Fréttablaðið - 16.09.2004, Qupperneq 10
10 16. september 2004 FIMMTUDAGUR
MAGNAÐ VÉLMENNI
Japanska fyrirtækið Fujitsu kynnti í gær
nýtt vélmenni. Vélmennið getur hjálpað til
við ýmis störf. Það getur meðal annars
tekið á móti gestum, fylgt þeim að lyftum,
stjórnað lyftum og séð um öryggisgæslu
að nóttu til.
Eldur í fjárhúsi í Skagafirði:
Eldsupptök talin vera í reykstæði
LÖGREGLA Eldur kviknaði í fjár-
húsi á Ögmundarstöðum, sem
eru rétt sunnan við Sauðárkrók,
á tólfta tímanum í fyrrakvöld.
Eldtungur stóðu út úr austur-
gafli fjárhússins þegar lögregla
kom á vettvang. Ekki var annað
en reiðtygi og timbur í húsinu
sem er ónýtt eftir brunann.
Slökkvistarfi lauk rétt fyrir
klukkan fjögur um nóttina en
rífa þurfti þak hússins af með
krana þar sem það var mikið
brunnið og ekki þótti hægt að
senda menn upp á þakið. Ein-
angrun þaksins var þurrkaður
mór og þurfti að tryggja að ekki
yrði glóð eftir í þakinu. Eldurinn
komst ekki í hlöðu sem er áföst
fjárhúsinu en útveggir hennar
eru steyptir.
Ekki er nákvæmlega vitað
hver eldsupptök voru en at-
hyglin beinist að reykstæði í
fjárhúsinu sem bóndinn hefur
notað til fjölda ára við að reyk-
ja fisk og kjöt. Ljóst er að elds-
upptök voru í námunda við
reykstæðið. ■
Sláturhúsin í bóndabeygju
Deilt um greiðslur sláturhúsa fyrir lambakjöt. Bændur telja sig ekki njóta hagræðingar. 245
milljóna greiðsla Bændasamtakanna til sláturhúsa ófrágengin vegna þessa.
LANDBÚNAÐARMÁL Sauðfjárbænd-
ur eru mjög ósáttir við það verð
sem sláturhús hafa ákveðið að
greiða fyrir lambakjöt nú í
haust. Þeir telja ýmis rök fyrir
því að tekjulækkun sem þeir
urðu fyrir í fyrra vegna harðrar
samkeppni á kjötmarkaði eigi
nú að ganga til baka.
Þeir benda á að aðstæður hafi
gjörbreyst á kjötmarkaðinum,
sala á dilkakjöti hafi aukist um
tæp tíu prósent á síðustu tólf
mánuðum og verðið hafi hækk-
að um þrettán prósent. Þá telja
þeir að hagræðing í rekstri slát-
urhúsa með fækkun þeirra und-
anfarið eiga að skila sér í hærra
verði til bænda.
Özur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Landssamtaka
sauðfjárbænda, segir að bænd-
ur hafi samþykkt fækkun slát-
urhúsa á sínum tíma vegna þess
að hún hafi átt að skila sér til
bænda með hærri greiðslum
fyrir kjötið. Reyndin er önnur
að sögn Özurar. ,,Það hefur ekki
króna skilað sér til bænda.
Greiðslur til þeirra lækkuðu um
tólf til fjórtán prósent vegna
undirboða og verðhruns á kjöt-
vörum. Eftir að útflutningsverð
varð hærra en nokkru sinni og
eftir söluaukningu á innanlands-
markaði á þessu ári bjuggust
menn við því að lækkunin til
bænda gengi til baka. En þeir
fengu ekkert og það er þungt
hljóð í sauðfjárbændum yfir
þessu.“
Özur segir að í vor hafi sauð-
fjárbændur óskað eftir því við
sláturleyfishafa að fá að koma
að ákvörðun um verð til bænda
en ekkert hafi orðið úr því. ,,Við
vorum boðaðir á einn fund í
sumar þar sem menn náðu ekki
saman. Þá var ákveðið að hittast
aftur en síðan heyrðum við ekk-
ert frá þeim. Við fengum bara
sent fréttabréf með verðtöflum
sláturhúsanna sem þau höfðu
ákveðið einhliða.“ Özur segir
sauðfjárbændur vera með fá
vopn uppi í erminni í átökum við
sláturhúsin. Nú sé sláturtíð í
fullum gangi og menn verði að
slátra. Bændur geti ekki farið í
verkfall.
Hann segir samning um svo-
nefnt vaxta- og geymslugjald
ófrágenginn vegna þessa máls.
