Fréttablaðið - 30.11.2004, Qupperneq 12
12
SVONA ERUM VIÐ?
„Ég held að það sé bara mjög gott að
bankarnir séu að bjóða upp á þessi
íbúðalán,“ Pálmi Steingrímsson, við-
skiptastjóri hjá Tæknivali. „Þetta á ör-
ugglega eftir að hjálpa mörgum en
getur líka komið einhverjum í koll ef
þeir fara ekki varlega því þeir sem
taka þessi lán eru náttúrlega að veð-
setja eignir sína ansi hátt.“
Pálmi segist sjálfur eiga íbúð.
„Ég er með lán hjá Íbúðalánasjóði
en ætla að skipta yfir til bankanna. Ég
ætla fyrst og fremst að gera það til að
endufjármagna óhagstæð lán sem ég
er með og lækka greiðslubyrðina. Ég
heyri það á fólki sem ég umgengst að
það eru margir að velta þessu fyrir
sér.“
Pálmi segist telja að fasteignaverð
eigi eftir að hækka enn meira en það
hafi gert vegna hundrað prósenta
lána bankanna. Fleiri geti keypt íbúðir
og því verði eftirspurnin mikil á mark-
aðnum. Hann segist sjálfur ekki hafa
neinn áhuga á að taka slíkt lán næst
þegar hann kaupi íbúð.
„Ég held það sé bara ekki skyn-
samlegt. Mér finnst nauðsynlegt að
eiga eitthvað sjálfur í íbúðinni í stað
þess að vera með hana veðsetta upp
í topp.“
Pálmi segist telja að Íbúðalána-
sjóður eigi að vera í samkeppni við
bankana en ekki bara að sinna félags-
legum úrræðum eins og hugmyndir
hafa verið uppi um.
„Bankarnir hafa gott af samkeppn-
inni.“
PÁLMI STEINGRÍMSSON
Varasamt að veð-
setja upp í topp
ÍBÚÐARLÁN
SJÓNARHÓLL
Jón Þór Jóhannesson, sex ára ein-
hverfur drengur, glímir enn við eftir-
hreytur kennaraverkfallsins þótt hann
sé byrjaður í skólanum á nýjan leik eftir
það.
„Þetta hefur gengið framar vonum, en
röskunin sem varð er þó enn að trufla
hann,“ sagði Pálína E. Þórðardóttir,
móðir hans. „Einhverfir leita í einhverja
áráttu þegar þeir hafa ekki sitt reglu-
bundna líf. Hann fer í áráttuhegðun
þegar áreitið kemur og það eimir enn
eftir af því. Það tekur væntanlega lengri
tíma að vinna úr því.“
Pálína og faðir Jóns Þórs, Jóhannes
Jónsson, sögðu meðan verkfallið stóð,
að það væri beinlínis sárt að horfa upp
á þá afturför sem hefði orðið hjá hon-
um. Jón Þór er eins og aðrir einhverfir,
mjög háður reglu og skipulagi og sögðu
foreldrar hans þann tíma sem verkfallið
hefur staðið kostað hann marga mán-
uði í afturför. Hann var þá farinn að
taka reiðiköst. Fyrstu daga verkfallsins
grét hann mikið og var farinn að pissa á
sig, jafnvel nokkrum sinnum á dag, en
áður hafði það komið örsjaldan fyrir.
Pálína sagði starfsfólkið í Hamra-
skóla, þar sem Jón Þór er, vera frábært í
alla staði. Þar er rekin deild fyrir ein-
hverfa nemendur, sem eru sjö talsins.
Krakkarnir eru á ýmsum aldri, allt upp í
8. bekk.
„Verkfallið truflaði hann verulega og við
eigum enn svolítið í land,“ sagði Pálína.
„Hann varð mjög glaður þegar hann
komst aftur í skólann. Það var ekki vanda-
mál að fá hann til að fara aftur þangað,
en það var kannski meira vandamál að fá
hann til að fara að vinna aftur og gera sín
verkefni. Það er ekki komið í sama horf
og var áður en verkfallið skall á.“ ■
Eimir eftir af áráttuhegðun
EFTIRMÁL: PÁLÍNA E. ÞÓRÐARDÓTTIR
30. nóvember 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Metaðsókn í
meindýraeyðingu
Færri komust að en vildu á námskeið í eyðingu meindýra sem haldið var í síðustu viku. Veður-
blíðan síðastliðin sumur er meginástæðan fyrir auknum áhuga enda hefur meindýrum fjölgað.
NÁMSKEIÐ Gífurleg þátttaka var á
námskeiði í eyðingu meindýra
sem haldið var í síðustu viku í
Reykjavík. Góð tíð undanfarin
sumur er helsta ástæðan fyrir
þessum stóraukna áhuga á eyð-
ingu meindýra.
