Fréttablaðið - 16.09.2004, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
FIMMTUDAGUR
EVRÓPULEIKUR Í LAUGARDAL
FH-ingar taka í kvöld á móti Alemannia
Aachen í Evrópukeppni félagsliða. Leikur-
inn, sem verður á Laugardalsvellinum,
hefst klukkan 20.30.
DAGURINN Í DAG
LÆGIR SUNNAN TIL EFTIR
HÁDEGI Hvassviðri eða stormur í fyrstu
og mikil rigning. Skúrakenndari eftir hádegi
á suðurhluta landsins. Milt. Sjá síðu 6
16. september 2004 – 253. tölublað – 4. árgangur
● ferðir ● tíska ● heimili
Á notalegt herbergi
Hrafnkell Diego:
● real madrid steinlá en rómverjar eru enn verr staddir
Blóðugur dómari
flautaði leikinn af
Meistardeild Evrópu í fótbolta:
▲
SÍÐA 30
ÓLÍK NÁLGUN Grundvallarmunur er á
nálgun ESB og Íslands varðandi meðafla og
brottkast. Sjómenn ESB eru skikkaðir til að
kasta frá borði fiski sem er undir viðmiðun-
armörkum. Sjá síðu 2
84 PRÓSENT TIL RÍKISINS Af hverri
Absolut vodkaflösku sem kostar 2.880
krónur í vínbúð tekur ríkið 2.419 krónur í
skatt. Skatthlutfall í öðrum tegundum er
einnig hátt. Sjá síðu 6
SLÁTURHÚSIN Í BÓNDABEYGJU
Deilt um greiðslur sláturhúsa fyrir lamba-
kjöt. Bændur telja sig ekki njóta hagræð-
ingar. 245 milljóna króna greiðsla Bænda-
samtakanna til sláturhúsa ófrágengin vegna
þessa. Sjá síðu 10
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 38
Tónlist 34
Leikhús 42
Myndlist 42
Íþróttir 30
Sjónvarp 40
BT bæklingurinn fylgir blaðinu í dag
36%50%
VEÐRIÐ Í DAG
STJÓRNMÁL „Þetta er mikilvægasta
embætti þjóðarinnar, hver sem
fer í það starf hlýtur að standa á
hátindi ferils síns,“ sagði Halldór
Ásgrímsson þegar hann tók við
lyklavöldum í forsætisráðuneyt-
inu af Davíð Oddssyni.
„Þetta er nú enginn nýgræðing-
ur,“ sagði Davíð Oddsson um arf-
taka sinn. „Þetta er maður sem
hefur verið lengi í stjórnmálum.
Þetta starf gengur út á það að sýna
festu, aga og sanngirni í hæfilegri
blöndu. Mér hefur kannski ekki
alltaf tekist það en ég hef haft það
að leiðarljósi.“
Davíð afhenti Halldóri lykla að
stjórnarráðshúsinu við Lækjargötu
og jafnframt að forsætisráðherra-
bústaðnum á Þingvöllum að við-
stöddum fjölmiðlum síðdegis í gær.
Ríkisráð var boðað til fundar á
Bessastöðum klukkan eitt í gær og
þar lét síðasta ráðuneyti Davíðs
Oddssonar formlega af völdum.
Forseti Íslands stýrði síðan ríkis-
ráðsfundi ráðuneytis Halldórs Ás-
grímssonar. Fyrir utan stólaskipti
þeirra Davíðs vék Siv Friðleifsdótt-
ir umhverfisráðherra úr stjórninni
fyrir Sigríði Önnu Þórðardóttur. Þar
með er ríkisstjórnin skipuð fimm
framsóknarmönnum í stað sex áður.
Sjálfstæðisráðherrunum fjölgar um
einn og eru nú sjö og hafa aldrei
verið fleiri ráðherrar í ríkisstjórn
úr einum og sama flokki.
a.snaevarr@frettabladid.is
Sjá síðu 8
Veldu
ódýrt
bensín
Nýtt Hagkaupsblað
fylgir Fréttablaðinu í dag
Bann við fjárfestingu:
Ekki í þágu
útvegsins
VIÐSKIPTI Þórður Friðjónsson, for-
stjóri Kauphallarinnar, telur vafa-
samt að sjávarútveginum sé
greiði gerður með því að hindra
erlenda fjárfesta í að kaupa sig
inn í greinina.
