Tíminn - 29.09.1973, Page 11

Tíminn - 29.09.1973, Page 11
Laugardagur '29. september 1973 TÍMINN 11 Prentgallarnir: Von, að úr rætist Að undanförnu hafa orðið veruleg mistök við prentun Timans i Hlaðaprenti, og talsverður hluti upplagsins verið stórgallaður, svo sem á fimmtudaginn var. Kiður Tíminn kaupendur af- sökunar á þessum hvimleiðu prentgöllum. Blaðið gcrir sér á hin bóginn von um, að bót verði ráðin á þessu fljótlega, þar sem Blaða- prent fékk i gær crlendan sér- fræðing til þess að rannsaka, af liverju prentgallarnir stafa. Steinunn gamla komin í slipp Klp-Reykjavik. Menn frá Björgun h/f og skipverjar af Goðanum náðu vélbátnum Steinunni á flot i fyrrinótt, en eins og menn ef- laust muna,sökk Steinunn gamla við bryggjuna i Sandgerði i óveðrinu á dögunum. Skipið mun ekki hafa verið mikiö brotið, og tókst sæmilega greiðlega að koma þvi á flot, en siðan dró Goðinn það til Kefla- víkur, þar semþað var tekið i slipp. Ljósaperudagur í Hafnarfirði i DAG,29. scptember, ætla félag- ar úr Lions-klúbbi Hafnarfjarðar að ganga um bæinn og selja ljósa- perur til fjáröflunar. Fé þvi, sem safnast, verður varið til liknar- mála. Verkefni siðasta starfsárs voru meðal annars kaup á sjúkralyft- ara, er Sólvangi var afhentur, og kvenlækningatæki, er St. Jósefs- spitala verður afhent á næstu dögum. Mun kostnaður þessara tækja án tolla og söluskatts vera um 340 þús. Flóamark- aðurinn er afstaðinn t miðvikudagsblaðinu urðu þau leiðu mistök, að þar var birt frétt um Flóamarkað, sem halda ætti á sunnudaginn. Þessi Flóamarkað- ur var haldinn siðasta sunnudag og var þvi fréttin heldur seint á ferðinni. Eru hlutaðeigendur beðnir velfiröingar á þessu, svo og þeir, sem höfðu hugsað sér að fara á stufana á morgun. Norðmenn selja ól til Brasilíu Norska álverksmiðjan Nordisk Aluminiumindursti samdi nýlega um sölu á álþynnum til fiskniður- suðuverksmiðju i Sao Paulo i Brasiliu fyrir upphæð, sem svarar um 270 milljónum is- lenzkra króna. Hér er um 2500 tonn að ræða. Sama niðursuðu - verksmiðja keypti 1000 tonn af álþynnum frá Noregi í fyrra. Þá hefur Nordisk Aluminumindustri samið um sölu á álþynnum til Júgóslaviu fyrir rösklega 180 milljónir islenzkra króna. Frá vinstri: Kristmann Magnússon framkvæmdastjóri, llalldór Pálsson rafvirkjaineistari og Magmis Þorgeirsson stjórnarformaður. Ný viðgerðamiðstöð Candy-þvottavéla Pfaff hf. opnar viðgerðamiöstöð fyrir Candy þvottavélar, einnig fyrir uppþvottavélar og kælitæki, að Bergstaðastræti 7. Pfaff prjónavéla- og saumavélaverk- stæðið veröur áfram að Skóla- vörðustig 1-3, einnig almenn sölu- starfsemi. Fyrirtækiö hóf aö flytja inn Candy þvottavélar árið 1967, og hefur sala þeirra aukizt dag frá degi siðan, svo nú er sala Candy þvottavéla um 44% af markaðn- um. Deildarstjóri i nýju viðgerða- miðstöðinni er Halldór Pálsson rafvirkjameistari, sem hefur starfað við viðgerðir og sölu á Candy þvottavélum siðan byrjað var að flytja þær til landsins. Framkvæmdastjóri er Krist- mann Magnússon, en Magnús Þorgeirsson er stjórnarformaður. Pfaff fyrirtækið hefur starfað siðan 1929. gbk. Tannlos í sauðfé í rénun Kýlapestin ekki vandamál, ef penisillínið er notað í tíma, segir Guðbjörn á Kárastöðum. — EFTIIl þvi sem ég bezt veit, er þessi sjúk- dómur enn alveg óút- skýrður, sagði Guðbjörn Einarsson bóndi á Kára- stöðum i Þingvallasveit, er við spurðum hann um