Bændasamtökin útdeila gjald-
inu sem er í kringum 245 millj-
ónir króna og kemur úr ríkis-
sjóði. Undanfarin ár hafa samn-
ingar um hvernig gjaldinu skuli
deilt verið lokið á þessum árs-
tíma. ,,Það er algjört frost í sam-
skiptum bænda og sláturhús-
anna í þessum málum. Auk þess
tökum við sameiginlegar
ákvarðanir um útflutnings- og
markaðsmál en viðræður um
þau liggja niðri vegna óánægju
sauðfjárbænda með verðlistana.
Þar stendur hnífurinn í kúnni,“
segir Özur.
Sigurður Jóhannesson, for-
maður Landssamtaka slátur-
leyfishafa, segir að verið sé að
skoða lögfræðilega stöðu slátur-
húsanna. ,,Við viljum vita hvort
sauðfjárbændur geti ráðstafað
þessum peningum án samráðs
við okkur. Annars er nægur tími
til að finna farsæla lausn á
þessu máli enda verður ekki
greitt eftir samningi um vaxta-
og geymslugjald fyrr en í nóv-
ember.“
Sigurður segir að verð á kjöti
hafi lækkað um tuttugu prósent
á föstu verðlagi frá byrjun árs
2002 þar til í apríl á þessu ári.
Hins vegar hafi greiðslur til
bænda ekki lækkað nema um
átta prósent og sláturfélögin
hafi nýtt hagræðinguna af
fækkun sláturhúsa til að taka á
sig þennan mismun. ,,Við getum
ímyndað okkur hvernig ástandið
væri ef greiðslur til bænda
hefðu lækkað um tuttugu pró-
sent.“ Sigurður segir að greiðsl-
urnar hafi hækkað um fjögur til
sex prósent í haust og að það sé
fyrsta hækkunin í þrjú ár og
greiðsla fyrir útflutning á
lambakjöti, sem sé þriðjungur
af framleiðslunni, muni hækka
um allt að tíu til tólf prósent.
Það sé þó mismunandi á milli
sláturfélaga.
ghg@frettabladid.is
Verkfall í París:
Eiffelturninn
lokaður
FRAKKLAND, AP Eiffelturninn í París
er lokaður vegna verkfalls starfs-
manna.
Ferðamenn í París hafa ekki
getað farið upp í Eiffel-turninn
vegna verkfalls starfsmanna við
turninn. Starfsmennirnir hafa
áhyggjur af framtíð sinni þar sem
samningur núverandi rekstrarað-
ila turnsins við borgaryfirvöld
rennur út á næsta ári. Í gær var
ekki ljóst hvort tekist hefði að
semja við starfsmennina.
Á hverju ári fara um sex millj-
ónir ferðamanna upp í turninn,
sem er einn af vinsælustu ferða-
mannastöðum veraldar. ■
Vatnsendakrikar:
Vopnahlé
gildir enn
SVEITARSTJÓRN „Ætli það sé ekki rétt
að orða það svo að vopnahlé ríki,“
segir Sigurður Geirdal, bæjarstjóri
í Kópavogi, um deiluna sem reis við
Reykjavík þegar borgarráð meinaði
Kópavogi að leggja kaldavatns-
leiðslu frá borholum í Vatnsenda-
krikum yfir land borgarinnar í
Heiðmörk.
Sigurður segist hafa fundað með
Þórólfi Árnasyni borgarstjóra fyrir
skömmu og gerir ráð fyrir að bær-
inn muni tilnefna einhverja tvo
menn til áframhaldandi viðræðna
við borgina. Í áliti borgarlögmanns í
sumar kemur fram að borgin líti
svo á að Vatnsendakrikar hafi verið
teknir eignarnámi árið 1949 og bæt-
ur greiddar fyrir. ■
SIGURÐUR GEIRDAL
Bæjarstjórinn í Kópavogi segir viðræður
halda áfram við borgina um fyrirhugaða
vatnslögn úr Vatnsendakrikum.
FJÁRHÚSIÐ Á ÖGMUNDARSTÖÐUM
Mikill eldur var í fjárhúsinu þegar slökkvilið
kom á vettvang. Fyrir miðri myndinni
stendur Guðrún Hildur Magnúsdóttir, eina
konan í slökkviliðinu í Skagafirði.
SLÁTURHÚS
Bændur eru ósáttir við verðlista sláturhúsanna og telja sig eiga betra skilið eftir
nokkur mögur ár.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
10-11 15.9.2004 20:52 Page 2