðagöngu, 20
ára og eldri. Siðan verð-
ur keppt i 10 km göngu,
17 ára til 19 ára.
★
Jafnteflis-
leikir
íslandsmeisturum
tekst ekki að
skora mark
TVEIR leikir fóru fram i Reykja-
vikurmótinu I knattspyrnu um
helgina. A föstudagskvöldið gerði
Þróttur jafntefli við Reykjavikur-
meistara Fram 0:0. Framarar
voru greinilega ekki á skotskón-
um, þvi að þeir áttu mest allan
leikinn, en tókst ekki að skora.
Valur og Vikingur gerðu jafn-
tefli á laugardaginn, 1:1 i leik,
sem fór fram á Melavellinum.
Leikurinn var mjög jafn og skor-
uðu Valsmenn sitt mark i fyrri
hálfleik, það var Jóhannes Eð-
valdsson sem skoraði það með
þrumuskoti, sem söng upp undir
þverslá. Stefán Halldórsson
jafnaði fyrir Viking rétt fyrir
leikslok með þrumuskoti i blá
hornið.
Ensku
úrslitin
1. deild
Arsenal Toltenh 1-1
('oventry Derbv l>-2
C. Pal. Ipswieh 1-1
Leieester Birmingh. 0-1
Liverpool WBA 1-0
Man. City—Shelf. Utd. 3-1
Norwieh—Chelsea 1-0
Southampt,—Newcst. 1-1
Stoke—Manch. Utd. 2-2
West Ham—Leeds 1-1
Wolves—Everton 4-2
2. deild
Aston V,—Bristol C. 1-0
Blaekp,—Preston 2-0
Brighton—Orient 2-1
Carlisle—Hull City 0-1
Fulham—Oxford 2-0
Huddersf,—Burnley 0-2
Nottm. For,—Middlesb. 1-3
QPR—Luton Town 2-0
Shelf. Wed,—Cardiff 1-0
Sunderl,—Portsm. 2-0
Swindon—Millvall 0-0
æfingar
F.R.Í.
BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON... hinn snjalli Hnumaður Fram var hreint óstöðvandi gegn FH. Hér á
myndinni sést hann skora eitt af sinum stórglæsilegu mörkum.
Björgvin var hreint
óstöðvandi gegn FH
Hann skoraði tíu stórglæsileg mörk og var maðurinn á bak við
sigur Fram, sem færði liðinu silfurverðlauni
BJÖRGVIN BJÖRGVINSSON
hinn snjalli linuspilari Framliðs-
ins, sannaði það á sunnudaginn,
að hann er einn okkar allra bezti
handknattleiksmaður I dag. Þeg-
ar hann er I ham, halda honum
engin bönd. Það fengu FH-ingar
svo sannarlega að reka sig á,
þcgar þeir mættu Fram. Björgvin
var hreint óstöðvandi I leiknum,
hann skoraði tiu mörk, hvert öðru
fallegra. Hann vann hug og hjörtu
hinna fjölmörgu áhorfenda, sem
klöppuðu honum óspart lof i lófa,
þegar hann með krafti og geysi-
legri snerpu skoraði mörk með
einn til tvo leikmenn á bakinu.
Björgvin var potturinn og pannan
i góðum sigri Fram, sem færði
liðinu silfurverðlaunin i tslands-
mótinu. Silfurverðlaunin voru að
vissu leyti mikill sigur fyrir
Fram, þvi að siðastliðin 13 ár
hefur liðið ekki farið niður fyrir
Skríls-
læti á
Nesinu
ÞAD VAR algjör heppni, að það
varð ekki stórslys á Nesinu á
sunnudaginn, þegar ÍR og KR
léku i tslandsmótinu I handknatt-
leik. Þegar leiknum lauk, henti
óánægður piltur, tómri gosflösku I
áttina að dómurum leiksins.
Flaskan flaug fram hjá höfðum á
leikmanna ÍR- og KR-liðsins og
small I gólfinu hjá dómurunum.
