Fréttablaðið - 16.09.2004, Page 27
5FIMMTUDAGUR 16. september 2004
Heilnæm næring fyrir
andlit og hendur
Dag og næturkrem - Pura Soft Q-10
Húðin þarf næringu, raka og vernd. Öldrunarhemillinn Q-10 ásamt E-vítamíni,
völdum jurtaolíum og jurtaupplausnum úr lífrænni ræktun sameinast um að
vernda húðina gegn ótímabærri öldrun. Kremið rakamettar húðina, verndar
hana fyrir rakatapi og fyrirbyggir þannig hrukkumyndun.
Hand Balm
Hand Balm er einstaklega nærandi handkrem sem hverfur vel inn í húðina
og hvorki smitar né klístrar. Í því eru nærandi jurtaolíur og jurtaupplausnir úr
m.a. kamillu, morgunfrú, jónsmessurunna og nornahesli auk fleiri jurta.
Með Pura Soft Q-10
andlitskremi fylgir
Hand Balm frítt
í kaupbæti!
li i l i
l í
í i
Mikið dót
Tveimur börnum fylgir mikið dót.
Mikilvægt er því að skipuleggja vel
dótið í herbergi Þorvaldar og Unu.
Hér að neðan eru myndir teknar í
herberginu þeirra sem sagt er frá
á forsíðunni.
kristineva@frettabladid.is
[ TVÖ Í HERBERGI ]
Verslunin Eirvík á Suðurlands-
braut hefur verið stækkuð veru-
lega. Tilefni framkvæmdanna
er tíu ára afmæli sem fagnað
var á dögunum. „Trésmiðjan
Borg leigir nú hluta af verslun-
inni og nú bjóðum við innrétt-
ingar frá þýska fyrirtækinu
Miele,“ segir Albert Lúðvígsson
verslunarstjóri. „Þetta er í
fyrsta skipti sem boðið er upp á
innréttingar frá þessu fyrirtæki
á Íslandi.“
Eirvík sérhæfir sig í eldhús-
tækjum en fyrir utan Miele er
verslunin t.d. með vörur frá
ítalska fyrirtækinu Smeg. „Við
erum alltaf að taka inn fleiri
merki,“ segir Albert. ■
Albert Lúðvígsson, verslunarstjóri
Eirvíkur, ánægður í stærra húsnæði.
Í matarmenningarríkjum þykir það nánast dóna-
skapur að bera fram heitar veitingar í eða á
köldum borðbúnaði. Kaffi er þar engin und-
antekning enda ótækt að láta rjúkandi eðal-
kaffi með flóuðum mjólkurdropa kólna í
ísköldum bolla. Í umbúnaði þessarar ofur-
kaffikönnu sem hönnuð er af Masato
Yamamoto fyrir Bodum er gert ráð fyrir
því að hita expressóbollana með því
að setja grind ofan á kaffikönnuna
og láta bollana hitna á henni á
meðan kaffið er hitað. Kannan heit-
ir Granos Luxus Expressovél, fæst í
Bodum í Húsgagnahöllinni og
kostar 69.980 kr. ■
Bodum í Húsgagnahöllinni:
Hlýleg expressóvél
Hitar bollana líka.
Verslunin Eirvík 10 ára:
Nýjungar í stærri búð
26-27 (4-5) Allt heimili 15.9.2004 16:11 Page 3