Fréttablaðið - 16.09.2004, Side 15
15FIMMTUDAGUR 16. september 2004
www.toyota.is
Hilux. Ódrepandi harðjaxl.
Hilux hefur fyrir löngu sannað ágæti sitt á íslenskum vegum og vegleysum.
Gríðarlegur styrkur, frábær ending og afburða aksturseiginleikar einkenna
þennan ódrepandi harðjaxl sem á sér margra ára frægðarsögu hér á landi.
Komdu og reynsluaktu. www.toyota.is
Hilux fæst nú með notadrjúgum aukahlutapakka á sérstöku tilboði: 31"
breyting, kantar, álfelgur og hús. Allt þetta færð þú fyrir aðeins 2.990.000 kr.
Nú er tækifæri til að eignast HILUX á hörkutilboði!
Notadrjúgur aukahlutapakki: 31" breyting,kantar, álfelgur
og hús. Allt þetta færð þú fyrir aðeins 2.990.000 kr.
Toyota
Kópavogi
Sími 570 5070
Bílatangi hf.
Ísafjörður
Sími 456 4580
Toyotasalurinn
Selfoss
Sími 480 8000
Toyota Akureyri
Akureyri
Sími 460 4300
Bifreiðaverkstæði Borgþórs
Egilsstaðir
Sími 471 1436
Toyotasalurinn
Reykjanesbæ
Sími 421 4888
Bílaleiga Húsavíkur
Húsavík
Sími 464 1888
Hraun sf.
Höfn
Sími 580 7915
Kristján Ólafsson
Vestmannaeyjar
Sími 481 2323
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
25
84
0
0
9/
20
04
Hörkutilboð!
LANDBÚNAÐUR Yfirdýralæknisemb-
ættið tekur í næsta mánuði upp
nýjar aðferðir í baráttunni við
sauðfjárriðu. Beitt verður nýrri
aðferð við sýnatöku í sláturhúsi
og sýnin send fyrst í stað til út-
landa til frekari greiningar. Á
næsta ári er svo vonast til að sinna
megi greiningunni hér heima líka.
Sigurður Sigurðarson, sér-
fræðingur yfirdýralæknisemb-
ættisins í sauðfjársjúkdómum,
segir að með nýju aðferðinni verði
hægt að grípa fyrr inn í og hindra
frekara smit, því greina megi
sjúkdóminn fyrr, jafnvel löngu
áður en einkenni koma fram.
Ekki er búið að ákveða hvert
sýnin verða send, en verið er að
leita tilboða í greininguna. Sigurð-
ur segir erftitt að fullyrða um
hvort kostnaðarauki fylgi nýju
aðferðinni, en héraðsdýralæknar
taka mörg þúsund sýni í slátur-
húsum og þurfa að tileinka sér
nýtt vinnulag sem felst í að taka
bæði mænukólf og hluta af litla
heila skepnanna. Nýja tæknin er
sögð bæði fljótvirkari og ná-
kvæmari en fyrri aðferðir. „Í
Noregi, Svíþjóð og fleiri löndum
hafa fundist ný afbrigði
riðusmitefnisins, sem virðast
minna smitandi, en þetta próf
tekur hvort tveggja.“ ■
SIGURÐUR SIGURÐARSON
Sigurður áréttar að eftir sem áður þurfi
yfirdýralæknisembættið að treysta á glögg-
skyggni og samviskusemi manna, bæði
eigenda og annarra sem kunna að verða
varir við sjúkar skepnur.
Nýjar aðferðir við greiningu sauðfjárriðu:
Sjúkdómurinn greindur löngu
áður en einkenni koma fram
„Við teljum að þetta gæti verið
áhugaverður samstarfsaðili,“ segir
Magnús Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri Atvinnuþróunarfélags Eyja-
fjarðar, en evrópskt fyrirtæki hefur
óskað eftir viðræðum við félagið
um byggingu álþéttaverksmiðju á
Akureyri. Atvinnuþróunarfélagið
átti áður í viðræðum við japanskt
fyrirtæki um byggingu slíkrar
verksmiðju.