tannlosið, sem hrjáð hefur fé bænda á þessum slóðum ein sex undan- farin ár. — Maður veit það ekki ennþá, hvort sýkin hefur ágerzt, — sjá- um það ekki, fyrr en við förum að skoða féð betur seint i haust, um leið og við gefum þvi ormalyfið. Við munum þá skoða upp i hverja kind, en það var ekki timi til þessa I öllu réttaarkinu. En ein- hvern veginn finnst mér, að held- ur sé að draga úr tannlosinu, sagði Guðbjörn. Maður hefur að minnsta kosti góða von. Eins og menn muna, bar sér- staklega mikið á þessari sýki i sauðfénu i fyrra. Bændur hafa engin lyf fengið gegn henni, en hennar gætir á öllum bæjum i Þingvallasveit, flestum eða öllum bæjum i Grafningi, eitthvað i Grimsnesinu og jafnvel niðri i ölfusi. Tannlosið hefur breiðzt smátt og smátt út meðal fjárins þessi sex ár. Hafi kind fengið sjúkdóminn, missir hún að lokum allar framtennurnar. Af 200 kind- um Guðbjörns hefur u.þ.b. 1/5 sýkina, og mun hlutfallið eitthvað svipað hjá þeim bændum öðrum, þar sem verst er. Að sögn Guðbjörns er ástandið afleitt meðan tennurnar eru að fara og fyrst á eftir. En það er eins og kindurnar fái smátt og smátt sigg á góminn, og geta þær, er frá liður, bjargað sér all vel. Nauðsynlegt er þó að gefa þeim alveg fram á loðinn haga á vorin, og taka þær siðan strax inn. er gerir snjóföl. — Með þvi að fara þannig mjög varlega með þær, virðast þær geta haldið ágætum holdum og skilað góðum lömbum. Sjálfum leizt mér svo illa á þetta, er það kom upp. að ég felldi mikið af þvi fé, sem sýkt var, — iiklega full mikið. En það þarf sem sagt sér- staka umhirðu, eigi þessar kindur að komast vel af, sagði Guðbjörn. Guðbjörn kvað kýlapestina ekkert vandamál vera i sjálfu sér, þar eð alveg væri hægt að lækna hana með pensilini, ef i tima væritekið. Hjá honum hefðu sýkzt tvær kindur á liðnum vetri, en pensilinið helði læknað þær báðar. —Stp Háspennulínan: Ekki enn endan- leg ákvörðun ENN hefur ekki verið tekin endanleg ákvöröun um það, hvar tengilinan milli orkuveitusvæð- anna á Norður- og Suöurlandi verður lögð. Cokaniðurstöður frá Orkustofnun liggja ekki fyrir enn- þá, en ýmsar upplýsingar liafa verið scndar iðnaðarráðuneytinu, og sagði Jakob Björnsson orku- málastjóri, að cf til vill yrði ákvörðun tekin á grundvelli þéirra upplýsinga. Um fjóra möguleika er að ræða við lagningu linunnar, þ.e. um Kjöl, Eyjafjörð, Bárðardal og svo um Borgarfjörð og yfir Holta- vörðuheiði. Ef siðasta leiðin verð- ur valin, sem allmiklar likur eru taldar á, verður háspennulinan i byggð þvi sem næst alla leiðina, og myndi það auðvelda allar við- gerðir og viðhald mjög mikið. Ennfremur er ekki eins stór- viðrasamt á þeirri leið. Ef leiðin um Borgaríjörð verður fyrir val- inu, verður linan talsvert lengri en ella, og að sögn Jakobs, er það raunar hið eina, sem mælir i móti þvi að leggja linuna þessa leið. Talsvert aðrar styrkleikakröfur yrðu gerðar, og þó að linan yrði dýrari i upphali, gæti það borgað sig i minna og auðveldara við- haldi. Eins og áður sagði, eru endan- legar tölur ekki komnar frá Orku- stofnun, en við þeim má búast i siðasta lagi i nóvember. Þegar haft er i huga hrun háspennulin- anna á undanlörnum misserum, er margt sem bendir til þess, að vesturleiðin verði valin, jafnvel þótt stolnkostnaður verði meiri. —hs— Hver á að stjórna lífeyrissjóðunum? Nokkur verkalýðsfélög halda fund um málið á þriðjudag EJ—Reykjavik. — Nokkur verka- lýösfélög munu gangast fyrir fræðslu- og umræðufundi um llf- eyrissjóöi verkalýðsfélaganna og stjórn þeirra eftir helgina. Segir I fréttatilkynningu, sem blaðinu barst i gær, aö þessi fundur hefj- ist á Hótel Borg kl. 20.30 á þriðju- daginn. Hafi þrjú verkalýösfélög þegar tekið fullnaöarákvörðun um aöild að fundinum, en þau eru Starfsstúlknafélagiö Sókn, Verkalýðsfélag Raufarhafnar og Verkalýðsfélagið Vaka á Sigiu- firöi. 