Fréttablaðið - 16.09.2004, Side 21
Deila má um hvort
lög um akstur utan
vega séu nægilega skýr og
erfitt reynist að framfylgja
refsilöggjöfinni.
Akstur utan vega er vaxandi vandamál
Akstur utan vega er vaxandi og
viðvarandi vandamál á Íslandi.
Þann vanda má m.a. rekja til
fjölgunar farartækja hér á landi
sem komast um hálendið, lélegrar
merkingar á vegum og landakort-
um og fjölgunar erlendra ferða-
manna. Einnig virðast erlendir
ferðamenn stundum fá rangar
hugmyndir um hvað megi í gegn-
um auglýsingar ferðaþjónustu-
aðila og halda að hér á landi sé
paradís fyrir utanvegaakstur.
Aðalorsökin er þó að öllum lík-
indum hugsunarleysi ferðalanga.
Settur hefur verið á fót starfs-
hópur sem vinnur nú skipulega að
því að finna leiðir til þess að
stemma stigu við akstri utan
vega.
Landmælingar Íslands, í sam-
vinnu við Vegagerðina, hófu fyrir
nokkru síðan kortlagningu allra
vega og vegslóða sem hægt er að
finna á landinu og hefur nú lokið
því verki. Eitt af hlutverkum
starfshópsins verður að koma með
tillögu um hvaða vegum og veg-
slóðum eigi að halda opnum.
Deila má um hvort lög um akst-
ur utan vega séu nægilega skýr og
erfitt reynist að framfylgja refsi-
löggjöfinni. Einnig eru eldri reglu-
gerðir ekki í samræmi við núgild-
andi lög. Starfshópurinn mun því
einnig í samstarfi við aðila og félög
sem koma að málinu setja fram til-
lögur að samræmingu á vega-, um-
ferðar- og náttúruverndarlögum
og öðrum lögum ef þurfa þykir.
Að mörgu er að huga og mikil-
vægt að sem flestir sem málið
snertir leggi sitt af mörkum.
Skortur á viðvarandi fræðslu til
þeirra sem hlut eiga að máli virð-
ist vera eitt höfuðvandamálið. Ís-
lenskir og erlendir ferðlangar
þurfa að vita hvers vegna akstur
utan vega er bannaður og hvar
má fara og hvar má ekki fara.
Það er nauðsynlegt að fá fólk á
öllum aldri til að hugsa um og
gera sér grein fyrir okkar við-
kvæmu náttúru og þeim spjöll-
um sem akstur utan vega getur
valdið.
Hugsanleg leið er að leyfa ein-
ungis umferð um þá slóða og vegi
sem merktir eru sérstaklega en
annars staðar verði umferð
bönnuð. Einnig skiptir máli hvers
konar farartæki slóðinn er ætlað-
ur fyrir. Ef keyrt er á stórum
jeppa um slóða sem ætlaður er
fyrir vélhjól eru afleiðingarnar
augljósar. Önnur leið getur verið
fólgin í að stika alla slóða sem má
keyra og eins að setja upp ein-
falda vegvísa á sem flestum stöð-
um sem farið er um.
Starfshópur um akstur utan
vega mun fara yfir allar hugsan-
legar leiðir næstu vikur og mán-
uði og í samvinnu við félagasam-
tök og aðra aðila sem málið snert-
ir og finna viðunandi lausn til ár-
angurs.
Höfundur er fræðslu- og upp-
lýsingastjóri Umhverfisstofnunar.
