Fréttablaðið - 06.10.2004, Síða 10
10 6. október 2004 MIÐVIKUDAGUR
LIST OG LYST
Listaverk bandaríska listamannsins Doug
Fishbone hélst ekki lengi við eftir að það
var afhjúpað á Trafalgar-torgi fyrir framan
The National Gallery í London í gær. Lista-
verkið, 30.000 bananar, var afhjúpað
klukkan átta og klukkan þrjú síðdegis
máttu vegfarendur gæða sér á því.
Öllum kennurum gert að sækja verkfallsbætur í
Vinnudeilusjóð:
Kennarar í veikindaleyfi
án launa í verkfallinu
KJARABARÁTTA Kennarar í veikinda-
leyfi falla af launaskrá og fá ekki
greidd laun í verkfalli kennara.
Eins fá atvinnulausir kennarar
ekki greiddar atvinnuleysisbætur
á meðan kennarar eru í verkfalli.
Kennurunum er öllum gert að
sækja verkfallsbætur í Vinnu-
deilusjóð Kennarasambands Ís-
lands.
Árni Heimir Jónsson, formað-
ur stjórnar Vinnudeilusjóðs KÍ,
segir erfitt fyrir kennara í veik-
indaleyfi að þurfa að bæta fjár-
hagsáhyggjum við erfiðleika sína.
„Það getur verið mjög harka-
legt fyrir kennara í veikindaleyfi
að missa launin, sérstaklega séu
veikindin mjög alvarleg,“ segir
Árni.
Hann segir um 16 atvinnulausa
kennara hafa gefið sig fram við
Vinnudeilusjóðinn en fleiri séu
skráðir atvinnulausir.
Jóngeir Hlinason, deildarstjóri
atvinnuleysistrygginga hjá
Vinnumálastofnun, segir unnið
eftir lögum um atvinnuleysis-
tryggingar. Atvinnulausir félags-
menn Kennarasambandsins fylgi
meirihlutaákvörðun félagsmanna
þess. Sömu reglur gildi um aðrar
stéttir í landinu. ■
Hólkarnir hlaðnir
Rjúpnaveiðar verða leyfðar eftir eitt ár. Umhverfisráðherra styttir veiðibann forvera síns um ár en
veiðarnar verða háðar strangari reglum en áður. Forstjóri Náttúruverndarstofnunar er mjög sáttur.
STJÓRNMÁL Rjúpnaskyttum verður
heimilt að halda til veiða næsta
haust, gangi humyndir Sigríðar
Önnu Þórðardóttur umhverfisráð-
herra eftir. Í þeim er ráðgert að
sala rjúpna og rjúpnaafurða verði
bönnuð en þannig á að koma í veg
fyrir starfsemi atvinnuskyttna.
Einnig er líklegt að kvóta verði út-
hlutað til veiðimanna en ekki hef-
ur verið ákveðið með hvaða hætti
það verður gert. Notkun farar-
tækja í veiðilöndum verður tak-
mörkuð og líklegt að veiðitímabil-
ið verði stytt frá því sem verið
hefur.
„Það er mikilvægt að tryggja
að veiðarnar verði sjálfbærar,“
segir Sigríður Anna en með því er
átt við að ekki verði veitt meira en
stofninn þolir hverju sinni. Ekki
verði gengið á stærð hans.
Svokallaðri rjúpnanefnd, sem í
sitja fulltrúar ýmissa hagsmuna-
aðila og Siv Friðleifsdóttir skipaði
í sinni ráðherratíð, verður falið að
smíða frumvarp um lagabreyting-
arnar og vonast Sigríður Anna eft-
ir að tillögur nefndarinnar verði
tilbúnar um miðjan næsta mánuð.
