Fréttablaðið - 16.09.2004, Qupperneq 18
18 16. september 2004 FIMMTUDAGUR
NÝTT VOPN
Breskir lögregluþjónar munu hér eftir
ganga með rafmagnsbyssur á sér. Þetta
var tilkynnt í gær eftir að rannsóknir höfðu
sýnt að mjög litlar líkur eru á að byssan
valdi dauða. Byssan er bandarískrar gerðar
og hefur verið í prufu síðan í apríl.
Opinber stefna í Þýskalandi:
Fólk hætti að nota vafra frá Microsoft
TÖLVUR OG TÆKNI Öryggisskrifstofa
upplýsingatækni í Þýskalandi
(Bundesamt für Sicherheit in der
Informationstechnik) leggur til að
fólk hætti að nota Microsoft Inter-
net Explorer-vafrann og noti frek-
ar aðra valkosti.
Fyrr á árinu lagði bandarísk
stofnun um upplýsingatækni-
öryggi (US-CERT), sem starfar
innan öryggisráðuneytis heima-
haga (Department of Homeland
Security), það sama til, en á þetta
er bent í tilkynningu norska
vafrafyrirtækisins Opera
Software.
Þar er Opera-vafranum flagg-
að sem hentugum valkosti. „Hug-
búnaðarveilur er að finna í öllum
forritum, en ekki er nokkur vafi á
að þétt samtvinnun Microsoft á
vafra og stýrikerfi, ásamt því að
nota tækni á borð við ActiveX og
Visual Basic, dregur úr öryggi
allra notenda hugbúnaðar fyrir-
tækisins,“ segir Jón S. von
Tetzchner, íslenskur forstjóri
Opera Software. „Í Opera-vafran-
um finna áhyggjufullir notendur
Microsoft betri valkost í stað
Internet Explorer og Outlook
Express.“ ■
Tíu konur hafa gegnt ráðherraembættum á Íslandi – eitthundrað og sjö karlar:
107 karlar – 10 konur
STJÓRNMÁL Eitthundrað og sautján
manns hafa gegnt ráðherradómi á
Íslandi frá því að heimastjórn
fékkst árið 1904. Framan af sat
aðeins einn ráðherra í senn en
1917 var fyrsta eiginlega ríkis-
stjórn landsins mynduð og sátu í
henni fjórir karlmenn. Sú ríkis-
stjórn sem nú er við völd er sú
þrítugasta og sjöunda í röðinni.
Mikill fjöldi ráðherranna sat, eða
hefur setið, í fleiri en einni ríkis-
stjórn. Sumir raunar í fjölmörg-
um stjórnum.
Sigríður Anna Þórðardóttir,
sem varð umhverfisráðherra í
gær, er tíunda konan til að verða
ráðherra. Auður Auðuns varð
fyrst kynsystra sinna til að gegna
ráðherraembætti á Íslandi, en hún
var dómsmálaráðherra í eitt ár.
Athyglisvert er að konur hafa
setið í helmingi ráðuneyta stjórn-
arráðsins en sex ráðherraembætt-
um hafa konur aldrei gegnt. Það
eru embætti forsætis-, fjármála-,
landbúnaðar-, samgöngu-, sjávar-
útvegs- og utanríkisráðherra.
Fimm þessara kvenráðherra
hafa komið úr Sjálfstæðisflokkn-
um, þrír úr Framsóknarflokki og
tveir úr Alþýðuflokki. ■
Dagblöðin á Kúbu:
Castro
sigrar Ívan
HAVANA, AP Forsíður beggja dag-
blaðanna á Kúbu í gær voru upp-
fullar af efni um fellibylinn Ívan
grimma sem fór meðfram strönd
landsins en eyðilagði ekki nærri
jafn mikið og óttast hafði verið.
Blöðin greina ekki frá mann-
legum raunum eða eyðilegging-
unni sem þó varð heldur þætti
Fidels Castro í hamförunum. Blöð-
in segja að Castro hafi sameinað
þjóðina, sem stóð frammi fyrir
gríðarmikilli hættu. Þá finnst
þeim mikið um að Castro hafi
heimsótt héraðið Pinar del Rio,
sem talið var í hvað mestri hættu,
á sama tíma og Ívan nálgaðist. ■
Landsbyggðin:
Unglingar
með fíkniefni
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Húsa-
vík handtók þrjár stúlkur í
fyrrakvöld, grunaðar um neyslu
kannabisefna. Stúlkurnar eru
um sextán ára gamlar. Í kjölfar-
ið var gerð leit í þremur húsum
á Húsavík. Málið telst upplýst.
Lögreglan á Egilsstöðum hand-
tók mann um tvítugt á föstu-
dagskvöldið, grunaðan um
vörslu fíkniefna. Þrír aðrir voru
handteknir heima hjá mannin-
um á meðan húsleit fór fram.
Þar fundust fimm grömm af
hassi og tól til neyslu. Maðurinn
viðurkenndi að eiga efnin og
telst málið upplýst. ■
AUÐUR AUÐUNS
Dómsmálaráðherra 1970-1971
Sjálfstæðisflokki
RAGNHILDUR HELGADÓTTIR
Menntamálaráðherra 1983-1987
Sjálfstæðisflokki
INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR
Heilbrigðisráðherra 1995-2001
Framsóknarflokki
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Umhverfisráðherra 1999-2004
Framsóknarflokki
SÓLVEIG PÉTURSDÓTTIR
Dómsmálaráðherra 1999-2003
Sjálfstæðisflokki
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
Menntamálaráðherra frá 2003
Sjálfstæðisflokki
SIGRÍÐUR ANNA ÞÓRÐARDÓTTIR
Umhverfisráðherra frá 2004
Sjálfstæðisflokki
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá 1999
Framsóknarflokki
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Félagsmálaráðherra 1987-1994
Alþýðuflokki
RANNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR
Félagsmálaráðherra 1994-1995
Alþýðuflokki
JÓN S. VON TETZCHNER
Íslenskur forstjóri Opera Software sætir
lagi og hampar eigin vafra þegar öryggis-
stofnanir leggja til að fólk hætti að nota
IE-vafra Microsoft. Heimasíða norska hug-
búnaðarfyrirtækisins er opera.com.
HÚSAVÍK
Þrjár stúlkur voru handteknar vegna
fíkniefnaneyslu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Félagsmálaráðuneytið:
Hrókeringar
ATVINNUMÁL Nýr ráðuneytisstjóri,
Ragnhildur Arnljótsdóttir, hefur
hafið störf í félagsmálaráðuneyt-
inu. Hermann Sæmundsson, sem
var settur ráðuneytisstjóri þar
um nokkurt skeið og einn þeirra
sem sóttu um starf ráðuneytis-
stjóra, hverfur til starfa erlend-
is, að því er fram kemur í frétt
frá félagsmálaráðuneytinu. Her-
mann mun starfa sem fulltrúi fé-
lagsmálaráðuneytisins og heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins í sendiráði Íslands í
Brussel. ■
RAGNHILDUR ARNLJÓTSDÓTTIR
Sest í stól ráðuneytisstjóra.
KONUR
KARLAR
107
KARLAR
10
KONUR
18-19 15.9.2004 19:54 Page 2