Fréttablaðið - 16.09.2004, Page 22

Fréttablaðið - 16.09.2004, Page 22
Í umræðunni síðustu daga hafa menn tekið dæmi úr veraldarsög- unni og heimfært upp á vora tíma. Dæmin eru til þess fallin að vekja athygli og er ekki að efa að sú ætl- an tókst. Að líkja stefnu Evrópu- sambandsins í sjávarútvegsmál- um við nýlendustefnu og kvóta- kerfinu íslenska við þrælahald fyrri tíma verður hvorutveggja til þess að maður leggur við hlustir. Það verður að segjast alveg eins og er að síðarnefnda dæmið er með þvílíkum ólíkindum að maður veit varla hvernig maður á að taka því. Er manninum alvara? Telur maðurinn í alvöru að kvótakerfið íslenska sé sambærilegt við þrælahald fyrri tíma? Hvernig sér Þorvaldur Gylfa- son fyrir sér þá tíma þegar kvóta- kerfinu var komið á? Var þá ís- lenska þjóðin alsæl með sinn vel stadda sjávarútveg sem vondir menn og ribbaldar rændu og rupluðu út úr höndunum á henni? Var íslenska þjóðin þá sérlega vel meðvituð um þessa „eign“ fiskinn í sjónum? Var þessi „eign“ þá sér- deilis mikils virði? Hvað skyldi hafa gert hana svo verðmæta sem raun ber vitni? Hafa ræningjarnir ekkert haft með það að gera? Hvaða vondu menn eru þetta sem vitnað er til? Eru það útvegsmenn þessa lands eins og þeir leggja sig? Hvernig væri nú að LÍU tæki grein sem þessari sem áskorun og birti yfirlit yfir alla þá sem fengu kvóta „gefins“ í upphafi og hversu margir þeirra eiga þennan kvóta enn í dag. Í þessu yfirliti væri fróðlegt að sjá hver verðmætin voru talin vera í upphafi og hver verðmætin eru talin vera nú. Í framhaldinu mætti leitast við að skilgreina orðið „ræningja“ eða „þjóf“. Ræningi eða þjófur sem stelur 100 krónum og tekst að margfalda verðmæti þeirra í 10.000 krónur, hverju á hann að skila til baka? 10.000 þúsund krón- unum eða 100 krónunum? Málflutningur Þorvaldar Gylfasonar í þessari grein er þess eðlis að ekki er hægt að taka hann alvarlega. Vill Þorvaldur Gylfa- son í alvöru kippa kvótakerfinu úr sambandi si svona? Vill hann að veiðiheimildir útvegsmanna verði teknar af þeim bótalaust si svona og heldur hann að slík gjörð mundi verða íslenskri „þjóð“ til sérstakra heilla? Mér er gjörsamlega ómögulegt að skilja hvernig menn eins og Þorvaldur Gylfason hagfræðing- ur með Morgunblaðsritstjóra í broddi fylkingar geta barist svo hatrammlega fyrir þjóðnýtingu eins og raun ber vitni í kvótamál- inu og þjóðlendumálinu. Hvernig í ósköpunum má það vera að menn sem annars þykjast vera sérstakir boðberar frjálsra viðskipta láta sér slíka hluti um munn fara eins og hér er vitnað til – að heimta þjóðnýtingu lands og miða eins og þau leggja sig?! Hvaða ástæðu höfum við lands- menn til að treysta ríkinu til að eiga skilgreindan eignarrétt að landi okkar og miðum? Hvað hef- ur ríkið til unnið að vera slíks trausts aðnjótandi? Hvernig er staðan á Þingvöllum? Er aðstaðan á Þingvöllum, þar með talin í Val- höll, til sérstakrar fyrirmyndar? Er íslenska þjóðin sem þar hefur stigið niður fæti síðustu misserin sérlega stolt og ánægð með hversu vel íslenska ríkið hefur staðið að málum þar? Nei og aftur nei, íslenska ríkið á hvorki að eiga skilgreindan