Það voru Umhverfisstofnun,
Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins og Vinnueftirlit ríkisins sem
gengust fyrir námskeiðinu fyrir
verðandi meindýraeyða og þá sem
þegar starfa við fagið og vilja
bæta við þekkingu sína. Alls sóttu
32 námskeiðið og komu þátttak-
endur alls staðar að af landinu,
þar af fimm konur. Flestir voru á
vegum sveitarfélaga og stofnana
en einhverja einyrkja var þó að
finna í hópnum.
Að sögn Elínar G. Guðmunds-
dóttur, fagstjóra hjá Umhverfis-
stofnun, hefur áhugi á eyðingu
meindýra snaraukist undanfarin
misseri. „Við höfum venjulega
reynt að halda námskeið á tveggja
ára fresti og oftast hafa þátttak-
endur verið á bilinu 15-20. Síðan
fengum við holskeflu í fyrrahaust
en aðalástæðan fyrir henni var
mjög svo hlýtt sumar, sérstaklega
úti á landi, og sumarið í sumar var
alveg sérstaklega gott,“ segir Elín
en augljóslega batnar hagur kvik-
indanna með betra veðri. Hún
segir að til tals hafi komið að bíða
til vorsins með námskeiðshald því
ný reglugerð um meindýravarnir
er í farvatninu. „Svo var bara
kominn það langur listi að við
sáum okkur ekki annað fært en að
halda námskeið,“ bætir hún við.
Áhuginn var slíkur að hætta varð
skráningu áður en umsóknar-
frestur rann út.
Ýmislegt var í boði á mein-
dýraeyðingarnámskeiðinu. Fyrst
fengu þátttakendur örstutta
starfsþjálfun hjá Meindýra-
vörnum Reykjavíkurborgar og
fylgdust með framleiðslu á varn-
arefnum, eða eitri, svo voru skólp-
hreinsistöðvar skoðaðar og starfs-
vettvangurinn þannig kannaður. Í
kjölfarið fylgdi tveggja daga
fyrirlestralota þar sem sérfræð-
ingar á sviði meindýra og mein-
dýravarna létu gamminn geysa,
til dæmis skordýrafræðingar,
dýrafræðingar, eiturefnafræðing-
ar auk annarra fagmanna. Sjálf
hélt Elín erindi um gildandi lög og
reglugerðir um meindýravarnir.
Námskeiðsgjaldið var 30.000
krónur og voru kaffiveitingar
innifaldar.
Aðspurð segir Elín að rottur og
mýs, skordýr og aðrir hryggleys-
ingjar sem valda umtalsverðu
tjóni í húsum og híbýlum falli
undir lagaskilgreiningar á mein-
dýrum en viðurkennir þó að tjóns-
hugtakið sé álíka loðið og sum
þessara kvikinda. „Sá sem biður
um þjónustuna verður að meta
það sjálfur.“
Elín, sem er efnafræðingur að
mennt, segist sjálf sjaldan eyða
dýrum. „Ég er frekar köld fyrir
þessu. Ég sé einstaka sinnum silf-
urskottur heima hjá mér eins og
flestir sem búa á svæðum þar sem
eru hitaveitur en ég er nú ekkert
að kippa mér upp við það.“
sveinng@frettabladid.is
SMS
LEIKUR
Þitt VERÐ 199 kr
Frægasti, latasti og feitasti köttur í heimi er kominn á DVD
11. hver vinnur
Sendu SMS skeytið BTL GKF á númerið 1900 og þú gætir unnið.
Í VINNING ER:
Grettir á DVD & VHS.
Aðrar DVD myndir.
Og margt fleira.
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi: Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb BT. SMS kostar 199 kr.
KAUPHÖLLIN ÞRIFIN
Þegar tíðin er rysjótt óhreinkast gluggar húsa sem standa við fjölfarnar umferðargötur. Því voru rúðurnar á Kauphöll Íslands, Laugavegi
182, þvegnar í fyrradag.
Í VERKFALLINU
Jón Þór ásamt foreldrum sínum meðan
kennaraverkfallið stóð enn.
1.108.000 MANNS HEIMSÆKJA
ÍSLENSK SÖFN ÁRLEGA
122 söfn fyrirfinnast á Íslandi. Árið
2002 voru rúmlega milljón heimsóknir
skráðar á þau.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
ilh
el
m
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
MEINDÝR Á FÖRNUM VEGI
Góðviðrið síðustu sumur hefur valdið mik-
illi fjölgun meindýra og þar með mein-
dýraeyða.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
ELÍN G. GUÐMUNDSDÓTTIR
Elín kippir sér lítið upp við silfurskottur, þá sjaldan hún sér þær.