Fréttablaðið - 04.09.2004, Blaðsíða 22
„Vikan hefur farið í að skipu-
leggja afmælið mitt sem ég held
um helgina, „ segir knatttspyrnu-
maðurinn Guðmundur Benedikts-
son sem fagnaði þrítugsafmælinu
sínu í gærkvöld. „Þetta verður
hörkuveisla sem haldin verður á
hinum geysiskemmtilega veit-
ingastað Si Senor. Ég ætlaði upp-
haflega að hafa veisluna heima og
hafa hana frekar fámenna en svo
áttaði ég mig á því að ég þyrfti að
færa hana niður í bæ því hún
verður líklega býsna fjölmenn, “
segir Guðmundur sem DV valdi í
lið 16. umferðarinnar í Lands-
bankadeild karla fyrir helgina.
„Þeir eru góðir við mig þarna á
DV,“ segir Guðmundur um til-
nefninguna.
Guðmundur er ekki sáttur við
frammistöðu KR-liðsins í fótbolt-
anum í sumar, liðið tapaði fyrir
Fram í vikunni. „Við höfum allir
verið mjög lélegir í sumar og ég
er mjög ósáttur við gengi liðsins
en nú er ekkert annað að gera en
að hysja upp um sig buxurnar og
reyna að klára síðustu tvo leikina
með sæmd,“ segir Guðmundur.
Þrátt fyrir að vera kominn á
fertugsaldurinn er Guðmundur
hvergi banginn: „Þetta snýst
ekki um hvað maður er gamall í
tölum, ég hef nú sagt það áður að
líkami minn virkar eins og á
fimmtugum manni, ég er þrí-
tugur í árum, en svo hagar mað-
ur sér alltaf eins og maður sé
fimmtán ára.“ ■
„Við ætlum að vera með mikið
fjör niðri í bæ og skemmtilega
stemningu,“ segir Kara Arn-
grímsdóttir hjá Dansskóla Jóns
Péturs og Köru.
Skólinn er orðinn fimmtán ára
og í tilefni dagsins verður haldin
afmælishátíð í miðbæ Reykjavík-
ur í dag.
„Okkur langaði til að gera eitt-
hvað skemmtilegt í tilefni dagsins,
eitthvað sem við gerum ekki á
hverjum degi.“
Dagskráin hefst klukkan eitt
með uppákomu fyrir utan Bónus í
Kjörgarði. Þar verða dansaðir
dansar sem hafa verið í tísku á
þessu tímabili, dansar eins og
Macarena og Tómatsósudansinn.
Síðan verður dansað niður
Laugaveginn og stoppað klukkan
hálftvö fyrir utan Dressmann.
Áfram verður svo haldið niður á
Lækjartorg klukkan tvö, og loka-
dagskráin hefst síðan klukkan
14.45 á Ingólfstorgi. Þar kemur
fram hljómsveitin Bardukha
ásamt dönsurum í fremstu röð.
„Við ætlum að blanda geði við
fólk og drífa það með okkur. Það
fylgir okkur trúður allan tímann
til að halda uppi stemningunni, og
allir eru velkomnir að slást í hóp-
inn, eða horfa bara á allt eftir því
hvað fólk vill.“
Kara segir það vera ótrúlegt að
fimmtán ár séu liðin frá því hún og
Jón Pétur Úlfljótsson stofnuðu
skólann.
„Þegar við auglýstum fyrstu
innritun skólans sat maður við
símann og beið eftir fyrsta símtal-
inu, en þau eru orðin mörg síðan.“
Við skólann starfa nú fjórir
danskennarar í hlutastarfi auk
þeirra Jóns Péturs og Köru, sem
kenna í fullu starfi. Nemenda-
fjöldinn hefur haldist nokkuð
stöðugur allan tímann, en full-
orðnir eru þó orðnir stærri hluti
nemendahópsins á seinni árum.
„Þetta breyttist dálítið eftir
að danskennsla varð almenn í
grunnskólum. En á móti hefur
fjölgað fullorðnu fólki sem
kemur til okkar og vill læra að fá
sér snúning.“ ■
22 4. september 2004 LAUGARDAGUR
Afmælisbarn dagsins er
gamanleikarinn DAMON WAYANS
sem er 43 ára í dag.
Apache indíáninn Geronimo hafði
barist gegn hvíta manninum í tæp
þrjátíu ár þegar hann gafst upp
ásamt mönnum sínum í Beina-
grindargili í Arizona á þessum degi
árið 1886.
Hann var þekktur meðal
Apache-indíána sem Goyalkla, eða
„Sá er geispar“. Flestir þeirra sem
ekki voru indíánar kölluðu hann
hins vegar Geronimo, eins og hann
var kallaður af Spánverjum. Þegar
hann var ungur maður höfðu
mexíkanskir hermenn drepið konu
hans og börn í árás á þorpið hans í
Chihuahua í Mexíkó. Geronimo
gifti sig síðar aftur og eignaðist
fleiri börn, en hatur hans á Mexí-
könum minnkaði aldrei.