eignarrétt að landi eða miðum, helst ekki einu sinni að húsakosti. Íslenska ríkið hefur aldrei sýnt að það sé til þess fallið að eiga nokkurn skapaðan hlut. Íslenska ríkið má og á að standa undir rekstri heilbrigðiskerfisins, menntakerfisins, velferðarkerfis- ins o.s.frv. en það er ekki sérstakt hlutverk ríkisins að eiga eignir, allra síst landið eða miðin. „Þjóð- in“ á mun meira í almenningunum svokölluðu en hún á þegar ríkið er búið að leggja þá undir sig. Þar með er ríkið orðið eigandi og framkvæmdavaldið hefur eignar- réttarheimildirnar. Hvar kemur „þjóðin“ að ákvarðanatöku fram- kvæmdavaldsins? Hafa síðustu misserin kennt okkur það að ríkið og handhafi þess framkvæmda- valdið hlusti sérstaklega mikið á það hvað „þjóðin“ vill þegar það hefur valdið? Notkun hugtaka af fullkomnu ábyrgðarleysi eins og vaðið hefur uppi í umræðunni um „Sameign þjóðarinnar“ er óþolandi og nú er mál að linni! Það er kominn tími til að hægt sé að tala vitrænt um kvótakerfið og sjávarútvegsmál í þessu landi án þess að verið sé að blanda „þjóðinni“ sérstaklega inn í það mál. Þjóðin öll á ekkert annað sameiginlegt í þessari deilu en að þessi atvinnugrein sé sem sterkust og skili sem mestum verðmætum í þjóðarbúið. Deilan snýst ekki um „þjóðina“ annars vegar og „vondu karlana“ hins vegar. Deilan snýst um takmarkaðar auðlindir og mis- munandi hagsmuni tiltekinna hópa þjóðarinnar. Semsagt um sérhags- muni – ekki heildarhagsmuni. Þessi rakalausi þvættingur um „ræningja og þjófa“ er ekki mönn- um bjóðandi. Ég sem íslenskur þegn hef ekki verið rænd af ís- lenskum útvegsmönnum, frekar en öðrum athafnamönnum þessa lands. Sterkur rekstur fyrirtækja, hvort heldur er í sjávarútvegi eða öðrum greinum, kemur mér sem íslenskum þegn til góða. Þorvald- ur Gylfason, Morgunblaðsritstjór- ar og aðrir – þið megið rífast um hverjir mega eiga þetta land, gögn þess og gæði en í guðs bæn- um hættið að láta eins og ég sem íslenskur þjóðfélagsþegn sé miðj- an í því máli. ■ Margt hefur breyst í starfi kennar- ans á liðnum árum. Þegar ég byrj- aði að kenna árið 1979 var kennsla í kennslustundum um 75 til 80% af starfinu. Undirbúningur kennara nam þá um 20 til 25%. Undirbún- ingsvinnan var eftir hendinni unn- in í skólanum eða heima þegar kennara þóknaðist eða það hentaði honum. Ef kennslan var búin gat hann látið sig hverfa úr skólanum ef ekki var kennarafundur. Þetta er það sem ‘68 kynslóð foreldra man og telur að enn sé við lýði í dag. En hlutirnir hafa mikið breyst. Segja má að í grunninn skiptist vinnutími kennara í 3 þætti. Kennslu, vinnu í skólanum og undirbúning kennslu eða úrvinnslu. Það er ekki óeðlilegt að kennarar hafi fastan vinnutíma á vinnustað eins og annað fólk. Nú er tilkominn tími sem nemur 9 til 11 stundum á viku þar sem skóla- stjóri ræður vinnu kennara. Hann er auðvitað yfirmaður kennara allt árið, en þennan stundafjölda getur hann sagt kennurum að sitja og standa að sínum geðþótta. Meðal starfa sem kennarar sinna á þess- um tíma má nefna kennarafundi, foreldrasamstarf, endurmenntun, samstarf kennara í árgöngum og einstökum fögum, samvinna við sérfæðinga