Fréttablaðið - 26.10.2004, Síða 19
3ÞRIÐJUDAGUR 26. október 2004
Bætiefni á betra verði!
Gerið verðsamanburð!
250 töflur
aðeins
kr.295,-
Barnshafandi konur þurfa fólínsýru
Aðeins 1 á dag!
FRÍ HEIMSENDING
Nánari
uppl‡singar
á somi.is
Bætiefni á betra verði!
Gerið verðsamanburð!
Hugsar lítið um mataræðið í stressi dagsins:
Mamma er nátt-
úrugeðsjúklingur
„Ég hugsa bara um kvikmynda-
gerð og held mér þannig í formi.
Maður verður að halda sér við til
að standa sig betur í kvikmynda-
gerðinni. Ég hreyfi mig alltaf eitt-
hvað og reyni að skokka. Maður
verður hreinlega sjúklingur ef
maður situr mikið,“ segir Ólafur
Jóhannesson, kvikmyndagerða-
maður aðspurður um hvernig hann
haldi sér í formi.
„Ég geri mér grein fyrir að ég
verð að hreyfa á mér rassgatið og
reyni helst að gera það á hverjum
degi. Þó viðurkenni ég fúslega að
þetta er það leiðinlegasta sem ég
geri. Það er voðalega gaman samt
að komast í fótbolta sem ég geri oft
en ekki nógu mikið,“ segir Ólafur en
sökum anna í vinnunni nær hann
ekki oft að fá sér staðgóða máltíð.
„Þegar ég gef mér tíma í almenni-
legan mat þá fer ég stundum á Asíu
að borða. Þegar maður festist í
þessu stressi dagsins þá hugsar
maður ekkert um sjálfan sig. Ég hef
samt þurft að breyta um mataræði
en það kallast að eldast. Þá þarf
maður sjálfkrafa að breyta því sem
maður borðar. Annars er móðir mín
algjör náttúrugeðsjúklingur. Hún
lætur mig éta alls kyns hreinsidót
fyrir æðarnar og bla, bla, bla.“
„Á endanum þegar maður tekur
saman það mikilvægasta í lífinu þá
er það ekki að gifta sig eða vinna
eitthvað. Það eru hversdagslegu
stundirnar sem skipta mestu máli
þegar maður hugsar um sjálfan
sig,“ segir Ólafur en hann hefur ný-
verið lokið gerð á heimildarmynd
um Bubba sem er í kvikmyndahús-
um um þessar mundir.
lilja@frettabladid.is
Ólafur Jóhannesson reynir að skokka eitthvað á hverjum degi til að halda sér við.
Mjólkurdrykkja stuðlar ekki að offitu:
Kalk kemur í veg
fyrir ofþyngd
Vísindamenn við Boston Uni-
versity School of Medicine hafa
uppgötvað að börn sem neyta
mjólkurafurða í hóflegu magni á
degi hverjum eiga síður á hættu að
verða ofþyngd að bráð en önnur
börn. Þau börn sem borðuðu að
auki ríflega af ávöxtum og græn-
meti voru enn ólíklegri til að vera
of feit. Rannsóknin sýndi að börn
sem borða minna en tvo skammta
af mjólkurafurðum daglega hafa
næstum tveggja sentimetra auka-
lag af fitu undir húðinni. Ein af
ástæðunum er talin vera sú að kalk
gegnir þýðingarmiklu hlutverki
við meltingu á fitu. Vísindamenn-
irnir telja einnig að börn sem
borða mjólkurafurðir daglega séu
líklegri til að fá heita og heimalag-
aða máltíð á kvöldin í staðinn fyrir
skyndibita eða frosna hraðfæðu.
Hver svo sem ástæðan er er mikil-
vægt að gera sér grein fyrir því að
mjólkurafurðir eru mikilvægar í
mataræði barna. Ekki er þar með
sagt að börn ættu að borða ótak-
markað magn mjólkurafurða því
það getur líka leitt til þyngdar-
aukningar. ■
Rannsóknir á Parkinson:
Líkamsrækt
hjálpar
Nýjar rannsóknir sem voru gerðar
á rottum í háskólanum í Pittsburgh
sýna að líkamsæfingar geta haft
áhrif á heilafrumurnar sem eyði-
leggjast þegar fólk fær Parkinson.
Í framhaldi af þessum rann-
sóknum hefur verið hrundið af
stað annarri rannsókn til að athuga
hvort æfingarnar hafi áhrif til hins
betra meðal þeirra sem þjást af
sjúkdómnum.
Parkinson herjar á heilann og
ræðst á frumur sem framleiða
dópamín, en dópamín er nauðsyn-
legt til að hafa stjórn á vöðvum lík-
amans. Í rannsókninni voru til-
raunarottur látnar hreyfa sig rösk-
lega í sjö daga áður en þær voru
sprautaðar með eitri sem veldur
Parkinson. Annar hópur rotta sem
ekki var látinn hreyfa sig, fékk
líka efnið. Rannsóknin sýndi með
óyggjandi hætti að í rottunum sem
hreyfðu sig voru færri dópamín-
frumur skaddaðar en í hinum sem
hreyfði sig ekkert. ■
Mjólkurafurðir geta komið í veg fyrir
ofþyngd hjá börnum