. Húsvörðurinn Magnús Georgs-
son, sem sézt hér á myndinni vera
aö fjarlægja sökudólginn úr hús-
inu, sagði að þetta væri ekki i
fyrsta skiptið i vetur, sem flösku
væri kastað inn á gólfið. A þessu
sést, að það er stórhættulegt, að
vera kröfuknattleiksmaður hér á
landi. Enda segja leikmennirnir,
að svo geti fariö, að þeir leiki með
skellinöðruhjálm I framtiðinni.
in
annað sætið I 1. deildarkeppninni.
Framarar tóku strax leikinn i
sinar hendur. Þegar 10 min. voru
liðnar af leiknum, var staðan
orðin 5:1. FH-ingum tókst að
minnka muninn i 10:9 á 20. min.
Leikmenn Fram-liðsins, sem
þurftu að vinna leikinn með fjög-
urra marka mun, voru ekki af
baki dottnir. Þeir náðu stórgóðum
lokaspretti I fyrri hálfleik, sem
lauk með 17:11 fyrir Fram.
Þegar staðan var 18:14 i siðari
hálfleik, tók Björgvin leikinn i
sinar hendur. Hann skoraði fimm
mörk á stuttum tima, og var aðal
maðurinn I, að Fram náði átta
marka mun 24:16. Þá skoruðu
FH-ingar þrjú mörk og minnkuðu
muninn i 24:19. Ingólfur skorar þá
25:19og Björgvin bætir marki við
og stuttu siðar skorar hann sitt ti-
unda mark og var staðan þá
27:20. FH-ingar reyndu að saxa á
forskotið og ná silfurverðlaunun-
um. Þeim tókst að skora þrjú
F.R.Í. gengst fyrir landsliðs-
æfingum i Baldurshaga um pásk-
ana. Æft verður frá og með 19.
april (skirdag) til og með 2.
páskadag, þó ekki páskadag.
Æfingatiminn er frá kl. 9.30 til kl.
12.00 f.h. Þessar æfingar eru
ætlaðar frá frjsiþróttafólki, sem
fengið hefur bréf frá stjórn F.R.t.
vegna væntanlegra stórmóta i
sumar. Það er von stjórnarinnar,
að þessir timar verði nýttir sem
bezt.
Þjálfarar félaganna og
Jóhannes Sæmundsson, munu
verða til viðtals i þessum æfinga-
timum og leiðbeina eftir þörfum.
siðustu mörk leiksins, sem lauk
með sigri Fram 27:23.
Eins og fyrr segir, þá átti
Björgvin snilldarleik. Einnig léku
þeir vel þeir Axel, Ingólfur og
Andrés Bridde. Þeir áttu góðar
linusendingar á Björgvin. Guð-
mundur Sveinsson lék aftur með
liðinu og var hann mikill styrkur
fyrir það. Mörk Fram skoruðu:
Björgvin 10, Axel 5 (1 vlti),
Guðmundur 3, Ingólfur 3 (1 viti),
Arni 2, Hanne s 2 og Andrés tvö.
Geir Hallsteinsson, sem lék
sinn siðasta leik með FH-liðinu að
sinni, sýndi ágætan leik. Hann lék
fyrir liðið og átti margar fallegar
linusendingar. Ólafur Einarsson
sýndi, að hann getur ennþá skot-
ið, hann skoraði sex góð mörk
með langskotum. Annars voru
leikmenn liðsins nokkuð jafnir og
eins og hjá Framliðinu, þá fengu
ungu leikmennirnir að spreyta
sig. Mörk FH-liðsins skoruðu:
Ólafur 6, Geir 4, Auðunn 4,
Gunnar 3, Viðar 3, Sæmundur,
Orn og Hörður, eitt hver.
Óli Ólsen og Björn Kristjánsson
dæmdu leikinn þokkalega.
SOS
REYKJAVIKURMOTIÐ 1973
MELAVOLLUR
í kvöld kl. 19.00 leika:
Þróttur — ÍBV
Mótanefnd
KRR - IBR