Fréttablaðið - 16.08.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
MÁNUDAGUR
ATFERLISGREINING
Sálfræðingurinn Charles Catania heldur
fyrirlestur um atferlisgreiningu á vegum
sálfræðiskorar Háskóla Íslands klukkan
11.00 í stofu 210 í Odda í dag. Catania
starfar í dag við Háskólann í Maryland en
var áður nemandi og síðar samverka-
maður sálfræðingsins B.F. Skinner við
Harvard-háskóla.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
GOTT VEÐUR ÁFRAM Yfirleitt bjart
og fallegt veður. Úrkomulítið á landinu en
áfram líkur á þokubökkum með ströndum.
Sjá síðu 6
16. ágúst 2004 – 221. tölublað – 4. árgangur
MINNI EVRÓPUÞREIFINGAR
Ráðherraskiptin í utanríkisráðuneytinu
munu ekki hafa afgerandi breytingar á ut-
anríkisstefnuna. Þau geta þó orðið til þess
að minna verður um þreifingar í Evrópuátt,
segir dósent í stjórnmálafræði. Sjá síðu 2
STARFSMENN HLUNNFARNIR
Talsvert er um að vinnuveitendur hlunnfari
launþega sína, segir formaður Verkalýðsfé-
lags Húsavíkur. Hann segir að sérstaklega
sé mikið um þetta hjá fyrirtækjum í ferða-
mennsku og veitingaþjónustu. Sjá síðu 4
EINS OG EFTIR SPRENGJUÁRÁS
Flórídabúar eru að hefja enduruppbyggingu
eftir hvirfilbylinn sem olli mikillli eyðilegg-
ingu á laugardag. Talið er að tjónið nemi
um 800 milljörðum króna. Sjá síðu 2
VARAR VIÐ SAMÞJÖPPUN
Björn Bjarnason varaði við óheilbrigðum
tengslum milli þeirra sem ráða fjölmiðlum
og þeirra sem hafa undirtökin í verslun og
viðskiptum, í ræðu á Hólaþingi. Sjá síðu 2
36%50%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 18
Sjónvarp 28
ÍRAK, AP Bardagar í Najaf eru hafn-
ir af krafti á nýjan leik eftir að
stríðandi fylkingum mistókst að
ná samkomulagi um vopnahlé.
Bandarískar hersveitir, studd-
ar skriðdrekum, héldu aftur inn í
miðbæ borgarinnar til að herja á
vopnaða stuðningsmenn sjía-
klerksins Muqtada al-Sadr. Víða
mátti heyra sprengingar og skot-
bardaga þegar bardagar færðust
úr einu hverfi í annað.
Bardagarnir hófust á ný um
það leyti sem rúmlega þúsund
þjóðfundarfulltrúar komu saman í
Bagdad. Eitt helsta verkefni þjóð-
fundarins er að velja hundrað
manna ráð sem hefur eftirlit með
störfum bráðabirgðastjórnarinn-
ar fram yfir þingkosningar í janú-
ar.
Íraskir lögreglumenn um-
kringdu hótel í Najaf þar sem
blaðamenn hafast við og fyrir-
skipuðu þeim að halda á brott
þar sem ekki væri hægt að
ábyrgjast öryggi þeirra þegar
bardagar brytust út af fullum
krafti. Blaðamennirnir töldu
hins vegar að með þessu ætti að
tryggja að fréttir af bardögum
bærust ekki jafn greitt út og
ella. Töldu þeir hótanir um að
gera farsíma og myndavélar
upptækar renna stoðum undir
það. ■
SJÁVARÚTVEGUR „Við höfum ákveðið
að veiða ekki um sinn en munum
endurmeta stöðuna,“ segir Friðrik
J. Arngrímsson, framkvæmda-
stjóri LÍÚ, um síldveiði við Sval-
barða. Fresturinn sem Norðmenn
gáfu íslenskum skipum til að
hætta veiðum við Svalbarða rann
út á miðnætti síðustu nótt.