„Við getum því farið hratt af stað
í þessar viðræður,“ segir Magnús.
Hann vill ekki upplýsa að svo
stöddu um hvaða fyrirtæki er að
ræða. Hann kveðst bjartsýnn og
segir til mikils að vinna fyrir Akur-
eyri. „Ég held að þetta sé iðnaður
sem passar okkar svæði afar vel.
Hann er frekar orkufrekur og þarf
mikið af hreinu vatni. Auk þess þarf
í þetta menntað og hæft starfsfólk.“
Aðspurður segir Magnús að
mengun sem stafi frá álþéttiverk-
smiðju sé ekki mikil. Hins vegar
þyrfti að öllum líkindum að virkja
sérstaklega. Ljóst er að hugmyndir
um orkufrekan iðnað víða á landinu
hafa fengið byr undir báða vængi
undanfarið. Magnús segir norðan-
menn ekki hafa gefið hugmyndir
um álver fyrir norðan upp á bátinn.
„Ég verð var við mikinn áhuga á því
að reisa álver á Norðurlandi.“ ■
Orkufrekur iðnaður í sókn:
Líkur aukast á nýrri
verksmiðju á Akureyri
FRÁ AKUREYRI
Álþéttaverksmiðja er sögð geta orðið
byggðarlaginu mikil lyftistöng.
STÓRIÐJUVÆÐING ÍSLANDS:
-Stækkun álversins við Grundartanga
(úr 90.000 tonnum í 180.000 tonn).
Í byggingu.
-Álver við Reyðarfjörð (322.000 tonn).
Í byggingu.
-Stálpípuverksmiðja í Helguvík.
Á fjármögnunarstigi.
-Álþéttaverksmiðja á Akureyri.
Á fjármögnunarstigi.
-Rafskautaverksmiðja á Katanesi í
Hvalfirði. Grænt ljós frá Skipulags-
stofnun.
-Álver fyrir norðan. Á hugmyndastigi.
Hafnarfjörður:
Eldur í
sjónvarpi
BRUNI Eldur kviknaði í sjónvarps-
tæki í herbergi í húsi við Dals-
hraun 13 í Hafnarfirði um klukk-
an þrjú í fyrrinótt. Tveir einstak-
lingar voru í herberginu sem eld-
urinn kom upp í og gerðu þeir lög-
reglu viðvart.
Enginn reyndist vera í hættu
vegna eldsins en níu manns leigja
og búa í herbergjum í húsinu sem
annars er iðnaðarhúsnæði en ekki
íbúðarhús.
Talsverðar skemmdir urðu í
herberginu sem eldurinn kom upp
í og urðu einhverjar skemmdir
sökum reyks og sóts annars stað-
ar í húsinu. ■
Forseti Pakistans:
Svíkur loforð
PAKISTAN, AP Pervez Musharraf,
forseti Pakistans,
verður áfram yfir-
maður hersins en
hann hafði gert sam-
komulag við islams-
ka harðlínumenn um
að láta af því starfi
um áramótin.
Upplýsingaráð-
herra Pakistans seg-
ir að vegna að-
stæðna heima fyrir
muni hann áfram
gegna báðum stöð-
unum. Óljóst er
hvaða afleiðingar
þessi ákvörðun
Musharrafs hafi heima fyrir. Fyrr
í mánuðinum gaf hann reyndar til
kynna að hann léti líklega ekki af
störfum sem yfirmaður hersins.
„Níutíu og sex prósent af mínu
fólki vilja að ég verði áfram í her-
búningnum,“ sagði hann þá. ■
PERVEZ
MUSHARRAF
Óljóst er hvaða
afleiðingar
ákvörðun Mus-
harrafs hafi
heima fyrir.
14-15 15.9.2004 21:33 Page 3