ýmiss konar og náms- efniskynningar. Einnig eru skólastjórar að setja inn hluti sem kennarar eru ekki sáttir við og telja ekki snúast um kennsluna svo sem margskonar nefndarvinna eða teymisvinna, td. vegna afmælis skólans eða ferða- laga starfsfólks, skipulags skólalóð- ar, brunavarna og svo framvegis. Fyrir 20 til 30 árum voru til þeir sem voru kallaðir tossar. Góðum kennurum sveið alltaf að geta lítið fyrir þá gert. Þeim var hjálpað eins og hægt var þá. Aðallega voru þeir taldir óþægir og umbornir í vissu þess að þeir myndu standa sig vel sem togarajaxlar og vera duglegir að afla þjóðinni gjaldeyris. Svo reyndist líka oft fara. Hvar eru þeir í skólakerfinu í dag? Jú, í dag erum við iðulega með bekki þar sem allt að 30% barna eru með greiningu frá sérfræðingum eða bíða þess að komast að hjá slík- um sérfræðingum. Nú eru börnin ofvirk með athyglisbrest eða dys- lexíu og jafnvel með fleiri en eina af þessum fötlunum. Kennarar fagna því að nú skuli vera ljóst hvað ami að og hægt sé að bregðast við því með viðeigandi meðferð. Þetta kall- ar á mjög aukna vinnu kennara. Skólayfirvöld hafa líka uppálagt skólunum að viðhafa einstaklings- miðað nám. Kennarar eiga að mæta hverjum einstaklingi þar sem hann er staddur. Það þýðir að kennari fer ekki inn að kenna 26 manna hóp heldur 10 manna hóp og 16 einstak- lingum. Þessir 16 þurfa oft sér kennsluáætlun, sérstakt námsmat og þess háttar. Yfirleitt kemur lítið af peningum til skólanna með þessu fólki og ekki hægt að gera það sem æskilegast væri. Þá er það einnig stefnan að hafa sem flesta fatlaða einstaklinga í almennum skólum frekar en sérhæfðum stofnunum. Allt þetta skapar gjörbreytt vinnu- umhverfi kennara í dag. Undirbún- ingur kennara hefur stóraukist og orðið flóknari. Endurmenntun er því lífsnauðsynleg í þessu starfi enda er kennurum gert að sinna henni sem nemur 150 stundum á ári. Hlutur eiginlegrar gamaldags kennslu hefur minnkað en hvers kyns sértæk aðstoð aukist. Hin eig- inlega kennsla er gróft tekið því ekki nema um 50% af vinnu kenn- ara nú í dag. Kennarar óska þess að lesendur átti sig á þessum atriðum og virði störf kennara. Viðurkenni einnig að svo vandasöm störf beri að launa að verðleikum. ■ 16. september 2004 FIMMTUDAGUR22 Kennsla utan kennslustunda Hlutur eiginlegrar gamaldags kennslu hefur minnkað en hvers kyns sértæk aðstoð aukist. Hin eiginlega kennsla er gróft tekið því ekki nema um 50% af vinnu kennara nú í dag. JÓN GRÖNDAL KENNARI UMRÆÐAN KENNARASTARFIÐ ,, Ég get ekki orða bundist eftir lest- ur blaðs sem barst hingað inn á heimilið með Fréttablaðinu um síð- ustu helgina. Blaðið ber titilinn Femin – fyrir allar konur. Þar sem ég er kona las ég þetta blað því samviskusamlega spjaldanna á milli. Rauði þráðurinn í blaðinu, sem er 48 blaðsíður, virðist vera út- lit og megrun og ráðleggingar um það hvernig hægt sé að líta sem best út, þ.e. vera grönn og með ung- lega húð. Aðalviðtal blaðsins upp á 4 síður er við unga konu sem hefur um nokkurra ára skeið þjáðst af hinum alvarlega sjúkdómi anorexia nerv- osa. Lýsir hún á greinargóðan hátt upplifun sinni af þessum