1 fréttatilkynningunni segir m.a., að það sé mjög mikilvægt, ,,að verkalýður, hvar sem er á landinu, sameinist i baráttu gegn stonstofnun landssambands lifeyrissjóða með aðild atvinnu- rekenda, og fyrir þvi að krafan um, að atvinnurekendur viki úr sjóðsstjórnum, nái fram að ganga i kjarasamningunum i haust”. Hjúkrunar nám við Háskólann t gær hófst innritun stúdenta i nýja námsbraut við Háskóla ts- iands, námsbraut i hjúkrunar- fræðum. Ekki mun endanlega ákveðið, hver staða hinnar nýju námsbrautar verður, en liklegra er talið, að hér verði um sjálf- stæða námsbraut að ræða, en að námsbrautin verði höfð innan læknadeildar. Snyrtisérfræði ekki enn iðngrein EJ—Reykjavlk. — Iðnþing Is- lendinga, sem staðið hefur yfir undanfarna daga i Hafnarfiröi, hefur f jallað um erindi Félags is- lenzkra snyrtisérfræðinga um löggildingu snyrtisérfræði sem iðngreinar. Iðnþingið ályktaði i gær, að ekki væri timabært að gera samþykkt i þessu efni á þessu þingi. Ein sprengjan enn í London NTB—Eondon. — Tvær manneskjur, annað lögreglumað- ur, slösuðust i gær, er sprengja sprakk i flugstöðvarbyggingu i London. Slökkviliðsmenn segja, aö önnur sprengja hafi fundizt ósprungin i byggingunni. Um það bil 25 minútum áöur en sprengjan sprakk, hringdi mað- ur, sem talaði meö irskum hreimi, til fréttastofu og kvaðst vera með aðvörun um sprengj- una. Mörg þúsund manns voru i byggingunni, en fólkinu var kom- ið á brott. Sprengjufaraldurinn i London og fleiri brezkum borgum hófst hinn 18. ágúst. Sprengingin i gær er hin fyrsta f London siðan 20. september, en þá slösuðust fimm hermenn við sprengingu i her- mannabúðum. Útflutningsverð' mæti fisks í Noregi jókst um 19,3% Utflutningur Norðmanna á fiski og fiskvörum jókst að verðmæti um 19,3% eða 1476 milljónir norskra króna.sem svara til 22-23 milljarða islenzkra króna, miðað viö fyrstu sex mánuöi fyrra árs. Mest varð aukningin á út- flutningsverðmæti fiskimjöls, sem færði Norðmönnum iiátt i sex milljarði, ef reiknaö er i islenzk- um krónum. Verðmætisaukningin frá þvi i fyrra er 77.8% þótt út- flutningsmagnið hafi ekki aukizt um nema 181 þús. tonn eða 7,3%. Fyrir lýsisútflutning fengu Norð- menn um 900 milljónir króna og fyrir hert fituefni úr fiskiðnaðin- um hátt i 1200 milljónir islenzkra kr'óna. Erfitt að fá fólk til starfa í norskum fiskiðnaði Samkvæmt upplýsingum frá norska fiskiðnaðarfyrirtækinu Frionorhafa Norðmenn tapað 30- 40milljónum islenzkra króna i út- flutningsverðmæi/ á þessu ári, af þvi að ekki hefur tngizt nóg fólk til starfa i fiskiðjuverunum, sér- staklega i Norður-Noregi. Verðlag á fiski á heims- markaðnum er hagstætt um þessar mundir, og fiskafli hefur einnig verið góður, að sögn for- stjóra fyrirtækisins. Hann telur að mönnum finnist störf I fiskiðnaðinum ekki jafn fýsileg og verið hefur og þvi verði að vélvæða fiskiðjuverin enn meira en gert hefur veriö.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.