Fréttablaðið - 16.09.2004, Qupperneq 23
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 7
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 116 stk.
Keypt & selt 37 stk.
Þjónusta 38 stk.
Heilsa 12 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 11 stk.
Tómstundir & ferðir 4 stk.
Húsnæði 23 stk.
Atvinna 30 stk.
Tilkynningar 4 stk.
Græna aldan heldur áfram
BLS. 2
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagurinn
16. september,
260. dagur ársins 2004.
Reykjavík 6.54 13.22 19.49
Akureyri 6.37 13.07 19.36
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
„Stærsta vandamálið sem ég hef rekist á er
litaval á herbergið, vegna þess að þau eru af
sitthvoru kyninu,“ segir Linda Þorvaldsdótt-
ir, textílhönnuður og dagmamma, um her-
bergi barna sinna, Þorvaldar 4 ára og Unu 2
ára, sem þau deila. Linda segist hafa farið í
gegnum miklar vangaveltur hvort hún ætti
að mála einn vegg bleikan og annan bláan en
hafi svo endað á því að mála herbergið í hlut-
lausum lit. „Ég var mikið búin að pæla í
þessu, en sennilega verð ég bara að salta
þetta þar til þau eru í sitthvoru herberginu,“
segir Linda hlæjandi. Annars segir hún mik-
ilvægast að börnin hafi nægilegt rými fyrir
leik og því setji hún bara það allra nauðsyn-
legasta inn í herbergið. Hins vegar segir hún
það litlu skipta hversu stórt herbergið sé því
leikföngin rati alltaf út.
„Þau eru að fara í ferðalög og búðarferð-
ir um alla íbúð,“segir Linda og brosir. Við
skipulagningu á leikföngunum setti hún
hillu úr IKEA á einn vegginn og segir hana
vera algera snilld þar sem hægt er að raða
körfum í hana. „Hillan virðist taka enda-
laust við og þessar körfur eru frábærar og
góð leið til að láta allt líta vel út,“ segir
Linda.
Sambúð barnanna segir hún ganga ágæt-
lega og þau deili herberginu í blíðu og stríðu
í orðsins fyllstu merkingu. Eins og önnur
systkini rífist þau allan daginn en sakni
hvors annars mjög mikið þegar þau eru ekki
saman þó herbergið hafi sennilega lítið með
það að gera. „Ég er hins vegar á þeirri skoð-
un að betra sé fyrir börn að vera af sama
kyni ef þau deila, og það hefur svo sem ekk-
ert með litavalið að gera,“ segir Linda og
brosir.
kristineva@frettabladid.is
Sjá síðu 5
Tvö saman í herbergi:
Ferðalög og búðar-
ferðir um alla íbúð
ferdir@frettabladid.is
Réttastemningin er í algleymi
um land allt og dagana 18. og 19.
september verður mikið fjör í Aust-
ur-Húnavatnssýslu, þar sem fer
fram stóðsmölun í Laxárdal og réttir
í Skrapatungu-
rétt. Gestir eiga
þess kost að
slást í för með
gangnamönn-
um í eyðidaln-
um Laxárdal
og upplifa alvöru þjóðlegt ævintýri.
Þátttakendur geta leigt hesta hjá
heimamönnum eða mætt með sína
eigin hesta. Fyrir þá sem heldur vilja
koma á bíl til að fylgjast með
gangnamönnum og réttarstörfum,
er rétt að benda á að Skrapatungu-
rétt er í um 15 mínútna akstursfjar-
lægð frá Blönduósi en fram að
Kirkjuskarðsrétt er aksturstími um
40 mín. Laugardagskvöldið verður
haldið til grillveislu í reiðhöllinni við
Blönduós og partístemningin nær
svo hámarki á dansleik síðar um
kvöldið. Á sunnudagsmorgun hefj-
ast réttarhöld í Skrapatungurétt um
kl. 10. Upplýsingar og bókanir í
stóðsmölun, í síma 891 7863 eða í
netfangi haukur@anv.is
Heimsferðir bjóða nú einstakt
tækifæri til borgarinnar eilífu, í
beinu flugi þann 6. október frá
Íslandi til Rómar. Flogið er heim
10. október. Íslenskir farastjórar eru
Ólafur Gíslason, Halldóra Frið-
jónsdóttir og Arnbjörg María
Danielsen og munu þau leiða
ferðalanga um árþúsundamen-
ningu og andrúmsloft sem er ein-
stakt í heiminum. Skoðunarferðir
verða á Péturstorgið, í Péturs-
kirkjuna og Vatíkanið og meistara-
verk endurreisnartímans, barokk-
kirkjur og stórkostleg meistaraverk
Michelangelos skoðuð. Gengið
verður um torgin í Róm og fylgst
með litríku mannlífinu á Piazza
Novona og við hinn fræga Trevi-
brunn. Hægt er að velja um þriggja
og fjögurra stjörnu hótel í mið-
borginni.
Þorvaldur og Una deila saman herbergi í blíðu og stríðu.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
Í FERÐUM
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA NEYTENDUR o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Mamma,
hefur þú nokkuð
eignast barn?
Kolaport í heimahúsi
Vegna flutnings eru til sölu ýmsir hlut-
ir t.d. eitt par ítalskir drottningarstólar,
snyrtiborð, litlar og stórar styttur,
antikmunir og fl. Uppl. í s. 846 4878.
Til sölu mjög góð Hotpoint þvottavél
1200 snúninga ca. 4 ára. Uppl. í s.
699 5165.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
23 (01) Allt forsíða 15.9.2004 16:15 Page 1