skelfilega sjúkdómi og baráttunni við að ná bata. Velt er upp þeirri spurningu hvers vegna sjúkdómur þessi sé svo algengur sem kunnugt er í nútíman- um. Fyrirmyndir ungra kvenna í tískublöðum eru nefndar og leyfi ég mér að vitna í viðtalið sjálft: „Ef að við fáum brengluð skilaboð um hvað sé hið rétta útlit eða hvað sé æski- legt til að falla inn í hópinn er voðinn vís. Erlend tískublöð flagga gjarnan fyrirsætum sem eru svo horaðar að manni blöskrar. Það væri hræsni að segja eitthvað annað en að slíkar fyrirmyndir geta haft mikil áhrif“. Allt er þetta virðingarvert og ágætt innlegg í þarfa umræðu. Það sem er hins vegar svo sláandi og rót þess að ég skrifa þessa grein eru hin tvöföldu skilaboð sem Fem- in sendir lesendum sínum. Á for- síðu blaðsins er nefnilega vel tekin svarthvít ljósmynd af fallegri fyrirsætu, nakinni niður að mitti. Falleg mynd af glæsilegri afar grannri konu sem, ef vel er að gáð, er einmitt fyrrnefndur anorexíu- sjúklingur sem viðtal er við nokkrum síðum síðar. Fyrirsögnin utan á blaðinu: Minn eigin fangi – baráttan við átröskun. Glöggt auga þarf til að átta sig á að örgranna fyrirsætan á forsíðunni er sjúkling- urinn úr viðtalinu. Ekki er að sjá annað en hún geisli af heilbrigði og gæti sómt sér vel meðal hinna „glæsilegu“ súpermódela tísku- heimsins. Ekki eru myndirnar sem fylgja viðtalinu síðri – myndir sem hver fyrirsæta gæti verið stolt af. Annað efni í blaðinu er einnig þeirrar gerðar sem hvetur til megr- unar. Einn smápistillinn hefur yfir- skriftina: Aukakílóin. Í honum eru 8 stutt ráð um hvernig halda megi aukakílóunum í skefjum. Meðal annars eru konur hvattar til að halda dagbók yfir hvað þær borða, vigta sig reglulega og fara yfir hversu mikil hreyfing þeirra sé í hverri viku. Einnig eru þær hvattar til að lesa innihaldslýsingar mat- væla og að lokum minntar á að því lengur sem maður nær að halda kílóunum í skefjum, þeim mun auð- veldara verði þetta. Kornið sem fyllir svo algjörlega mælinn – og jók á hneykslan undir- ritaðrar – var svo smápistill á síð- ustu blaðsíðunni sem ber yfirskrift- ina: „Hafðu stjórn á hungrinu“. Þar eru samankomin 6 lítil ráð um hvernig komast eigi yfir hungurtil- finningu (án þess að borða nokkurn matarbita að sjálfsögðu)! Í mínum huga hefði pistill þessi alveg eins getað heitið: Leiðbeiningar fyrir verðandi anorexíusjúklinga. Það er sorglegt að sjá aðstand- endur Femin falla í þá gryfju að senda svo tvöföld skilaboð. Annars vegar bendir blaðið á afleiðingar hinnar sífelldu pressu sem er á konur/stúlkur í dag og kemur m.a. fram í fjölgandi tilfellum átröskun- ar. Hins vegar flaggar blaðið allt of grönnum fyrirsætum, hvetur til megrunar og ýtir undir útlitsdýrk- un. Á hvoru eiga lesendur að taka mark? Höfundur er læknir. Misvísandi skilaboð? Í kvöld efnir Stúdentaráð Háskóla Íslands, undir forystu Vöku, til mótmælastöðu fyrir framan Þjóð- arbókhlöðuna klukkan sjö en þá verður húsinu lokað, í stað tíu áður. Stúdentaráð mun stilla upp stólum og borðum fyrir framan Þjóðarbókhlöðuna til þess að stúd- entar geti haldið áfram að læra eftir lokun. Tilgangurinn er að mótmæla