21FIMMTUDAGUR 16. september 2004
Undarleg brúarhljóð
Í sumar hafa miklar vegaframkvæmdir
verið víða hér á höfuðborgarsvæðinu og
ráðamenn duglegir við borðaklippingar,
þar sem ég hef mætt sem þingmaður
Reykjavíkur í samgöngunefnd. Eitt all-
merkilegt kom fram við eina vígsluna,
nánar tiltekið vígslu brúarinnar yfir
Stekkjabakka milli Kópavogs og Breið-
holts. Brúin hafði tekið upp á þeim
ósköpum að hafa sjálfstæðan vilja og
hvína með slíkum óhljóðum að ná-
grönnum varð ekki svefnsamt við óm
þessarar nýju vindhörpu. Verkfræðingar
Línuhönnunar sem voru höfundar
verksins komu af fjöllum við þetta
uppátæki mannvirkisins og hafa nú
fengið viðbótarverkefni hjá Vegagerð-
inni við að þagga niður í sköpunarverki
sínu. Þeir hafa eflaust náð einhverjum
árangri því lítið hefur heyrst af kvörtun-
um vegna þessa undanfarið.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir á alt-
hingi.is/arh
Miðstýrðir kennarasamningar
Það er ekki að undra þótt erfiðlega
gangi að semja þegar málum er mið-
stýrt á þennan hátt. Menn geta ímyndað
sér hvað gerðist ef bakarar höguðu mál-
um á sama veg og kennarar. Þeir semdu
ekki við kúnnann um verðið á brauðinu
heldur færi félag bakarameistara með
„kröfugerð“ til samninganefndar sveitar-
stjórna. Samninganefndir tækjust svo á
um brauðverðið hjá sérstökum sátta-
semjara á vegum ríkisins. Í samninga-
viðræðum yrði einnig tekist á um hve
mikið af brauði íbúar sveitarfélaga ættu
að torga. Það er hætt við að úrvalið í
bakaríum yrði ekki aðeins fábreyttara
heldur má gera ráð fyrir að menn þyrftu
að vera án heilhveitihorna og kanil-
snúða nokkra daga eða vikur á ári þar
sem ekki náðist samkomulag milli
kjaranefndar bakara og launanefndar
sveitarfélaga í tæka tíð fyrir verkfall. Svo
væru bakarar með „starfsdag“ og þá
væri heldur ekkert bakað. Líklega yrðu
þó „samkeppnisyfirvöld“ fljót að skipta
sér af „samráði“ bakara ef þeir færu
þessa leið en ekkert hefur heyrst af af-
skiptum yfirvaldanna af því víðtæka og
nauðuga verðsamráði sem verkalýðs-
félög eins og kennarasamtökin standa
fyrir.
Vefþjóðviljinn á andriki.is
Ekki rétt fyrir sér
Gamli jafnaðarmannaforinginn í Svíþjóð
hafði ekki rétt fyrir sér. Það sem er gott
fyrir Volvo er ekki endilega gott fyrir Sví-
þjóð. Úti um allan heim er fólk sem
hefur misst atvinnu sína og byggðarlög
sem eru að leggjast í auðn af því að fyrir-
tækið sem var helsti vinnuveitandinn á
svæðinu uppgötvaði að einhvers staðar
væri hægt að fá ódýrara vinnuafl eða
borga lægri skatta eða komast af með
minni mengunarvarnir. T.d. tilkynnti
General Motors 2. sept. sl. að frá 2008
skuli framleiðsla Saab 9-3 í Trollhättan í
Svíþjóð og Opel Vectra í Rüsselheim í
Þýskalandi sameinuð á einum stað, en
ekki hefur verið tilkynnt hvar. Verklýðs-
félög í Svíþjóð og Þýskalandi hafa mót-
mælt þessum áformum harðlega.
Frjálshyggjumennirnir leggja áherslu á
að einkareksturinn sé svo hagkvæmur
af því að eigendurnir krefjast arðs og því
hljóti fyrirtækinu að vera vel stjórnað. Ef
það borgar sig að flytja starfsemina, þá
skal það gert. Ef það borgar sig að
breyta framleiðslufyrirtæki í fjárfestinga-
fyrirtæki, þá skal það gert.
Einar Ólafsson á vg.is/postur
HREFNA GUÐMUNDSDÓTTIR
UMRÆÐAN
AKSTUR UTAN VEGA
,,
AF NETINU
20-21 Leiðari 15.9.2004 15:37 Page 3