Hún óttast ekki að erfitt verði
að fylgja eftir sölubanni og kvóta-
setningu og höfðar til samvisku
veiðimanna í þeim efnum. „Það
verður að ætla að veiðimenn fari
að reglum, það hlýtur að vera
þeirra hagur.“
Í takt við okkar tillögur
Jón Gunnar Ottósson, forstjóri
Náttúrverndarstofnunar, segist
mjög sáttur við þessar aðgerðir
ráðherra en leggur ríka áherslu á
að veiðunum verði rækilega stýrt
og að stofninn þoli þær veiðar
sem leyfðar verða. „Þetta er alveg
í takt við það sem við lögðum til á
sínum tíma,“ segir hann. Þá
strandaði á sölubanninu sem þing-
heimur hafnaði. „Þá var ekki ann-
að að gera en að setja á algjört
veiðibann og vinna um leið að
hugmyndum um endurskoðun og
eflingu veiðistjórnunarkerfisins.“
Það hefur nú verið gert.
Rjúpnastofninn hefur notið
góðs af veiðibanninu og benda at-
huganir Náttúrufræðistofnunar
til að hann hafi ríflega tvöfaldast
á milli áranna 2003 og 2004.
bjorn@frettabladid.is
Verkfall kennara:
Greiddu 165
milljónir út
VERKFALL Um 165 milljónir voru
greiddar úr Vinnudeilusjóði kennara
á mánudag.
Kennari í fullu starfi fær 3.000
krónur fyrir hvern verkfallsdag. Það
eru um 90 þúsund krónur á mánuði.
Þeir sem nýta persónuafsláttinn
fengu 38.417 fyrir fyrstu fjórtán
dagana en þeir sem kjósa að nýta
ekki skattkortin fengu 25.796 krón-
ur.
Kennarar sem voru atvinnulausir
áður en til verkfalls kom fengu 672
þúsund greiddar úr sjóðnum í gær.
Þeir fá ekki greiddar atvinnuleysis-
bætur á meðan verkalýðsfélagið
þeirra er í verkfalli. ■
SIGMAR B. HAUKSSON
Sigmar B. um rjúpuna:
Með hunds-
haus en
ánægður
RJÚPA „Við skotveiðimenn hefðum
viljað byrja að veiða í ár,“ segir
Sigmar B. Hauksson, formaður
Skotveiðifélags Íslands. Hann er
þó ánægður með að veiðibannið
skuli stytt um ár en ekki síður að
horft sé til framtíðar. „Ég met
mikils við Sigríðu Önnu Þórðar-
dóttur, og set hana á háan stall hjá
mér, að hún vilji flýta starfi
rjúpnanefndar og að gengið verði
frá hugmyndum um veiðistjórn til
framtíðar. Við erum sumsé með
hundshaus en ánægðir.“ ■
Lokuð geðdeild:
Gert ráð fyrir
5-7 plássum
HEILBRIGÐISMÁL Gert er ráð fyrir 5-7
plássum til að byrja með á nýrri
sérhæfðri geðdeild á Kleppi, að
sögn Jóns Kristjánssonar heilbrigð-
isráðherra. Um er að ræða svokall-
aða lokaða geðdeild fyrir mikið
sjúka einstaklinga.
„Þessi deild mun bæta aðstöðu,
fyrir þann hóp sem þarf á slíkri
þjónustu að halda, stórlega,“ sagði
ráðherra. Hann kvaðst ekki geta
tímasett nákvæmlega hvenær
deildin yrði tekin í gagnið. Endur-
bætur á húsnæðinu væru að hefjast
og yrði hraðað eins og unnt væri. Þá
væri faglegt teymi til stuðnings og
aðhalds fyrir geðsjúka að hefja
störf um þessar mundir. ■
Siv Friðleifsdóttir um rjúpuna:
Sjálfstæðismenn
beygðir
STJÓRNMÁL „Það hefur tekist að
beygja sjálfstæðismenn sem voru
á móti sölubanninu á sínum tíma
og ég er mjög ánægð með það,“
segir Siv Friðleifsdóttir, fyrrver-
andi umhverfisráðherra, um
ákvörðun eftirmanns síns á stóli
ráðherra. Hún er sérstaklega sæl
með að stefnt skuli að því að gera
veiðarnar sjálfbærar sem gerist
með sölubanni og fleiri takmörk-
unum.
