Fréttablaðið - 16.09.2004, Side 25
FIMMTUDAGUR 16. september 2004
NÝBÝLAVEGUR 12,
KÓPAVOGUR
SÍMI 554 4433
Opnunartími virka daga
10-18
og laugardaga 10-16
Stakir jakkar
í mörgum gerðum
Föt
fyrir allar
konur
Fáðu flott
munnstykki
STÁLARMBÖND OG HLEKKIR
LÆKJARGATA 34C • HAFNARFIRÐI
Laugarvegi - Reykjavík
Dalshrauni - Hafnarfirði
Skólabraut - Akranesi
Hólmgarði - Reykjanesbær
Eddufelli 2,
s. 557 1730
Bæjarlind 6,
s. 554 7030
Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og lau. kl. 10-16T Í S K U V E R S L U N
NÝJAR PEYSUR
STR.S-XXL OG 42-56
Ljósir litir og kvenlegt yfirbragð
voru áberandi á tískuvikunni í
New York sem lauk í gær. Helstu
forkólfar tískuheimsins voru
saman komnir þar til að fylgjast
með því sem koma skal í tískunni
næsta sumar. Skærir litir eins og
gulur, bleikur og appelsínugulur
voru víða sjáanlegir. Sumarlína
Önna Sui var mjög í anda
hippakúrekastílsins sem greini-
lega heldur áfram í gegnum vet-
urinn og fram á sumar þegar
rómantíkinni verður blandað
meira með. Tjullpils, golftreyjur,
munstur og satín verður vinsælt,
glamúrinn helst inni og háir hæl-
ar, kjólar, hattar, klútar og djarf-
ar litasamsetningar setja svip á
næsta sumar.
Þessar sýningar voru bara
byrjunin á tískusýningum
haustsins. Á sunnudaginn hefst
tískuvikan í London og stendur
til 23. september. Parísartískan
fylgir í kjölfarið 4.-11. október. ■
Sumartískan 2005 kynnt í New York:
Kvenleiki og glamúr
Ný verslun með barnaföt og fatn-
að fyrir barnshafandi konur hefur
verið opnuð í Kirkjulundi 17 í
Garðabæ. Verslunin heitir Luka
og er í eigu ungu hjónanna Örvars
og Hörpu. Verslunin var áður net-
verslun og áfram er hægt að nálg-
ast vörurnar á netinu.
„Við sérhæfum okkur í fatnaði
á 0-24 mánaða og erum þar að
auki með afar fallegan fatnað
fyrir barnshafandi konur. Við
erum líka með mikið af barnavör-
um eins og leikföng, baðvörur og
margt fallegt til sængurgjafa. Þar
má nefna Colorique-línuna sem
samanstendur aðallega úr
textílefnum sem eru skreytt með
ýmsum aukahlutum. Vörurnar
eru hollensk hönnun og fram-
leiddar á Indlandi,“ segir Ívar.
„Colorique notar einungis há-
gæðaefni eins og silki, flauel,
jacquard, hörefni og bómul í
textílvörurnar og við litun á efn-
unum eru bara notuð umhverfis-
væn litarefni.“
Ívar segir framleiðendur var-
anna hjá Luka eiga það sameigin-
legt að framleiða gæðavörur sem
njóta mikilla vinsælda í Evrópu
og víðar.
„Markmið Luka er að bjóða
gæðavörur fyrir móður og barn.
Við leggjum mikla áherslu á gæði
vara okkar og að þjónusta við-
skiptavinunum vel. Ætlun okkar
er einnig að koma með ýmsar nýj-
ungar á barnavörumarkaðinn á Ís-
landi.
Vörumerki okkar eru frá
Hollandi, Belgíu, Frakklandi og
síðar í haust einnig frá Svíþjóð.“ ■
Í versluninni Luka í Garðabæ er boðið
upp á fallegan klæðnað fyrir þungaðar
konur auk barnafatnaðar og gjafavöru.
Ný verslun í Garðabæ:
Fatnaður og gjafavara fyrir ung börn
Rómantískt frá Önnu Sui. Hippalegur kúrekastíll frá Önnu Sui. Kvenlegt og rómantískt frá Oscar de la
Renta.
Sjötti áratugurinn svífur yfir vötnum í
þessu dressi frá Michael Kors.
Kvenlegt frá Carmen Marc Valvo.
Gulur verður áberandi næsta sumar.
Kjóll frá Betsey Johnson.
Einfalt að hætti Marc Jacobs.
Bleikar blúndur frá
Betsey Johnson.
Á FÖSTUDÖGUM
Auglýsingasíminn
er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins -
24-25 (02-03) Allt tíska 15.9.2004 16:08 Page 3