Útgerðarmenn ákváðu á tíunda
tímanum í gærkvöld að veiða ekki
fyrst um sinn eftir að bannið tæki
gildi. „Það er líka bræla þarna úti
og lítið hægt að veiða eins og
stendur,“ segir Friðrik. Hann seg-
ir að íslenskir útgerðarmenn muni
meta stöðuna ásamt íslenskum
stjórnvöldum í dag. „Við höfum
farið fram á að það verði skorið úr
um þetta mál fyrir alþjóðadóm-
stól.“
Friðrik segir að íslensk stjórn-
völd hafi ekki hvatt útgerðar-
menn til hætta veiðum. „Stjórn-
völd hafa lýst yfir að við höfum
fulla heimild til að veiða og
styðja okkur í þessu máli.“ Frið-
rik telur mögulegt að eitthvað af
síld sé utan bannsvæðisins og
verið sé að kanna hvort hægt sé
að veiða þar.
Fimm íslensk skip voru á mið-
unum í gær og er gert ráð fyrir
að þau verði þar áfram. „Varð-
skipin hafa verið að atast í okkur,
elt okkur og komið daglega um
borð til að sjá hvað við erum að
fiska og stemma af bókhaldið,“
segir Arngrímur Brynjólfsson,
skipstjóri á Vilhelm Þorsteins-
syni frá Akureyri. Hann er reiðu-
búinn að leita annað ef þörf kref-
ur. „Ef það er síld utan við bann-
svæðið þá tökum við hana bara.“
Arngrímur segir veiði hafa
verið góða og þetta sé í fyrsta
sinn sem brælan hamli veiðum.
„Við höfum veitt vel í sumar og
landað tíu sinnum í skip sem fara
með aflann í land og losnum
þannig við vikusiglingu til
Íslands.“
bergsteinn@frettabladid.is
ingi@frettabladid.is
Veiðum hætt
fyrst um sinn
Íslenskir útgerðarmenn hafa ákveðið að hætta veiðum fyrst um sinn
eftir að veiðibann Norðmanna tók gildi á Svalbarðasvæðinu. Þeir eru þó
ekki á því að gefast upp og ætla að endurskoða afstöðu sína í dag.
Hersveitum safnað saman í Najaf:
Bardagar blossa upp á ný
IVANOV OG RUMSFELD
Rumsfeld kom í tveggja daga heimsókn til
St. Pétursborgar. Þar ræddu hann og
Ivanov samskipti landanna.
Rússar og Bandaríkin:
Ekki orðnir
bandamenn
MOSKVA, AP Rússar og Bandaríkja-
menn „eru sannarlega ekki lengur
óvinir en eru sennilega ekki heldur
orðnir bandamenn,“ sagði Sergei
Ivanov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, þegar hann lýsti samskiptum
landanna að loknum fundi sínum
með Donald Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna.
Ivanov sagði samskipti Rúss-
lands og Bandaríkjanna enn í þróun.
„Þetta er ferli sem er að þróast. Það
getur ekki byrjað á ákveðnum tíma-
punkti og verið lokið í næstu viku.“
Forsetar landanna tveggja hafa
stundum borið lof á samskipti
þeirra. Þannig hefur Vladimír
Pútín, forseti Rússlands, kallað þau
bandamenn í baráttunni gegn
hryðjuverkum. ■
● hús ● fasteignir
Ánægður í
Þingholtunum
Gói:
● í dag
Frumsýndur í
Bandaríkjunum
Latibær:
▲
SÍÐA 17
● vildu vinna með einhverjum fullorðins
Vinna með upptöku-
stjóra Jamiroquai
Jagúar:
▲
SÍÐA 30
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
TILBÚNIR UNDIR BARDAGA
Liðsmenn Mahdi-sveita sjíaklerksins Muqtada al-Sadr voru reiðubúnir að berjast við bandaríska hermenn í gær. Þriggja daga tilraunum til
að semja um vopnahlé lauk án árangurs og bardagar blossuðu því upp á nýjan leik.
Árekstur við kind:
Tvennt flutt
á sjúkrahús
UMFERÐARSLYS Tvennt var flutt á
sjúkrahús eftir árekstur bifhjóls
og kindar á Fjarðarheiðinni við
Egilsstaði um kvöldmatarleytið í
gær.
Kindin hljóp í veg fyrir hjólið
en á því voru piltur og stúlka sem
tvímenntu. Fólkið kastaðist af
hjólinu við áreksturinn og var
flutt slasað á sjúkrahúsið á Egils-
stöðum. Þau fengu aðhlynningu
vegna minniháttar meiðsla og
voru síðan útskrifuð. Kindin
drapst hins vegar. ■
M
YN
D
/A
P