Geronimo og 50 aðrir Apache-
stríðsmenn héldu sig á svæðinu í
kringum Sierra Madre í Mexíkó, í
suðurhluta Arizona og í Nýju
Mexíkó. Þar tókst þeim að halda
hvítum landnemum frá landsvæði
sínu í nokkra áratugi. Geronimo
lærði aldrei að skjóta af byssu, en
menn hans voru vopnaðir bestu
rifflum sem hann komst höndum
yfir. Hann var mikill herstjórnar-
maður, með mikla þekkingu á um-
hverfinu og árum saman tókst
Geronimo og mönnum hans að
sleppa undan hæfustu mönnum
Bandaríkjahers sem sérhæfðu sig í
að berjast við indíána. Þegar leið á
árið 1886 var stríðsmaðurinn
orðinn þreyttir á bardaganum.
Þegar hann gafst loksins upp var
hann síðasti stríðsmaður indíána í
Ameríku til að gefast upp formlega.
Eftir nokkra ára fangavist fékk
hann á ný frelsi og fluttist til Okla-
homa þar sem hann snérist til
kristni og varð bóndi, auk þess sem
hann starfaði óreglulega fyrir
bandaríska herinn. Hann lést árið
1909. ■
ÞETTA GERÐIST
SÍÐASTI STRÍÐSMAÐUR INDÍÁNA GEFST UPP
4. september 1886
„Í gamla daga var það bara hirðfíflið sem gat
talað um kónginn. Hann gat talað um hversu
gráðugur kóngurinn var, hversu feitur og ljótur
hann var og allir hlógu. Grínistar eru einn af
fáum hópum manna sem geta sagt sannleikann.“
Geronimo verður kristinn bóndi
Dansa niður Laugaveginn
FIMMTÁN ÁRA DANSSKÓLI: AFMÆLISHÁTÍÐ DANSSKÓLA JÓNS PÉTURS OG KÖRU
VIKAN SEM VAR: Guðmundur Benediktsson knattspyrnumaður
Undibúningur stórafmælis
Minningarathöfn um elskulega eiginkonu
mína, móður, ömmu og systur okkar,
Oddnýju Ester
Magnúsdóttur Cerisano
Vincent P. Cerisano, Hörður Magnússon, Grétar Jón Magnússon
og fjölskyldur.
fer fram frá Aðventkirkjunni sunnudaginn 5. september
klukkan 13.30.
AFMÆLI
Hörður Torfason tónlistarmaður er
59 ára.
Elín Hirst fréttastjóri Sjónvarpsins er
44 ára.
Magnús Hlynur Hreiðarsson
fréttamaður er 35 ára.
ANDLÁT
Hólmfríður Eyjólfsdóttir, Vesturgötu 25,
Reykjavík, lést laugardaginn 28. ágúst.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Karl Valur Karlsson, Vallholti 22, Ólafs-
vík, lést miðvikudaginn 1. september.
Njáll Guðmundsson, byggingafræðing-
ur frá Böðmóðsstöðum, Vesturhúsum 2,
Reykjavík, er látinn.
Unnur Stefánsdóttir bókbindari, elli- og
hjúkrunarheimilinu Grund, áður til
heimilis í Grjótagötu 4, lést mánudaginn
30. ágúst.
JARÐARFARIR
11.00 Sif Magnúsdóttir verður jarð-
sungin frá Ísafjarðarkirkju.
14.00 Arnbjörg Kristjánsdóttir frá Holti,
verður jarðsungin frá Svalbarðs-
kirkju í Þistilfirði.
14.00 Arnheiður Guðfinnsdóttir, ljós-
móðir frá Patreksfirði, verður jarð-
sungin frá Patreksfjarðarkirkju.
14.00 Helga Hermundardóttir, Eyrar-
götu 6, Ísafirði, verður jarðsungin
frá Ísafjarðarkirkju.
14.00 Sara Símonardóttir, Hvanneyrar-
braut 42, Siglufirði, verður jarð-
sungin frá Siglufjarðarkirkju.
14.00 Sighvatur Fanndal Torfason
kennari, Laugatúni 11, Sauðár-
króki, verður jarðsunginn frá
Sauðárkrókskirkju.
GUMMI BEN Knattspyrnumaðurinn góðkunni var valinn í lið 16. umferðar Landsbanka-
deildar karla í knattpyrnu af DV í gær og fagnaði þá einnig þrítugsafmæli sínu með veislu
í miðbænum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
MERKISATBURÐIR
4. september
1530 Ívan hinn hræðilegi Rússakeisari
fæðist.
1987 Vestur-þýski flugmaðurinn Mathias
Rust er dæmdur af sovéskum
dómstól til fjögurra ára vistar í
þrælkunarbúðum fyrir að lenda
flugvél sinni á Rauða torginu í
Moskvu. Honum var sleppt eftir ár.
1995 Fjórða kvennaheimsþingið hefst í
Peking.
1995 Bill Clinton biðst opinberlega af-
sökunar á sambandi sínu við
Monicu Lewinsky í fyrsta sinn.
Hann lýsir hegðan sinni sem
óverjanlegri.
JÓN PÉTUR OG KARA Þau stofnuðu dansskólann sinn fyrir 15 árum. Þess verður minnst í dag með dansveislu í miðbænum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N