Fréttablaðið - 16.09.2004, Síða 26
Lampar í herbergi eða stofu eru tilvalin leið til að milda birtu á heimilinu. Hægt er að koma þeim
fyrir hvar sem er, á borði, gólfi eða í hillu eða þar sem sérstakrar birtu er þörf. Styrk á ljósaperu skal
velja eftir því hvaða hlutverki lampinn á að gegna, hvort sem hann eigi að lýsa til við lestur eða gefa
mjúka birtu ásamt kertaljósi. Auk þessa eru fallegir lampar mikil prýði á hverju heimili.
Skeifan 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200
www.babysam.is
Hjá okkur fáið þið falleg rimlarúm í úrvali fyrir börnin.
RIMLARÚM Í ÚRVALI
ÍBÚÐARHÚS - FRÍSTUNDAHÚS
BYGGÐ ÚR NORSKUM KJÖRVIÐI - NÁTTÚRUVÆN FÚAVÖRN
RC-Hús ehf. Grensásveg 22, Reykjavík - Sími 5115550 netfang r
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
LISTASMIÐJAN
KERMIK OG GLERGALLERÝ
Kothúsum, Garði , s: 422-7935
Opið alla daga: Mánudaga- föstudaga 10-18
Laugardaga og sunnudaga 13-18
Námskeið að hefjast í glerbræðslu og
keramikmálun. Einnig fyrir hópa
Það getur verið stórskemmtilegt
að innrétta barnaherbergi enda er
þar tækifæri til að láta ímynd-
uraflið njóta sín. Steinunn Jóns-
dóttir innanhússarkitekt segir að
fyrstu skrefin við að skipuleggja
herbergi séu þau sömu og þegar
um önnur herbergi er að ræða. Í
fyrsta lagi sé það skipulagning
þar sem leitast er við að nýta rým-
ið sem best. Mikilvægt sé að velja
húsgögn sem falla vel að rýminu
og með tilliti til þess að nota þau.
Rúmið má til dæmis ekki vera það
fínt að ekki megi leika í því og
skrifborð þarf að nýtast í fleira en
bara heimalærdóminn. Í öðru lagi
þarf að huga að litavali og lýs-
ingu, sem skiptir miklu máli hvað
varðar stemninguna í herberginu.
Steinunn segir að varast skuli að
hafa mikið af sterkum litasam-
setningum, velja frekar milda og
fallega liti án þess þó að draga úr
líflegheitum herbergisins.
Lýsing er gífurlega mikilvæg
og er atriði sem er oft ekki nægi-
lega sinnt að mati Steinunnar. Oft
sé staðan sú að eitt ljós sé sett í
loftið og látið nægja en sú birta
nýtist ekki nægilega vel. Að sjálf-
sögðu þarf að vera gott ljós í loft-
inu en á náttborði og við skrifborð
þarf að hafa sérstakt ljós. Ef
kveikt er aðeins á lömpum og loft-
ljósið slökkt getur það breytt leik-
herbergi í svefnherbergi á svip-
stundu. ■
„Við vildum fyrst og fremst hafa
herbergið kósí,“ segir Helena Kr.
Hrafnkelsdóttir hárgreiðslu-
meistari um herbergi barna sinna,
þeirra Hrafnkels og Agnesar.
Upphaflega var herbergið inn-
réttað fyrir Hrafnkel einan
þannig að herbergið hefur á sér
strákslegan brag sem er senni-
lega sökum þess að á veggjunum
er blátt veggfóður. „Veggfóðrið er
svo fallegt að ekki þarf neitt
meira á veggina, auk þess sem
loftið kemur í boga og lítið rými
fyrir veggskraut nema fyrir ofan
rúmið. Og ég er alveg á móti því
að setja eitthvað fyrir ofan rúmið
því í jarðskjálftum getur það allt
hrunið niður,“ segir Helena en
veggfóðrið fékk hún í Vefnum í
Garðabæ. Húsgögnin eru úr Ikea
og valdi Helena sérstaklega stíl-
hrein og falleg húsgögn sem geta
vaxið með börnunum, og er rúm
Hrafnkels stækkanlegt.
„Við tókum þá ákvörðun að
setja ekki fataskáp í herbergið því
það hefði minnkað það svo mikið,“
segir Helena, sem er þeirrar skoð-
unar að ekki megi setja of mikið
inn í herbergi barnanna því þá
verði það ekki nægilega notalegt.
„Það er líka mjög sniðugt að vera
með nokkra lokaða kassa utan um
leikföngin svo ekki sé allt úti um
allt,“ segir Helena.
kristineva@frettabladid.is
Skemmtilegir snagar lífga upp á barnaherbergið.
Barnaherbergi innréttað:
Nýta rýmið sem best
Krítartöflumálning:
Krotað á veggina
Börn eru gjörn á
að teikna á vegg-
ina heima hjá sér
við lítinn fögnuð
foreldra sinna.
Skemmtileg
lausn á því
vandamáli er að verða sér út um
sérstaka krítartöflumálningu sem
hægt er að blanda í öllum litum
og fæst meðal annars í Húsa-
smiðjunni. Hægt er að mála heilu
veggina með málningunni eða
hurðir svo úr verði krítartöflur á
þeim stöðum sem börnin eru lík-
legust til að krota á. Börnin geta
verið vanin á að skrifa aðeins á
þetta tiltekna svæði og getur öll
fjölskyldan skemmt sér við að búa
til heilu listaverkin á veggina, og
þvegið þau svo auðveldlega af
með rökum svampi. ■
Ratljós:
Vísar veginn
á nóttunni
Í versluninni Glóey í Ármúlanum
er hægt að fá lítil 1,5 watta ljós
sem stungið er beint í innstungu.
Dauf birta kemur af ljósinu sem
getur veitt litlu hjarta huggun ef
vaknað er um miðja nótt, auk
þess sem ljósið nýtist vel sem rat-
ljós ef því er komið fyrir niður við
gólf eða nálægt hurð. Hægt er að
koma öðru ljósi fyrir inn á baðher-
bergi ef þörf er á klósettferð eða
við herbergi mömmu og pabba er
leiðin liggur þangað. ■
Einstaklega stílhreint og hlýlegt herbergi þar sem börnunum líður vel.
Innlit:
Stílhreint en hlýlegt
Leikföngin eru skipulögð í lokaða kassa
og staflað upp.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
IN
AR
Ó
LA
SO
N
Gardínurnar eru látnar koma aðeins frá
glugganum svo hann fái að njóta sín
vel, auk þess sem efnis- og litaval á
gardínunum dregur ekki athygli frá
sjálfum glugganum.
26-27 (4-5) Allt heimili 15.9.2004 16:12 Page 2