skertum opnunartíma Þjóðarbókhlöðunnar en ekki fékkst fé í ár, líkt og áður, til að greiða þann kostnað sem til fellur við kvöld- og helgaropnun safns- ins. Það var hátíðleg athöfn þegar Þjóðarbókhlaða Landsbókasafns- ins var opnuð 1. desember 1994. Þá var um aldarfjórðungur liðinn frá því að undirbúningur hófst á framkvæmdinni. Það skýtur skökku við nú tíu árum síðar að ekki skuli vera vilji til þess að tryggja aðgang stúdenta að þessu glæsilega húsi sem svo lengi var verið að byggja. Háskólaráð hefur tekið ákvörð- un um að framvegis muni Háskól- inn ekki greiða Landsbókasafninu þær rúmlega 14 milljónir sem kvöld- og helgaropnun kostar. Þess í stað var ákveðið að setja peningana í sjóð fyrir Háskóla- torg sem Háskólinn hyggst byggja í bráð. Stúdentum hefur verið lofað betra aðgengi að bygg- ingum Háskólans þar sem opnun- artími þeirra verður lengdur og kennslustofur boðnar stúdentum til að lesa í á kvöldin. Það mun þó ekki koma í staðinn fyrir Þjóðar- bókhlöðuna þar sem t.d. tungu- málanemar reiða sig á handbækur sem dýrt er að kaupa. Stúdentaráð benti strax á möguleika í stöðunni sem gætu tryggt stúdentum áfram aðgang að bestu lesaðstöðu Háskólans. Þjóðarbókhlaðan er þannig úr garði gerð að mikinn mannafla þarf til halda henni opinni. Lítils- háttar breytingar á húsinu gætu dregið úr þörfinni á mörgum starfsmönnum. Með því að loka 4. hæð safnsins á kvöldin væri hægt að spara heilt stöðugildi enda eru langflest lesborðin á 3. hæðinni. Þessar tillögur eru neyðarúrræði, enda markmið Stúdentaráðs að tryggja stúdentum áframhaldandi aðgang að safninu í núverandi mynd. Stúdentaráð hefur jafnframt gagnrýnt val Háskólans að verja 20 milljónum króna í skraut- grindur utan á Öskju í stað þess að setja þann pening í hlut sem nýtist stúdentum. Ráðinu hefur verið bent á að það sé skylda að leggja ákveðna prósentu af byggingarkostnaði opinberra bygginga í skraut. Ég leyfi mér að efast um að viðurlög við slíku broti séu hörð enda er Askja klædd dýrindis graníti, flutt alla leið frá Kína. Stúdentaráð leggur það til að Háskólaráð endurskoði ákvörðun sína um framlag til Landsbóka- safnsins, að menntamálaráðu- neytið leggi sitt af mörkum til að tryggja aðgengi stúdenta að bygg- ingunni og að forsvarsmenn Landsbókasafnsins taki tillögur Stúdentaráðs til skoðunar. Mætum í kvöld með bækurnar, tökum okkur stöðu og tryggjum aðgengi að bestu lesaðstöðu Há- skólans. ■ Opnunartíma Þjóðarbókhlöðunnar mótmælt JARÞRÚÐUR ÁSMUNDSDÓTTIR FORMAÐUR STÚDENTARÁÐS UMRÆÐAN ÞJÓÐARBÓKHLAÐAN INGUNN JÓNSDÓTTIR SKRIFAR UM MEGRUN OG LYSTARSTOL Það er sorglegt að sjá aðstandendur Femin falla í þá gryfju að senda svo tvöföld skilaboð. Annars vegar bendir blaðið á afleiðingar hinnar sífelldu pressu sem er á konur/stúlk- ur í dag og kemur m.a. fram í fjölgandi tilfellum átröskunar. Hins vegar flaggar blaðið allt of grönnum fyrirsætum, hvet- ur til megrunar og ýtir undir útlitsdýrkun. ,, Er þjóðnýting okkar æðsta ósk? SIGNÝ SIGURÐARDÓTTIR ÁHUGAMAÐUR UM ÞJÓÐFÉLAGSMÁL UMRÆÐAN KVÓTAKERFIÐ 22-35 (22-23) Umræðan 15.9.2004 15:20 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.