Íslensk útrásarfyrirtæki hafa
fyrst og fremst komið úr öðrum
atvinnugreinum en sjávarút-
vegi. Þórður telur útrásarfyrir-
tækin afar mikilvæg fyrir
Kauphöllina og efnahagslífið í
heild. Hann telur að menn eigi
að fara varlega í því að sníða at-
vinnulífinu þrengri stakk. Frels-
ið hafi skapað möguleika til
vaxtar og útrásar.
Sjá síðu 26
70 MÍNÚTUR
Auddi, Sveppi og Pétur eru að fara að
hætta á Popptívi.
Popptívi:
70 mínútur
hætta
SJÓNVARP Sjónvarpsþátturinn 70
mínútur á Popptívi lýkur göngu
sinni í lok desember en þá verður
þúsundasti þátturinn sýndur.
Að sögn Auðuns Blöndal, eins
af þáttastjórnendum 70 mínútna,
rennur samningur þeirra félaga
út um áramót og vilja þeir reyna
fyrir sér á öðrum slóðum.
Sjá síðu 42
TÍMAMÓT Í STJÓRNMÁLUM Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, tók við lyklavöldunum í stjórnarráðinu af Davíð Odds-
syni. „Er bara opið?“ spurði Davíð Halldór þegar í ljós kom að Halldór hafði enga lykla meðferðis að utanríkisráðuneytinu við Rauðarárstíg.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Sátt við kennara
er ekki í sjónmáli
Gangi viðræður sveitarfélaga og kennara með sama hætti og undan-
farna daga er viðbúið að verkfall skelli á, segir ríkissáttasemjari. Skóla-
stjórnandi segir kennara vinna meira en geta ekki sýnt fram á það.
KJARAMÁL Sveitarfélögin hafa ekki
breytt formlegum kröfum sínum í
kjaraviðræðum við kennara frá
því í maí, samkvæmt Karli
Björnssyni sviðstjóra kjarasviðs
sveitarfélaga. Ásmundur Stefáns-
son ríkissáttasemjari segir að
gangi viðræðurnar með sama
hætti næstu daga og undanfarna
sé viðbúið að verkfall skelli á 20.
september.
Skólastjórnandi sem Frétta-
blaðið ræddi við segir kjaranefnd
kennara í vanda. Síðasti kjara-
samningur hafi minnkað sveigjan-
leika í vinnu kennara. Þeir vinni
meira en áður en geti ekki farið
fram á launahækkun vegna vinnu
sem ekki sé meiri á pappírum.
Eiríkur Jónsson, formaður
Kennarasambands Íslands, segir
ummælin ekki eiga skylt við raun-
veruleikann. Þeir glími ekki við
þennan vanda.
Ásmundur segir enga niður-
stöðu kjaraviðræðnanna í hendi.
Hann segir að þrátt fyrir að
sveitarfélögin hafi ekki breytt
kröfum sínum hafi ýmislegt
gerst í samningaviðræðunum frá
því í maí. „Aðilar hafa verið í
samfelldum fundarhöldum og
velt upp hugmyndum og leiðum
til að leysa mál. Sú umræða hefur
ekki skilað niðurstöðu og hún er
ekki í sjónmáli. Mikið ber í milli
og við vitum ekki hvert áfram-
haldið verður,“ segir Ásmundur.
„Það er vilji að hálfu beggja að
leysa málið. Hvort menn nái sam-
an er óvíst.“
Náist ekki samningar fyrir
mánudag fara um 4.400 kennarar í
verkfall og 43 þúsund börn verða
send heim í heilsdagsumsjá for-
eldra. Það skapar fyrirtækjunum
vanda. Þau huga að dagvistun
fyrir börn starfsmanna í nafni
foreldrafélaga fyrirtækjanna.
gag@frettabladid.is
Sjá síðu 4
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra:
Stendur á hátindi ferilsins
01 15.9.2004 22:16 Page 1