Fréttablaðið - 04.09.2004, Page 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
IK
E
25
71
4
0
9.
20
04
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.ikea.is
14.900,-
MALM rúmgrind úr birkispón 106x210 sm
4.900,-
MALM náttborð/kommóða
úr birkispón
40x48 sm, H 56 sm
1.990,-
KASSET kassar
með loki,
2. stk. í pakka
STAVE spegill
með birkiramma
70x70 sm
890,-
FENJA RAND
púðaver 50x50 sm
1.590,-
VILA lak
úr bómullarsatíni
90x200 sm
1.690,-
TANJA
sængurverasett
150x210/50x60 sm
2.490,-
BOMULL gardínur
145x300 sm
490,-
IRMA værðarvoð
130x170 sm
150,-
BOMULL koddaver
50x60 sm
Góða nótt, sofðu rótt
290,-
Barnamáltíð
Spagettí
með tómatsósu
1.990,-
NÄSTVED motta
100% bómull
80x180 sm 11.900,-
MALM
kommóða úr birkispón
40x48, H 123 sm
575,-
RIBBA
rammi
13x18 sm
ENKLAV
borðlampi
H 29 sm
690,-
1.690,-
LYCKEBY kassar
2 stk.
45x36, H 17 sm
.
,
690,-
MYLONIT borðlampi
Þjóðar-
gersemar
Í fyrra stóðu yfirvöld frammi fyrirmikilvægum valkosti. Norðurál vildi
tvöfalda verksmiðjuna ef orka byðist á
nógu lágu verði. Tveir kostir voru í
boði: a: Að virkja háhitann á Hellis-
heiði eða b: að fara inn í Þjórsárver og
spilla þar ekki aðeins þjóðargersemum
heldur alþjóðlegum verðmætum.
UM fyrri kostinn stóðu engar deilur.
Orkan kæmi úr nokkrum borholum á
Hellisheiði og Reykjanesi. Engar deil-
ur, engin mótmæli, litlar skemmdir
og auðvelt að loka og tyrfa yfir ef
menn vildu.
KOSTUR b) kostaði augljóslega mikið
stríð. Heimamenn í Gnúpverjahreppi
þurftu að eyða ómældum tíma til að
kynna málstað sem þó átti að vera á
almennu vitorði: Þjórsárverin eru of
dýrmæt, tjónið of mikið og áhrif á
gæsir og gróður gríðarleg.
HVORA leiðina hefðir þú valið? Flók-
ið mál? Landsvirkjun og stjórnvöld
völdu stríðsleiðina. Friðarleiðinni var
stungið ofan í skúffu. Stríðsleiðin
þurfti á gríðarlegum áróðri, þrýstingi
og ,,fræðslu“ að halda. Landsvirkjun
setur meira fé í ,,upplýsingar“ en
Árnastofnun fær á fjárlögum. Vísinda-
menn þurfti að svínbeygja. Öll spjót
beindust að Gnúpverjum sem ,,stóðu í
vegi fyrir uppbyggingu á Grundar-
tanga“. Af hverju þessi harka? Fyrri
kosturinn lá ljós fyrir. Af hverju þetta
virðingarleysi fyrir tíma fólks, tilfinn-
ingum og þjóðargersemum?
EINU sinni áttum við fjármálaráð-
herra sem var svo duglegur að hann
reyndi að skattleggja blaðburðarbörn.
Þá þurfti að slá á fingur hans og segja
orð sem urðu fleyg: Svona gera menn
ekki! En nú þegar sami maður tekur
eitt stærsta fyrirtæki landsins og fer í
stríðsleik. Hver slær á puttana? Hver
segir: Svona gerir maður ekki!
LANDSVIRKJUN tapaði 650 milljón-
um á fyrri hluta ársins og skuldar
meira en 100 milljarða. Tekjur frá stór-
iðju lækkuðu um 14%, rafmagn til al-
mennings var hækkað á móti. Nú á að
hækka það aftur um 5%. Til hvers eru
fórnirnar ef þær skila tapi í þokkabót?
Segist Landsvirkjun ekki ætla að
standa undir velferðarkerfinu og lífs-
gæðunum? Hvar eru peningarnir?
„LANDSVIRKJUN er bakhjarl Þjóð-
minjasafns Íslands“ stendur á öllu
sem Þjóðminjasafnið sendir frá sér. Af
hverju fær illa rekið ríkisfyrirtæki í
einokunarstöðu að vera bakhjarl Þjóð-
minjasafns Íslands? Heitir þetta ekki
að færa fé úr einum vasa í annan? Er
eðlilegt að bendla þetta safn við fyrir-
tæki sem velur stríðsleiðina gegn hel-
stu gersemum þjóðarinnar? Er heill
hugur að baki eða spurning um að
mýkja ásýndina fyrir næstu stríð?
LANDSVIRKJUN ætti að verða bak-
hjarl Þvottahúss Ríkisspítalanna.
Næst þegar þú færð nýfætt barn í
hendur mun það klæðast samfestingi
sem á stendur: Eign Landsvirkjunar.
Veröld ný og góð.
ANDRA SNÆS MAGNASONAR
BAKÞANKAR