„Ég er mjög ánægð með að
veiðarnar verði ekki heimilaðar
strax í haust því rjúpnastofninn
þarf enn lengri tíma til að reisa
sig við. Hann hefur þegar stækk-
að vegna veiðibannsins og mun
dafna enn betur næsta árið.“
Upphaflegar hugmyndir Sivjar
um aðgerðir til að endurreisa
stofninn snerust um að banna sölu
á rjúpu en með því vildi hún koma
í veg fyrir veiðar í atvinnuskyni.
Talið er að um tíu prósent skyttna
veiði um 50 prósent rjúpna. Ekki
náðist samstaða um sölubann í
umhverfisnefnd þingsins á sínum
tíma en núverandi umhverfisráð-
herra telur sig nú ganga að slíkum
stuðningi vísum.
Siv segir viðhorfsbreytinguna
ánægjulega. „Þingmenn hafa
sjálfsagt gert sér betur grein
fyrir stöðunni og ég fagna því.“ ■
Skagaströnd:
Ók á húsvegg
LÖGREGLA Maður var fluttur með
höfuðáverka og fótbrot á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri í fyrra-
dag eftir að hafa ekið á húsvegg á
Skagaströnd. Svo virðist sem öku-
maðurinn hafi misst stjórn á bílnum
í beygju en húsið stendur mjög ná-
lægt götunni. Hvassviðri og rigning
var á Skagaströnd þegar slysið varð
og rannsakar lögreglan á Blönduósi
tildrög slyssins. Ekki hefur verið
unnt að taka skýrslu af ökumannin-
um vegna áverka. Bíllinn er mikið
skemmdur ef ekki ónýtur. ■
ÁRNI HEIMIR JÓNSSON
Segir kennara í veikindaleyfi ekki fá greidd
laun. Það sé harkalegt að auka á áhyggjur
fólks í veikindum, sérstaklega séu veikind-
in alvarleg.
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Birkir Jón um rjúpuna:
Ákveðinn sigur
„Þetta er ákveðinn sigur fyrir okkur
talsmenn þess að hefja veiðar á rjúpu
aftur,“ segir Birkir Jón Jónsson, þing-
maður Framsóknarflokks. „Auðvitað
er hér verið að fara bil beggja og þetta
er ákveðin málamiðlun.“ Birkir efast
um að hægt hefði verið að hefja veið-
arnar strax í haust þar sem lagabreyt-
ingar taki sinn tíma og býst ekki við
að ganga sjálfur til rjúpna á næsta ári.
„Ég hef nú ekki veitt rjúpu fram á
þennan dag og stórefa að ég fari af
stað á næsta ári. Fyrst þyrfti ég alla-
vega að fá mér byssuleyfi.“
Guðjón A. um rjúpuna:
Burt með kvótann
„Kvótaskipting og sölubann gera ekk-
ert annað en að gefa rangar og villandi
upplýsingar. Menn hafa enga tryggingu
fyrir því að upplýsingarnar verði réttar,
ekki frekar en í íslensku fiskveiðikvóta-
kerfi,“ segir Guðjón A. Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins. Hann
gerir ekki athugasemdir við að faratæki
til veiðanna verði bönnuð, fagnar því
raunar, og er hlynntur því að veiðitím-
inn verði styttur. „Ég hefði viljað byrja
1. nóvember og enda snemma í desem-
ber og hafa veiðarnar frjálsar. Þannig
fengist samanburður á stofnstærð við
fortíðina.“
SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR UMHVERFISRÁÐHERRA
Við hlið hennar sitja Ingimar Sigurðsson, deildarstjóri í umhverfisráðuneytinu, og Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA